Sögusetur íslenska fjárhundsins

ArfleifðByggingarFerðirLandbúnaðurNáttúra

Sögusetur íslenska fjárhundsins er einstök sýning, tileinkuð þjóðarhundi Íslendinga. Markmið setursins er að varðveita og miðla sögu íslenska fjárhundsins og gera hana sýnilega og aðgengilega fyrir alla.

Sögusetrið opnaði í maí 2025 eftir þriggja ára undirbúningsvinnu menningarfræðingsins, Evelyn Ýr, sem á heima á Lýtingsstöðum.

Hægt er að lesa um sögu hundsins (á íslensku, ensku, þýsku og frönsku), skoða heimildarmyndir, gamlar ljósmyndir og listaverk. Einnig er hægt að fletta í gegnum bækur og nafna- og litagagnabankann, skoða hundinn í nærmynd og hlusta á sögur. Íslensku fjárhundarnir á bænum mynda skemmtilega móttökunefnd.

Torfhesthús
Innblásin af sögu bæjarins lét fjölskyldan á Lýtingsstöðum hlaða hesthús, skemmu og rétt úr torfi árið 2015. Byggingarnar eru meistaraverk íslensks handverks. Sýning í torfhúsunum segir frá því hvernig hrossum var haldið á árum áður og hvernig saga fólks og hrossa á Íslandi er tengd saman. Boðið er upp á hljóðleiðsögn (á íslensku, ensku, þýsku og frönsku) sem gerir heimsóknina að enn meiri upplifun. Leiðsögnin tekur um 30 mínútur og hentar vel fyrir 6 ára og eldri. Einnig er hægt að fá leiðsögn fyrir hópa.

Lýtingsstaðir
Saga Lýtingsstaða hefst á landnámsöld þegar maður að nafni Lýtingur settist að á jörðinni. Bærinn var höfuðból í margar aldir og hinn forni hreppur, Lýtingsstaðahreppur, bar nafn hans. Hálfkirkja stóð á Lýtingsstöðum frá 11. til 18. aldar og var hún síðar notuð sem þinghús, sem var í notkun fram á 20. öld. Þinghúsið og bæjarhúsið var byggt úr torfi og þiljuð. Fjárhúsin og hesthúsin voru úr torfi með trégöflum. Því miður hefur ekkert af þessum gömlu byggingum varðveist til dagsins í dag, en torfbyggingarnar frá 2015 gefa góða mynd af gamla tímanum á bænum.

Á Lýtingsstöðum hefur verið rekin ferðaþjónusta frá árinu 2000 samhliða hefðbundnum búskap. Boðið er upp á hestaferðir, gistingu, heimsóknir fyrir einstaklinga og móttöku hópa til að kynna íslenska menningararfleifð: íslenska hestinn, íslenskan byggingararf (torfhús) og íslenska hundinn.

Hraunkot á Lýtingsstöðum, 561 Varmahlíð
fjarhundur@fjarhundur.is
www.fjarhundur.is
893 3817
Opnunartímar:

Sögusetrið og torfhesthúsið eru opið alla daga frá 1. maí til 30. september, kl. 9–18.

Hægt er að opna fyrir einstaklinga og hópa eftir samkomulagi utan reglulegs opnunartíma.

Ferðaþjónustan á Lýtingsstöðum: www.lythorse.is

GistingHreinlætisaðstaðaLeiðsögnMinjagripasalaSýning
Samtök um söguferðaþjónustu (SSF) voru stofnuð árið 2006. Þau eru samráðsvettvangur aðila er stunda söguferðaþjónustu á Íslandi, einkum hvað varðar markaðssetningu, gæði og fagmennsku.

Hafa samband

Email: info@sagatrail.is