Samtök um söguferðaþjónustu (SSF) – um okkur

SSF – Samtök um Söguferðaþjónustu voru stofnuð árið 2006 af 18 aðilum með það að markmiði að efla söguferðaþjónustu á Íslandi og vera samráðsvettvangur fyrir þá sem stunda slíka starfsemi. Starfsemi samtakanna miðar að því að kynna starfsemi félaga okkar, auðvelda samstarf þeirra á milli og gera sögulegar upplifanir aðgengilegar ferðamönnum og heimamönnum.
Félagar í SSF
Félagar SSF eru nú nær 90 talsins um allt land og ná yfir opinber söfn, sögusetur, menningarstofnanir, einkaaðila og leiðsögumenn.
Á sagatrail.is/listings/ finnur þú lista yfir alla meðlimi.

Þjónusta sem meðlimir bjóða

Meðlimir SSF bjóða fjölbreytta þjónustu tengda sögu Íslands og menningararfi, svo sem.

  • Leiðsagnir um söguslóðir og sögulega staði
  • Sýningar, menningarviðburðir og hátíðir
  • Fræðsla um handrit, miðaldabókmenntir og nútíma bókmenntir
  • Sérsniðnar ferðir og leiðsagnir fyrir hópa og einstaklinga
Bókunarferlar

Sagatrail.is er upplýsingavefur um sögutengdaþjónustu. Bókun á þjónustu fer fram beint hjá hverjum aðila fyrir sig

Starfsemi og fagþróun

Samtökin styðja faglega þróun í greininni með fræðslufundum, sameiginlegum markaðsátökum og samstarfi um verklagsreglur til að tryggja gæði og áreiðanleika í söguferðaþjónustu.

Hafa samband / Gerast meðlimur

Viltu gerast félagi í Samtökum um Söguferðaþjónustu eða fá frekari upplýsingar? Sendu okkur tölvupóst: info@sagatrail.is

Algengar spurningar

Hvað er Söguferðaþjónusta?

Söguferðaþjónusta er ferðaþjónusta sem leggur áherslu á miðlun íslenskrar sögu og menningararfs til ferðamanna og heimamanna.

Hvernig bóka ég?

Skoðaðu listann yfir félaga og smelltu á vefsíðu viðkomandi til að bóka. Sumir taka við pöntunum í gegnum netbókun, aðrir í tölvupósti.

Er boðið upp á leiðsögn á íslensku eða erlendu máli?

Víða er boðið upp á leiðsögn á íslensku eða ensku. Nánari upplýsingar um það má finna á vef hvers og eins félaga okkar.