Skálholt
Þúsund ára kirkju- og menningarmiðstöð
Skálholt er einn merkasti sögustaður Íslands og var fyrsti biskupsstóll landsins árið 1056. Í nær átta aldir var Skálholt miðstöð kirkjustjórnar, fræðslu og menningar, og á 12. öld myndaðist þar fyrsta þéttbýlið á Íslandi. Saga staðarins er samofin þróun þjóðkirkjunnar, valdi biskupa og menntun landsmanna.
Skálholtsdómkirkja og listaverk hennar
Núverandi kirkja var vígð árið 1963 og er þekkt fyrir sérstöðu sína í íslenskri kirkjubyggingarlist. Innan hennar má sjá áhrifamikil listaverk, þar á meðal glugga Gerðar Helgadóttur og altarismynd Nínu Tryggvadóttur, sem vekja jafnan mikla athygli gesta. Í kjallara kirkjunnar er sýning á vegum Þjóðminjasafns Íslands þar sem gestir geta skoðað fornminjar, meðal annars steinþró Páls biskups frá 13. öld og fjölbreytta legsteina sem endurspegla langa sögu staðarins.
Fornleifar, undirgöng og Þorláksbúð
Á svæðinu eru fjölmargar minjar sem varpa ljósi á kirkjusögu og daglegt líf í Skálholti á miðöldum. Leiðsagnir eru í boði allt árið þar sem farið er um dómkirkjuna, safnið, undirgöngin, fornleifasvæðið og Þorláksbúð. Hópar geta pantað leiðsögn með því að senda tölvupóst á skalholt@skalholt.is.
Tónleikar, viðburðir og menningarstarf
Skálholt er lifandi menningarstaður þar sem reglulega eru haldnir tónleikar, sögugöngur, málþing og fjölbreyttir viðburðir. Sérstaklega eru Skálholtstónleikar á sumrin orðnir fastur liður í íslensku menningarlífi og laða að sér bæði innlenda og erlenda gesti.
Gisting og veitingar í hjarta sögunnar
Á staðnum er Hótel Skálholt sem býður upp á gistingu í rólegu og söguríku umhverfi. Veitingastaðurinn Hvönn leggur áherslu á hráefni úr nærsveitum og nútímalega matargerð sem fellur vel að andrúmslofti staðarins. Skálholt er því kjörinn áfangastaður fyrir þá sem vilja sameina sögu, menningu og góða upplifun.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á Gullna hringnum og nágrenni
- Það eru gildar ástæður fyrir vinsældum Gullna hringsins. Þar eru auk Skálholts, Þingvellir, Geysissvæðið/Strokkur og Gullfoss – staðir sem enginn ætti að missa af.
- Bleyttu þig! Auk margra sundlauga á svæðinu eru Silfra á Þingvöllum (köfun og snorkl), Fontana Spa og Gamla laugin á Flúðum kjörnir staðir til þess.
- Farðu í göngu- eða hjólaferð um Reykjadal ofan við Hveragerði, baðaðu þig í heitri ánni (þar sem það er öruggt), sjóddu egg í hver og smakkaðu á hverarúgbrauði sem er bakað í jörðinni.
- Heimsæktu gróðurhús! Þú getur fræðst um vistheimilið Sólheima, tómataræktun í Friðheimum, svepparækt á Flúðum og smakkað á gómsætum réttum úr afurðum þeirra.
- Ímyndaðu þér hvernig er að lifa í helli! Skoðaðu manngerða Laugarvatnshella með leiðsögumanni sem segir frá lífi fólks sem þar bjó fyrir um 100 árum.
- Svæðið er ekki aðeins þekkt fyrir jarðhita heldur einnig jarðskjálfta; láttu hristast inni í jarðskjálftaherminum í Hveragerði.
- Lærðu allt um íslenska hestinn á sýningum í Friðheimum, í hesthúsheimsókn að Sólvangi og í styttri eða lengri reiðtúrum, t.d. með Eldhestum.
- Sagan um 1900 lifnar við í heillandi gömlum húsum á Eyrarbakka og í nýja miðbænum á Selfossi. Á Byggðasafni Árnesinga á Eyrarbakka er auðvelt að sjá fyrir sér þorpslífið fyrr á tímum.
- Fáðu þér dýrindis íslenskan humar í veitingahúsi við ströndina, t.d. á Stokkseyri eða Eyrarbakka.
- Farðu í matarleiðangur um svæðið. Smakkaðu hefðbundið skyr í Skyrlandi á Selfossi eða í Skyrgerðinni í Hveragerði, heimsæktu litla bruggverksmiðju, eþíópískan veitingastað á Flúðum og kauptu handgert konfekt í Reykholti.
Nánari upplýsingar á south.is


















