Wapp – gönguapp

FerðirNáttúra

Wapp Walking app  (göngu-app) hefur að geyma safn fjölbreyttra GPS leiðarlýsinga fyrir snjallsíma um allt Ísland með upplýsingum um örnefni, sögur, náttúru og umhverfi til þess að njóta ferðarinnar sem best. Leiðarlýsingarnar notast við kortagrunn Samsýnar og þeim hlaðið fyrirfram inn í símann og svo notaðar án gagnasambands (offline).

Ljósmyndir og eru í öllum leiðarlýsingum og er þar einnig að finna upplýsingar um árstíðabundinn aðgang, bílastæði, almenningssalerni og ef ástæða er til að benda á hættur eða önnur varúðarsjónarmið á leiðunum. Upplýsingapunktar koma fram á hverri leið sem er merkt sem leiðsögn og vísa í lífríki, jarðfræði, örnefni eða annað sögulegt sem tengist umhverfinu.

Mávahlíð 33, 105 Reykjavík
einar@wapp.is
www.wapp.is
663 2113
Opnunartímar:

Wappið er ávallt aðgengilegt.

Wappið er í samstarfi við Neyðarlínuna þar sem notandi getur sent tilkynningu um staðsetningu sína með textaskilaboðum úr símanum til Neyðarlínunnar þegar hann leggur af stað.  Valkvætt!

GönguleiðirLeiðsögn
Samtök um söguferðaþjónustu (SSF) voru stofnuð árið 2006. Þau eru samráðsvettvangur aðila er stunda söguferðaþjónustu á Íslandi, einkum hvað varðar markaðssetningu, gæði og fagmennsku.

Hafa samband

Email: info@sagatrail.is