Your Friend in Reykjavík

Sagatrail

Persónulegar og fræðandi gönguferðir í Reykjavík Your Friend in Reykjavík býður upp á persónulegar og fræðandi gönguferðir  í hjarta Íslands þar sem sögur, tónlist, þjóðtrú og daglegt líf borgarinnar fléttast saman við góða stemningu, mat og íslenska gestrisni. Leiðsögumennirnir eru sérfræðingar í heimaborginni – lifandi sögumenn sem gera borgarupplifunina áhugaverða, aðgengilega og skemmtilega. Sérfræðileiðsögn með áherslu á sögur og menningu …

Uppsveitir Árnessýslu

Sagatrail

Uppsveitir Árnessýslu eru svæði þar sem náttúra, menning og ævintýri mætast. Hér finnur þú frægar perlur og minna þekkta staði, fjölbreytta afþreyingu og einstaka upplifun sem hentar öllum aldurshópum. Náttúra, menning og ævintýri Velkomin í Uppsveitir Árnessýslu, þar sem náttúrufegurðin sameinast heillandi menningu og ógleymanlegum ævintýrum! Hér má finna fjölmarga áhugaverða staði til að heimsækja – frægar náttúruperlur, sögustaði og …

CityWalk gönguferðir í Reykjavík

Sagatrail

CityWalk býður upp á daglegar gönguferðir í Reykjavík þar sem saga, menning og skemmtun fléttast saman. Fyrirtækið hefur vakið athygli fyrir fríar ferðir með leiðsögn og sérsniðnar upplifanir fyrir hópa. Daglegar gönguferðir í miðborg Reykjavíkur CityWalk býður upp á daglegar gönguferðir í Reykjavík með leiðsögn fyrir ferðamenn og einkahópa. Fyrirtækið var stofnað árið 2014 af Marteini Briem og hefur frá …

Vatnsdalur og Þingeyri

Sagatrail

Saga, náttúra og menningararfur Vatnsdalur og Þingeyri bjóða upp á einstaka nálægð við náttúru, sögu og menningu – fullkomið fyrir áhugasöm um íslenskan menningararf. Vatnsdalur – náttúruperla og sögusvið Íslendingasagna Vatnsdalur er 25 km langur dalur í Húnaþingi vestra og er þekktur fyrir fjölbreytta náttúru og sögulegt gildi. Þar nam Ingimundur gamli Þorsteinson land samkvæmt Landnámu og bjó að Hofi. …

Hólar í Hjaltadal

Sagatrail

Sögufrægur menningarstaður í nær þúsund ár Hólar í Hjaltadal eru einn merkasti sögustaður Íslands. Staðurinn er umkringdur tignarlegum fjöllum og rólegri náttúru. Hólar hafa verið menningar- og menntasetur í nær þúsund ár og voru biskupssetur frá 1106 til 1798. Í dag má á Hólum í Hjaltadal finna Háskólann á Hólum og fjölbreyttar söguminjar sem sýna þróun íslenskrar menningar á lifandi …

Óbyggðasetur Íslands

Sagatrail

Lifandi saga, náttúra og menning á jaðri hálendisins Óbyggðasetur Íslands í Fljótsdal er einstakur áfangastaður þar sem saga, menning og víðerni renna saman í heildstæða upplifun. Gestir stíga inn í heim fortíðar um leið og þeir ganga yfir gömlu trébrúna að setrinu og finna hvernig daglegt líf fyrri tíma lifnar við í byggingum, munum og sögum sem tengjast óbyggðum landsins. …

Wapp – gönguleiðsögn

Sagatrail

Stafræn leiðsögn fyrir göngufólk um allt land Wapp – gönguleiðsögn býður upp á fjölbreyttar GPS leiðarlýsingar um allt Ísland með fróðleik um örnefni, sögur, náttúru og umhverfi. Leiðirnar byggja á kortagrunni Samsýnar og hægt er að hlaða þeim niður í símann og nota án gagnasambands, sem tryggir öryggi og aðgengi hvar sem er á landinu. Leiðarlýsingar með kortum, myndum og …

Ísafjörður Guide

Sagatrail

Ísafjarðarganga –  ferð í gegnum tímann Á Ísafirði, höfuðstað Vestfjarða,  er  vel varðveittur miðbær með húsum frá 19. öld sem endurspegla m.a. útgerðar- og verslunarsögu staðarins og fólksins sem þar bjó. Leiðsögukonan sem er klædd eins og fiskverkakona á 19. öld  hittir ykkur við upplýsingamiðstöð ferðamanna í bænum.  Hún leiðir ykkur í gegnum gamla bæinn og síðan upp í hlíðina …

Byggðasafn Hafnarfjarðar

admin

Í Byggðasafni Hafnarfjarðar er að finna 7 sýningar. Í Pakkhúsinu, Sívertsens húsinu, Bookless Bungalow, Siggubæ, Beggubúð, Gúttó og á Strandstígnum. Á sýningunni „Þannig var…” í Pakkhúsinu er saga Hafnarfjarðar og nágrennis rakin frá landnámi til okkar daga með aðstoð sagnfræðilegra texta, ljósmynda og fjölda muna sem glæða söguna lífi. Á efstu hæð hússins er skemmtileg leikfangasýning sérstaklega ætluð börnum. Í …

Duus Safnahús

admin

Duus Safnahús samanstanda af röð bygginga sem endurspegla ríka sögu og menningu svæðisins. Elsta húsið, Bryggjuhúsið, var reist af Duus verslun árið 1877, en yngsta húsið er frá árinu 1954. Þessi gömlu verslunar- og fiskvinnsluhús hafa verið endurnýjuð og hýsa nú sýningarsali Byggðasafns Reykjanesbæjar, Listasafns Reykjanesbæjar og gestastofu Reykjaness UNESCO jarðvangs. Þau eru lifandi menningarmiðstöð þar sem fjölbreytt menningar- og sýningarstarf fer fram. Þar …

Skansinn í Vestmannaeyjum

admin

Skansinn var fallbyssuvirki sem Danakonungur lét reisa til að verjast erlendum kaupmönnum.  Eftir Tyrkjaránið 1627  voru þar vopnaðir verðir. Á Skanssvæðinu er Stafkirkjan, eftirlíking af elstu kirkju á Íslandi. Kirkjan er gjöf frá Norðmönnum, byggð árið 2000 í tilefni af 1000 ára afmæli kristnitökunnar. Þar er einnig Landlyst, fyrsta fæðingarheimili landsins og eitt elsta hús í Vestmannaeyjum frá 1848. Þar …

Teigarhorn – fólkvangur

admin

Glitrandi steinar laða ferðalanga til fólkvangsins Teigarhorns við Berufjörð, en þar er einn merkasti fundarstaður geislasteina (zeólíta) í heiminum. Þar finnast auk þess aðrar steindir, s.s. ópall, bergkristall og silfurberg. Bærinn Teigarhorn skipar einnig sérstakan sess í sögu íslenskrar ljósmyndunar. Þar starfaði Nicoline Weywadt, sem hóf störf við ljósmyndun 1872, fyrst kvenna á Íslandi, og systurdóttir hennar, Hansína Björnsdóttir. Teigarhorn …

Þórbergssetur á Hala

admin

Þórbergssetur á Hala í Suðursveit er tileinkað lífi og starfi Þórbergs Þórðarsonar, eins merkasta rithöfundar  20. aldar (1888-1974).  Hús setursins er auðþekkjanlegt með sínar risavöxnu bókarkili á efri langhlið. Þar eru fróðlegar og áhugaverðar sýningar um sögu þessarar afskekktu sveitar og verk Þórbergs. Hann ólst upp á Hala, í skugga Vatnajökuls og milli beljandi jökulfljóta. Íbúarnir voru mjög einangraðir, en …

Kirkjubæjarklaustur

admin

Árið 1186 var stofnað nunnuklaustur af Benediktsreglu í Kirkjubæ á Síðu, þar sem nú heitir Kirkjubæjarklaustur, og var það starfrækt til ársins 1554. Þjóðsaga segir frá óhlýðnum nunnum sem áttu að hafa verið brenndar uppi á Systrastapa. Systravatn og Systrafoss ofan við byggðina heita einnig eftir þessum reglusystrum. Árið 1995-2006 fóru fram fornleifarannsóknir á rústasvæðinu við hlið gamla kirkjugarðsins á …

Skógasafn

admin

Skógasafn undir Eyjafjöllum sem var stofnað árið 1949 er í raun mörg söfn þar sem má fræðast um sögu svæðisins, samgöngur og sjósókn. Húsasafninu tilheyra torfbær, skólabygging frá upphafi 20. aldar og fleiri gömul hús. Röltu á milli þeirra, gakktu í bæinn, skoðaðu gamla muni og innréttingar og sjáðu fyrir sér lífið á liðnum tímum. Á Byggðasafninu er yfirgripsmikið safn …

Þjóðveldisbærinn í Þjórsárdal

admin

Á þjóðveldisöld var Þjórsárdalur gróinn og búsældarlegur, en árið 1104 varð mikið gos í Heklu sem umbreytti dalnum í gróðursnauða auðn. Þar hafa fundist fjölmargar rústir og sú merkasta er af stórbýlinu Stöng. Árið 1974, í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar, var Þjóðveldisbærinn reistur með Stangarbærinn  sem fyrirmynd.  Reisulegur torfbærinn ber vott um stórhug höfðingja á þjóðveldisöld. Hann er …

Skálholt

admin

Upplifðu þúsund ára sögu Skálholts, sem varð fyrsti biskupsstóll Íslands árið 1056. Þar stóð stærsta kirkja sem reist hefur verið á Íslandi, en núverandi kirkja frá árinu 1963 er mun minni. Skálholt var höfuðstaður landsins í um 750 ár, miðstöð kirkjustjórnar og mikið fræðasetur. Í kringum 1200 bjuggu um 120 manns í Skálholti og var það fyrsta þéttbýlið á Íslandi. …

Þingvellir

admin

Saga Íslands og íslensku þjóðarinnar kemur hvergi betur fram á einum stað en á Þingvöllum við Öxará. Á Þingvöllum var Alþingi stofnað árið 930 og kom þar saman til ársins 1798. Meginviðburðir Íslandssögunnar hafa gerst þar og því skipa Þingvellir sérstakan sess í hugum Íslendinga. Þingvellir eru jafnframt náttúruundur á heimsvísu og þar er elsti þjóðgarður Íslendinga. Fræðslumiðstöðin við Hakið …

Spákonuhofið á Skagaströnd

admin

Hvað ber framtíðin í skauti sér? Í Spákonuhofinu á Skagaströnd er hægt að kynna sér sögu Þórdísar spákonu, landnámsmanns á Skagaströnd, en hennar er getið í nokkrum Íslendingasögum. Hún fóstraði Þorvald víðförla, fyrsta kristniboða Íslendinga, og var þekkt fyrir spádómsgáfu sína. Á sýningunni birtist spákonan gestum í líki vandaðrar vaxbrúðu og saga hennar er sögð á fallegum refli eftir Sigurjón …

Snorrastofa í Reykholti

admin

Snorrastofa er menningar­ og miðaldasetur í Reykholti, reist sagnaritaranum, fræðimanninum og höfðingjanum Snorra Sturlusyni (1179–1241) og verkum hans til heiðurs. Snorrastofa veitir ferðamönnum þjónustu og fræðslu í Gestastofu. Hún er á jarðhæð Reykholtskirkju – Snorrastofu, en þar er sýning um Snorra Sturluson, auk þess sem boðið er upp á styttri og lengri kynningar um miðaldir, Snorra og Reykholt. Boðið er …