Gisting Archives - Sagatrail
Sögusetur íslenska fjárhundsins
Sýning tileinkuð þjóðarhundi Íslendinga
Sögusetur íslenska fjárhundsins er lifandi og fræðandi sýning sem varpar ljósi á sögu, hlutverk og sérstöðu þessa einstaka hundakyns. Markmið setursins er að varðveita menningararfinn sem tengist íslenska fjárhundinum og gera hann aðgengilegan fyrir gesti á öllum aldri. Hér er sagan sögð á sjónrænan, hlýjan og persónulegan hátt.
Opnun og þróun sýningarinnar
Sögusetrið opnaði í maí 2025 eftir þriggja ára undirbúningsvinnu menningarfræðingsins Evelynar Ýrar á Lýtingsstöðum. Hún hefur safnað saman fjölbreyttu efni sem sýnir hvernig íslenski fjárhundurinn hefur fylgt Íslendingum frá landnámi og gegnt lykilhlutverki í daglegu lífi, búskap og menningu þjóðarinnar.
Fræðsla, myndefni og gagnabankar
Gestir geta kynnt sér sögu hundakynsins á íslensku, ensku, þýsku og frönsku, skoðað heimildarmyndir, gamlar ljósmyndir og listaverk sem sýna þróun og einkenni fjárhundsins. Einnig er hægt að fletta í gegnum bækur og nafna- og litagagnabanka, auk þess að sjá hundinn í nærmynd og hlusta á sögur sem tengjast kyninu. Íslensku fjárhundarnir á Lýtingsstöðum taka gjarnan á móti gestum og skapa notalegt andrúmsloft.
Torfhesthús og byggingararfleifð
Árið 2015 lét fjölskyldan á Lýtingsstöðum reisa torfhesthús, skemmu og rétt sem endurspegla hefðbundna íslenska byggingalist. Þessar byggingar eru meistaraverk torfhandverks og sýningin þar fjallar um hvernig hrossum var haldið á árum áður og hvernig saga fólks og hrossa á Íslandi fléttast saman. Boðið er upp á hljóðleiðsögn á fjórum tungumálum sem tekur um 30 mínútur og hentar vel börn sem fullorðna. Einnig er hæt að fá sér leiðsögn fyrir hópa.
Lýtingsstaðir og sögulegt samhengi
Lýtingsstaðir eiga rætur að rekja til landnámsaldar þegar Lýtingur nam land á svæðinu. Bærinn var höfuðból um aldir og þar stóð hálfkirkja frá 11. til 18. aldar sem síðar var notuð sem þinghús fram á 20. öld. Þótt upprunalegar torfbyggingar hafi ekki varðveist gefa torfhúsin frá 2015 góða mynd af lífi og búskap fyrri tíma.
Menningarupplifun fyrir gesti
Ferðaþjónusta hefur verið rekin á Lýtingsstöðum frá árinu 2000 samhliða hefðbundnum búskap. Þar er boðið upp á hestaferðir, gistingu og heimsóknir sem tengja saman íslenska menningararfleifð: hinn einstaka íslenska hest, torfbyggingar og auðvitað íslenska fjárhundinn. Sögusetur íslenska fjárhundsins er því kjörinn viðkomustaður fyrir þau sem vilja kynnast íslenskri sögu og menningu á lifandi og persónulegan hátt.
Tíu afþreyingar í nágrenni við Setur íslenska fjárhundsins
Farðu í bátsferð með leiðsögn út í Drangey, þar sem heimamenn veiddu fugla og tíndu egg um aldir. Þar dvaldi einnig útlaginn Grettir Ásmundarson á flótta undan yfirvöldum.
Baðaðu þig í endurgerðri Grettislaug á Reykjaströnd, þar sem Grettir sterki hitnaði eftir sundið frá Drangey í land.
Upplifðu Örlygsstaðabardaga á sýndarveruleikasýningunni 1238: Baráttan um Ísland á Sauðárkróki.
Heimsæktu torfbæinn í Glaumbæ og kynnstu byggingarlist og daglegu lífi fyrri alda. Þar er einnig stytta af Guðríði Þorbjarnardóttur og syni hennar Snorra Þorfinnssyni.
Farðu í spennandi fljótasiglingu í Austari- eða Vestari-Jökulsá.
Nýttu tækifærið og farðu í hestaferð í Skagafirði, vöggu íslenskrar hestamennsku. Að hausti eru stóðréttir í Laufskálarétt ógleymanleg upplifun.
Heimsæktu Hóla í Hjaltadal sögufrægan menningarstað í nær þúsund ár.
Kynntu þér sögu vesturferða á Vesturfarasetrinu á Hofsósi.
Syntu og slakaðu á í sundlauginni á Hofsósi með stórbrotnu útsýni yfir Drangey og fjörðinn.
Heimsæktu Víðimýrarkirkju nærri Varmahlíð, eina fallegustu og best varðveittu torfkirkju landsins frá árinu 1834.
Nánari upplýsingar má finna á visitskagafjordur.is.
The post Sögusetur íslenska fjárhundsins appeared first on Sagatrail.
Dalir
Menningararfur og náttúrufegurð
Dalir eru svæði þar sem saga og náttúra mætast á einstakan hátt. Hér má rekja spor landnámsmanna og Íslendingasagna, njóta kyrrðar, fjölbreyttrar útivistar og hlýlegs samfélags. Dalirnir bjóða upp á upplifun sem sameinar menningararf og náttúrufegurð – staður til að ferðast hægt og njóta.
Söguslóðir og náttúruupplifun í Dölum
Dalir státa af ríkulegri sögu og fjölmörgum sögufrægum stöðum sem tengjast landnámi og Íslendingasögum. Landslagið ber vitni um fortíðina og býður upp á fjölbreytta útivist: gönguleiðir, fuglaskoðun og kyrrð sem nærir líkama og sál.
Dalirnir liggja við Breiðafjörð, þar sem óteljandi eyjar, fuglalíf og hvalir skapa einstaka upplifun. Friðland Breiðafjarðar, vötn, fossar og strendur mynda fjölbreytt og áhrifaríkt landslag.
Sagan lifnar við
Í Dölum má heimsækja söguslóðir Auðar djúpúðgu og upplifa landslagið sem mótaði þessa víðförnu konu. Á Eiríksstöðum í Haukadal er fæðingarstaður Leifs „heppna“ Erikssonar, þar sem gestir kynnast lífsháttum og aðstæðum fjölskyldu hans í sögulegu umhverfi.
Náttúran í Dölum
Dalirnir eru heimkynni fjölbreyttrar náttúru og dýralífs. Hér má sjá íslenskan búfénað í sínu náttúrulega umhverfi, auk sela, lunda og haferna. Setstu á mjúka þúfu, finndu ilminn af sjó og gróðri og hlustaðu á fuglasöng, lambajarm og óm fossanna. Í Dölum ertu aldrei langt frá náttúrunni – og stundum jafnvel huldufólki, álfum eða tröllum sem lifa í sátt við íbúa.
Gisting og tenging við heimamenn
Í Dölum er fjölbreytt gisting – hótel, gistiheimili, sumarhús og tjaldsvæði. Hittu heimamenn, heyrðu sögur þeirra og fáðu innsýn í lifnaðarhætti Dalamanna. Þeir veita gjarnan ráð um áhugaverða staði og upplifanir. Stuttur göngutúr getur dýpkað upplifunina og sýnt þér Dalina á nýjan hátt.
Dalir eru staður til að ferðast hægt, taka inn stemninguna, njóta og vera.
Tíu hugmyndir að afþreyingu í Dölum
Heimsæktu Vínlandssetrið í Búðardal og fræðstu um landafundi Leifs heppna í Vínlandi.
Farðu aftur til landnámsaldar á Eiríksstöðum í Haukadal og upplifðu lífshætti 10. aldar.
Slakaðu á í Guðrúnarlaug í friðsælu umhverfi Lauga í Sælingsdal.
Skoðaðu sögustaði á Gullna söguhringnum í Dölunum, þar sem bjuggu m.a. Auður djúpúðga og Geirmundur heljarskinn.
Fjölbreyttar gönguleiðir í sveitaumhverfi Dalanna henta bæði lengri og styttri ferðum.
Smakkaðu vörur beint frá býli á Rjómabúinu að Erpsstöðum – osta, skyr, ís og fleira.
Veiddu silung í Haukadalsvatni – fáðu þér veiðileyfi og njóttu kyrrðarinnar.
Heimsæktu húsdýragarðinn að Hólum í Hvammssveit og hittu skemmtileg dýr með leiðsögn.
Líttu við í Ólafsdal í Gilsfirði, þar sem fyrsti búnaðarskóli landsins var stofnaður árið 1880.
Ef þú ert á leið norður, skaltu ekki láta Sjávarsmiðjuna á Reykhólum fram hjá þér fara.
Nánari upplýsingar má finna á www.west.is.
The post Dalir appeared first on Sagatrail.
Uppsveitir Árnessýslu
Náttúra, menning og ævintýri
Velkomin í Uppsveitir Árnessýslu, þar sem náttúrufegurðin sameinast heillandi menningu og ógleymanlegum ævintýrum! Hér má finna fjölmarga áhugaverða staði til að heimsækja – frægar náttúruperlur, sögustaði og minna þekkta staði líka. Í uppsveitunum finnur þú fallega fossa, heitar lindir og alls kyns upplifun fyrir alla aldurshópa.
Allir þekkja Þingvelli, Gullfoss, Geysi og Skálholt, en svæðið hefur upp á svo margt annað skemmtilegt að bjóða. Gullna hringinn þekkja flestir, en hann er í reynd mun stærri en margur heldur – eiginlega líkari gullkeðju en hring. Í Uppsveitum Árnessýslu er alltaf eitthvað nýtt og spennandi að sjá og upplifa.
Við mælum með að gefa sér meira en einn dag til að njóta alls þess sem svæðið hefur upp á að bjóða. Fjölbreyttir gistimöguleikar eru í boði: tjaldsvæði, gistiheimili, sumarhús, hótel og fjallaskálar. Margir staðir bjóða heita potta og alltaf má finna sundlaug í nágrenninu.
Fjölbreyttir veitingastaðir bjóða gestum matvæli úr heimabyggð og einstakar matarupplifanir – enda eru Uppsveitirnar mikil matarkista og vagga grænmetisræktunar á Íslandi.
Margvísleg afþreying
Í Uppsveitum Árnessýslu er afþreying í boði fyrir alla fjölskylduna og öll áhugasvið. Hægt er að leigja hesta eða fara á hestasýningu, skella sér í veiði á fjórhjól, á snjósleða eða í flúðasiglingu. Heimsókn í hellana við Hellu og hellana við Laugarvatn er ógleymanleg upplifun.
Svæðið er kjörið fyrir fuglaáhugafólk og göngugarpa – göngustígar liggja um skóga og lítil fell bíða klifurs. Dýragarðurinn í Slakka í Laugarási er vinsæll áfangastaður fyrir alla fjölskylduna. Einnig má finna adrenalíngarð, gallerý, söfn og sýningar, margar sundlaugar og golfvelli.
Boðið er upp á frisbígolf, fótboltagolf, strandblak og heimsóknir á íþrótta- og leikvelli. Gestir velja hvort þeir vilja kyrrð og ró, fróðleik, spennu – eða sitt lítið af hverju.
Skemmtileg lítil þorp og byggðakjarnar eru nokkrir: Flúðir, Laugarvatn, Brautarholt, Árnes, Reykholt, Laugarás, Borg og Sólheimar. Þar er fjölbreytt þjónusta í boði og upplagt að dvelja um stund, kíkja á tjaldsvæðin eða gististaði og skoða hvað er í boði í nágrenninu.
Einstök náttúra
Náttúra Uppsveitanna er falleg og fjölbreytt. Þar má nefna Kerið, Úlfljótsvatn, Þjórsárdal, Brúarhlöð, Kerlingarfjöll, Kjöl, Háafoss, Laxárgljúfur, Hjálparfoss, Haukadalsskóg, Faxa og nágrenni Laugarvatns.
Á svæðinu eru miklir útivistarmöguleikar – gönguleiðir, skipulagðar gönguferðir og hver árstíð hefur sinn sjarma.
The post Uppsveitir Árnessýslu appeared first on Sagatrail.
Vatnsdalur og Þingeyri
Saga, náttúra og menningararfur
Vatnsdalur og Þingeyri bjóða upp á einstaka nálægð við náttúru, sögu og menningu – fullkomið fyrir áhugasöm um íslenskan menningararf.
Vatnsdalur – náttúruperla og sögusvið Íslendingasagna
Vatnsdalur er 25 km langur dalur í Húnaþingi vestra og er þekktur fyrir fjölbreytta náttúru og sögulegt gildi. Þar nam Ingimundur gamli Þorsteinson land samkvæmt Landnámu og bjó að Hofi. Í gegnum dalinn liggur Vatnsdalsvegur, 40 km langur, sem fylgir Vatnsdalsá – einni af bestu laxveiðiám Íslands.
Vatnsdalurinn er einnig heimili Vatnsdalshólanna, nær óteljandi hóla sem mynda einstakt landslag og eru vinsælt viðfangsefni náttúruunnenda og ljósmyndara.
Vatnsdæla saga – ættarsaga Hofverja
Vatnsdæla saga segir frá Hofverjum í Vatnsdal og þeirra ættarsögu. Hún hefst um 900 þegar Ingimundur gamli kemur til Íslands og lýkur með dauða Þorkels kröflu á 11. öld. Sagan var líklega rituð um 1270, hugsanlega á Þingeyrum, þar sem mikil bókmenntahefð var til staðar.
Sögusviðið spannar Vatnsdal og nærliggjandi svæði, og margir bæir, bændur og einstaklingar eru nefndir í sögunni. Á mörgum stöðum hafa fundist fornminjar sem tengjast sögutímanum. Myndskreytt sögukort af Vatnsdæla sögu er til sölu víða á Norðurlandi vestra, m.a. í gestastofunni við Þingeyrarkirkju.
Þingeyrarkirkja – fyrsta steinkirkja Íslands
Þingeyrarkirkja var byggð á árunum 1864–1877 að undirlagi Ásgeirs Einarssonar, bónda og alþingismanns. Kirkjan er með bogadreginni hvelfingu, blámálaðri með gylltum stjörnum – sagðar vera 1000 að tölu. Hún hýsir marga forna gripi og eru sumir varðveittir á Þjóðminjasafninu. Kirkjan er nú friðuð og telst til glæsilegustu bygginga í héraðinu, og dregur til sín fjölda ferðamanna árlega.
Klaustrið á Þingeyrum – bókmenntamiðstöð í aldaraðir
Klaustrið á Þingeyrum var stofnað árið 1133 og varð fljótt menningarmiðstöð með öflugu bókmenntastarfi. Þar var Vatnsdæla saga líklega sett á bókfell og er talið að fleiri Íslendingasögur hafi orðið til þar, sérstaklega þær sem gerast í Húnaþingi – svo sem Hallfreðarsaga vandræðaskálds, Bandamannasaga, Heiðarvígasaga og Kormákssaga.
The post Vatnsdalur og Þingeyri appeared first on Sagatrail.
Frakkar á Íslandsmiðum
Frakkar á Íslandsmiðum er nýjasta perlan á safnastreng Fjarðabyggðar. Safnið er til húsa í tveimur reisulegum byggingum sem Frakkar reistu upp úr aldamótunum 1900: Læknishúsinu og Franska spítalanum á Fáskrúðsfirði. Meginsýningin er þó í undirgöngum sem tengja húsin saman og skapa einstaka upplifun fyrir gesti.
Saga franskra sjómanna á Íslandsmiðum
Blómatími Frakka á Íslandsmiðum hófst um 1860 og stóð í um 50 ár. Á sýningunni er saga franskra skútusjómanna á Íslandi rakin, en Fáskrúðsfjörður var helsta bækistöð þeirra hér við land. Lifandi nærmynd er brugðið upp af lífi sjómanna um borð í frönsku skútunum sem sóttu Íslandsmið og áhorfendur skynja glöggt daglegt líf þeirra og aðstæður.
Franski spítalinn og læknishúsið
Safnið veitir einnig glögga innsýn í starfsemi Franska spítalans upp úr aldamótunum 1900. Þar má fræðast um hvernig franskir sjómenn fengu læknisaðstoð á Fáskrúðsfirði og hvernig byggingarnar gegndu lykilhlutverki í samfélaginu. Læknishúsið og spítalinn eru í dag endurbyggð og varðveitt sem hluti af menningararfi svæðisins.
Endurgerð Frönsku húsanna
Endurgerð Minjaverndar á Frönsku húsunum á Fáskrúðsfirði lauk sumarið 2014. Húsin eru alls fimm: Læknishúsið, Franski spítalinn, Sjúkraskýlið, Litla kapellan og Líkhúsið. Endurreisnarsaga húsanna er með merkari framkvæmdum Minjaverndar og sú viðamesta utan höfuðborgarsvæðisins.
Nútímastarfsemi Frönsku húsanna
Í dag gegna Frönsku húsin mikilvægu hlutverki fyrir bæjarlíf Fáskrúðsfjarðar. Þar er nú Fosshótel Austfirðir, sælkerastaðurinn l’Abri og safnahús Fransmanna á Íslandi. Litla kapellan hlaut blessun 26. júlí 2014 og er eina byggingin sem heldur upprunalegu hlutverki sínu.
Opnunartími safnsins
Safnið Frakkar á Íslandsmiðum er opið alla daga kl. 10:00–18:00 frá 15. maí til 30. september.
Utan þess tíma er hægt að bóka heimsóknir eftir samkomulagi í síma 470 9063 eða senda tölvupóst á sofn@fjardabyggd.is
The post Frakkar á Íslandsmiðum appeared first on Sagatrail.
Hólar í Hjaltadal
Sögufrægur menningarstaður í nær þúsund ár
Hólar í Hjaltadal eru einn merkasti sögustaður Íslands. Staðurinn er umkringdur tignarlegum fjöllum og rólegri náttúru. Hólar hafa verið menningar- og menntasetur í nær þúsund ár og voru biskupssetur frá 1106 til 1798.
Í dag má á Hólum í Hjaltadal finna Háskólann á Hólum og fjölbreyttar söguminjar sem sýna þróun íslenskrar menningar á lifandi hátt.
Hóladómkirkja og helstu söguminjar
Hóladómkirkja, reist árið 1783, er elsta steinkirkja landsins. Hún er byggð úr rauðum sandsteini frá Hólabyrðu og geymir merkilega gripi sem tengjast trúarlegri og menningarlegri sögu Hóla í Hjaltadal.
Nýibær er torfbær frá árinu 1860. Hann gefur innsýn í íslenska búsetuhefð og daglegt líf fólks í sveitasamfélagi 19. aldar.
Auðunarstofa, eða Timburstofan, var reist á árunum 1316–1317 og stóð í tæp 500 ár. Hún var endurgerð og opnuð á ný árið 2002. Í húsinu eru sýningar á biblíum og prentverkum frá tímum Hólaprentsmiðju, sem starfaði á Hólum í Hjaltadal með hléum á árunum 1530–1799.
Sögusetur íslenska hestsins og lifandi fræðsla
Á Sögusetri íslenska hestsins má fræðast um samspil manns og hests í gegnum aldirnar. Þar er fjallað um sögu, ræktun og menningarlegt hlutverk íslenska hestsins, sem hefur verið mikilvægur hluti af lífi þjóðarinnar frá landnámi.
Gönguleiðir og náttúra
Hólar í Hjaltadal eru umluktir fallegri náttúru og bjóða upp á fjölbreyttar gönguleiðir. Á staðnum eru gönguleiðakort og upplýsingar um áhugaverða staði í nágrenninu.
Gestir geta notið kyrrðar, sögu og náttúrufegurðar Hjaltadals á eigin hraða.
Afþreying og upplifanir í nágrenninu
Skagafjörður er ríkur af sögu, náttúru og lifandi menningu. Hér eru tíu hugmyndir að afþreyingu í nágrenni Hóla í Hjaltadal sem gera ferðalagið enn fjölbreyttara.
Farðu í bátsferð með leiðsögn út í Drangey, þar sem heimamenn veiddu fugla og tíndu egg um aldir. Þar dvaldi einnig útlaginn Grettir Ásmundarson á flótta undan yfirvöldum.
Baðaðu þig í endurgerðri Grettislaug á Reykjaströnd, þar sem Grettir sterki hitnaði eftir sundið frá Drangey í land.
Upplifðu Örlygsstaðabardaga á sýndarveruleikasýningunni 1238: Baráttan um Ísland á Sauðárkróki.
Heimsæktu torfbæinn í Glaumbæ og kynnstu byggingarlist og daglegu lífi fyrri alda. Þar er einnig stytta af Guðríði Þorbjarnardóttur og syni hennar Snorra Þorfinnssyni.
Farðu í spennandi fljótasiglingu í Austari- eða Vestari-Jökulsá.
Nýttu tækifærið og farðu í hestaferð í Skagafirði, vöggu íslenskrar hestamennsku. Að hausti eru stóðréttir í Laufskálarétt ógleymanleg upplifun.
Heimsæktu Kakalaskála og fræðstu um Haugsnesbardaga árið 1246, mesta bardaga Sturlungaaldar, og skoðaðu „Grjóther“ Sigurðar Hansen.
Kynntu þér sögu vesturferða á Vesturfarasetrinu á Hofsósi.
Syntu og slakaðu á í sundlauginni á Hofsósi með stórbrotnu útsýni yfir Drangey og fjörðinn.
Heimsæktu Víðimýrarkirkju nærri Varmahlíð, eina fallegustu og best varðveittu torfkirkju landsins frá árinu 1834.
Nánari upplýsingar má finna á visitskagafjordur.is.
The post Hólar í Hjaltadal appeared first on Sagatrail.
Óbyggðasetur Íslands
Lifandi saga, náttúra og menning á jaðri hálendisins
Óbyggðasetur Íslands í Fljótsdal er einstakur áfangastaður þar sem saga, menning og víðerni renna saman í heildstæða upplifun. Gestir stíga inn í heim fortíðar um leið og þeir ganga yfir gömlu trébrúna að setrinu og finna hvernig daglegt líf fyrri tíma lifnar við í byggingum, munum og sögum sem tengjast óbyggðum landsins.
Sýningin leiðir gesti í gegnum ævintýri útilegumanna, ferðalanga og fólks sem bjó við harðbýli hálendisins. Hvert smáatriði er hannað til að skapa tengingu við fortíðina og gera gestum kleift að upplifa aðstæður, áskoranir og lífsstíl sem mótaði mannlíf á þessum afskekktu slóðum.
Sögusýning sem fangar anda óbyggðanna
Á setrinu er fjölbreytt og sjónræn sýning sem sameinar frásagnir, ljósmyndir, kvikmyndir, hljóð og áþreifanlega muni. Hún hentar jafnt sagnfræðingum, ævintýrafólki og fjölskyldum sem vilja kynnast íslenskum óbyggðum á lifandi og aðgengilegan hátt.
Gisting í anda liðinna tíma
Gestir geta „sofið á safni“ í gamaldags baðstofu þar sem innréttingar og stemning endurspegla sveitalíf fyrri alda. Þrátt fyrir sögulegt yfirbragð er gistingin þægileg og hlýleg, og hentar bæði einstaklingum, pörum, fjölskyldum og litlum hópum sem vilja dvelja nærri hálendinu.
Heit laug, baðhús og ró í náttúrunni
Heita laugin við Óbyggðasetur Íslands býður upp á fallegt útsýni yfir dalinn og er fullkominn staður til að slaka á eftir dag í útivist. Hvort sem er undir stjörnubjörtum vetrarhimni eða í miðnætursólinni að sumri er upplifunin einstök. Í baðhúsinu er gufubað og slökunarrými sem bjóða upp á rólega stund í nánum tengslum við náttúruna.
Staðbundinn matur eldaður fyrir framan gesti
Veitingastaðurinn leggur áherslu á hráefni úr heimabyggð og matargerð sem byggir á hefðum svæðisins. Maturinn er eldaður í gamla eldhúsinu fyrir framan gesti og allt bakkelsi er bakað á staðnum. Hér sameinast bragð, saga og heimilisleg stemning í einni upplifun.
Ferðir og útivist í Fljótsdal og á hálendinu
Frá setrinu er boðið upp á fjölbreyttar ferðir, þar á meðal gönguferðir, hestaferðir, fjallahjól, stjörnuskoðun, gönguskíðaferðir og hvataferðir fyrir hópa. Hægt er að velja stuttar dagsferðir eða lengri leiðangra með leiðsögn þar sem gestir kynnast náttúru, dýralífi og sögulegum stöðum svæðisins.
Óbyggðasetur Íslands er þannig bæði sögusafn, upplifunarsetur og upphafspunktur fyrir ævintýri í víðernum Fljótsdals og hálendisins.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á Austurlandi
Gakktu upp að Hengifossi, einum hæsta og fallegasta fossi landsins, umvafinn rauðum og svörtum stuðlabergslögum.
Slakaðu á í Vök jarðböðunum við Egilsstaði.
Heimsæktu heitu laugarnar á Laugarfelli á leiðinni að Snæfelli.
Kannaðu Hallormsstaðaskóg, stærsta skóglendi Íslands, með háum trjám, göngustígum við vatnið og sögunni um Lagarfljótsorminn.
Uppgötvaðu tilkomumiklar stuðlabergsmyndanir í Stuðlagili í Jökuldal, sem hefur orðið heimsfrægt fyrir bláan lit árinnar.
Smakkaðu handverksbjór frá Austri brugghúsi á Egilsstöðum og Beljanda brugghúsi í Breiðdalsvík.
Farðu í leiðsögn til að sjá villt hreindýr og kynntu þér líf þeirra á Minjasafni Austurlands á Egilsstöðum.
Heimsæktu Snæfellsstofu á Skriðuklaustri og skoðaðu fræðandi sýningu um Vatnajökulsþjóðgarð.
Njóttu lífræns grænmetis frá Vallanesi og bragðaðu hefðbundið íslenskt skyr í Fjóshorninu á Egilsstöðum.
Á sumrin er upplagt að bóka borð á Norð Austur Sushi & Bar í Seyðisfirði, sem býður upp á ferskan staðarfisk og íslenskt wasabi.
Finndu frekari upplýsingar um áfangastaði á Austurlandi á east.is.
The post Óbyggðasetur Íslands appeared first on Sagatrail.
Ferðaþjónusta bænda
Ferðalög í íslenskri sveitasælu
Ferðaþjónusta bænda hf undir merkjum Hey Ísland og Bændaferðir er leiðandi í ferðaþjónustu á landsbyggðinni og byggir á yfir 35 ára reynslu í að tengja ferðamenn við náttúru, menningu og friðsælt umhverfi íslenskra sveita. Fyrirtækið býður upp á fjölbreytta gistingu og afþreyingu um allt land, þar sem gestir njóta sveitasælunnar á áreiðanlegum og persónulegum forsendum.
Rótgróin saga og sterk tenging við bændur
Ferðaþjónusta bænda hf. var stofnuð árið 1991 af íslenskum ferðaþjónustubændum og er enn í meirihlutaeigu bænda. Forsaga fyrirtækisins nær þó aftur til ársins 1965 þegar erlendum ferðamönnum var fyrst boðið að dvelja á íslenskum sveitaheimilum gegn gjaldi. Þessi langa hefð skapar einstaka innsýn í líf og menningu landsbyggðarinnar og tryggir að þjónustan er bæði fagleg og persónuleg.
Gisting um allt land
Hey Ísland býður upp á fjölbreytt úrval gistingar á 160 gististöðum víðs vegar um landið. Þar má finna sveitahótel, gistiheimili, bústaði, íbúðir og bændagistingu, allt staðsett í fallegu og friðsælu umhverfi. Margir gististaðir bjóða einnig upp á hleðslustöðvar fyrir rafbíla, sem styður við sjálfbær ferðalög.
Afþreying fyrir alla
Gestir geta valið úr fjölbreyttri afþreyingu sem spannar allt frá gönguleiðum og náttúruböðum til reiðtúra, kajakferða og menningarupplifana. Hey Ísland leggur áherslu á upplifanir sem tengja fólk við náttúruna og sögu landsins, meðal annars með samstarfi við Wapp gönguappið sem býður upp á fjölmargar leiðir um landið.
Bændaferðir – pakkaferðir um allan heim
Innan sama fyrirtækis starfa einnig Bændaferðir, sem bjóða upp á innihaldsríkar pakkaferðir með íslenskri fararstjórn um heim allan. Þannig geta ferðalangar valið á milli ævintýra í íslenskri sveit eða skipulagðra ferða til fjarlægra landa, allt undir sama trausta merki.
Ábyrg og fagleg ferðaþjónusta
Ferðaþjónusta bænda hf. er þátttakandi í gæðakerfinu Vakinn, sem tryggir fagmennsku, áreiðanleika og ábyrg ferðaþjónustu. Með sterkum rótum í sveitinni og framtíðarsýn í ferðaþjónustu heldur Hey Ísland áfram að skapa einstakar upplifanir fyrir ferðamenn á öllum aldri.
The post Ferðaþjónusta bænda appeared first on Sagatrail.
Þórbergssetur á Hala
Sögusetur tileinkað Þórbergi Þórðarsyni
Þórbergssetur á Hala í Suðursveit er tileinkað lífi og starfi Þórbergs Þórðarsonar, eins merkasta rithöfundar 20. aldar. Húsið er auðþekkjanlegt með risavöxnum bókarkili á langhlið og hýsir fróðlegar sýningar um verk Þórbergs og sögu þessa afskekkta samfélags í nágrenni Vatnajökuls.
Æskustöðvar í skugga Vatnajökuls
Þórbergur ólst upp á Hala, milli beljandi jökulfljóta og í skugga Vatnajökuls. Íbúarnir voru einangraðir, en franskar seglskútur á leið til Íslands vöktu ævintýraþrá drengsins sem unni sögum og ákvað snemma að gerast rithöfundur þrátt fyrir lítil efni.
Sýningar og frásagnir úr Suðursveit
Á setrinu eru fjölbreyttar sýningar sem varpa ljósi á daglegt líf í Suðursveit, menningu, náttúru og samfélag. Þar má sjá muni, myndir og frásagnir sem tengjast bæði Þórbergi og fólkinu sem byggði sveitina í aldanna rás.
Minnisvarði og gönguleiðir
Fyrir ofan Hala er minnisvarði um bræðurna Þórberg, Steinþór og Benedikt. Út frá honum liggja tvær merktar gönguleiðir í austur og vestur sem settar hafa verið upp sem spennandi ratleikir. Hægt er að fara leiðirnar á eigin vegum eða með leiðsögn, og einnig er boðið upp á lengri gönguferðir um fallegt landslag Suðursveitar.
Gisting, veitingar og minjagripir
Á Hala er rekið sveitahótel, veitingastaður og minjagripasala. Þar er boðið upp á mat beint frá býli og hlýja þjónustu í sögulegu umhverfi sem tengist ævi og verkum Þórbergs.
Upplifun í hjarta Suðursveitar
Þórbergssetur á Hala er einstök menningar- og fræðslustopp á Suðurlandi. Nánari upplýsingar um sýningar, opnunartíma og þjónustu má finna á vefsíðu Þórbergsseturs.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á Suðausturlandi og Austfjörðum
Smakkaðu gómsætan humar á veitingastöðum á Höfn, „höfðustað humarsins“ á Íslandi.
Kíktu í Menningarmiðstöð Hornafjarðar miðpunkt menningar, lista, sögu og fræðslu í sveitarfélaginu.
Prófaðu heitu pottana utandyra á Hoffelli, þar sem er gnægð jarðhita og stórbrotið landslag.
Bókaðu ferð í hreindýraskoðun, fuglaskoðun eða aðra upplifun í villtri náttúru hjá ferðaþjónustuaðilum á Austurlandi.
Lærðu um sögu Hans Jónatans, fyrsta hörundsdökka íbúa Djúpavogs, sem flúði úr þrældómi í Karíbahafi og settist að á Íslandi.
Skoðaðu Eggin í Gleðivík, stórbrotið listaverk Sigurðar Guðmundssonar með 34 fugleggjum í yfirstærð.
Komdu við og smakkaðu bjór frá Beljanda handverksbrugghúsi á Breiðdalsvík.
Skoðaðu fossinn Beljanda í Breiðdalsá, sem brugghúsið dregur nafn sitt af.
Heimsæktu Steinasafn Petru á Stöðvarfirði og skoðaðu ótrúlega fjölbreytt safn litríkrar steina.
Fylgdu í fótspor franskra sjómanna á Fáskrúðsfirði og skoðaðu Franska spítalann, sem nú hýsir glæsilegt hótel og sýningu um sjómennina.
Nánari upplýsingar og fleiri hugmyndir má finna á visitvatnajokull.is og east.is.
The post Þórbergssetur á Hala appeared first on Sagatrail.
Skálholt
Þúsund ára kirkju- og menningarmiðstöð
Skálholt er einn merkasti sögustaður Íslands og var fyrsti biskupsstóll landsins árið 1056. Í nær átta aldir var Skálholt miðstöð kirkjustjórnar, fræðslu og menningar, og á 12. öld myndaðist þar fyrsta þéttbýlið á Íslandi. Saga staðarins er samofin þróun þjóðkirkjunnar, valdi biskupa og menntun landsmanna.
Skálholtsdómkirkja og listaverk hennar
Núverandi kirkja var vígð árið 1963 og er þekkt fyrir sérstöðu sína í íslenskri kirkjubyggingarlist. Innan hennar má sjá áhrifamikil listaverk, þar á meðal glugga Gerðar Helgadóttur og altarismynd Nínu Tryggvadóttur, sem vekja jafnan mikla athygli gesta. Í kjallara kirkjunnar er sýning á vegum Þjóðminjasafns Íslands þar sem gestir geta skoðað fornminjar, meðal annars steinþró Páls biskups frá 13. öld og fjölbreytta legsteina sem endurspegla langa sögu staðarins.
Fornleifar, undirgöng og Þorláksbúð
Á svæðinu eru fjölmargar minjar sem varpa ljósi á kirkjusögu og daglegt líf í Skálholti á miðöldum. Leiðsagnir eru í boði allt árið þar sem farið er um dómkirkjuna, safnið, undirgöngin, fornleifasvæðið og Þorláksbúð. Hópar geta pantað leiðsögn með því að senda tölvupóst á skalholt@skalholt.is.
Tónleikar, viðburðir og menningarstarf
Skálholt er lifandi menningarstaður þar sem reglulega eru haldnir tónleikar, sögugöngur, málþing og fjölbreyttir viðburðir. Sérstaklega eru Skálholtstónleikar á sumrin orðnir fastur liður í íslensku menningarlífi og laða að sér bæði innlenda og erlenda gesti.
Gisting og veitingar í hjarta sögunnar
Á staðnum er Hótel Skálholt sem býður upp á gistingu í rólegu og söguríku umhverfi. Veitingastaðurinn Hvönn leggur áherslu á hráefni úr nærsveitum og nútímalega matargerð sem fellur vel að andrúmslofti staðarins. Skálholt er því kjörinn áfangastaður fyrir þá sem vilja sameina sögu, menningu og góða upplifun.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á Gullna hringnum og nágrenni
Það eru gildar ástæður fyrir vinsældum Gullna hringsins. Þar eru auk Skálholts, Þingvellir, Geysissvæðið/Strokkur og Gullfoss – staðir sem enginn ætti að missa af.
Bleyttu þig! Auk margra sundlauga á svæðinu eru Silfra á Þingvöllum (köfun og snorkl), Fontana Spa og Gamla laugin á Flúðum kjörnir staðir til þess.
Farðu í göngu- eða hjólaferð um Reykjadal ofan við Hveragerði, baðaðu þig í heitri ánni (þar sem það er öruggt), sjóddu egg í hver og smakkaðu á hverarúgbrauði sem er bakað í jörðinni.
Heimsæktu gróðurhús! Þú getur fræðst um vistheimilið Sólheima, tómataræktun í Friðheimum, svepparækt á Flúðum og smakkað á gómsætum réttum úr afurðum þeirra.
Ímyndaðu þér hvernig er að lifa í helli! Skoðaðu manngerða Laugarvatnshella með leiðsögumanni sem segir frá lífi fólks sem þar bjó fyrir um 100 árum.
Svæðið er ekki aðeins þekkt fyrir jarðhita heldur einnig jarðskjálfta; láttu hristast inni í jarðskjálftaherminum í Hveragerði.
Lærðu allt um íslenska hestinn á sýningum í Friðheimum, í hesthúsheimsókn að Sólvangi og í styttri eða lengri reiðtúrum, t.d. með Eldhestum.
Sagan um 1900 lifnar við í heillandi gömlum húsum á Eyrarbakka og í nýja miðbænum á Selfossi. Á Byggðasafni Árnesinga á Eyrarbakka er auðvelt að sjá fyrir sér þorpslífið fyrr á tímum.
Fáðu þér dýrindis íslenskan humar í veitingahúsi við ströndina, t.d. á Stokkseyri eða Eyrarbakka.
Farðu í matarleiðangur um svæðið. Smakkaðu hefðbundið skyr í Skyrlandi á Selfossi eða í Skyrgerðinni í Hveragerði, heimsæktu litla bruggverksmiðju, eþíópískan veitingastað á Flúðum og kauptu handgert konfekt í Reykholti.
Nánari upplýsingar á south.is
The post Skálholt appeared first on Sagatrail.