Vestfirðir Archives - Sagatrail
Fantastic Fjords ferðaskrifstofa
Staðbundin ferðaþjónusta í hjarta Ísafjarðar
Fantastic Fjords er ferðaskrifstofa á Ísafirði sem byggir á áralangri reynslu úr ferða- og þjónustugeiranum bæði í Reykjavík og New York. Fyrirtækið sem stofnað var árið 2016 leggur áherslu á að bjóða ferðir með áherslu á matarupplifanir, sögu og menningu, og tengsl við nærsamfélagið.
Ferðalög með matarmenningarlegum blæ
Fantastic Fjords sérhæfir sig í svokölluðum mjúkum ferðalögum (e. soft travel) þar sem upplifun, rólegur ferðahraði og staðbundin tenging eru í forgrunni. Þannig er matarmenning, söguleg innsýn og samskipti við heimamenn hluti af hverri ferð, sem gerir upplifunina bæði persónulega og eftirminnilega.
Sérsniðin ferð fyrir hvern og einn
Hver ferð er sérsniðin að þörfum og áhuga hvers viðskiptavinar með áherslu á persónulega þjónustu og óvæntar uppákomur sem oftar en ekki vantar í hefðbundin ferðalög.
Óvæntar upplifanir á óvæntum stöðum
Markmið Fantastic Fjords er að skapa einstakar upplifanir á stöðum sem koma gestum á óvart. Hvort sem ferðast er eingöngu um Vestfirði eða ferðinni er blandað saman við aðra landshluta, þá tryggjum að hver gestur fari heim með með ógleymanlegar minningar.
Hafðu samband
Fyrir frekari upplýsingar um ferðir og sérsniðin tilboð, skoðaðu Fantastic Fjords og hafðu samband til að hefja skipulagningu á þinni einstöku ferð.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á Ísafirði og á norðanverðum Vestfjörðum:
Skoðaðu Byggðasafn Vestfjarða í Neðstakaupstað á Ísafirði og lærðu meira um sögu svæðisins.
Skoðaðu útsýnið af nýjum útsýnispalli á Bolafjalli, ef þú þorir!
Skrafaðu við vermann frá fornri tíð í Sjóminjasafninu í Ósvör.
Kynntu þér fyrsta landnema Íslands í Melrakkasetrinu í Súðavík.
Farðu í sjóstangveiði og veiddu í soðið.
Sigldu til Hornstranda eða út í eyjuna Vigur á Ísafjarðardjúpi.
Skoðaðu gömlu Vélsmiðjuna á Þingeyri frá 1913 þar sem allar vélar virka enn.
Skoðaðu lystigarðinn Skrúð í Dýrafirði, sem aðrir skrúðgarðar á Íslandi draga nafn sitt af.
Leggðu upp í kajak-leiðangur framhjá söguslóðum, selum og fuglum.
Gakktu upp með Dynjanda, frægasta fossi Vestfjarða.
Nánari upplýsingar á www.westfjords.is
The post Fantastic Fjords ferðaskrifstofa appeared first on Sagatrail.
Skrímslasetrið á Bíldudal
Í Skrímslasetrinu á Bíldudal er haldið utan um skrímslasögur Vestfjarða sem lifað hafa með þjóðinni í gegnum aldirnar.
Sagt er frá viðureignum manna og skrímsla á nýstárlegan og spennandi hátt. Skemmtileg umgjörð sýningarinnar hefur vakið hrifningu gesta og komið skemmtilega á óvart.
Skrímsli við Íslandsstrendur og Vestfirði
Fjöldi skrímsla við Íslandsstrendur hefur sést í gegnum aldirnar og síðustu tvö hundruð ár hafa þau verið algengust í kringum Vestfirði. Þess vegna lá beinast við að setja upp Skrímslasetur á Bíldudal. Fjögur höfuðskrímsli eru þekktust og hafa þau öll sést í Arnarfirði: Fjörulalli, Faxi, Skeljaskrímsli og Hafmaður.
Fjörulalli – algengasta skrímslið á Bíldudal
Fjörulallinn er algengastur og eru til fjöldi sagna um viðureignir manna við hann. Í Skrímslasetrinu eru skjalfestar 36 frásagnir um Fjörulalla.
Hann er á stærð við hest, loðinn og grábrúnn að lit með langa trjónu. Fjörulallinn reynir að læðast upp fyrir fólk í fjörunni og þröngva þeim niður í sjóinn. Hann hefur oft sést á fjörubeit með kindum og sögur eru til úr Breiðafirði um að hann reyni að fara upp á kindurnar. Seinast sást til Fjörulalla sumarið 2014.
Skeljaskrímslið í Arnarfirði
Skeljaskrímslið er sagt kubbslegt, höfuðstórt og kjaftmikið ferlíki, líkt flóðhesti en miklu stærra. Það er þakið skeljum og hringlar í þeim þegar það gengur á land. Sjónarvottar hafa lýst því sem risaeðlu að stærð. Skeljaskrímslið sást síðast árið 1951 frá nokkrum bæjum í Arnarfirði.
Faxaskrímsli – rauðfext skrímsli með græn augu
Faxaskrímsli, einnig kallað Marhross eða Faxi, er rauðfext stórskrímsli með áberandi græn augu. Það líkist drekum úr kínverskri list og hefur oft sést í Arnarfirði. Sjómenn töldu það hættulegt og í dag er talið að það lifi helst á kúfskel og öðrum skelfiski. Faxaskrímsli sást síðast í Geirþjófsfirði vorið 2010.
Hafmaðurinn – ógnvænlegt skrímsli Íslands
Hafmaðurinn er sagður það ljótasta kvikindi sem nokkur maður getur augum litið. Hann kemur sjaldan upp á land en þá gengur hann á tveimur fótum og dregur þungan magann eftir jörðinni. Hann er með stuttar hendur með langar klær og andlit sem er lítið annað en kjaftur og augu. Sagt er að menn hafi orðið vitstola af því einu að horfa framan í Hafmanninn. Hafmaðurinn sást síðast fyrir um 150 árum.
Þú getur séð öll þessi hræðilegu skrímsli á Skrímslasetrinu á Bíldudal. Hér á vef Skrímslasetursins má finna meiri upplýsingar um skrímslin ógurlegu.
Skrímslasetrið er hluti af Vestfjarðaleiðinni. Sjá nánar á vef Vestfjarðarleiðarinnar.
Við mælum með að þið heimsækið líka félaga okkar á Minjasafninu á Hnjóti.
The post Skrímslasetrið á Bíldudal appeared first on Sagatrail.
Sjóminjasafnið Ósvör
Lifandi minning um sjósókn í Bolungarvík
Sjóminjasafnið Ósvör stendur austast við Bolungarvík og er eitt helsta menningarafl svæðisins. Safnið endurskapar aðbúnað og líf vertíðarfólks á 19. öld og gefur gestum einstaka innsýn í sögu íslenskrar sjósóknar.
Verbúð, salthús og fiskreit
Safnið samanstendur af tvöfaldri verbúð frá 19. öld, salthúsi, fiskreit og þurrkhjalla. Þessar byggingar sýna hvernig sjómenn og vertíðarfólk bjuggu og störfuðu á árum áður.
Áraskipið Ölver og veiðarfæri
Á meðal sýningagripa er sexæringurinn Ölver, sem gefur lifandi mynd af þeim skipum sem notuð voru til fiskveiða fyrr á öldum. Auk þess má sjá fjölbreytt veiðarfæri og tæki og tól sem nýtt voru við sjósókn og fiskvinnslu á vetrarvertíð á 19. öld.
Lifandi upplifun með safnverði
Safnvörðurinn tekur á móti gestum íklæddur skinnklæðum, líkum þeim sem íslenskir sjómenn klæddust áður fyrr. Hann leiðir gesti í gegnum safnið og lýsir því sem fyrir augu ber, sem gerir heimsóknina bæði raunhæfa og lifandi.
Heimsókn í Sjóminjasafnið í Ósvör
Sjóminjasafnið í Ósvör er einstakur áfangastaður á Vestfjörðum fyrir öll þau sem vilja kynnast sögu sjómennsku og sjá hvernig vertíðarfólk lifði og starfaði. Safnið er opið gestum yfir sumartímann og býður upp á ógleymanlega upplifun í hjarta Bolungarvíkur.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á norðanverðum Vestfjörðum:
Skoðaðu útsýnið af nýjum útsýnispalli á Bolafjalli, ef þú þorir!
Heimsæktu Byggðasafn Vestfjarða á Ísafirði og fræðstu um sögu svæðisins.
Farðu í gönguferð um gamla bæinn á Ísafirði með Ísafjörður Guide og fræðstu um sögu húsanna og fólksins sem þar bjó.
Farðu í sjóstangveiði og veiddu í soðið.
Kynntu þér fyrsta landnema Íslands í Melrakkasetrinu í Súðavík.
Sigldu til Hornstranda eða út í eyjuna Vigur á Ísafjarðardjúpi.
Skoðaðu Gömlu smiðjuna á Þingeyri frá 1913 þar sem allar vélar virka enn.
Skoðaðu listigarðinn Skrúð í Dýrafirði, sem aðrir skrúðgarðar á Íslandi draga nafn sitt af.
Leggðu upp í kajak-leiðangur framhjá söguslóðum, selum og fuglum.
Gakktu upp með Dynjanda, frægasta fossi Vestfjarða.
Nánari upplýsingar á www.westfjords.is
The post Sjóminjasafnið Ósvör appeared first on Sagatrail.
Litlibær í Skötufirði
Sögulegt torfhús
Litlibær í Skötufirði er sögulegt torfhús frá 1895, enduruppgert og opið gestum með kaffihúsi, kökum og rjómavöfflum. Þetta litla hús er eitt af fallegustu kennileitum Vestfjarða og dregur að sér bæði ferðamenn og heimamenn sem vilja upplifa sögu og menningu svæðisins.
Bygging og búseta
Litlibær var reistur af tveimur fjölskyldum sem bjuggu sitt í hvorum hluta hússins. Þverveggur skildi hluta þeirra að. Húsið er úr timbri með steinhlöðnum veggjum og torfþaki. Túnið er afmarkað af vönduðum steinhlöðnum garði sem spannar um þrjá hektara.
Líf í Litlabæ
Á sínum tíma bjuggu þar allt að tuttugu manns. Grunnflötur hússins er aðeins 3,9 × 7,4 metrar sem sýnir vel þröngan en samheldinn lífsstíl íbúanna. Portbyggt loftherbergi var yfir jarðhæð og tvö útieldhús stóðu skammt frá íbúðarhúsinu.
Endurreisn og kaffihús
Ábúendur lifðu af gjöfulum fiskimiðum Skötufjarðar og nýttu landið til búskapar. Búið var í Litlabæ fram til ársins 1969. Húsið var enduruppgert og opnað fyrir gestum árið 2013. Í dag er þar fjölskyldurekið kaffihús sem gleður gesti með kökum, rjómavöfflum og hlýlegri stemningu.
Saga og arfleifð
Saga Litlabæjar sýnir hvernig samheldni og vinnusemi gerði fólki kleift að lifa og dafna í harðbýlu landi. Við mælum með að þið kíkið á vef Litlabæjar og vef Þjóðminjasafnsins til að læra meira um sögu staðarins.
The post Litlibær í Skötufirði appeared first on Sagatrail.
Minjasafn Egils Ólafssonar að Hnjóti
Saga og stofnun safnsins
Egill Ólafsson hóf ungur að safna munum sem tengdust lífi og starfi á Vestfjörðum. Með elju og framsýni byggði hann ásamt konu sinni, Ragnheiði Magnúsdóttur, upp safnið sem síðar var gefið sveitarfélögunum í Vestur‑Barðastrandarsýslu.
Árabátar og sjósókn
Á Minjasafni Egils Ólafssonar er fjöldi muna sem tengjast árabátaútgerð og fyrstu árum vélvæðingar í sjávarútvegi. Sumir gripanna eru einstakir og aðeins varðveittir á Hnjóti. Teikningar Bjarna Jónssonar listmálara af horfnum atvinnuháttum hjálpa gestum að skilja horfinn tíma.
Björgunarafrekið við Látrabjarg
Sérstök sýning segir frá björgunarafrekinu við Látrabjarg árið 1947, þegar íslenskir sjómenn björguðu áhafnarmönnum skipa í miklum vanda.
Þar má einnig sjá hattinn hans Gísla á Uppsölum.
Þjónusta og opnunartími
Safnið býður upp á kaffiteríu, minjagripaverslun og svæðisupplýsingamiðstöð. Það er opið daglega frá 1. maí til 30. september kl. 10–18, en hægt er að hafa samband ef óskað er eftir heimsókn utan opnunartíma  með því að senda tölvupóst til Minjasafns Egils Ólafssonar eða hringja í síma 456‑1511. Safnið er ekki með eigin vef sem stendur en hann er í vinnslu undir veffanginu www.hnjotur.is.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á Vestfjörðum (frá Barðaströnd að Önundarfirði)
Farðu út að Látrabjargi, mesta fuglabjargi á Íslandi. Það lætur engan ósnortinn.
Skrepptu yfir á Rauðasand og skoðaðu einstaka ljósa sandströndina þar.
Farðu um friðlandið í Vatnsfirði á Barðaströnd þar sem fegurðin er við hvert fótmál.
Heimsæktu Skrímslasetrið á Bíldudal, þó það sé aðeins fyrir þau hugrökku.
Skoðaðu listasafn Samúels Jónssonar (1884–1969) í Selárdal við Arnarfjörð; hann var oft kallaður „listamaðurinn með barnshjartað“.
Gakktu upp með Dynjanda, frægasta fossi Vestfjarða.
Heimsæktu Hrafnseyri, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar.
Skoðaðu Gömlu smiðjuna á Þingeyri frá 1913 þar sem allar vélar virka enn.
Leggðu leið þína í lystigarðinn Skrúð í Dýrafirði, sem aðrir skrúðgarðar á Íslandi draga nafn sitt af.
Heimsæktu Gömlu bókabúðina á Flateyri þar sem kennir ýmissa grasa.
Nánari upplýsingar á www.westfjords.is
The post Minjasafn Egils Ólafssonar að Hnjóti appeared first on Sagatrail.
Sauðfjársetur á Ströndum
Sauðfjársetur á Ströndum er lifandi safn og menningarmiðstöð í Sævangi við Steingrímsfjörð, stofnað árið 2002. Safnið er staðsett 12 km sunnan Hólmavíkur og býður upp á fjölbreytta afþreyingu fyrir alla fjölskylduna.
Fastasýningin Sauðfé og sveitafólk á Ströndum
Í Sauðfjársetri á Ströndum er fastasýningin Sauðfé og sveitafólk á Ströndum sem fjallar um sauðfjárbúskap frá öllum mögulegum og ómögulegum hliðum. Þar er fjallað um sauðburð, heyskap, jarðvinnslu, túnrækt, sauðfjársjúkdóma, mörk og eyrnamerki, afurðir, sláturtíð, smalamennsku, réttir, ullarvinnslu, fjárhús og hættur sem steðja að sauðkindinni.
Sýningar og menningarstarf
Sauðfjársetur á Ströndum heldur jafnan fjórar sögu- eða listsýningar í einu. Auk fastasýningarinnar eru þrjár tímabundnar sérsýningar sem standa yfir í 1–2 ár. Safnið vinnur einnig að margvíslegum menningarverkefnum og viðburðum allt árið.
Kaffi Kind og handverk
Í Sævangi er starfrækt kaffistofan Kaffi Kind þar sem boðið er upp á heimabakað bakkelsi, súpur, ís frá Erpsstöðum og fleira góðgæti. Í Sauðfjársetri á Ströndum er einnig lítil handverks- og minjagripabúð þar sem gestir geta keypt minningar og gjafir.
Hópar og samkomur
Sauðfjársetur á Ströndum tekur á móti hópum og er auðvelt að leigja Sævang undir fundi, veislur, námskeið eða aðrar samkomur, jafnt sumar sem vetur. Safnið er vinsæll áfangastaður fyrir bæði ferðamenn og íbúa á Ströndum.
Umhverfi og útivist
Umhverfið í kringum Sauðfjársetur á Ströndum er tilvalið til gönguferða og útivistar. Yfir sumarið liggja æðarkollur á hreiðrum sínum á Orrustutanga og í fjörunni er fjölbreytt fuglalíf. Þar er göngustígurinn Sjávarslóð, stutt er í merkta gönguleið um Kirkjubólsfjall og á svæðinu er athafnasvæði Náttúrubarnaskólans sem er rekinn í tengslum við safnið.
Opnunartími
Sauðfjársetur á Ströndum er opið daglega frá 1. júní til 31. ágúst kl. 10–18. Opið er eftir samkomulagi á veturna.
Á safninu eru haldnir reglulegir viðburðir sjá nánar á vef safnsins.
The post Sauðfjársetur á Ströndum appeared first on Sagatrail.
Galdrasýningin á Hólmavík
Galdrasýningin á Hólmavík – galdrafár, þjóðtrú og menning á Ströndum
Á Galdrasýningunni í Hólmavík er dregin upp mynd af myrkri öld í Íslandssögunni. Þar er saga galdrafársins á 17. öld fléttuð saman við þjóðtrú og menningararf sem lifði áfram í hugum fólks. Yfir 200 mál komu upp á Íslandi á þessum tíma og 21 einstaklingur var dæmdur til dauða fyrir galdra. Sýningin varpar ljósi á þessa dramatísku sögu og sýnir hvernig íslenskur galdur var ólíkur því sem þekktist annars staðar í Evrópu.
Hvað er á sýningunni?
Gestir fá að sjá afrit af galdraskræðum, galdrastafi og gripum sem tengdust málunum. Á efri hæð er fjallað um kærendur og dómarana sem stóðu að málunum, auk þess sem sagt er frá merkustu galdramálunum. Sýningin er lifandi frásögn af því hvernig fólk ímyndaði sér að hægt væri að nýta yfirnáttúrulega krafta til að hafa áhrif á daglegt líf.
Staðsetning og aðgengi
Galdrasýningin er í svörtu húsi við höfnina í gamla hluta Hólmavíkur, að Höfðagötu 8–10. Bílastæði eru næg og eitt stæði er beint við innganginn fyrir fatlaða. Aðgengi er gott á neðri hæð, þar sem stærsti hluti sýningarinnar og veitingastaðurinn eru, en því miður ekki á efri hæð. Gestir í hjólastól fá ókeypis aðgang.
Veitingastaðurinn Galdur
Í sama húsi er veitingastaðurinn Galdur þar sem boðið er upp á ljúffenga rétti úr hráefni úr nærumhverfinu. Á matseðlinum eru einnig grænmetisréttir. Þar má fá nýlagað kaffi og bakkelsi og njóta hlýlegrar stemningar.
Safnbúð og minjagripir
Í safnbúðinni er fjölbreytt úrval bóka um galdra, rúnir og þjóðsögur. Þar má einnig finna minjagripi innblásna af galdrastöfum sem hægt er að kaupa á staðnum eða panta í vefverslun. Þetta er kjörinn staður til að taka með sér minningu úr heimsókninni.
Galdratúnið og viðburðir
Við safnið er grasvöllur þar sem gestir geta notið friðsældar og útsýnis yfir höfnina. Þar hafa verið haldnir fjölbreyttir viðburðir, meðal annars Galdraleikar sem byggja á hugmyndum úr Harry Potter bókunum. Á túninu stendur einnig stytta af Klemusi Bjarnasyni, síðasta manni sem fékk brennudóm fyrir galdra á Íslandi, en dómnum var síðar breytt í útlegð. Verkið er eftir Arngrím Sigurðsson og minnir á söguna sem sýningin endurspeglar.
Upplifðu Galdrasýninguna
Galdrasýningin á Hólmavík er einstök ferðaupplifun þar sem saga, þjóðtrú og menning mætast. Komdu og kynnstu galdrafárinu, skoðaðu galdrastafi og njóttu veitinga á veitingastaðnum Galdur. Þetta er upplifun sem sameinar fróðleik, stemningu og menningararf í hjarta Strandanna.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á Hólmavík, Ströndum og nágrenni
Farðu í hvalaskoðun frá Hólmavík með Láki Tours.
Skeltu þér í bað í sundlauginni á Hólmavík eða í Drangsnesi.
Heimsæktu Sauðfjársetrið á Sævangi og fáðu fræðslu um mikilvægi sauðkindarinnar og sérstöðu Strandafjárins.
Skoðaðu Kotbýli Kuklarans og baðaðu þig svo í sundlauginni að Laugahóli í Bjarnarfirði.
Heimsæktu Drangsnes og farðu í bátsferð út í Grímsey á Steingrímsfirði þar sem m.a. er mikil lundabyggð.
Gerðu þér ferð norður í Árneshrepp á Ströndum og kynnstu síldarsögunni á Djúpuvík og Ingólfsfirði, skoðaðu Hvalárfoss í Ófeigsfirði og hina frábæru Krossneslaug.
Renndu yfir Steingrímsfjarðarheiði og heimsæktu Heydal í Mjóafirði, Reykjalaug eða farðu út Snæfjallaströndina og skoðaðu sýningu um skáldið Stein Steinarr.
Skoðaðu hlunnindasafnið á Reykhólum og baðaðu þig í þara í Sjávarsmiðjunni.
Skrepptu yfir að Ólafsdal í Gilsfirði, hvar fyrsti búnaðarskóli á Íslandi var stofnaður árið 1880, þar sem mikil uppbygging á sér stað. Skoðaðu landnámsskálann sem þar fannst árið 2017.
Í Dölunum er einnig spennandi að heimsækja dýragarðinn á Hólum í Hvammssveit, Vínlandssetrið í Búðardal og Eiríksstaði í Haukadal.
Nánari upplýsingar og hugmyndir á westfjords.is og visitdalir.is
The post Galdrasýningin á Hólmavík appeared first on Sagatrail.
Melrakkasetur Íslands
Fræðasetur helgað eina upprunalega landspendýri Íslands
Melrakkasetur Íslands í Súðavík er fræðasetur sem helgað er íslenska refnum, sem einnig er kallaður melrakki eða tófa, eina upprunalega landspendýrinu á Íslandi. Setrið er til húsa í gamla Eyrardalsbænum og var opnað árið 2010. Markmið þess er að safna saman á einn stað allri þekkingu, efni og hlutum sem tengjast refnum í fortíð og nútíð.
Sýningar um náttúrulíf, sögu og rannsóknir
Á Melrakkasetrinu er fræðandi sýning sem fjallar um líf refsins í íslenskri náttúru, hegðun hans, búsvæði og hlutverk í vistkerfinu. Gestir geta skoðað lifandi myndefni, uppstoppuð dýr og fræðsluefni sem sett er fram með aðstoð nútímatækni og hefðbundinna sýningarmáta.
Sýningin fjallar einnig um sögu refaræktar og refaveiða á Íslandi og geymir safn minja og muna sem tengjast þessum þáttum í sögu Íslands. Þar má sjá verkfæri, búnað og frásagnir sem varpa ljósi á samskipti manns og melrakkans í gegnum aldirnar.
Melrakkasetur Íslands tekur þátt í rannsóknum á líffræði refsins og stuðlar að þróun sjálfbærrar náttúrulífsferðamennsku. Setrið vinnur að því að efla skilning á tegundinni bæði innanlands og erlendis og miðlar fróðleik í máli og myndum.
Heimsókn í Melrakkasetur Íslands
Melrakkasetur Íslands er staðsett í Eyrardalsbænum í Súðavík, mitt á milli gömlu og nýju byggðarinnar. Í húsinu er einnig kaffihús og minjagripasala þar sem gestir geta notið veitinga og keypt minningar um heimsóknina.
Melrakkasetur Íslands er lifandi fræðslustaður þar sem náttúra, saga og vísindi mætast og býður gestum að kynnast einu merkasta dýri íslenskrar náttúru á nærfærinn og fróðlegan hátt.
Afþreying og upplifanir á norðanverðum Vestfjörðum
Norðanverðir Vestfirðir bjóða upp á einstaka náttúru, sögu og sjósamfélög. Hér eru tíu hugmyndir að afþreyingu sem má tengja heimsókn í Melrakkasetur Íslands og ferðalög um Vestfirði.
Heimsæktu Litlabæ í Skötufirði, skoðaðu merkilegar hleðslur þar og gæddu þér á gómsætri rjómavöfflu.
Skoðaðu Byggðasafn Vestfjarða – Sagatrail í Neðstakaupstað á Ísafirði og lærðu meira um sögu svæðisins.
Farðu í gönguferð um gamla bæinn á Ísafirði með leiðsögn og fræddu þig um sögu húsanna og fólksins sem þar bjó.
Prófaðu sjóstangveiði og veiddu í soðið í fallegu umhverfi Vestfjarða.
Skoðaðu útsýnið af útsýnispallinum á Bolafjalli, ef þú þorir að stíga út á brúnina!
Skrafaðu við „vermann“ frá fornri tíð í Sjóminjasafninu í Ósvör við Bolungarvík.
Sigldu til Hornstranda eða út í eyjuna Vigur á Ísafjarðardjúpi og upplifðu fugla- og selalíf.
Skoðaðu gömlu smiðjuna á Þingeyri frá 1913 þar sem allar helstu vélar og verkfæri eru enn til sýnis.
Röltu um listigarðinn Skrúð í Dýrafirði, sem gaf íslenskum skrúðgörðum nafn.
Leggðu upp í kajakleiðangur framhjá söguslóðum, selum og fuglum á rólegum firðinum.
Nánari upplýsingar og fleiri hugmyndir má finna á westfjords.is.
The post Melrakkasetur Íslands appeared first on Sagatrail.
Vélsmiðja Guðmundar J. Sigurðssonar á Þingeyri
Saga og upphaf Vélsmiðju Guðmundar J. Sigurðssonar á Þingeyri
Vélsmiðja Guðmundar J. Sigurðssonar á Þingeyri á sér langa og merkilega sögu sem nær aftur til ársins 1906 þegar Guðmundur J. Sigurðsson sneri heim úr vélsmíðanámi í Danmörku. Með sér hafði hann ný verkfæri og þekkingu sem lögðu grunninn að starfsemi smiðjunnar. Árið 1913 stofnaði hann ásamt Gramsverslun Vélsmiðju Guðmundar J. Sigurðssonar & Co. sem síðar varð þekkt fyrir áreiðanlega þjónustu og fagmennsku.
Vélsmiðja G.J.S á Þingeyri sem lifandi safn
Í dag er Vélsmiðja Guðmundar J. Sigurðssonar á Þingeyri starfrækt sem lifandi safn þar sem gestir geta kynnt sér verkhætti, vinnubrögð og tækni sem mótuðu starfsemina í rúma öld. Í húsnæðinu má sjá upprunaleg tæki, vélar og búnað sem notaður var í daglegum verkefnum smiðjunnar. Þessi varðveisla gefur einstaka innsýn í þróun iðnaðar og handverks á Vestfjörðum og sýnir hvernig hefðbundin tækni hefur lifað áfram í gegnum kynslóðir.
Samhliða vélsmiðjunni var rekin eldsmiðja sem gegndi lykilhlutverki í starfseminni. Eldsmiðjan er enn starfrækt á sama grunni og við stofnun og sýnir hvernig járnsmíði og hefðbundin handverkstækni voru ómissandi hluti af daglegu lífi á Þingeyri. Þar má sjá hvernig járn var mótað, hert og lagað með aðferðum sem hafa lítið breyst í gegnum tíðina og endurspegla þá nákvæmni sem einkenndi smiðjuna frá upphafi.
Áhrif Vélsmiðju G.J.S á samfélagið
Vélsmiðja G.J.S á Þingeyri hafði um áratugaskeið mikil áhrif á atvinnulíf og samfélag á svæðinu. Hún þjónustaði sjómenn, bændur og fyrirtæki og var þekkt fyrir að leysa fjölbreytt verkefni, allt frá viðgerðum á vélum til smíði sérhæfðs búnaðar. Undir stjórn Guðmundar og síðar Matthíasar, sonar hans, varð smiðjan landsþekkt fyrir gæði, áreiðanleika og fagmennsku sem skapaði henni traustan sess í sögu íslensks iðnaðar.
Einstök upplifun í umsjón Byggðasafns Vestfjarða
Heimsókn í smiðjuna er einstök upplifun þar sem sagan lifnar við í upprunalegu umhverfi. Smiðjan er nú í umsjón Byggðasafns Vestfjarða sem sér um að varðveita menningararfinn og gera hann aðgengilegan gestum. Þar geta gestir kynnst sögu iðnaðar á Vestfjörðum, skoðað upprunalegan búnað og fengið innsýn í störf þeirra sem mótuðu samfélagið á Þingeyri í rúma öld.
Nánari upplýsingar um sögu og starfsemi smiðjunnar má finna á vef Byggðasafns Vestfjarða.
Tíu hugmyndir að afþreyingu í nágrenninu
Heimsæktu Skálann Víkingasetur á Þingeyri og fáðu fræðslu um lifnaðarhætti landnámsmanna, handverksmenningu og fleira.
Bragðaðu belgískar vöfflur í Simbahöllinni á Þingeyri.
Skoðaðu listigarðinn Skrúð í Dýrafirði, sem aðrir skrúðgarðar á Íslandi draga nafn sitt af.
Heimsæktu Hrafnseyri, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar og skoðaðu sýningu um manninn.
Gakktu upp með Dynjanda í Arnarfirði, frægasta fossi Vestfjarða, og heimsæktu síðan Skrímslasafnið á Bíldudal.
Skoðaðu Byggðasafn Vestfjarða í Neðstakaupstað á Ísafirði og lærðu meira  um sögu svæðisins.
Skoðaðu útsýnið af nýjum útsýnispalli á Bolafjalli, ef þú þorir!
Skrafaðu við vermann frá fornri tíð í Sjóminjasafninu í Ósvör við Bolungarvík.
Kynntu þér fyrsta landnema Íslands í Melrakkasetrinu í Súðavík.
Sigldu til Hornstranda eða út í eyjuna Vigur á Ísafjarðardjúpi.
Nánari upplýsingar og hugmyndir á www.westfjords.is
The post Vélsmiðja Guðmundar J. Sigurðssonar á Þingeyri appeared first on Sagatrail.
Skálinn Víkingasetur
Skálinn Víkingasetur – ferð til fortíðar á Þingeyri
Skálinn Víkingasetur á Þingeyri býður gestum að stíga inn í heim landnámsmanna og upplifa daglegt líf víkinga á lifandi og skemmtilegan hátt. Hér geta gestir klætt sig í handsaumuð föt frá víkingaöld, prófað að baka brauð yfir opnum eldi og kynnst lifnaðarháttum forfeðra og formæðra okkar í umhverfi sem endurspeglar tímann af þekkingu og virðingu.
Upplifun í víkingastíl fyrir alla aldurshópa
Í móttökusalnum, sem er innréttaður í víkingastíl, gefst fólki tækifæri til að skoða vandaða handverksmuni, fræðast um verkhætti víkinga og taka þátt í lifandi sögusýningu. Vinsælt er að láta mynda sig í víkingabúningum og taka minningu frá ferð til fortíðar með sér heim.
Á Þingeyri starfar öflugt víkingafélag sem rekur skemmtilega útiaðstöðu í víkingastíl á Oddanum, rétt við fjöruborðið. Svæðið rúmar um 300 manns og hentar vel fyrir varðelda, samkomur og fræðandi viðburði. Þar eru reglulega haldnar Víkingahátíðir með fjölbreyttri dagskrá sem tengist menningu og handverki víkinga.
Námskeið, sögugöngur og lifandi fræðsla
Í Skálanum Víkingasetri eru haldin fjölbreytt námskeið í gömlum handiðnaði, fyrirlestrar og samlestur úr Íslendingasögum. Eins stendur setrið fyrir sögugöngum um Þingeyri þar sem saga staðarins og víkingaöldin eru tengd saman á lifandi hátt. Þetta er einstök leið til að kynnast menningu, sögu og samfélagi svæðisins.
Afþreying á Þingeyri og í nágrenninu
Þingeyri og nágrenni bjóða upp á fjölbreytta afþreyingu sem hentar vel með heimsókn í Skálann Víkingasetur. Þar má nefna:
Skoðaðu Gömlu smiðjuna á Þingeyri frá 1913 þar sem tíminn stendur kyrr og allar vélar virka enn.
Prófaðu fjórhjólaferð í Dýrafirði.
Heimsæktu Kómedíuleikhúsið í Haukadal og upplifðu einstaka einleiki og viðburði.
Skoðaðu merkilegt hljóðfærasafn Jóns Sigurðssonar á Þingeyri: langspil.weebly.com
Upplifðu kyrrðina í Dýrafirði með kajakferðum og útivist hjá Odin Adventures.
Verslaðu vandað handverk hjá Koltru handverkshópi á Þingeyri þar sem einnig er upplýsingamiðstöð.
Skelltu þér í sundlaugina á Þingeyri.
Skoðaðu listigarðinn Skrúð í Dýrafirði, fyrirmynd annarra skrúðgarða á Íslandi.
Heimsæktu Gömlu bókabúðina á Flateyri, elstu upprunalegu verslun landsins.
Heimsæktu Hrafnseyri, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar, og skoðaðu sýningu um ævi hans.
Gakktu upp með Dynjanda, frægasta fossi Vestfjarða, og heimsæktu síðan Skrímslasafnið á Bíldudal.
Fleiri hugmyndir og upplýsingar um svæðið má finna á www.westfjords.is.
The post Skálinn Víkingasetur appeared first on Sagatrail.