Uppsveitir Árnessýslu

Sagatrail

Uppsveitir Árnessýslu eru svæði þar sem náttúra, menning og ævintýri mætast. Hér finnur þú frægar perlur og minna þekkta staði, fjölbreytta afþreyingu og einstaka upplifun sem hentar öllum aldurshópum. Náttúra, menning og ævintýri Velkomin í Uppsveitir Árnessýslu, þar sem náttúrufegurðin sameinast heillandi menningu og ógleymanlegum ævintýrum! Hér má finna fjölmarga áhugaverða staði til að heimsækja – frægar náttúruperlur, sögustaði og …

Sauðfjársetur á Ströndum

Sagatrail

Sauðfjársetur á Ströndum er lifandi safn og menningarmiðstöð í Sævangi við Steingrímsfjörð, stofnað árið 2002. Safnið er staðsett 12 km sunnan Hólmavíkur og býður upp á fjölbreytta afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Fastasýningin Sauðfé og sveitafólk á Ströndum Í Sauðfjársetri á Ströndum er fastasýningin Sauðfé og sveitafólk á Ströndum sem fjallar um sauðfjárbúskap frá öllum mögulegum og ómögulegum hliðum. Þar er …

Hólar í Hjaltadal

Sagatrail

Hólar í Hjaltadal er sögufrægur staður, umkringdur tignarlegum fjöllum,  og eitt helsta menningar- og menntasetur landsins í nær þúsund ár. Þar var biskupssetur frá 1106 til 1798. Þar er bæði að finna Háskólann á Hólum og Hóladómkirkju sem er elsta steinkirkja á Íslandi (frá 1783) með merkum kirkjugripum . Nýibær er fallegur torfbær sem reistur var árið 1860 og á …

Víkingafélagið Rimmugýgur

admin

Vík­inga­fé­lagið Rimm­ugýg­ur í Hafnar­f­irði er elsta og stærsta starf­andi vík­inga­fé­lagið á  Íslandi, stofnað árið 1997. Heitir félagið því eftir öxi Skarphéðins Njálssonar  í Brennu -Njálssögu. Tilgangur félagsins er að stuðla að auknum áhuga á víkingatímabilinu og uppruna þjóðarinnar. Höfuðáhersla félagsins er á bardagaæfingar, klæðagerð og vandaða handverksmuni með skírskotun í  víkingatímann. Félagið hefur í gegnum árin tekið þátt í mörgum …

Markaðsstofa Vesturlands – Sögulandið Vesturland

Sagatrail

Markaðsstofa Vesturlands – Sögulandið Vesturland Markaðsstofa Vesturlands kynnir sögulandið Vesturland og heldur utan um upplýsingar um áhugaverða áfangastaði og fjölbreytta afþreyingu í landshlutanum. Á Vesturlandi blasir sagan við í hverju skrefi og gestir geta ferðast um sögulandið Vesturland þar sem Íslendingasögur, þjóðsögur og frásagnir af mönnum og málefnum lifna við. Sögulandið Vesturland – Íslendingasögur og þjóðsögur Flestar Íslendingasögurnar eru skráðar á …

Skálholt

admin

Upplifðu þúsund ára sögu Skálholts, sem varð fyrsti biskupsstóll Íslands árið 1056. Þar stóð stærsta kirkja sem reist hefur verið á Íslandi, en núverandi kirkja frá árinu 1963 er mun minni. Skálholt var höfuðstaður landsins í um 750 ár, miðstöð kirkjustjórnar og mikið fræðasetur. Í kringum 1200 bjuggu um 120 manns í Skálholti og var það fyrsta þéttbýlið á Íslandi. …

Snorrastofa í Reykholti

admin

Snorrastofa er menningar­ og miðaldasetur í Reykholti, reist sagnaritaranum, fræðimanninum og höfðingjanum Snorra Sturlusyni (1179–1241) og verkum hans til heiðurs. Snorrastofa veitir ferðamönnum þjónustu og fræðslu í Gestastofu. Hún er á jarðhæð Reykholtskirkju – Snorrastofu, en þar er sýning um Snorra Sturluson, auk þess sem boðið er upp á styttri og lengri kynningar um miðaldir, Snorra og Reykholt. Boðið er …