Fræðasetur um forystufé

AtvinnulífÓvenjulegt
Íslenskar sauðkindur eru fagrar og harðgerðar. Þær geta verið tvenns konar: forystufé og annað fé. Forystufé hefur fylgt íslensku þjóðinni allt frá landnámi og hafa bændur í gegnum aldirnar notfært sér einstaka hæfileika þess.  Það sem greinir forystufé frá öðrum kindum er að það býr yfir ólíku gáfnafari, velur bestu leiðir og sýnir mikinn dugnað og hörku. Sagt er að forystufé finni á sér þegar veðrabrigði eru yfirvofandi og sjái jafnvel ýmislegt sem öðrum er hulið. Forystufé er einnig háfættara og töluvert léttara en aðrar kindur. Íslenska forystuféð er einstakur stofn  sem finnst hvergi annarsstaðar í heiminum. 
.
Fræðasetur um forystufé var opnaði  í gömlu samkomuhúsi að Svalbarði í Þistilfirði árið 2014. Á sýningunni  þar er að finna ýmsan fróðleik um íslenska forystuféð. Þar er einnig til sölu garn, ullarvörur og annað handverk sem er  sérunnið fyrir setrið og gert úr afurðum forystufjár.  Í húsinu er jafnframt listgallerí og kaffihús.
Svalbarði, 681 Þórshöfn
forystusetur@forystusetur.is
www.forystusetur.is
852 8899
Opnunartímar:

1. júní-31. ágúst  11-18.

HreinlætisaðstaðaLeiðsögnSýningVeitingar
Samtök um söguferðaþjónustu (SSF) voru stofnuð árið 2006. Þau eru samráðsvettvangur aðila er stunda söguferðaþjónustu á Íslandi, einkum hvað varðar markaðssetningu, gæði og fagmennsku.

Hafa samband

Email: info@sagatrail.is