Lava Show í Reykjavík

JarðsagaNáttúraÓvenjulegt

Á LAVA SHOW er hraun brætt upp í 1100°C. Þegar bráðið hraunið streymir í sýningarsalinn verður til stórkostlegt sjónarspil. Hitastigið í salnum hækkar verulega og gestir geta greinilega séð, lyktað, heyrt og fundið fyrir miklum hita frá hrauninu úr öruggum sætum. Fjölskylduvæn sýning sem  sameinar fræðslu í jarðfræði og spennandi upplifun. Hraunið er fengið úr Kötlugosinu árið 1918.

Hugmyndin að Lava Show kviknaði árið 2010 þegar eigendurnir, Júlíus Ingi Jónsson og Ragnhildur Ágústsdóttir, sáu 200 m háan hraunfoss í eldgosinu á Fimmvörðuhálsi. Árið 2018 opnaði síðan Lava Show í Vík og árið 2022 í Reykjavík.

Í nýrri vefverslun Lava Show er úrval handgerðra skartgripa og gjafavöru úr hrauni.

LAVA SHOW hefur hlotið fjölda nýsköpunarverðlauna og viðurkenninga fyrir fræðslu- og menningarlegt gildi.

 

Tíu hugmyndir að afþreyingu í og við Reykjavík:

  1. Farðu í bátsferð frá Reykjavíkurhöfn; skoðaðu hvali, lunda eða norðurljós, farðu í sjóstangveiði eða sigldu út í Viðey.
  2. Kíktu til nágranna okkar Sögusafnið, Whales of Iceland og síðan FlyOver Iceland á Granda, þar sem þú sérð helstu náttúrundur Íslands í mögnuðu sýndarflugi.
  3. Skoðaðu Sjóminjasafn Reykjavíkur sem er í næsta nágrenni.
  4. Skoðaðu líflegt hafnarsvæðið á Granda með galleríum, verslunum og veitingastöðum.
  5. Heimsæktu Landnámssýninguna í Aðalstræti, Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Listasafn Reykjavíkur.
  6. Farðu í gönguferð um Reykjavík og skoðaðu sögulegar byggingar og kennileiti, svo sem Hallgrímskirkju, Hörpu og Ráðhús Reykjavíkur.
  7. Gakktu um skógivaxna Öskjuhlíð og skoðaðu sýningar í Perlunni, þar á meðal íshelli og norðurljósasýningu.
  8. Farðu í hjólaferð og uppgötvaðu náttúruna á höfuðborgarsvæðinu, þar á meðal við ströndina og Gróttuvita, í Fossvogsdal og Elliðaárdal.
  9. Farðu í sund! Prófaðu sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu eða sjósund á Nauthólsvík. Nýjasti baðstaðurinn er Sky Lagoon í Kópavogi.
  10. Farðu í gönguferð á fjöll í nágrenninu, svo sem Úlfarsfell, Mosfell, Helgafell, Esju eða Vífilsfell.

Nánari upplýsingar á www.visitreykjavik.is

Fiskislóð 73, 101 Reykjavík
info@lavashow.com
www.lavashow.com
(+354) 553 0005
Opnunartímar:

Opið alla daga. Sýningin tekur um 50 mínútu. Sýningar kl. 12:00, 14:00, 16:00 og 18:00.

Sjá einnig Lava Show í Vík í Mýrdal: www.lavashow.com/vik

HreinlætisaðstaðaLeiðsögnMinjagripasalaSýningVeitingar
Samtök um söguferðaþjónustu (SSF) voru stofnuð árið 2006. Þau eru samráðsvettvangur aðila er stunda söguferðaþjónustu á Íslandi, einkum hvað varðar markaðssetningu, gæði og fagmennsku.

Hafa samband

Email: info@sagatrail.is