Lava Show í Vík
Á LAVA SHOW er hraun brætt upp í 1100°C. Þegar bráðið hraunið streymir í sýningarsalinn verður til stórkostlegt sjónarspil. Hitastigið í salnum hækkar verulega og gestir geta greinilega séð, lyktað, heyrt og fundið fyrir miklum hita frá hrauninu úr öruggum sætum. Fjölskylduvæn sýning sem sameinar fræðslu í jarðfræði og spennandi upplifun. Hraunið er fengið úr Kötlugosinu árið 1918.
Hugmyndin að Lava Show kviknaði árið 2010 þegar eigendurnir, Júlíus Ingi Jónsson og Ragnhildur Ágústsdóttir, sáu 200 m háan hraunfoss í eldgosinu á Fimmvörðuhálsi. Árið 2018 opnaði síðan Lava Show í Vík og árið 2022 í Reykjavík.
Í nýrri vefverslun Lava Show er úrval handgerðra skartgripa og gjafavöru úr hrauni.
LAVA SHOW hefur hlotið fjölda nýsköpunarverðlauna og viðurkenninga fyrir fræðslu- og menningarlegt gildi.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á Suðurlandi:
- Skoðaðu svartan sandinn í Reynisfjöru, brimið, stuðlabergsklettana og Reynisdranga. En farðu varlega, öldurnar geta verið lífshættulegar!
- Skoðaðu hin mörgu náttúru- og jarðfræðiundur í Kötlu jarðvangi og heimsæktu Kötlusýninguna á Vík.
- Finndu til smæðar þinnar við Skógafoss og farðu göngustíginn upp að brún hans. Ef þú heldur áfram upp eftir Skógaá muntu sjá fjölda fagurra en minni fossa.
- Ganga yfir Fimmvörðuháls, frá Skógum og að friðlandinu í Þórsmörk, er ein vinsælasta gönguleið á Íslandi.
- Skoðaðu sögustaði Njáls sögu og vel varðveitta torfbæinn að Keldum á Rangárvöllum.
- Farðu í skipulagað jöklagöngu á Sólheimajökul og í snjósleðaferð á Mýrdalsjökul.
- Baðaðu þig í Seljavallalaug eða í náttúrulauginni í Landmannalaugum. Magnað umhverfi er á báðum stöðum.
- Heimsæktu eldfjalla- og jarðskjálftasýninguna LAVA á Hvolsvelli og Eldheima í Vestmannaeyjum.
- „Safnaðu“ fossum á Suðurlandi; aðrir áhugaverðir fossar eru meðal annars Gullfoss, Hjálparfoss, Háifoss, Gljúfrabúi og Seljalandsfoss.
- Gakktu inn í Rútshelli, líklega elsta manngerða helli á Íslandi.
Nánari upplýsingar og hugmyndir á www.south.is














