Elliðarárstöð

Áfangastaður þar sem náttúra og orka mætast

Elliðaárstöð er einstök blanda af sögu, náttúru og nýsköpun í hjarta Reykjavíkur. Hún stendur í Elliðaárdal, einu vinsælasta útivistarsvæði borgarinnar. Þar má sjá hvernig vatnsafl rafvæddi Reykjavík á sínum tíma og hvernig sú þekking og sköpunarkraftur móta samfélagið enn í dag.

Elliðaárdalur – náttúruperla í borginni

Dalurinn er þekktur fyrir fjölbreytt landslag, jarðfræði og gróður, og ríkt fugla- og dýralíf. Elliðaárnar eru einu laxveiðiár heims sem liggja innan borgarmarka, og á svæðinu má einnig finna fornleifar frá upphafi byggðar og minjar frá síðari heimsstyrjöld.

Virkjunin sem breytti Reykjavík

Elliðaárvirkjun var tekin í notkun árið 1921 og markaði upphaf rafvæðingar í Reykjavík. Tilkoma rafmagns umbreytti daglegu lífi borgarbúa og lagði grunn að nútímalegum veitukerfum, verkfræði og borgarþróun. Í dag hefur áherslan færst frá því að virkja orku árinnar yfir í að virkja sköpunarkraft og forvitni fólks.

Leiðsögn á Elliðaárstöð

Hópar eru velkomnir í skipulagða heimsókn á Elliðaárstöð. Leiðsögn, í boði á íslensku eða ensku, veitir innsýn í sögu virkjunarinnar, Elliðaárdals og orkukerfa Reykjavíkur. Leiðsagnir fara fram á virkum dögum milli kl. 13:00 og 17:00 eftir samkomulagi og standa í 45–60 mínútur.

Lágmarksfjöldi í leiðsögn er 10 manns.

Upplifðu orkuna í dalnum

Elliðaárstöð býður gestum að kynnast tengslum náttúru, vatnsafls og hugvits. Hvort sem þú kemur til að fræðast um sögu, njóta útivistar eða öðlast dýpri skilning á orkukerfum Reykjavíkur, býður dalurinn upp á eftirminnilega upplifun í einstöku borgarlandslagi.

Heimsæktu heimasíðu Elliðaárstöðvar

Samtök um söguferðaþjónustu (SSF) voru stofnuð árið 2006. Þau eru samráðsvettvangur aðila er stunda söguferðaþjónustu á Íslandi, einkum hvað varðar markaðssetningu, gæði og fagmennsku.

Hafa samband

Email: info@sagatrail.is