Ísafjörður Guide
Ísafjarðarleiðsögn – ferð í gegnum tímann
Ísafjörður guide er fjölskyldufyrirtæki sem býður upp á persónulega og hágæða leiðsögn á Ísafirði og í nágrenni bæjarins. Ísafjörður er höfuðstaður Vestfjarða, þar sem vel varðveittur miðbær með húsum frá 19. öld endurspeglar útgerðar- og verslunarsögu staðarins. Í gönguferðinni Ísafjörður Walk eru gestir leiddir í gegnum sögusvið bæjarins og upp í hlíðina þar sem opnast stórbrotið útsýni yfir fjörðinn og umhverfið sem mótaði líf fólksins sem þar bjó.
Leiðsögn í anda 19. aldar
Gangan hefst við höfnina eða í miðbænum. Þar tekur leiðsögumaður á móti gestum sem fiskverkakona eða sjómaður frá 19. öld. Gengið er um gömlu göturnar og sagt frá sögu þekktra húsa og staða. Þar fléttast saman frásagnir af fólki, atvinnuháttum, álfum, tröllum og draugum sem hafa fylgt bænum í gegnum aldirnar.
Saga, náttúra og snjóflóðavarnir
Á leiðinni fá gestir innsýn í jarðfræði og gróðurfar Vestfjarða, virkni snjóflóðavarna og hvernig náttúran hefur mótað samfélagið. Leiðsögumaður deilir einnig nestisboxi sínu með þátttakendum, sem gerir upplifunina enn persónulegri og nærandi.
Lengd ferðar og valkostir
Gangan tekur um tvær klukkustundir og hentar hópum frá 2–12 þátttakendum. Að ferð lokinni er hægt að lengja upplifunina með hefðbundnu nesti, hádegisverði eða kaffi á völdum stað.
Sérferðir og persónuleg upplifun
Ísafjarðarleiðsögn býður einnig upp á sérsniðnar ferðir með persónulegri leiðsögn í náttúru Vestfjarða. Hægt er að velja á milli fræðandi gönguferða um jarðsögu, jarðfræði og gróður svæðisins eða lengri göngu inn í fallega dali – með notalegu kaffihléi í garði leiðsögumanns með útsýni yfir fjörðinn.
Einnig eru í boði útsýnisferðir um nágrenni Ísafjarðar þar sem hægt er að uppgötva heillandi staði eins og Bolungarvík, Ósvör og Bolafjall, heimsækja Melrakkasetrið, sjá seli eða fræðast um snjóflóðasögu svæðisins í Súðavík. Fyrir garðaáhugafólk eru í boði leiðangrar um einstaka skrúðgarða, þar á meðal Skrúð, Simsonsgarð og blómstrandi garð Helgu. Einnig er hægt að heimsækja heillandi þorp eins og Flateyri og líta við í gömlu bókabúðinni.
Allar ferðir eru sveigjanlegar og sniðnar að áhuga gesta – og alltaf með notalegu kaffihléi á fallegum stað.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á Ísafirði og á norðanverðum Vestfjörðum:
- Skoðaðu Byggðasafn Vestfjarða í Neðstakaupstað á Ísafirði og lærðu meira um sögu svæðisins.
- Skoðaðu útsýnið af nýjum útsýnispalli á Bolafjalli, ef þú þorir!
- Skrafaðu við vermann frá fornri tíð í Sjóminjasafninu í Ósvör.
- Kynntu þér fyrsta landnema Íslands í Melrakkasetrinu í Súðavík.
- Farðu í sjóstangveiði og veiddu í soðið.
- Sigldu til Hornstranda eða út í eyjuna Vigur á Ísafjarðardjúpi.
- Skoðaðu gömlu Vélsmiðjuna á Þingeyri frá 1913 þar sem allar vélar virka enn.
- Skoðaðu lystigarðinn Skrúð í Dýrafirði, sem aðrir skrúðgarðar á Íslandi draga nafn sitt af.
- Leggðu upp í kajak-leiðangur framhjá söguslóðum, selum og fuglum.
- Gakktu upp með Dynjanda, frægasta fossi Vestfjarða.
Nánari upplýsingar á www.westfjords.is




























