Fantastic Fjords ferðaskrifstofa

AtvinnulífFerðirMaturMinjarNáttúraVíkingar

Staðbundin ferðaþjónusta í hjarta Ísafjarðar

Fantastic Fjords er ferðaskrifstofa á Ísafirði sem byggir á áralangri reynslu úr ferða- og þjónustugeiranum bæði í Reykjavík og New York. Fyrirtækið sem stofnað var árið 2016 leggur áherslu á að bjóða ferðir með áherslu á matarupplifanir, sögu og menningu, og tengsl við nærsamfélagið.

Ferðalög með matarmenningarlegum blæ

Fantastic Fjords sérhæfir sig í svokölluðum mjúkum ferðalögum (e. soft travel) þar sem upplifun, rólegur ferðahraði og staðbundin tenging eru í forgrunni. Þannig er matarmenning, söguleg innsýn og samskipti við heimamenn hluti af hverri ferð, sem gerir upplifunina bæði persónulega og eftirminnilega.

Sérsniðin ferð fyrir hvern og einn

Hver ferð er sérsniðin að þörfum og áhuga hvers viðskiptavinar með áherslu á persónulega þjónustu og óvæntar uppákomur sem oftar en ekki vantar í hefðbundin ferðalög.

Óvæntar upplifanir á óvæntum stöðum

Markmið Fantastic Fjords er að skapa einstakar upplifanir á stöðum sem koma gestum á óvart. Hvort sem ferðast er eingöngu um Vestfirði eða ferðinni er blandað saman við aðra landshluta, þá tryggjum að hver gestur fari heim með með ógleymanlegar minningar.

Hafðu samband

Fyrir frekari upplýsingar um ferðir og sérsniðin tilboð, skoðaðu Fantastic Fjords og hafðu samband til að hefja skipulagningu á þinni einstöku ferð.

Tíu hugmyndir að afþreyingu á Ísafirði og á norðanverðum Vestfjörðum:

  1.  Skoðaðu Byggðasafn Vestfjarða í Neðstakaupstað á Ísafirði og lærðu meira um sögu svæðisins.
  2.  Skoðaðu útsýnið af nýjum útsýnispalli á Bolafjalli, ef þú þorir!
  3.  Skrafaðu við vermann frá fornri tíð í Sjóminjasafninu í Ósvör.
  4.  Kynntu þér fyrsta landnema Íslands í Melrakkasetrinu í Súðavík.
  5.  Farðu í sjóstangveiði og veiddu í soðið.
  6.  Sigldu til Hornstranda eða út í eyjuna Vigur á Ísafjarðardjúpi.
  7.  Skoðaðu gömlu Vélsmiðjuna á Þingeyri frá 1913 þar sem allar vélar virka enn.
  8.  Skoðaðu lystigarðinn Skrúð í Dýrafirði, sem aðrir skrúðgarðar á Íslandi draga nafn sitt af.
  9.  Leggðu upp í kajak-leiðangur framhjá söguslóðum, selum og fuglum.
  10.  Gakktu upp með Dynjanda, frægasta fossi Vestfjarða.

Nánari upplýsingar á www.westfjords.is

Aðalstræti 20, 400 Ísafjörður
info@fantasticfjords.is
(+354) 663 3909
Opnunartímar:

Opið allt árið um kring.

LeiðsögnVeitingar
Samtök um söguferðaþjónustu (SSF) voru stofnuð árið 2006. Þau eru samráðsvettvangur aðila er stunda söguferðaþjónustu á Íslandi, einkum hvað varðar markaðssetningu, gæði og fagmennsku.

Hafa samband

Email: info@sagatrail.is