Upprunalega hraunsýningin í Vík Lava Show í Vík er fyrsta sýning sinnar tegundar á Íslandi og býður gestum að sjá bráðið hraun renna í öruggu og stýrðu rými. Hér er eldvirkni landsins sýnd á lifandi hátt, þar sem glóandi hraun flæðir yfir sviðið og sýnir hvernig náttúruöflin móta landið. Sýningin sameinar frásögn, vísindi og sjónarspil á einstakan hátt. Návígi við …
Uppsveitir Árnessýslu
Uppsveitir Árnessýslu eru svæði þar sem náttúra, menning og ævintýri mætast. Hér finnur þú frægar perlur og minna þekkta staði, fjölbreytta afþreyingu og einstaka upplifun sem hentar öllum aldurshópum. Náttúra, menning og ævintýri Velkomin í Uppsveitir Árnessýslu, þar sem náttúrufegurðin sameinast heillandi menningu og ógleymanlegum ævintýrum! Hér má finna fjölmarga áhugaverða staði til að heimsækja – frægar náttúruperlur, sögustaði og …
Herjólfsbær Vestmannaeyjum
Herjólfsbær Vestmannaeyjum – lifandi víkingasaga í Herjólfsdal Herjólfsbær Vestmannaeyjum er endurbyggður torfbær og lifandi sýning þar sem gestir upplifa daglegt líf víkinga um árið 900. Sýningin byggir á fornleifum, sögulegum rannsóknum og frásögnum úr Landnámu og sameinar menningu, handverk og náttúru í einstaka upplifun. Um sýninguna og tilgátubæinn Herjólfsbær Vestmannaeyjum er tilgátusýning sem endurskapar víkingabæ eftir niðurstöðum fornleifarannsókna í Herjólfsdal. …
Keldur á Rangárvöllum
Sögulegt höfuðbýli og torfbær á Suðurlandi Keldur á Rangárvöllum er einn merkasti sögustaða á Suðurlandi og eini stóri torfbærinn sem hefur varðveist á svæðinu. Þar var fornt höfuðbýli Oddaverja og bjó þar meðal annars höfðingi þeirra, Jón Loftsson, sín síðustu æviár. Gamli bærinn og umhverfi hans endurspegla búsetu, völd og daglegt líf á Íslandi frá miðöldum og fram á 20. …
Hellarnir við Hellu
Hellarnir við Hellu – fornir manngerðir hellar á Suðurlandi Hellarnir við Hellu eru meðal merkustu manngerðu hella á Íslandi. Þeir mynda einstakan ævintýraheim á Suðurlandi. Á jörðinni Ægissíðu hafa fundist tólf fornir hellar og fjórir þeirra eru opnir gestum. Allar ferðir eru í fylgd leiðsögumanns. Hellarnir eru friðlýstir og varðveittir af fjölskyldunni á Ægissíðu í samstarfi við nærsamfélagið og Minjastofnun …
Oddi á Rangárvöllum
Sögustaður, kirkjustaður og höfðingjasetur Oddi á Rangárvöllum er einn merkasti sögustaður Íslands, kirkjustaður frá upphafi kristni og fornt höfðingja- og menntasetur Oddaverja. Bærinn stendur á grænum odda milli Ytri- og Eystri-Rangár og Þverár og var um aldir stórbýli með víðáttumiklum engjum og fjölmörgum hjáleigum. Á þjóðveldisöld var Oddi ein áhrifamesta valdamiðstöð landsins og þar mótaðist menningar- og fræðalíf sem hafði …
Skyrland á Selfossi
Saga og upplifun þjóðarréttarins Skyrland á Selfossi er lifandi upplifunarsýning sem fjallar um sögu skyrs frá landnámi til dagsins í dag. Skyrið hefur nært og styrkt Íslendinga í gegnum aldirnar og á síðustu árum orðið þekkt ofurfæða víða um heim. Sýningin er staðsett í Gamla Mjólkurbúinu í nýja miðbænum á Selfossi og leiðir gesti í gegnum ævintýri skyrsins með stuttum …
Skansinn í Vestmannaeyjum
Sögulegt fallbyssuvirki og varnarstöð Skansinn í Vestmannaeyjum var upphaflega fallbyssuvirki sem Danakonungur lét reisa til að verjast erlendum kaupmönnum. Eftir Tyrkjaránið 1627 voru þar vopnaðir verðir og svæðið gegndi mikilvægu hlutverki í vörnum Eyjanna. Í dag er Skansinn eitt merkasta sögusvæði bæjarins og vinsæll áfangastaður fyrir gesti sem vilja kynnast sögu og menningu Vestmannaeyja. Stafkirkjan og kristnitakan Á Skanssvæðinu stendur …
Eldheimar í Vestmannaeyjum
Gosminjar og áhrif Heimaeyjargossins Eldheimar í Vestmannaeyjum er gosminjasýning þar sem fjallað er á áhrifamikinn hátt um Heimaeyjargosið árið 1973. Þá urðu nær allir íbúar eyjunnar, um fimm þúsund manns, að yfirgefa heimili sín í skyndi og flýja eyjuna. Hraun og aska eyðilögðu þriðjung byggðarinnar og tæplega 400 hús og byggingar fóru undir eldgosið. Sýningin dregur fram persónulegar frásagnir, heimildir …
Sagnheimar í Vestmannaeyjum
Söfnin og sögusviðið Sagnheimar í Vestmannaeyjum eru lifandi menningarsetur þar sem þrjú söfn mynda eina heild: Byggðasafnið, Náttúrugripasafnið og Skanssvæðið. Safnið notar nýjustu tækni til að miðla fræðslu og sögulegum heimildum á áhrifaríkan hátt, þannig að gestir upplifa sögu Eyjanna náið. Bryggjusvæðið og sjósókn Stór hluti sýningarsvæðisins í Byggðasafninu er svokallað bryggjusvæði þar sem gestir geta hlustað á átakanlegar sjóslysasögur, …
Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Lifandi menningarhús á Höfn Menningarmiðstöð Hornafjarðar á Höfn sameinar, Svavarssafn, Gömlubúð, byggðasafn, héraðsskjalasafn og bókasafn. Saman mynda þessar stofnanir lifandi miðpunkt menningar, lista, sögu og fræðslu í sveitarfélaginu Hornafirði. Svavarssafn – listasafn tileinkað Svavari Guðnasyni Svavarssafn varðveitir verk Svavars Guðnasonar, abstrakt listmálara sem fæddist á Höfn árið 1909 og er talinn meðal áhrifamestu listamanna 20. aldar á Íslandi. Hann var …
Þórbergssetur á Hala
Sögusetur tileinkað Þórbergi Þórðarsyni Þórbergssetur á Hala í Suðursveit er tileinkað lífi og starfi Þórbergs Þórðarsonar, eins merkasta rithöfundar 20. aldar. Húsið er auðþekkjanlegt með risavöxnum bókarkili á langhlið og hýsir fróðlegar sýningar um verk Þórbergs og sögu þessa afskekkta samfélags í nágrenni Vatnajökuls. Æskustöðvar í skugga Vatnajökuls Þórbergur ólst upp á Hala, milli beljandi jökulfljóta og í skugga Vatnajökuls. …
Kirkjubæjarklaustur
Árið 1186 var stofnað nunnuklaustur af Benediktsreglu í Kirkjubæ á Síðu, þar sem nú heitir Kirkjubæjarklaustur, og var það starfrækt til ársins 1554. Þjóðsaga segir frá óhlýðnum nunnum sem áttu að hafa verið brenndar uppi á Systrastapa. Systravatn og Systrafoss ofan við byggðina heita einnig eftir þessum reglusystrum. Árið 1995-2006 fóru fram fornleifarannsóknir á rústasvæðinu við hlið gamla kirkjugarðsins á …
Skógasafn
Menningararfur og saga svæðisins Skógasafn undir Eyjafjöllum varðveitir menningararf Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga og sýnir þróun atvinnuhátta til lands og sjávar frá landnámi til samtímans. Safnið var stofnað árið 1949 og er í dag eitt umfangsmesta byggðasafn landsins þar sem gestir geta fræðst um sjósókn, búskap, handverk og daglegt líf fyrri tíma. Húsasafn og gömul byggingarhefð Húsasafnið er stórt og glæsilegt …
Þjóðveldisbærinn í Þjórsárdal
Sögulegur bær í hjarta Þjórsárdals Þjóðveldisbærinn í Þjórsárdal stendur í dal sem var áður gróinn og búsældarlegur. Árið 1104 breyttist allt þegar mikið gos varð í Heklu. Öskufallið lagði dalinn í auðn og huldar rústir urðu eftir. Þar fannst m.a. stórbýlið Stöng, ein merkasta fornleifauppgötvun svæðisins. Endurgerður bær frá þjóðveldisöld Árið 1974 var reistur nýr torfbær í tilefni af 1100 …
Byggðasafn Árnesinga
Sögusvið við sjávarsíðuna á Eyrarbakka Byggðasafn Árnesinga á Eyrarbakka er lifandi menningarsetur þar sem saga heldri manna og alþýðunnar birtist á fjölbreyttum og vel unnum sýningum. Safnið stendur við sjávarsíðuna í sögulegu umhverfi og er í jaðri Gullna hringsins, einnar vinsælustu ferðaleiðar landsins. Húsið – menningarheimili frá 1765 Hjarta safnsins er Húsið, reisulegt kaupmannsheimili frá árinu 1765 sem gnæfði yfir …
Skálholt
Þúsund ára kirkju- og menningarmiðstöð Skálholt er einn merkasti sögustaður Íslands og var fyrsti biskupsstóll landsins árið 1056. Í nær átta aldir var Skálholt miðstöð kirkjustjórnar, fræðslu og menningar, og á 12. öld myndaðist þar fyrsta þéttbýlið á Íslandi. Saga staðarins er samofin þróun þjóðkirkjunnar, valdi biskupa og menntun landsmanna. Skálholtsdómkirkja og listaverk hennar Núverandi kirkja var vígð árið 1963 …
Laugarvatnshellar
Manngerðir hellar með óvænta sögu Laugarvatnshellar eru manngerðir hellar á milli Þingvalla og Laugarvatns þar sem talið er að Papar hafi hafst við fyrir landnám norrænna manna. Fyrir um 100 árum bjó þar ung fjölskylda ásamt börnum sínum og búfénaði og lifði af rjúpnaveiðum og greiðasölu til ferðalanga á leið um Gullna hringinn. Endurgerðir hellar og lifandi leiðsögn Hellarnir hafa …
Þingvellir
Sögulegur helgistaður Íslendinga Þingvellir eru einn mikilvægasti sögustaður Íslendinga og þar má sjá skýrari en annars staðar hvernig saga þjóðarinnar og landsins fléttast saman. Á Þingvöllum var Alþingi stofnað árið 930 og kom þar saman í nær níu aldir. Meginviðburðir Íslandssögunnar tengjast þessum stað og því skipa Þingvellir sérstakan sess í hugum Íslendinga. Þingstaðurinn forni og Alþingi Á bökkum Öxarár …
