Vatnsdalur og Þingeyrakirkja

Sagatrail

Vatnsdalur er 25 km langur dalur. Þar nam Ingimundur gamli Þorsteinson land samkvæmt því sem segir í Landnámu, og bjó að Hofi.  Vatnsdalsvegur er 40 km langur og liggur um dalinn, beggja vegna Vatnsdalsár sem er með betri laxveiðiám á Íslandi. Vatnsdalurinn er einnig þekktur fyrir nær óteljandi Vatnsdalshóla. Vatnsdæla saga er ættarsaga Hofverja í Vatnsdal en þeir fóru með …

Oddi á Rangárvöllum

Sagatrail

Oddi á Rangárvöllum er einn af helstu sögstöðum á Íslandi og þar hefur verið  kirkja síðan í byrjun kristni. Þekktastur  Oddaverja var Sæmundur fróði Sigfússon (1056-1133) sem  stundaði námi við Svartaskóla í París. Um  Sæmund hafa orðið til ýmsar þjóðsögur. Þá var hann líklega  fyrstur íslenskra sagnaritara til að semja rit um Noregskonunga. Sonarsonur Sæmundar  var Jón Loftsson, einn af …

Skálinn Víkingasetur

Sagatrail

Í Skálanum Víkingasetri  á Þingeyri er hægt að leika landnámsmenn og setja sig inn í daglegt líf þeirra. Klæddu þig í handsaumuð föt frá víkingatímanum og bakaðu brauð yfir opnum eldi. Í móttökusalnum, sem hefur verið innréttaður í víkingastíl, gefst fólki einstakt tækifæri til að kynnast aðstæðum og lifnaðarháttum forfeðra og -mæðra okkar með þátttöku og einnig versla vandaða handverksmuni. …

Víkingaheimar

admin

Hinir einstaklega fallegu Víkingaheimar hýsa víkingaskipið Íslending,  sem smíðað var af hagleikssmiðnum Gunnari Marel Eggertssyni frá Vestmannaeyjum. Gunnar sigldi skipinu árið 2000 frá Íslandi til Grænlands, Nýfundnalands og New York, ásamt átta manna áhöfn.  Tilefnið var að minnast ferðar Leifs Eiríkssonar til Ameríku þúsund árum fyrr. Víkingaskipið  Íslendingur er nákvæm eftirgerð af Gauksstaðaskipinu sem fannst við uppgöft í Vestfold Noregi …

Hofsstaðir minjagarður

admin

Reisulegur skáli, hýbýli fornmanna, stóð á Hofsstöðum frá landnámsöld (870-930) og fram á 12. öld.  Hann fannst við fornleifarannsóknir árið 1994. Í minjagarðinum eru einar merkustu minjar frá landnámsöld sem fundist hafa hér á landi og gefur vísbendingu um hvernig var umhorfs á þessum stað á víkingaöld. Torfveggir sýna ytri mörk skálans á síðasta byggingarskeiði hans.  Miðað við stærð skálans …

Víkingafélagið Rimmugýgur

admin

Vík­inga­fé­lagið Rimm­ugýg­ur í Hafnar­f­irði er elsta og stærsta starf­andi vík­inga­fé­lagið á  Íslandi, stofnað árið 1997. Heitir félagið því eftir öxi Skarphéðins Njálssonar  í Brennu -Njálssögu. Tilgangur félagsins er að stuðla að auknum áhuga á víkingatímabilinu og uppruna þjóðarinnar. Höfuðáhersla félagsins er á bardagaæfingar, klæðagerð og vandaða handverksmuni með skírskotun í  víkingatímann. Félagið hefur í gegnum árin tekið þátt í mörgum …

Landnámssýningin og Reykjavík… sagan heldur áfram

admin

Á Landnámssýningunni í Aðalstræti 16 er fjallað um landnám í Reykjavík og byggt á fornleifarannsóknum sem fram hafa farið í miðbænum. Miðpunktur sýningarinnar er skálarúst frá 10. öld, sem fannst þegar grafið var fyrir nýju húsi á horni Aðalstrætis og Túngötu. Búið var í skálanum frá því um 930 til 1000. Norðan við skálann fannst veggjarbútur sem er ennþá eldri, …

Þjóðminjasafn Íslands

admin

Ungir sem aldnir verða hugfangnir af safnkosti Þjóðminjasafni Íslands. Leyndardómar fortíðar ljúkast upp í spennandi örleiðsögnum Þjóðminjasafnsins þar sem má m.a. fræðast um hamfarir og drepsóttir fyrri tíma, drauga, huldufólk, hjátrú og galdra, þjóðsögur og kynjaskepnur. Á grunnsýningunni „Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár“ er saga þjóðarinnar sögð, allt frá landnámi til okkar daga. Gestir eru …

Sögusafnið á Grandagarði

admin

Gissur Þorvaldsson mundar öxina vígalegur í bragði, reiðubúinn að vega Sturlu Sighvatsson; með brjálæðislegt blik í augum bregður Freydís Eiríksdóttir sverði undir bert brjóstið og hræðir þannig skrælingjaher á brott á Vínlandi; Þorgeir Ljósvetningagoði liggur undir feldi og hugsar upp lausn á því hvernig koma megi á friði milli kristinna og heiðingja… Á Sögusafninu spretta sumar af mikilvægustu persónum Íslandssögunnar …

Þjóðveldisbærinn í Þjórsárdal

admin

Á þjóðveldisöld var Þjórsárdalur gróinn og búsældarlegur, en árið 1104 varð mikið gos í Heklu sem umbreytti dalnum í gróðursnauða auðn. Þar hafa fundist fjölmargar rústir og sú merkasta er af stórbýlinu Stöng. Árið 1974, í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar, var Þjóðveldisbærinn reistur með Stangarbærinn  sem fyrirmynd.  Reisulegur torfbærinn ber vott um stórhug höfðingja á þjóðveldisöld. Hann er …

Þingvellir

admin

Saga Íslands og íslensku þjóðarinnar kemur hvergi betur fram á einum stað en á Þingvöllum við Öxará. Á Þingvöllum var Alþingi stofnað árið 930 og kom þar saman til ársins 1798. Meginviðburðir Íslandssögunnar hafa gerst þar og því skipa Þingvellir sérstakan sess í hugum Íslendinga. Þingvellir eru jafnframt náttúruundur á heimsvísu og þar er elsti þjóðgarður Íslendinga. Fræðslumiðstöðin við Hakið …

Landnámssetrið í Borgarnesi

admin

Landnámssetrið í Borgarnesi er í tveimur af elstu húsum Borgarness, Pakkhúsinu og Búðarkletti, sem tengd hafa verið saman með nútímalegri byggingu þar sem er  minjagripa- og gjafavörusala. Kjarni setursins eru sýningarnar um Landnám Íslands og Egils sögu. Í Landnámssýningunni er sagan sögð með ljósabúnaði og skjám Þar er fjallað um Landnám Íslands, hvernig norrænir menn fóru að því að rata …

Eiríksstaðir

admin

Eiríksstaðir í Haukadal Dölum er lifandi safn þar sem þú upplifir víkingatímann á persónulegan hátt. Yljaðu þér við langeldinn í tilgátuhúsinu og hlýddu á sagnameistara í víkingaklæðnaði segja frá ábúendunum. Staðinn má nefna „vöggu landafundanna“ því þar hér reisti Eiríki rauði sér bú og stofnaði fjölskyldu með Þjóðhildi konu sinni. Eiríkur settist síðar fyrstur norrænna manna að á Grænlandi og …

Vínlandssetrið í Búðardal

admin

Nýleg sýning á Vínlandssetrinu í Búðardal í Dölum, sem  opnaði sumarið 2020,  segir frá landafundum feðganna Eiríks rauða og Leifs heppna Eiríkssonar á Grænlandi og í Norður-Ameríku. Einnig samskiptum norrænna manna við frumbyggja og af ættmóður margra þjóðþekktra einstaklinga; Guðríði Þorbjarnardóttur, sem lagði heiminn að fótum sér í kringum aldamótin 1000 og sigldi margsinnis yfir Atlantshafið. Sýningin býður upp á …

Spákonuhofið á Skagaströnd

admin

Hvað ber framtíðin í skauti sér? Í Spákonuhofinu á Skagaströnd er hægt að kynna sér sögu Þórdísar spákonu, landnámsmanns á Skagaströnd, en hennar er getið í nokkrum Íslendingasögum. Hún fóstraði Þorvald víðförla, fyrsta kristniboða Íslendinga, og var þekkt fyrir spádómsgáfu sína. Á sýningunni birtist spákonan gestum í líki vandaðrar vaxbrúðu og saga hennar er sögð á fallegum refli eftir Sigurjón …

Vatnsdælurefillinn

admin

Vatnsdæla saga er ættarsaga Hofverja í Vatnsdal og gerist á 9. til 11. öld, saga af ástum, átökum og erjum. Aðal sögusviðið er í Vatnsdalur í Austur-Húnavatnssýslu, en þræðir hennar liggja einnig til Noregs, Svíðþjóðar, Orkneyja og Skotlands. Sagan er talin skrifuð á síðari hluta 13. aldar. Verkefnið „Vatnsdæla á refli“ á fyrirmynd í Bayeux-reflinum sem saumaður var á 11. …

1238: Baráttan um Ísland

admin

Sögusetrið 1238: Baráttan um Ísland á Sauðárkróki er gagnvirk og alltumlykjandi sýning um Örlygsstaðabardaga sem færir þig mun nær sögulegum stóratburðum en hefðbundnar fræðslusýningar. Stígðu inn í söguna og taktu þátt í Örlygsstaðabardaga, fjölmennustu orrustu sem háð hefur verið á Íslandi, en þar börðust 3000 manns. Orrustan var ein af mörgum á Sturlungaöld (1220-1264), sem gerir hana að blóðugasta og …

Snorrastofa í Reykholti

admin

Snorrastofa er menningar­ og miðaldasetur í Reykholti, reist sagnaritaranum, fræðimanninum og höfðingjanum Snorra Sturlusyni (1179–1241) og verkum hans. Snorrastofa veitir ferðamönnum þjónustu og fræðslu í Gestastofu. Hún er á jarðhæð Reykholtskirkju – Snorrastofu, en þar er sýning um Snorra Sturluson, auk þess sem boðið er upp á styttri og lengri kynningar um miðaldir, Snorra og Reykholt. Þar er einnig rekin …