Safn Jóns Sigurðssonar

ArfleifðByggingarViðburðir

Í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli Jóns Sigurðssonar forseta árið 2011, forystumanns sjálfstæðissinna á 19. öld, opnaði sýningin „Þjóðinni til heilla -Jón Sigurðsson 1811-1879“ á Hrafnseyri við Arnarfjörð. Hún fjallar um  líf og starf Jóns,  sem fæddist og ólst upp á Hrafnseyri. Upplýsingum á sýningunni er komið fyrir á hjúpi úr plexígleri sem liðast sem samfellt straumfall úr einu herbergi í annað. Sýningin myndar þannig eina órofa heild upplifunar.

Gamli torfbærinn , sem er eftirlíking af húsinu sem Jón ólst upp í, hefur verið endurreist og þar geta gestir gætt sér þar á kaffi, kökum og vöfflum. Sérstök dagskrá er ávallt haldin á Hrafnseyri  á þjóðhátíðardegi Íslendinga þann 17. júní,  sem jafnframt var afmælisdagur Jóns Sigurssonar.


Tíu hugmyndir að afþreyingu í Arnarfirði og nágrenni:

  1.  Gakktu upp með Dynjanda, frægasta fossi Vestfjarða.
  2.  Heimsæktu Skrímslasafn Íslands á Bíldudal.
  3.  Farðu í sjóstangveiði og veiddu í soðið.
  4.  Skoðaðu Gömlu smiðjuna á Þingeyri frá 1913 þar sem allar vélar virka enn.
  5.  Skoðaðu listigarðinn Skrúð í Dýrafirði, sem aðrir skrúðgarðar á Íslandi draga nafn sitt af.
  6.  Skoðaðu Byggðasafn Vestfjarða í Neðstakaupstað á Ísafirði og lærðu meira  um sögu svæðisins.
  7.  Skoðaðu útsýnið af nýjum útsýnispalli á Bolafjalli, ef þú þorir!
  8.  Skrafaðu við vermann frá fornri tíð í Sjóminjasafninu í Ósvör.
  9.  Kynntu þér fyrsta landnema Íslands í Melrakkasetrinu í Súðavík.
  10.  Sigldu til Hornstranda eða út í eyjuna Vigur á Ísafjarðardjúpi.

Nánari upplýsingar á www.westfjords.is

Hrafnseyri, 471 Þingeyri
hrafnseyri@hrafnseyri.is
www.hrafnseyri.is
456 8260
845 5518
Opnunartímar:

1. júní-8. september kl. 11-18.

Á öðrum tímum eftir samkomulagi.

 

HreinlætisaðstaðaMinjastaðurSýningVeitingar
Samtök um söguferðaþjónustu (SSF) voru stofnuð árið 2006. Þau eru samráðsvettvangur aðila er stunda söguferðaþjónustu á Íslandi, einkum hvað varðar markaðssetningu, gæði og fagmennsku.

Hafa samband

Email: info@sagatrail.is