Minjastaður Archives - Sagatrail
Elliðarárstöð
Áfangastaður þar sem náttúra og orka mætast
Elliðaárstöð er einstök blanda af sögu, náttúru og nýsköpun í hjarta Reykjavíkur. Hún stendur í Elliðaárdal, einu vinsælasta útivistarsvæði borgarinnar. Þar má sjá hvernig vatnsafl rafvæddi Reykjavík á sínum tíma og hvernig sú þekking og sköpunarkraftur móta samfélagið enn í dag.
Elliðaárdalur – náttúruperla í borginni
Dalurinn er þekktur fyrir fjölbreytt landslag, jarðfræði og gróður, og ríkt fugla- og dýralíf. Elliðaárnar eru einu laxveiðiár heims sem liggja innan borgarmarka, og á svæðinu má einnig finna fornleifar frá upphafi byggðar og minjar frá síðari heimsstyrjöld.
Virkjunin sem breytti Reykjavík
Elliðaárvirkjun var tekin í notkun árið 1921 og markaði upphaf rafvæðingar í Reykjavík. Tilkoma rafmagns umbreytti daglegu lífi borgarbúa og lagði grunn að nútímalegum veitukerfum, verkfræði og borgarþróun. Í dag hefur áherslan færst frá því að virkja orku árinnar yfir í að virkja sköpunarkraft og forvitni fólks.
Leiðsögn á Elliðaárstöð
Hópar eru velkomnir í skipulagða heimsókn á Elliðaárstöð. Leiðsögn, í boði á íslensku eða ensku, veitir innsýn í sögu virkjunarinnar, Elliðaárdals og orkukerfa Reykjavíkur. Leiðsagnir fara fram á virkum dögum milli kl. 13:00 og 17:00 eftir samkomulagi og standa í 45–60 mínútur.
Lágmarksfjöldi í leiðsögn er 10 manns.
Upplifðu orkuna í dalnum
Elliðaárstöð býður gestum að kynnast tengslum náttúru, vatnsafls og hugvits. Hvort sem þú kemur til að fræðast um sögu, njóta útivistar eða öðlast dýpri skilning á orkukerfum Reykjavíkur, býður dalurinn upp á eftirminnilega upplifun í einstöku borgarlandslagi.
Heimsæktu heimasíðu Elliðaárstöðvar
The post Elliðarárstöð appeared first on Sagatrail.
Dalir
Menningararfur og náttúrufegurð
Dalir eru svæði þar sem saga og náttúra mætast á einstakan hátt. Hér má rekja spor landnámsmanna og Íslendingasagna, njóta kyrrðar, fjölbreyttrar útivistar og hlýlegs samfélags. Dalirnir bjóða upp á upplifun sem sameinar menningararf og náttúrufegurð – staður til að ferðast hægt og njóta.
Söguslóðir og náttúruupplifun í Dölum
Dalir státa af ríkulegri sögu og fjölmörgum sögufrægum stöðum sem tengjast landnámi og Íslendingasögum. Landslagið ber vitni um fortíðina og býður upp á fjölbreytta útivist: gönguleiðir, fuglaskoðun og kyrrð sem nærir líkama og sál.
Dalirnir liggja við Breiðafjörð, þar sem óteljandi eyjar, fuglalíf og hvalir skapa einstaka upplifun. Friðland Breiðafjarðar, vötn, fossar og strendur mynda fjölbreytt og áhrifaríkt landslag.
Sagan lifnar við
Í Dölum má heimsækja söguslóðir Auðar djúpúðgu og upplifa landslagið sem mótaði þessa víðförnu konu. Á Eiríksstöðum í Haukadal er fæðingarstaður Leifs „heppna“ Erikssonar, þar sem gestir kynnast lífsháttum og aðstæðum fjölskyldu hans í sögulegu umhverfi.
Náttúran í Dölum
Dalirnir eru heimkynni fjölbreyttrar náttúru og dýralífs. Hér má sjá íslenskan búfénað í sínu náttúrulega umhverfi, auk sela, lunda og haferna. Setstu á mjúka þúfu, finndu ilminn af sjó og gróðri og hlustaðu á fuglasöng, lambajarm og óm fossanna. Í Dölum ertu aldrei langt frá náttúrunni – og stundum jafnvel huldufólki, álfum eða tröllum sem lifa í sátt við íbúa.
Gisting og tenging við heimamenn
Í Dölum er fjölbreytt gisting – hótel, gistiheimili, sumarhús og tjaldsvæði. Hittu heimamenn, heyrðu sögur þeirra og fáðu innsýn í lifnaðarhætti Dalamanna. Þeir veita gjarnan ráð um áhugaverða staði og upplifanir. Stuttur göngutúr getur dýpkað upplifunina og sýnt þér Dalina á nýjan hátt.
Dalir eru staður til að ferðast hægt, taka inn stemninguna, njóta og vera.
Tíu hugmyndir að afþreyingu í Dölum
Heimsæktu Vínlandssetrið í Búðardal og fræðstu um landafundi Leifs heppna í Vínlandi.
Farðu aftur til landnámsaldar á Eiríksstöðum í Haukadal og upplifðu lífshætti 10. aldar.
Slakaðu á í Guðrúnarlaug í friðsælu umhverfi Lauga í Sælingsdal.
Skoðaðu sögustaði á Gullna söguhringnum í Dölunum, þar sem bjuggu m.a. Auður djúpúðga og Geirmundur heljarskinn.
Fjölbreyttar gönguleiðir í sveitaumhverfi Dalanna henta bæði lengri og styttri ferðum.
Smakkaðu vörur beint frá býli á Rjómabúinu að Erpsstöðum – osta, skyr, ís og fleira.
Veiddu silung í Haukadalsvatni – fáðu þér veiðileyfi og njóttu kyrrðarinnar.
Heimsæktu húsdýragarðinn að Hólum í Hvammssveit og hittu skemmtileg dýr með leiðsögn.
Líttu við í Ólafsdal í Gilsfirði, þar sem fyrsti búnaðarskóli landsins var stofnaður árið 1880.
Ef þú ert á leið norður, skaltu ekki láta Sjávarsmiðjuna á Reykhólum fram hjá þér fara.
Nánari upplýsingar má finna á www.west.is.
The post Dalir appeared first on Sagatrail.
Uppsveitir Árnessýslu
Náttúra, menning og ævintýri
Velkomin í Uppsveitir Árnessýslu, þar sem náttúrufegurðin sameinast heillandi menningu og ógleymanlegum ævintýrum! Hér má finna fjölmarga áhugaverða staði til að heimsækja – frægar náttúruperlur, sögustaði og minna þekkta staði líka. Í uppsveitunum finnur þú fallega fossa, heitar lindir og alls kyns upplifun fyrir alla aldurshópa.
Allir þekkja Þingvelli, Gullfoss, Geysi og Skálholt, en svæðið hefur upp á svo margt annað skemmtilegt að bjóða. Gullna hringinn þekkja flestir, en hann er í reynd mun stærri en margur heldur – eiginlega líkari gullkeðju en hring. Í Uppsveitum Árnessýslu er alltaf eitthvað nýtt og spennandi að sjá og upplifa.
Við mælum með að gefa sér meira en einn dag til að njóta alls þess sem svæðið hefur upp á að bjóða. Fjölbreyttir gistimöguleikar eru í boði: tjaldsvæði, gistiheimili, sumarhús, hótel og fjallaskálar. Margir staðir bjóða heita potta og alltaf má finna sundlaug í nágrenninu.
Fjölbreyttir veitingastaðir bjóða gestum matvæli úr heimabyggð og einstakar matarupplifanir – enda eru Uppsveitirnar mikil matarkista og vagga grænmetisræktunar á Íslandi.
Margvísleg afþreying
Í Uppsveitum Árnessýslu er afþreying í boði fyrir alla fjölskylduna og öll áhugasvið. Hægt er að leigja hesta eða fara á hestasýningu, skella sér í veiði á fjórhjól, á snjósleða eða í flúðasiglingu. Heimsókn í hellana við Hellu og hellana við Laugarvatn er ógleymanleg upplifun.
Svæðið er kjörið fyrir fuglaáhugafólk og göngugarpa – göngustígar liggja um skóga og lítil fell bíða klifurs. Dýragarðurinn í Slakka í Laugarási er vinsæll áfangastaður fyrir alla fjölskylduna. Einnig má finna adrenalíngarð, gallerý, söfn og sýningar, margar sundlaugar og golfvelli.
Boðið er upp á frisbígolf, fótboltagolf, strandblak og heimsóknir á íþrótta- og leikvelli. Gestir velja hvort þeir vilja kyrrð og ró, fróðleik, spennu – eða sitt lítið af hverju.
Skemmtileg lítil þorp og byggðakjarnar eru nokkrir: Flúðir, Laugarvatn, Brautarholt, Árnes, Reykholt, Laugarás, Borg og Sólheimar. Þar er fjölbreytt þjónusta í boði og upplagt að dvelja um stund, kíkja á tjaldsvæðin eða gististaði og skoða hvað er í boði í nágrenninu.
Einstök náttúra
Náttúra Uppsveitanna er falleg og fjölbreytt. Þar má nefna Kerið, Úlfljótsvatn, Þjórsárdal, Brúarhlöð, Kerlingarfjöll, Kjöl, Háafoss, Laxárgljúfur, Hjálparfoss, Haukadalsskóg, Faxa og nágrenni Laugarvatns.
Á svæðinu eru miklir útivistarmöguleikar – gönguleiðir, skipulagðar gönguferðir og hver árstíð hefur sinn sjarma.
The post Uppsveitir Árnessýslu appeared first on Sagatrail.
Vatnsdalur og Þingeyri
Saga, náttúra og menningararfur
Vatnsdalur og Þingeyri bjóða upp á einstaka nálægð við náttúru, sögu og menningu – fullkomið fyrir áhugasöm um íslenskan menningararf.
Vatnsdalur – náttúruperla og sögusvið Íslendingasagna
Vatnsdalur er 25 km langur dalur í Húnaþingi vestra og er þekktur fyrir fjölbreytta náttúru og sögulegt gildi. Þar nam Ingimundur gamli Þorsteinson land samkvæmt Landnámu og bjó að Hofi. Í gegnum dalinn liggur Vatnsdalsvegur, 40 km langur, sem fylgir Vatnsdalsá – einni af bestu laxveiðiám Íslands.
Vatnsdalurinn er einnig heimili Vatnsdalshólanna, nær óteljandi hóla sem mynda einstakt landslag og eru vinsælt viðfangsefni náttúruunnenda og ljósmyndara.
Vatnsdæla saga – ættarsaga Hofverja
Vatnsdæla saga segir frá Hofverjum í Vatnsdal og þeirra ættarsögu. Hún hefst um 900 þegar Ingimundur gamli kemur til Íslands og lýkur með dauða Þorkels kröflu á 11. öld. Sagan var líklega rituð um 1270, hugsanlega á Þingeyrum, þar sem mikil bókmenntahefð var til staðar.
Sögusviðið spannar Vatnsdal og nærliggjandi svæði, og margir bæir, bændur og einstaklingar eru nefndir í sögunni. Á mörgum stöðum hafa fundist fornminjar sem tengjast sögutímanum. Myndskreytt sögukort af Vatnsdæla sögu er til sölu víða á Norðurlandi vestra, m.a. í gestastofunni við Þingeyrarkirkju.
Þingeyrarkirkja – fyrsta steinkirkja Íslands
Þingeyrarkirkja var byggð á árunum 1864–1877 að undirlagi Ásgeirs Einarssonar, bónda og alþingismanns. Kirkjan er með bogadreginni hvelfingu, blámálaðri með gylltum stjörnum – sagðar vera 1000 að tölu. Hún hýsir marga forna gripi og eru sumir varðveittir á Þjóðminjasafninu. Kirkjan er nú friðuð og telst til glæsilegustu bygginga í héraðinu, og dregur til sín fjölda ferðamanna árlega.
Klaustrið á Þingeyrum – bókmenntamiðstöð í aldaraðir
Klaustrið á Þingeyrum var stofnað árið 1133 og varð fljótt menningarmiðstöð með öflugu bókmenntastarfi. Þar var Vatnsdæla saga líklega sett á bókfell og er talið að fleiri Íslendingasögur hafi orðið til þar, sérstaklega þær sem gerast í Húnaþingi – svo sem Hallfreðarsaga vandræðaskálds, Bandamannasaga, Heiðarvígasaga og Kormákssaga.
The post Vatnsdalur og Þingeyri appeared first on Sagatrail.
Þrístapar Vatnsdalshólum
Sögulegur aftökustaður
Þrístapar eru þrír hólar í vestanverðum Vatnsdalshólum, skammt norðan við Hringveginn. Staðurinn er þekktur fyrir síðustu opinberu aftöku á Íslandi árið 1830, sem tengdist morðmáli á Illugastöðum. Hólarnir bera vitni um dramatíska sögu sem hefur sett sinn svip á réttarsögu og menningarsögu Norðurlands.
Síðasta opinbera aftakan á Íslandi (1830)
Þann 12. janúar 1830 fór fram síðasta opinbera aftakan á Íslandi á Þrístöpum. Agnes Magnúsdóttir og Friðrik Sigurðsson voru dæmd til dauða fyrir morðin á Natani Ketilssyni og Pétri Jónssyni á Illugastöðum árið 1828. Böðullinn var Guðmundur Ketilsson, bróðir Natans.
Minjar á Þjóðminjasafni Íslands 🔗
Öxin og höggstokkurinn sem notuð voru við aftökuna á Agnesi og Friðriki eru varðveitt á Þjóðminjasafni Íslands 🔗
Afsteypa af öxinni er til sýnis á Þrístöpum og veitir gestum áþreifanlega tengingu við söguna.
Bókmenntir um Agnesi Magnúsdóttur og Illugastaðamorðin
Sögu Agnesar hefur verið gerð góð skil í eftirfarandi bókum:
Náðarstund 🔗 eftir Hannah Kent
, sem kom út á íslensku árið 2014
Yfirvaldið eftir Þorgeir Þorgeirsson
Enginn má undan líta eftir Guðlaug Guðmundsson
Saga Natans Ketilssonar 🔗 og Skáld Rósu
eftir Brynjúlf Jónsson frá Minna-Núpi
Hljóðleiðsögn á Þrístöpum
Sumarið 2024 var sett upp hljóðleiðsögn sem leiðir gesti í gegnum söguna, staðhætti og minjar sem tengjast
aftökunni og lífi fólksins sem þar komst við sögu.
Heimsókn á Þrístapa er vel þess virði
Á Þrístöpum er dramatískri sögu Agnesar og Friðriks gerð góð skil. Gestir fræðast um síðustu opinberu aftöku á Íslandi, sjá minjar og fá dýpri innsýn í samfélag, réttarsögu og menningu 19. aldar.
The post Þrístapar Vatnsdalshólum appeared first on Sagatrail.
Sjóminjasafnið Ósvör
Lifandi minning um sjósókn í Bolungarvík
Sjóminjasafnið Ósvör stendur austast við Bolungarvík og er eitt helsta menningarafl svæðisins. Safnið endurskapar aðbúnað og líf vertíðarfólks á 19. öld og gefur gestum einstaka innsýn í sögu íslenskrar sjósóknar.
Verbúð, salthús og fiskreit
Safnið samanstendur af tvöfaldri verbúð frá 19. öld, salthúsi, fiskreit og þurrkhjalla. Þessar byggingar sýna hvernig sjómenn og vertíðarfólk bjuggu og störfuðu á árum áður.
Áraskipið Ölver og veiðarfæri
Á meðal sýningagripa er sexæringurinn Ölver, sem gefur lifandi mynd af þeim skipum sem notuð voru til fiskveiða fyrr á öldum. Auk þess má sjá fjölbreytt veiðarfæri og tæki og tól sem nýtt voru við sjósókn og fiskvinnslu á vetrarvertíð á 19. öld.
Lifandi upplifun með safnverði
Safnvörðurinn tekur á móti gestum íklæddur skinnklæðum, líkum þeim sem íslenskir sjómenn klæddust áður fyrr. Hann leiðir gesti í gegnum safnið og lýsir því sem fyrir augu ber, sem gerir heimsóknina bæði raunhæfa og lifandi.
Heimsókn í Sjóminjasafnið í Ósvör
Sjóminjasafnið í Ósvör er einstakur áfangastaður á Vestfjörðum fyrir öll þau sem vilja kynnast sögu sjómennsku og sjá hvernig vertíðarfólk lifði og starfaði. Safnið er opið gestum yfir sumartímann og býður upp á ógleymanlega upplifun í hjarta Bolungarvíkur.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á norðanverðum Vestfjörðum:
Skoðaðu útsýnið af nýjum útsýnispalli á Bolafjalli, ef þú þorir!
Heimsæktu Byggðasafn Vestfjarða á Ísafirði og fræðstu um sögu svæðisins.
Farðu í gönguferð um gamla bæinn á Ísafirði með Ísafjörður Guide og fræðstu um sögu húsanna og fólksins sem þar bjó.
Farðu í sjóstangveiði og veiddu í soðið.
Kynntu þér fyrsta landnema Íslands í Melrakkasetrinu í Súðavík.
Sigldu til Hornstranda eða út í eyjuna Vigur á Ísafjarðardjúpi.
Skoðaðu Gömlu smiðjuna á Þingeyri frá 1913 þar sem allar vélar virka enn.
Skoðaðu listigarðinn Skrúð í Dýrafirði, sem aðrir skrúðgarðar á Íslandi draga nafn sitt af.
Leggðu upp í kajak-leiðangur framhjá söguslóðum, selum og fuglum.
Gakktu upp með Dynjanda, frægasta fossi Vestfjarða.
Nánari upplýsingar á www.westfjords.is
The post Sjóminjasafnið Ósvör appeared first on Sagatrail.
Bessastaðir á Álftanesi
Bessastaðir – Hjarta íslenskrar sögu
Saga Bessastaða á Álftanesi spannar aldir og er órjúfanlegur hluti af íslenskri þjóðarsögu. Hér má rekja búsetu allt frá landnámsöld til dagsins í dag, og staðurinn hefur gegnt lykilhlutverki í stjórnsýslu, menntun og menningu þjóðarinnar.
Frá landnámi til þjóðveldis
Fornleifarannsóknir sýna að fyrstu íbúar settust að á Bessastöðum á landnámsöld og hefur þar verið samfelld búseta síðan. Á þjóðveldisöld bjó þar Snorri Sturluson, eitt áhrifamesta skáld og höfðingi Íslands, sem getið er um í Íslendingasögu Sturlu Þórðarsonar.
Konungsvald og stjórnsýsla
Eftir dauða Snorra tók Noregskonungur staðinn í sína eigu og á síðari hluta miðalda sátu þar æðstu fulltrúar erlends valds á Íslandi. Með einveldistöku Danakonungs árið 1688 urðu Bessastaðir embættisbústaður landfógeta og amtmanns allt þar til yfirstjórn landsins fluttist til Reykjavíkur.
Menntasetur og menningarheimili
Bessastaðastofa var reist á árunum 1761–66 og árið 1805 fluttist Hólavallaskóli hingað og fékk nafnið Bessastaðaskóli. Þar lærðu m.a. Fjölnismenn og aðrir leiðtogar sjálfstæðisbaráttunnar. Skólinn starfaði til 1846 og á þeim árum sleit Benedikt Gröndal skáld barnsskónum á staðnum.
Frægir eigendur og búskapur
Á 19. öld og byrjun 20. aldar bjuggu á Bessastöðum ýmsir merkir Íslendingar, þar á meðal Grímur Thomsen skáld, Skúli og Theodóra Thoroddsen og fleiri. Árið 1941 gaf Sigurður Jónasson forstjóri staðinn íslenska ríkinu og varð hann síðan embættisbústaður ríkisstjóra og síðar forsetasetur.
Bessastaðir í dag
Frá því um miðja 20. öld hafa Bessastaðir verið opinber bústaður forseta Íslands og eru því merkingarríkt tákn um sögu, menningu og sjálfstæði þjóðarinnar. Embættisbústaður forseta er almennt ekki opinn ferðafólki en þar er þó jafnan opið hús tvisvar á ári, á Safnanótt í febrúar og á Menningarnótt í ágúst. Gestum gefst þá kostur að skoða húsakynni og kynnast sögu staðarins.
Nánari upplýsingar um sögu Bessastaða má finna á vef forsetaembættisins.
Bendum líka á Snorrastofu í Reykholti fyrir þau sem vilja vita meira um Snorra Sturluson.
The post Bessastaðir á Álftanesi appeared first on Sagatrail.
Keldur á Rangárvöllum
Sögulegt höfuðbýli og torfbær á Suðurlandi
Keldur á Rangárvöllum er einn merkasti sögustaða á Suðurlandi og eini stóri torfbærinn sem hefur varðveist á svæðinu. Þar var fornt höfuðbýli Oddaverja og bjó þar meðal annars höfðingi þeirra, Jón Loftsson, sín síðustu æviár. Gamli bærinn og umhverfi hans endurspegla búsetu, völd og daglegt líf á Íslandi frá miðöldum og fram á 20. öld.
Á Keldum er að finna torfbæ af fornri gerð þar sem kjarninn er frá 19. öld. Fjöldi útihúsa hefur varðveist, þar á meðal skemmur, smiðja, myllukofi, fjós, hesthús og fjárrétt. Þessi heildarmynd gerir Keldur á Rangárvöllum torfbæ að einstöku dæmi um íslenska byggingarhefð.
Jarðgöng frá miðöldum
Einstakt einkenni Keldna eru jarðgöngin sem liggja úr skálanum og niður að læknum. Þau eru talin vera frá 12. eða 13. öld og hafa líklega verið notuð sem undankomuleið á ófriðartímum. Jarðgöngin eru meðal merkilegustu minja sinnar tegundar á Íslandi og gefa innsýn í varnaraðferðir og daglegt líf á miðöldum.
Kirkjan og sögulegar heimildir
Á Keldum stendur einnig kirkja sem byggð var árið 1875 af Guðmundi Brynjólfssyni, hreppstjóra. Keldur draga nafn sitt af uppsprettulindum sem koma víða fram í túninu og gefa staðnum sérstakt yfirbragð. Ábúendur á Keldum koma við sögu í mörgum helstu fornbókmenntum Íslendinga, þar á meðal Njáls sögu, Sturlungu og Þorláks sögu helga.
Keldur í dag – varðveisla og heimsóknir
Gamli bærinn á Keldum er í umsjón Þjóðminjasafns Íslands og er opinn gestum yfir sumarmánuðina, frá 1. júní til 31. ágúst, alla daga frá kl. 10–17. Gestir geta skoðað bæjarhús, útihús, kirkju og jarðgöng og fengið lifandi mynd af íslenskri sveitamenningu fyrri alda.
Staðsetning Keldna á Rangárvöllum gerir torfbæinn að frábærum viðkomustað fyrir þá sem vilja sameina söguskoðun, arkitektúr torfbæja og náttúruupplifun á Suðurlandi. Heimsókn á Keldur er auðvelt að tengja við aðra áfangastaði á svæðinu, eins og fossa, söfn, gönguleiðir og eldfjallasýningar.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á Suðurlandi:
Leiðsögn um manngerðu hellana við Hellu, sem mögulega eru eldri en landnám Íslands.
Heimsókn á eldfjalla- og jarðskjálftasýninguna LAVA á Hvolsvelli.
Kíktu í Skógasafn eitt fjölsóttasta safn landsins.
Heimsæktu nýja miðbæinn á Selfossi og Skyrlandið.
Sögustaðurinn Oddi á Rangárvöllum með kirkju, minnisvarða og fornleifauppgreftri.
„Safnaðu“ fossum á Suðurlandi – Gullfoss, Hjálparfoss, Háifoss, Gljúfrabúi og Seljalandsfoss.
Gönguferð yfir Fimmvörðuháls frá Skógum til Þórsmerkur.
Farðu í skipulagða jöklagöngu á Sólheimajökli eða snjósleðaferð á Mýrdalsjökli.
Bað í Seljavallalaug eða náttúrulauginni í Landmannalaugum.
Gakktu stíginn upp með Skógafossi og áfram með Skógaá þar sem fjöldi smærri fossa bíður.
Fleiri hugmyndir og upplýsingar um afþreyingu, gistingu og þjónustu á svæðinu má finna á www.south.is.
The post Keldur á Rangárvöllum appeared first on Sagatrail.
Hellarnir við Hellu
Hellarnir við Hellu – fornir manngerðir hellar á Suðurlandi
Hellarnir við Hellu eru meðal merkustu manngerðu hella á Íslandi. Þeir mynda einstakan ævintýraheim á Suðurlandi. Á jörðinni Ægissíðu hafa fundist tólf fornir hellar og fjórir þeirra eru opnir gestum. Allar ferðir eru í fylgd leiðsögumanns. Hellarnir eru friðlýstir og varðveittir af fjölskyldunni á Ægissíðu í samstarfi við nærsamfélagið og Minjastofnun Íslands.
Í hellunum má sjá krossa, veggjaristur, myndir, innhöggvin sæti og syllur. Þeir eru taldir elstu uppistandandi hýbýli á Íslandi. Enginn veit hvenær þeir voru gerðir. Sumir telja að þeir séu frá tímum Kelta og hafi verið til fyrir landnám norrænna manna. Þessi dulúð hefur fylgt hellunum í aldir og gerir heimsóknina enn áhugaverðari.
Leiðsögn um elstu hýbýli Íslands
Í hellaferð fara gestir með leiðsögumanni í fjóra hellanna. Þar heyra þeir söguna sem ekki mátti segja, söguna um landnám fyrir landnám. Ferðin hentar öllum aldri og fer fram í hvaða veðri sem er. Þar sem hellarnir eru friðlýstir er aðeins hægt að skoða þá í fylgd starfsmanna.
Dulinn ævintýraheimur Ægissíðu
Hellarnir hafa gegnt margvíslegu hlutverki í gegnum aldirnar. Þeir voru notaðir fyrir húsdýr og til geymslu á heyjum og matvælum. Í hellunum má sjá forskála, strompa, brunna, berghöld, hillur og stalla. Skipulag þeirra er fjölbreytt og sýnir mikla smíðalist. Vel gerðir hellar geta staðið í aldir og þessir hellar eru lifandi vitnisburður um handverk og daglegt líf fortíðar.
Heimsókn í Hellana við Hellu
Hellarnir við Hellu eru staðsettir við þjóðveg 1, aðeins um klukkutíma frá Reykjavík. Þeir eru því aðgengilegur og spennandi áfangastaður fyrir ferðalanga á Suðurlandi. Fjölskyldan á Ægissíðu hefur séð um hellana í nærri 200 ár og vinnur stöðugt að varðveislu þeirra. Skipulagðar ferðir tryggja verndun hellanna og gera fleiri hellum kleift að opna í framtíðinni.
Heimsókn í Hellana við Hellu er fræðandi og heillandi upplifun. Þar mætast saga, dulúð og náttúra Suðurlands. Gestir fá að skyggnast inn í elstu mannvirki sem enn standa á Íslandi og heyra sögur sem hafa lifað í gegnum aldirnar.
Fleiri upplifanir á Suðurlandi
Suðurland býður upp á fjölbreytta afþreyingu sem auðvelt er að tengja við heimsókn í Hellana við Hellu. Hér eru tíu hugmyndir sem henta bæði fjölskyldum og ævintýragjörnum ferðalöngum.
Skoðaðu sögustaði Njáls sögu og torfbæinn Keldur á Rangárvöllum.
Heimsæktu eldfjalla- og jarðskjálftasýninguna LAVA á Hvolsvelli.
„Safnaðu“ fossum á Suðurlandi, til dæmis Gullfossi, Hjálparfossi, Háfossi, Gljúfrabúa og Seljalandsfossi.
Skoðaðu fjölbreyttan safnkost Skógasafns, eitt fjölsóttasta safn landsins.
Farðu í göngu yfir Fimmvörðuháls frá Skógum til Þórsmerkur.
Taktu þátt í skipulagðri jöklagöngu á Sólheimajökli eða snjósleðaferð á Mýrdalsjökli.
Baðaðu þig í Seljavallalaug eða í náttúrulauginni í Landmannalaugum.
Heimsæktu sögustaðinn Odda á Rangárvöllum með kirkju, minnisvarða og fornleifauppgreftri.
Finndu til smæðar þinnar við Skógafoss og gakktu meðfram ánni.
Skoðaðu nýja miðbæinn á Selfossi með endurgerðum húsum og heimsæktu Skyrlandið.
Fleiri hugmyndir og upplýsingar um afþreyingu á Suðurlandi má finna á www.south.is.
The post Hellarnir við Hellu appeared first on Sagatrail.
Oddi á Rangárvöllum
Sögustaður, kirkjustaður og höfðingjasetur
Oddi á Rangárvöllum er einn merkasti sögustaður Íslands, kirkjustaður frá upphafi kristni og fornt höfðingja- og menntasetur Oddaverja. Bærinn stendur á grænum odda milli Ytri- og Eystri-Rangár og Þverár og var um aldir stórbýli með víðáttumiklum engjum og fjölmörgum hjáleigum. Á þjóðveldisöld var Oddi ein áhrifamesta valdamiðstöð landsins og þar mótaðist menningar- og fræðalíf sem hafði djúpstæð áhrif á íslenska sögu.
Sæmundur fróði og Oddaverjar
Sæmundur fróði Sigfússon (1056–1133) er þekktastur Oddaverja. Hann stundaði nám við Svartaskóla í París og er talinn meðal fyrstu íslensku sagnaritara sem sömdu rit um Noregskonunga. Um hann hafa varðveist fjölmargar þjóðsögur sem endurspegla virðingu og aðdáun samtímamanna.
Sonarsonur Sæmundar, Jón Loftsson, var einn valdamesti höfðingi landsins og jafnframt ástsæll og friðsamur leiðtogi. Hann tók hinn unga Snorra Sturluson í fóstur og menntaði hann í Odda, þar sem Snorri hlaut þá fræðslu og menningarlegu mótun sem síðar varð grunnur að ritum hans á borð við Heimskringlu.
Oddaverjar réðu ríkjum í Odda í tvær aldir, en eftir átök Sturlungaaldar leið veldi þeirra undir lok um 1300. Sex prestar sem þjónuðu í Odda urðu síðar biskupar á Íslandi, sem undirstrikar mikilvægi staðarins í kirkjusögu þjóðarinnar.
Oddakirkja og helgir gripir
Núverandi Oddakirkja er timburkirkja frá árinu 1924, teiknuð af Guðjóni Samúelssyni, húsameistara ríkisins. Hún tekur um hundrað manns í sæti. Jón (1903-1980) og Gréta Björnsson (1908-1985) máluðu kirkjuna 1953, prédikunarstól, skírnarsá, altari og bekki.
Í kirkjunni eru varðveittir margir merkilegir gripir, þar á meðal silfurkaleikur sem talinn er frá um 1300, altaristafla frá 1895 sem sýnir Krist í grasagarðinum í Getsemane og útskorinn og málaður skírnarfontur eftir Ámunda snikkara Jónsson.
Skammt frá kirkjunni stendur afsteypa af styttu Ásmundar Sveinssonar, Sæmundur á selnum, en frumgerðin stendur við aðalbyggingu Háskóla Íslands. Verkið tengir saman þjóðsögur, frásagnarhefð og menningararf Odda.
Fornleifarannsóknir og manngerðir hellar
Fornleifarannsóknir sem hófust árið 1918 hafa leitt í ljós þrjá manngerðra hella frá 10. öld, tveir þeirra stærstu eru fallnir en sá þriðji stendur enn og hefur verið rannsakaður síðustu ár. Við rannsóknir hafa fundist torfhlaðin mannvirki, þar á meðal forskáli sem var notaður fram að aldamótum 1100. Nýlega fannst einnig fjós frá miðöldum og undir vegg þess kom í ljós hauskúpa stórgrips, líklega hests, sem telst dæmi um húsfórn – sið sem virðist hafa tíðkast í Odda um aldir.
Oddafélagið og lifandi menningarstarf
Oddafélagið var stofnað árið 1990 og hefur það að markmiði að efla fræðasetrið í Odda og vinna að uppbyggingu Sæmundarstofu, menningar- og fræðaseturs með sýningarsal, viðburðaaðstöðu, bókhlöðu og íbúð fyrir fræðimenn.
Árlega heldur félagið Oddastefnu þar sem flutt eru erindi um sögu staðarins og nýjar rannsóknir kynntar. Starfsemi félagsins heldur arfleifð Odda lifandi og gerir gestum kleift að nálgast söguna á lifandi og aðgengilegan hátt.
Oddi í ljóði og menningararfi
Presturinn og skáldið Matthías Jochumsson þjónaði í Odda á 19. öld og orti um staðinn hið þekkta kvæði sem hefst á línunum: „Eg geng á Gammabrekku / er glóa vallartár…“ Kvæðið fangar andrúmsloft staðarins og trúarlega ró sem hefur einkennt Odda um aldir.
Oddi á Rangárvöllum í dag
Oddi er í dag einstakur áfangastaður fyrir þau sem vilja upplifa íslenska miðaldasögu, kirkjusögu og lifandi menningararf í landslagi sem hefur mótast af frásögnum, trú, valdi og fróðleik í yfir þúsund ár. Saga staðarins lifir áfram í kirkjunni, fornleifunum, þjóðsögunum og menningarstarfinu sem heldur arfleifð Odda á lofti.
Afþreying og upplifanir á Suðurlandi
Suðurland býður upp á fjölbreytta náttúru, sögu og upplifanir. Hér eru tíu hugmyndir að afþreyingu í nágrenni Odda og víðar á svæðinu.
Skoðaðu sögustaði Njáls sögu og vel varðveitta torfbæinn að Keldum á Rangárvöllum.
Heimsæktu eldfjalla- og jarðskjálftasýninguna LAVA á Hvolsvelli og Eldheima í Vestmannaeyjum.
„Safnaðu“ fossum á Suðurlandi; áhugaverðir fossar eru meðal annars Gullfoss, Hjálparfoss, Háifoss, Gljúfrabúi og Seljalandsfoss.
Skoðaðu hið fjölbreytta Skógasafn, eitt mest sótta safn á Íslandi.
Ganga yfir Fimmvörðuháls, frá Skógum til Þórsmerkur, er ein vinsælasta gönguleið landsins.
Farðu í skipulagða jöklagöngu á Sólheimajökul eða í snjósleðaferð á Mýrdalsjökul.
Baðaðu þig í Seljavallalaug eða í náttúrulauginni í Landmannalaugum.
Gakktu inn í Rútshelli, líklega elsta manngerða helli á Íslandi, eða heimsæktu hellana við Hellu.
Finndu til smæðar þinnar við Skógafoss og farðu göngustíginn upp að brún hans. Ef þú heldur áfram upp með Skógaá sérðu fjölda minni fossa.
Skoðaðu nýja miðbæinn á Selfossi þar sem endurgerð eru þekkt íslensk hús frá um 1900. Þar er einnig Skyrsýningin.
Nánari upplýsingar og fleiri hugmyndir má finna á south.is.
The post Oddi á Rangárvöllum appeared first on Sagatrail.