Atvinnulíf Archives - Sagatrail
Elliðarárstöð
Áfangastaður þar sem náttúra og orka mætast
Elliðaárstöð er einstök blanda af sögu, náttúru og nýsköpun í hjarta Reykjavíkur. Hún stendur í Elliðaárdal, einu vinsælasta útivistarsvæði borgarinnar. Þar má sjá hvernig vatnsafl rafvæddi Reykjavík á sínum tíma og hvernig sú þekking og sköpunarkraftur móta samfélagið enn í dag.
Elliðaárdalur – náttúruperla í borginni
Dalurinn er þekktur fyrir fjölbreytt landslag, jarðfræði og gróður, og ríkt fugla- og dýralíf. Elliðaárnar eru einu laxveiðiár heims sem liggja innan borgarmarka, og á svæðinu má einnig finna fornleifar frá upphafi byggðar og minjar frá síðari heimsstyrjöld.
Virkjunin sem breytti Reykjavík
Elliðaárvirkjun var tekin í notkun árið 1921 og markaði upphaf rafvæðingar í Reykjavík. Tilkoma rafmagns umbreytti daglegu lífi borgarbúa og lagði grunn að nútímalegum veitukerfum, verkfræði og borgarþróun. Í dag hefur áherslan færst frá því að virkja orku árinnar yfir í að virkja sköpunarkraft og forvitni fólks.
Leiðsögn á Elliðaárstöð
Hópar eru velkomnir í skipulagða heimsókn á Elliðaárstöð. Leiðsögn, í boði á íslensku eða ensku, veitir innsýn í sögu virkjunarinnar, Elliðaárdals og orkukerfa Reykjavíkur. Leiðsagnir fara fram á virkum dögum milli kl. 13:00 og 17:00 eftir samkomulagi og standa í 45–60 mínútur.
Lágmarksfjöldi í leiðsögn er 10 manns.
Upplifðu orkuna í dalnum
Elliðaárstöð býður gestum að kynnast tengslum náttúru, vatnsafls og hugvits. Hvort sem þú kemur til að fræðast um sögu, njóta útivistar eða öðlast dýpri skilning á orkukerfum Reykjavíkur, býður dalurinn upp á eftirminnilega upplifun í einstöku borgarlandslagi.
Heimsæktu heimasíðu Elliðaárstöðvar
The post Elliðarárstöð appeared first on Sagatrail.
Fantastic Fjords ferðaskrifstofa
Staðbundin ferðaþjónusta í hjarta Ísafjarðar
Fantastic Fjords er ferðaskrifstofa á Ísafirði sem byggir á áralangri reynslu úr ferða- og þjónustugeiranum bæði í Reykjavík og New York. Fyrirtækið sem stofnað var árið 2016 leggur áherslu á að bjóða ferðir með áherslu á matarupplifanir, sögu og menningu, og tengsl við nærsamfélagið.
Ferðalög með matarmenningarlegum blæ
Fantastic Fjords sérhæfir sig í svokölluðum mjúkum ferðalögum (e. soft travel) þar sem upplifun, rólegur ferðahraði og staðbundin tenging eru í forgrunni. Þannig er matarmenning, söguleg innsýn og samskipti við heimamenn hluti af hverri ferð, sem gerir upplifunina bæði persónulega og eftirminnilega.
Sérsniðin ferð fyrir hvern og einn
Hver ferð er sérsniðin að þörfum og áhuga hvers viðskiptavinar með áherslu á persónulega þjónustu og óvæntar uppákomur sem oftar en ekki vantar í hefðbundin ferðalög.
Óvæntar upplifanir á óvæntum stöðum
Markmið Fantastic Fjords er að skapa einstakar upplifanir á stöðum sem koma gestum á óvart. Hvort sem ferðast er eingöngu um Vestfirði eða ferðinni er blandað saman við aðra landshluta, þá tryggjum að hver gestur fari heim með með ógleymanlegar minningar.
Hafðu samband
Fyrir frekari upplýsingar um ferðir og sérsniðin tilboð, skoðaðu Fantastic Fjords og hafðu samband til að hefja skipulagningu á þinni einstöku ferð.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á Ísafirði og á norðanverðum Vestfjörðum:
Skoðaðu Byggðasafn Vestfjarða í Neðstakaupstað á Ísafirði og lærðu meira um sögu svæðisins.
Skoðaðu útsýnið af nýjum útsýnispalli á Bolafjalli, ef þú þorir!
Skrafaðu við vermann frá fornri tíð í Sjóminjasafninu í Ósvör.
Kynntu þér fyrsta landnema Íslands í Melrakkasetrinu í Súðavík.
Farðu í sjóstangveiði og veiddu í soðið.
Sigldu til Hornstranda eða út í eyjuna Vigur á Ísafjarðardjúpi.
Skoðaðu gömlu Vélsmiðjuna á Þingeyri frá 1913 þar sem allar vélar virka enn.
Skoðaðu lystigarðinn Skrúð í Dýrafirði, sem aðrir skrúðgarðar á Íslandi draga nafn sitt af.
Leggðu upp í kajak-leiðangur framhjá söguslóðum, selum og fuglum.
Gakktu upp með Dynjanda, frægasta fossi Vestfjarða.
Nánari upplýsingar á www.westfjords.is
The post Fantastic Fjords ferðaskrifstofa appeared first on Sagatrail.
Jarðhitasýningin í Hellisheiðarvirkjun
Upplifðu kraft jarðhitans
Jarðhitasýningin í Hellisheiðarvirkjun býður gestum að kynnast hvernig endurnýjanleg orka verður til. Þar má sjá hvernig stærsta jarðvarmavirkjun Íslands framleiðir rafmagn og heitt vatn fyrir höfuðborgarsvæðið. Sýningin er lifandi dæmi um sjálfbæra orkunýtingu í verki.
Sýnilegur jarðhiti – frá orku til nýsköpunar
Á sýningunni geta gestir skoðað vélasalinn og horft yfir vinnusvæðið.
Þar eru einnig gagnvirkar sýningar sem útskýra hvernig jarðhiti er nýttur á Íslandi.
Gestir geta fræðst um sögu jarðhitanýtingar og þróun sjálfbærrar orku í gegnum tíðina.
Carbfix og nýsköpun í Jarðhitagarðinum
Einn af hápunktum sýningarinnar er Carbfix. Þar er koldíoxíð (CO₂) fangað frá virkjuninni og breytt í stein djúpt í jörðu. Gestir fá líka innsýn í önnur nýsköpunarverkefni á svæðinu og fyrirtæki sem starfa í Jarðhitagarði ON. Þar má sjá hvernig þau nýta auðlindastrauma frá Hellisheiðarvirkjun.
Jarðhiti í íslenskri menningu og daglegu lífi
Jarðhiti hefur verið órjúfanlegur hluti af lífi Íslendinga frá landnámi.
Á sýningunni má fræðast um hvernig þessi náttúrulegi orkugjafi hefur mótað fortíð, nútíð og framtíð þjóðarinnar. Jarðhiti hefur haft áhrif á allt frá orkuverði og matvælaframleiðslu til sundlauga og heitra potta.
Komdu og upplifðu jarðhitann
Jarðhitasýningin í Hellisheiðarvirkjun er opin öllum sem vilja fræðast um kraft náttúrunnar.
Þar getur þú séð hvernig Ísland nýtir jarðhita á sjálfbæran og skapandi hátt.
The post Jarðhitasýningin í Hellisheiðarvirkjun appeared first on Sagatrail.
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi
Íslensk ull, útsaumur og þjóðbúningar
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi geymir hina gleymdu iðju frá fortíð til nútíðar. Safnið veitir innsýn í tóvinnu kvenna og karla sem fram fór á heimilum og var stór þáttur í daglegu lífi. Þessi tóvinna var útflutningsiðnaður um aldir – „stóriðja þess tíma“ – þar sem íslenskri ull var breytt í verslunarvöru. Hvert heimili var sjálfbjarga og nýtti ullina til fullnustu.
Atvinnusaga Íslands og heimilisiðnaður
Í safninu má greina hluta af atvinnusögu Íslands og sjá hvernig sjálfþurftarbúskapur og heimilisiðja mæta nútíma viðskiptabúskap á
seinni hluta nítjándu aldar og fram á tuttugustu öld.
Sýning á útsaumi og handverki
Þessi sýning Heimilisiðnaðarsafnsins er sérstaklega hönnuð til að skapa upplifun og hughrif. Til sýnis er fallegur nærklæðnaður kvenna frá fyrri tíð ásamt listilegum útsaumi, hekli og orkeringu. Til að skapa fjölbreytni eru munirnir endurnýttir og skiptir safnið út sýningargripum á milli ára.
Íslenskir þjóðbúningar – skautbúningar, upphlutir og peysuföt
Safnið hefur að geyma úrval íslenskra þjóðbúninga – þar á meðal skautbúninga, upphluti og peysuföt. Sumir búninganna eru frá seinni hluta 19. aldar og upphafi 20. aldar og sýna þróun í klæðnaði þjóðarinnar.
Ullarsýning – íslensk ull og jurtalitir
Gestir geta þreifað á íslenskri ull og fundið mismuninn á togi og þeli. Á sýningunni má sjá handgerð sjöl, prjónuð og hekluð úr togi eða þeli. Sum verk eru jurtalituð en önnur sýna náttúrulega liti ullarinnar. Útprjónaðir vettlingar, sokkar og margt fleira prýða sýninguna.
Halldórustofa – minning um Halldóru Bjarnadóttur
Halldórustofa er sérstök deild innan Heimilisiðnaðarsafnsins, staðsett í efri hluta gamla safnhússins. Hún er kennd við Halldóru Bjarnadóttur (1873–1981) 🔗, þjóðkunna konu sem var heimilisráðunautur Búnaðarfélags Íslands. Halldóra gaf út ársritið Hlín í 44 ár og stofnaði Tóvinnuskólann á Svalbarði í Suður-Þingeyjarsýslu. Hún var brautryðjandi í menntun og menningu kvenna og eflingu heimilisiðnaðar á tuttugustu öld.
The post Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi appeared first on Sagatrail.
Fræðasetur um forystufé
Söguheimur og fróðleikur
Fræðasetur um forystufé var opnað árið 2014 í gömlu samkomuhúsi að Svalbarði í Þistilfirði. Á sýningunni er að finna fjölbreyttan fróðleik um íslenskt forystufé og sögu þess í íslenskum landbúnaði. Gestir fræðast um hvernig þessi einstaka sauðkind hefur verið hluti af menningu og búskaparháttum þjóðarinnar í gegnum aldirnar.
Einkenni íslensks forystufjár
Íslenskar sauðkindur eru fagrar og harðgerðar og skiptast í tvenns konar stofna: forystufé og annað fé. Forystufé hefur fylgt íslensku þjóðinni allt frá landnámi og bændur hafa í gegnum aldirnar notfært sér einstaka hæfileika þess. Íslenska forystuféð er einstakur stofn sem finnst hvergi annars staðar í heiminum. Það sem greinir forystufé frá öðrum kindum er gáfnafar þess og hæfileikinn til að velja bestu leiðir. Forystufé sýnir mikinn dugnað og hörku, og sagt er að það finni á sér þegar veðrabrigði eru yfirvofandi. Það er háfættara og léttara en aðrar sauðkindur og hefur þannig aðlagað sig íslenskum aðstæðum í gegnum aldirnar.
Ullarvörur og handverk úr forystufé
Í safninu er til sölu garn, ullarvörur og handverk sem er sérunnið fyrir setrið. Allar afurðir eru gerðar úr ull og hráefni sem kemur beint frá forystufé. Þannig fá gestir að kynnast bæði hefðbundnu og nútímalegu íslensku handverki.
Listgallerí og kaffihús að Svalbarði
Í húsinu er einnig listgallerí þar sem sýnt er fjölbreytt íslenskt listaverk, og notalegt kaffihús sem býður gestum upp á hvíld og samveru í sögulegu umhverfi. Þannig sameinast menning, saga og íslenskt forystufé í einu rými.
The post Fræðasetur um forystufé appeared first on Sagatrail.
Minjasafn Egils Ólafssonar að Hnjóti
Saga og stofnun safnsins
Egill Ólafsson hóf ungur að safna munum sem tengdust lífi og starfi á Vestfjörðum. Með elju og framsýni byggði hann ásamt konu sinni, Ragnheiði Magnúsdóttur, upp safnið sem síðar var gefið sveitarfélögunum í Vestur‑Barðastrandarsýslu.
Árabátar og sjósókn
Á Minjasafni Egils Ólafssonar er fjöldi muna sem tengjast árabátaútgerð og fyrstu árum vélvæðingar í sjávarútvegi. Sumir gripanna eru einstakir og aðeins varðveittir á Hnjóti. Teikningar Bjarna Jónssonar listmálara af horfnum atvinnuháttum hjálpa gestum að skilja horfinn tíma.
Björgunarafrekið við Látrabjarg
Sérstök sýning segir frá björgunarafrekinu við Látrabjarg árið 1947, þegar íslenskir sjómenn björguðu áhafnarmönnum skipa í miklum vanda.
Þar má einnig sjá hattinn hans Gísla á Uppsölum.
Þjónusta og opnunartími
Safnið býður upp á kaffiteríu, minjagripaverslun og svæðisupplýsingamiðstöð. Það er opið daglega frá 1. maí til 30. september kl. 10–18, en hægt er að hafa samband ef óskað er eftir heimsókn utan opnunartíma  með því að senda tölvupóst til Minjasafns Egils Ólafssonar eða hringja í síma 456‑1511. Safnið er ekki með eigin vef sem stendur en hann er í vinnslu undir veffanginu www.hnjotur.is.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á Vestfjörðum (frá Barðaströnd að Önundarfirði)
Farðu út að Látrabjargi, mesta fuglabjargi á Íslandi. Það lætur engan ósnortinn.
Skrepptu yfir á Rauðasand og skoðaðu einstaka ljósa sandströndina þar.
Farðu um friðlandið í Vatnsfirði á Barðaströnd þar sem fegurðin er við hvert fótmál.
Heimsæktu Skrímslasetrið á Bíldudal, þó það sé aðeins fyrir þau hugrökku.
Skoðaðu listasafn Samúels Jónssonar (1884–1969) í Selárdal við Arnarfjörð; hann var oft kallaður „listamaðurinn með barnshjartað“.
Gakktu upp með Dynjanda, frægasta fossi Vestfjarða.
Heimsæktu Hrafnseyri, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar.
Skoðaðu Gömlu smiðjuna á Þingeyri frá 1913 þar sem allar vélar virka enn.
Leggðu leið þína í lystigarðinn Skrúð í Dýrafirði, sem aðrir skrúðgarðar á Íslandi draga nafn sitt af.
Heimsæktu Gömlu bókabúðina á Flateyri þar sem kennir ýmissa grasa.
Nánari upplýsingar á www.westfjords.is
The post Minjasafn Egils Ólafssonar að Hnjóti appeared first on Sagatrail.
Byggðasafnið á Garðskaga
Saga, menningararfur og náttúra á Garðskaga
Byggðasafnið á Garðskaga, stofnað árið 1995, stendur á fallegu safnasvæði við Garðskagavita í Suðurnesjabæ. Svæðið er hluti af Reykjanes Geopark, sem er á lista UNESCO yfir jarðfræðilega mikilvægar heildir þar sem áhersla er lögð á verndun, fræðslu og sjálfbæra þróun. Hér er víðsýnt til allra átta, fjölbreytt fuglalíf, síbreytilegt hafið og vinsælar gönguleiðir meðfram ströndinni.
Menningarminjar og sjósókn á Suðurnesjum
Safnið varðveitir og miðlar sögu fólks á Suðurnesjum og tengir gesti við menningarminjar svæðisins. Í nágrenninu má finna Skagagarðinn frá 10. öld á Rosmhvalanesi, eitt merkasta mannvirki svæðisins. Á safnsvæðinu stendur einnig vélbáturinn Hólmsteinn GK20, 43 tonna trébátur sem minnir á sjósókn fyrri tíma.
Einstakt aðdráttarafl safnsins er Vélasafn Guðna Ingimundarsonar þar sem um 60 uppgerðar vélar eru til sýnis, margar gangfærar. Þá má sjá Trukk Guðna, sem hefur orðið óformlegt tákn safnsins.
Á safninu er varðveittur sexæringurinn Fram, smíðaður 1887 með Engeyjarlagi. Báturinn er dæmi um súðbyrðinga, norræna bátasmíðaaðferð sem er á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf. Einnig eru á safninu 14 líkön af gömlum húsum úr Sandgerði sem sýna byggingarhefð og samfélag fyrri tíma.
Nýlega var opnuð safnverslun og móttaka með innréttingum frá 1921 úr Verzlun Þorláks Benediktssonar í Akurhúsum í Garði. Við innganginn er landakort af Reykjanesi sem tengir söguna við landslagið. Leiksvæði fyrir börn.
Tíu hugmyndir af afþreyingu á Reykjanesi
Á Reykjanesi eru fjölmargar fallegar gönguleiðir. Ef þú kýst gott útsýni er upplagt að ganga á fjallið Keili eða á Þorbjörn rétt við Grindavík.
Skoðaðu heillandi bátasafn Gríms (módel), listsýningar og sýningar um sjósókn o.fl. í Duus Safnahúsi við smábátahöfnina í Keflavík. Þar við býr einnig barngóða skessan í helli sínum.
Víkingaheimar eru í fallega hannaðri byggingu í Reykjanesbæ. Miðpunktur þess er víkingaskipið Íslendingur sem sigldi frá Íslandi til New York árið 2000. Það er eftirlíking af Gaukstaðaskipinu sem fannst í Noregi árið 1880.
Gakktu yfir Brúna milli heimsálfa; hvergi er auðveldara að fara á milli Evrópu og Norður-Ameríku!
Skoðaðu aðra staði í Reykjanes jarðvangi, svo sem hið nýja Fagradalshraun í Geldingadölum, fallega hraunhella í eldri hraunum, Gunnuhver eða Brimketil.
Dáðstu að litríku jarðhitasvæðinu í Seltúni við Krýsuvík og sjáðu gufurnar frá hverunum stíga upp með tilheyrandi brennisteinslykt.
Rokkið lifir í Reykjanesbæ! Skoðaðu Rokksafn Íslands í Hljómahöll, safn um sögu popp- og rokktónlistar á Íslandi.
Skoðaðu tignarlegan Reykjanesvita, en þar skammt frá var fyrsti viti á Íslandi reistur 1908. Þar er stytta af síðasta Geirfuglinum, með útsýni til Eldeyjar, þar sem síðasti fuglinn var drepinn 1844.
Það eru einnig blómlegar fuglabyggðir á Reykjanesi. Krýsuvíkurbjarg er stærsta fuglabjarg nessins með um 60.000 varpfugla á sumrin.
Skelltu þér í eina af sundlaugum eða baðstöðum svæðisins. Vatnaveröld í Keflavík er tilvalin fyrir fjölskyldur og ekki má gleyma hinu heimsfræga Bláa Lóni.
Nánari upplýsingar á www.reykjanes.is.
The post Byggðasafnið á Garðskaga appeared first on Sagatrail.
Landbúnaðarsafn Íslands
Lifandi saga íslensks landbúnaðar
Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri varpar ljósi á sögu íslensks landbúnaðar og þróun hans í gegnum aldirnar. Í rólegu sveitaumhverfi Borgarfjarðar geta gestir kynnst merkri sögu atvinnugreinar sem hefur mótað íslenskt samfélag, skoðað fjölbreytt landbúnaðartæki og séð hvernig tækniframfarir breyttu búskap á 20. öld.
Tæknialdurinn og merkir gripir
Safnið leggur sérstaka áherslu á upphaf tæknialdar í landbúnaði og sýnir hvernig nýjungar breyttu vinnubrögðum og lífsháttum bænda. Meðal merkustu muna safnsins eru verðmætir gripir frá Ólafsdalsskólanum og frá búi Thors Jensen á Korpúlfsstöðum, sem endurspegla áhrifamikla þróun í íslenskum landbúnaði.
Sýningar og fræðsla fyrir alla
Á safninu er að finna fjölbreyttar sýningar sem fjalla um búskaparhætti, verkfæri, vélar og daglegt líf í sveitum landsins. Þar er einnig lögð áhersla á fræðslu og miðlun, bæði fyrir almenna gesti og hópa sem vilja kafa dýpra í sögu og menningu íslensks landbúnaðar.
Ullarselið – handverk úr héraði
Í móttökurými safnsins er Ullarselið, þar sem boðið er upp á vandað handverk úr ull og öðrum náttúrulegum efnum. Þar geta gestir skoðað og keypt hágæða vörur sem endurspegla hefðir og sköpunarkraft svæðisins.
Upplifun í hjarta Hvanneyrar
Landbúnaðarsafn Íslands er lifandi vettvangur fyrir þau sem vilja skilja betur sögu íslensks landbúnaðar og mikilvægi hans í mótun þjóðarinnar. Safnið sameinar fróðleik, menningu og náttúru í einni heildstæðri upplifun sem hentar bæði fjölskyldum, fræðafólki og áhugafólki um íslenskt mannlíf og búskap.
10 afþreyingar í Borgarfirði og nágrenni
Skoðaðu náttúruperlur og sögustaði í Borgarfirði svo sem Grábrók, Hraunfossa, Barnafoss og Reykholt Snorra Sturlusonar.
Farðu í skipulagða ferð upp á Langjökul og skoðaðu manngerðu ísgöngin: Into the Glacier.
Farðu í skoðunarferð um Víðgelmi, stærsta hraunhelli Íslands: Víðgelmir.
Farðu í styttri eða lengri gönguferð í ævintýralegu umhverfi Húsafells og prófaðu nýju giljaböðin: Húsafell.
Leggstu í bleyti í Kraumu heilsulind við Deildartunguhver: Krauma.
Farðu í hestaferð eða heimsókn í hesthús til að fræðast um íslenska hestinn, t.d. hjá Sturlureykjum.
Kynntu þér íslensku geitina og afurðir hennar í geitabúinu að Háafelli: Háafell – Geitfjársetur Íslands.
Slappaðu af í Guðlaugu, náttúrulauginni á Langasandi á Akranesi: Guðlaug á Langasandi.
Heimsæktu Steðja brugghús og bragðaðu á nokkrum af bjórunum: Brugghúsið Steðji.
Kynntu þér sögu héraðsins á söfnum svæðisins, svo sem Landnámssetrinu í Borgarnesi, Safnahúsinu í Borgarnesi, Byggðasafninu að Görðum á Akranesi og Hernámssetrinu að Hlöðum.
Nánari upplýsingar má finna á www.west.is.
The post Landbúnaðarsafn Íslands appeared first on Sagatrail.
Sagnheimar í Vestmannaeyjum
Söfnin og sögusviðið
Sagnheimar í Vestmannaeyjum eru lifandi menningarsetur þar sem þrjú söfn mynda eina heild: Byggðasafnið, Náttúrugripasafnið og Skanssvæðið. Safnið notar nýjustu tækni til að miðla fræðslu og sögulegum heimildum á áhrifaríkan hátt, þannig að gestir upplifa sögu Eyjanna náið.
Bryggjusvæðið og sjósókn
Stór hluti sýningarsvæðisins í Byggðasafninu er svokallað bryggjusvæði þar sem gestir geta hlustað á átakanlegar sjóslysasögur, ótrúleg björgunarafrek og sjómannasöngva. Þar má einnig skoða beituskúr, verbúð og bjargveiðikofa sem endurspegla harðneskjulegt líf sjómanna og útgerð á liðnum öldum.
Tyrkjaránið og sögulegir atburðir
Tyrkjaránið árið 1627 á sinn mikilvæga sess á sýningunni. Þá réðust sjóræningjar á Vestmannaeyjar, námu fjölda íbúa á brott og seldu sem þræla. Sýningin dregur fram dramatíska atburðarás og áhrif hennar á samfélagið, auk þess sem fjallað er um ferðir íslenskra mormóna til Utah, Þjóðhátíð Vestmannaeyja og fleiri lykilþætti í menningarsögu Eyjanna.
Heimaeyjargosið 1973
Á sýningunni er einnig fjallað um Heimaeyjargosið 1973, einn dramatískasta atburð í sögu Eyjanna. Þar má sjá heimildir, frásagnir og myndefni sem sýna hvernig íbúar brugðust við hamförunum og hvernig samfélagið reis á ný eftir gríðarlegt tjón.
Náttúrugripasafnið og Skanssvæðið
Náttúrugripasafnið sýnir fjölbreyttar náttúruminjar og dýralíf Eyjanna, en á Skanssvæðinu má finna sögulegt fallbyssuvirki, Stafkirkjuna og Landlyst, fyrsta fæðingarheimili landsins. Svæðið er í umsjón Sagnheima og er vinsæll áfangastaður fyrir gesti sem vilja kynnast sögu og menningu Vestmannaeyja á lifandi hátt.
Nánari upplýsingar
Opnunartímar, viðburðir og upplýsingar um leiðsagnir má finna á www.sagnheimar.is.
Tíu tillögur að afþreyingu í Vestmannaeyjum og á Suðurlandi
Heimsæktu Eldheima og fræðstu um Heimaeyjargosið 1973.
Gakktu á fell og kletta á Heimaey, svo sem Heimaklett, Helgafell og Eldfell með frábæru útsýni yfir eyjarnar og meginlandið.
Njóttu útivistar á Heimaey: kajak, hjólreiðar, sjóböð, golf og fjölbreytt afþreying fyrir alla aldurshópa.
Farðu í siglingu um eyjarnar og sjáðu „Fílinn“, lunda og fjölbreytt fuglalíf. Upplýsingar má finna hjá Visit Vestmannaeyjum.
Prófaðu að sveifla þér í Spröngunni – kaðli með hnútum sem er erfiðari en hann lítur út fyrir að vera.
Matgæðingar njóta sín á fjölbreyttum veitingastöðum í Eyjum – og þar er einnig brugghús fyrir bjóráhugafólk.
Aftur á meginlandið: „Safnaðu“ fossum á Suðurlandi. Heimsæktu Skógafoss, Seljalandsfoss, Hjálparfoss, Háifoss og Gullfoss.
Farðu í skipulagða jöklagöngu á Sólheimajökul.
Njóttu stórkostlegs útsýsis í snjósleðaferð á Mýrdalsjökli.
Skoðaðu svartan sandinn í Reynisfjöru, stuðlabergið og Reynisdranga – en farðu varlega, brimið getur verið lífshættulegt.
Nánari upplýsingar og fleiri hugmyndir má finna á www.visitvestmannaeyjar.is og www.south.is.
The post Sagnheimar í Vestmannaeyjum appeared first on Sagatrail.
Skógasafn
Menningararfur og saga svæðisins
Skógasafn undir Eyjafjöllum varðveitir menningararf Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga og sýnir þróun atvinnuhátta til lands og sjávar frá landnámi til samtímans. Safnið var stofnað árið 1949 og er í dag eitt umfangsmesta byggðasafn landsins þar sem gestir geta fræðst um sjósókn, búskap, handverk og daglegt líf fyrri tíma.
Húsasafn og gömul byggingarhefð
Húsasafnið er stórt og glæsilegt útisýningarsvæði þar sem má finna torfbæ, skólabyggingu frá upphafi 20. aldar og fleiri söguleg hús. Gestir geta gengið á milli húsanna, skoðað innréttingar og muni og séð fyrir sér lífið á liðnum tímum í sveitum og sjávarþorpum Suðurlands.
Byggðasafn og sjósókn
Á Byggðasafninu er yfirgripsmikið safn muna sem tengjast sjósókn og útræði frá sunnlenskum brimsöndum. Höfuðprýði safnsins er áttæringurinn Pétursey, byggður árið 1855 og í notkun til 1946. Þar eru einnig gripir sem tengjast störfum bænda, húsbúnaði, handverki og uppstoppuð dýr sem endurspegla líf og menningu fyrri alda.
Samgöngusafn og þróun samgangna
Nýjasta viðbótin er Samgöngusafnið frá árinu 2002, þar sem má finna fornbíla, vegagerðartæki og fjölbreytta muni sem sýna þróun samgangna á Íslandi á 19. og 20. öld. Þar er einnig gerð skil 80 ára sögu björgunarsveitanna og landpóstanna.
Þjónusta og aðstaða
Á Skógasafni er góð minjagripasala og veitingastaðurinn Skógakaffi sem býður gestum upp á hressingu í hlýlegu umhverfi. Safnið er í aðeins einnar mínútu fjarlægð frá Skógafossi og er auðvelt að finna við hringveginn.
Nánari upplýsingar og heimsókn
Opnunartímar og upplýsingar um leiðsagnir og bókanir fyrir hópa má finna á www.skogasafn.is. Leiðsagnir eru í boði á íslensku, ensku og þýsku fyrir hópa sem hafa pantað með fyrirvara.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á Suðurlandi
Finndu til smæðar þinnar við Skógafoss og farðu göngustíginn upp að brún hans. Ef þú heldur áfram upp eftir Skógaá sérðu fjölda fagurra, minni fossa.
Gakktu yfir Fimmvörðuháls, frá Skógum til friðlandsins í Þórsmörk, einni vinsælustu gönguleið á Íslandi.
„Safnaðu“ fossum á Suðurlandi og heimsæktu Gullfoss, Hjálparfoss, Háifoss, Gljúfrabúa og Seljalandsfoss.
Skoðaðu sögustaði Njáls sögu og vel varðveitta torfbæinn á Keldum á Rangárvöllum.
Farðu í skipulagða jöklagöngu á Sólheimajökul eða í snjósleðaferð á Mýrdalsjökul.
Skoðaðu svartan sandinn í Reynisfjöru, brimið, stuðlabergsklettana og Reynisdranga. Farðu varlega – öldurnar geta verið lífshættulegar.
Skoðaðu náttúru- og jarðfræðiundur í Kötlu jarðvangi og skoðaðu sýninguna um Kötlu.
Baðaðu þig í Seljavallalaug eða í náttúrulauginni í Landmannalaugum – magnað umhverfi á báðum stöðum.
Kíktu á hraunsýninguna LAVA Show í Vík og farðu með Herjólfi til Vestmannaeyja til að sjá sýninguna Eldheima.
Gakktu inn í Rútshelli, líklega elsta manngerða helli á Íslandi.
Nánari upplýsingar og fleiri hugmyndir má finna á www.south.is.
The post Skógasafn appeared first on Sagatrail.