Hátíðir Archives - Sagatrail
Uppsveitir Árnessýslu
Náttúra, menning og ævintýri
Velkomin í Uppsveitir Árnessýslu, þar sem náttúrufegurðin sameinast heillandi menningu og ógleymanlegum ævintýrum! Hér má finna fjölmarga áhugaverða staði til að heimsækja – frægar náttúruperlur, sögustaði og minna þekkta staði líka. Í uppsveitunum finnur þú fallega fossa, heitar lindir og alls kyns upplifun fyrir alla aldurshópa.
Allir þekkja Þingvelli, Gullfoss, Geysi og Skálholt, en svæðið hefur upp á svo margt annað skemmtilegt að bjóða. Gullna hringinn þekkja flestir, en hann er í reynd mun stærri en margur heldur – eiginlega líkari gullkeðju en hring. Í Uppsveitum Árnessýslu er alltaf eitthvað nýtt og spennandi að sjá og upplifa.
Við mælum með að gefa sér meira en einn dag til að njóta alls þess sem svæðið hefur upp á að bjóða. Fjölbreyttir gistimöguleikar eru í boði: tjaldsvæði, gistiheimili, sumarhús, hótel og fjallaskálar. Margir staðir bjóða heita potta og alltaf má finna sundlaug í nágrenninu.
Fjölbreyttir veitingastaðir bjóða gestum matvæli úr heimabyggð og einstakar matarupplifanir – enda eru Uppsveitirnar mikil matarkista og vagga grænmetisræktunar á Íslandi.
Margvísleg afþreying
Í Uppsveitum Árnessýslu er afþreying í boði fyrir alla fjölskylduna og öll áhugasvið. Hægt er að leigja hesta eða fara á hestasýningu, skella sér í veiði á fjórhjól, á snjósleða eða í flúðasiglingu. Heimsókn í hellana við Hellu og hellana við Laugarvatn er ógleymanleg upplifun.
Svæðið er kjörið fyrir fuglaáhugafólk og göngugarpa – göngustígar liggja um skóga og lítil fell bíða klifurs. Dýragarðurinn í Slakka í Laugarási er vinsæll áfangastaður fyrir alla fjölskylduna. Einnig má finna adrenalíngarð, gallerý, söfn og sýningar, margar sundlaugar og golfvelli.
Boðið er upp á frisbígolf, fótboltagolf, strandblak og heimsóknir á íþrótta- og leikvelli. Gestir velja hvort þeir vilja kyrrð og ró, fróðleik, spennu – eða sitt lítið af hverju.
Skemmtileg lítil þorp og byggðakjarnar eru nokkrir: Flúðir, Laugarvatn, Brautarholt, Árnes, Reykholt, Laugarás, Borg og Sólheimar. Þar er fjölbreytt þjónusta í boði og upplagt að dvelja um stund, kíkja á tjaldsvæðin eða gististaði og skoða hvað er í boði í nágrenninu.
Einstök náttúra
Náttúra Uppsveitanna er falleg og fjölbreytt. Þar má nefna Kerið, Úlfljótsvatn, Þjórsárdal, Brúarhlöð, Kerlingarfjöll, Kjöl, Háafoss, Laxárgljúfur, Hjálparfoss, Haukadalsskóg, Faxa og nágrenni Laugarvatns.
Á svæðinu eru miklir útivistarmöguleikar – gönguleiðir, skipulagðar gönguferðir og hver árstíð hefur sinn sjarma.
The post Uppsveitir Árnessýslu appeared first on Sagatrail.
Sauðfjársetur á Ströndum
Sauðfjársetur á Ströndum er lifandi safn og menningarmiðstöð í Sævangi við Steingrímsfjörð, stofnað árið 2002. Safnið er staðsett 12 km sunnan Hólmavíkur og býður upp á fjölbreytta afþreyingu fyrir alla fjölskylduna.
Fastasýningin Sauðfé og sveitafólk á Ströndum
Í Sauðfjársetri á Ströndum er fastasýningin Sauðfé og sveitafólk á Ströndum sem fjallar um sauðfjárbúskap frá öllum mögulegum og ómögulegum hliðum. Þar er fjallað um sauðburð, heyskap, jarðvinnslu, túnrækt, sauðfjársjúkdóma, mörk og eyrnamerki, afurðir, sláturtíð, smalamennsku, réttir, ullarvinnslu, fjárhús og hættur sem steðja að sauðkindinni.
Sýningar og menningarstarf
Sauðfjársetur á Ströndum heldur jafnan fjórar sögu- eða listsýningar í einu. Auk fastasýningarinnar eru þrjár tímabundnar sérsýningar sem standa yfir í 1–2 ár. Safnið vinnur einnig að margvíslegum menningarverkefnum og viðburðum allt árið.
Kaffi Kind og handverk
Í Sævangi er starfrækt kaffistofan Kaffi Kind þar sem boðið er upp á heimabakað bakkelsi, súpur, ís frá Erpsstöðum og fleira góðgæti. Í Sauðfjársetri á Ströndum er einnig lítil handverks- og minjagripabúð þar sem gestir geta keypt minningar og gjafir.
Hópar og samkomur
Sauðfjársetur á Ströndum tekur á móti hópum og er auðvelt að leigja Sævang undir fundi, veislur, námskeið eða aðrar samkomur, jafnt sumar sem vetur. Safnið er vinsæll áfangastaður fyrir bæði ferðamenn og íbúa á Ströndum.
Umhverfi og útivist
Umhverfið í kringum Sauðfjársetur á Ströndum er tilvalið til gönguferða og útivistar. Yfir sumarið liggja æðarkollur á hreiðrum sínum á Orrustutanga og í fjörunni er fjölbreytt fuglalíf. Þar er göngustígurinn Sjávarslóð, stutt er í merkta gönguleið um Kirkjubólsfjall og á svæðinu er athafnasvæði Náttúrubarnaskólans sem er rekinn í tengslum við safnið.
Opnunartími
Sauðfjársetur á Ströndum er opið daglega frá 1. júní til 31. ágúst kl. 10–18. Opið er eftir samkomulagi á veturna.
Á safninu eru haldnir reglulegir viðburðir sjá nánar á vef safnsins.
The post Sauðfjársetur á Ströndum appeared first on Sagatrail.
Hólar í Hjaltadal
Sögufrægur menningarstaður í nær þúsund ár
Hólar í Hjaltadal eru einn merkasti sögustaður Íslands. Staðurinn er umkringdur tignarlegum fjöllum og rólegri náttúru. Hólar hafa verið menningar- og menntasetur í nær þúsund ár og voru biskupssetur frá 1106 til 1798.
Í dag má á Hólum í Hjaltadal finna Háskólann á Hólum og fjölbreyttar söguminjar sem sýna þróun íslenskrar menningar á lifandi hátt.
Hóladómkirkja og helstu söguminjar
Hóladómkirkja, reist árið 1783, er elsta steinkirkja landsins. Hún er byggð úr rauðum sandsteini frá Hólabyrðu og geymir merkilega gripi sem tengjast trúarlegri og menningarlegri sögu Hóla í Hjaltadal.
Nýibær er torfbær frá árinu 1860. Hann gefur innsýn í íslenska búsetuhefð og daglegt líf fólks í sveitasamfélagi 19. aldar.
Auðunarstofa, eða Timburstofan, var reist á árunum 1316–1317 og stóð í tæp 500 ár. Hún var endurgerð og opnuð á ný árið 2002. Í húsinu eru sýningar á biblíum og prentverkum frá tímum Hólaprentsmiðju, sem starfaði á Hólum í Hjaltadal með hléum á árunum 1530–1799.
Sögusetur íslenska hestsins og lifandi fræðsla
Á Sögusetri íslenska hestsins má fræðast um samspil manns og hests í gegnum aldirnar. Þar er fjallað um sögu, ræktun og menningarlegt hlutverk íslenska hestsins, sem hefur verið mikilvægur hluti af lífi þjóðarinnar frá landnámi.
Gönguleiðir og náttúra
Hólar í Hjaltadal eru umluktir fallegri náttúru og bjóða upp á fjölbreyttar gönguleiðir. Á staðnum eru gönguleiðakort og upplýsingar um áhugaverða staði í nágrenninu.
Gestir geta notið kyrrðar, sögu og náttúrufegurðar Hjaltadals á eigin hraða.
Afþreying og upplifanir í nágrenninu
Skagafjörður er ríkur af sögu, náttúru og lifandi menningu. Hér eru tíu hugmyndir að afþreyingu í nágrenni Hóla í Hjaltadal sem gera ferðalagið enn fjölbreyttara.
Farðu í bátsferð með leiðsögn út í Drangey, þar sem heimamenn veiddu fugla og tíndu egg um aldir. Þar dvaldi einnig útlaginn Grettir Ásmundarson á flótta undan yfirvöldum.
Baðaðu þig í endurgerðri Grettislaug á Reykjaströnd, þar sem Grettir sterki hitnaði eftir sundið frá Drangey í land.
Upplifðu Örlygsstaðabardaga á sýndarveruleikasýningunni 1238: Baráttan um Ísland á Sauðárkróki.
Heimsæktu torfbæinn í Glaumbæ og kynnstu byggingarlist og daglegu lífi fyrri alda. Þar er einnig stytta af Guðríði Þorbjarnardóttur og syni hennar Snorra Þorfinnssyni.
Farðu í spennandi fljótasiglingu í Austari- eða Vestari-Jökulsá.
Nýttu tækifærið og farðu í hestaferð í Skagafirði, vöggu íslenskrar hestamennsku. Að hausti eru stóðréttir í Laufskálarétt ógleymanleg upplifun.
Heimsæktu Kakalaskála og fræðstu um Haugsnesbardaga árið 1246, mesta bardaga Sturlungaaldar, og skoðaðu „Grjóther“ Sigurðar Hansen.
Kynntu þér sögu vesturferða á Vesturfarasetrinu á Hofsósi.
Syntu og slakaðu á í sundlauginni á Hofsósi með stórbrotnu útsýni yfir Drangey og fjörðinn.
Heimsæktu Víðimýrarkirkju nærri Varmahlíð, eina fallegustu og best varðveittu torfkirkju landsins frá árinu 1834.
Nánari upplýsingar má finna á visitskagafjordur.is.
The post Hólar í Hjaltadal appeared first on Sagatrail.
Víkingafélagið Rimmugýgur
Elsta starfandi víkingafélag Íslands
Víkingafélagið Rimmugýgur í Hafnarfirði er elsta og stærsta starfandi víkingafélag landsins. Félagið var stofnað árið 1997 og dregur nafn sitt af hinni frægu öxi Skarphéðins Njálssonar úr Brennu-Njáls sögu. Markmið félagsins er að efla áhuga á víkingaöld, menningu þess tíma og uppruna þjóðarinnar með lifandi fræðslu, handverki og bardagalistum.
Áherslur í starfi Rimmugýgs
Starfsemi félagsins byggir á þremur meginstoðum: bardagaæfingum, klæðagerð og handverki sem endurspeglar víkingatímann. Félagar leggja áherslu á vandaða endurgerð vopna, fatnaðar og búnaðar, og fylgja sögulegum heimildum eins náið og unnt er. Bardagaæfingar eru reglulegar og kenna þátttakendum bæði tækni og aga sem einkenndi víkinga á sínum tíma.
Þátttaka á víkingahátíðum
Rimmugýgur hefur í gegnum árin tekið þátt í fjölmörgum víkingahátíðum víðsvegar um Ísland og einnig erlendis. Félagið hefur verið lykilaðili í Víkingahátíð Hafnarfjarðar frá upphafi og tekið að sér skipulagningu og framkvæmd hátíðarinnar frá árinu 2018. Þar sýna félagar bardaga, handverk, leikrænar uppákomur og daglegt líf víkinga á lifandi og skemmtilegan hátt.
Sýningar og fræðsla
Félagið býður einnig upp á fjölbreyttar sýningar og fræðslu fyrir ferðamenn, fyrirtæki, skóla og viðburði af ýmsu tagi. Þar geta gestir kynnst víkingatímanum í gegnum vopnasýningar, handverk, sögur og lifandi uppákomur sem endurskapa andrúmsloft og menningu víkingaaldar.
Rimmugýgur sem hluti af lifandi sögumenningu
Með áratuga reynslu, öflugu félagsstarfi og ástríðu fyrir sögulegri endurgerð hefur Víkingafélagið Rimmugýgur skapað sér mikilvægan sess í íslenskri menningarstarfsemi. Félagið heldur áfram að miðla fróðleik, efla áhuga á fortíðinni og skapa lifandi tengingu við víkingaöld fyrir bæði Íslendinga og erlenda gesti.
Tíu hugmyndir að afþeyingu í Hafnarfirði og nágrenni:
Kynntu þér bústaði álfanna og „huliðsheima“ Hafnarfjarðar, sem eru m.a. í skrúðgarðinum Hellisgerði og víðar í hraunmyndunum bæjarins.
Farðu aftur til víkingatímans og taktu þátt í veislu í Fjörukránni. Taktu þátt í árlegri Víkingahátíð Hafnarfjarðar um miðjan júní.
Heimsæktu vinsæl kaffihús, bakarí og veitingastaði bæjarins, eins og Pallett, Brikk og Von Mathús.
Í heimsókn þinni í Hafnarfjörð skaltu njóta útsýnisins af Hamrinum eða Ásfjalli og ganga umhverfis Ástjörn eða Hvaleyrarvatn.
Heimsæktu Hafnarborg, menningar- og listarmiðstöð Hafnarfjarðar. Skoðaðu þar sýningar eða hlustaðu á tónleika.
Farðu í útreiðartúr með Íshestum í töfrandi náttúru nærri Kaldárseli og Helgafelli.
Ef þú ert í Hafnarfirði í desember þá máttu ekki missa af heimsókn í Jólaþorpið á Thorsplani.
Farðu út á Áftanes og skoðaðu kirkjuna á Bessastöðum, herminjar o.fl.
Skoðaðu tungllandslagið við Kleifarvatn  og hverasvæðið við Seltún í Krýsuvík. Stutt er þaðan að Krýsuvíkurbjargi,  þar sem er mikið fuglalíf.
Hjólaðu meðfram sjávarsíðu höfuðborgarsvæðisins, alla leið frá Hafnarfirði að Gróttuvita á Seltjarnarnesi.
The post Víkingafélagið Rimmugýgur appeared first on Sagatrail.
Markaðsstofa Vesturlands
Sögulandið Vesturland
Markaðsstofa Vesturlands kynnir sögulandið Vesturland og heldur utan um upplýsingar um áhugaverða áfangastaði og fjölbreytta afþreyingu í landshlutanum. Á Vesturlandi blasir sagan við í hverju skrefi og gestir geta ferðast um sögulandið Vesturland þar sem Íslendingasögur, þjóðsögur og frásagnir af mönnum og málefnum lifna við.
Íslendingasögur og þjóðsögur
Flestar Íslendingasögurnar eru skráðar á Vesturlandi, þar á meðal Egils saga, Sturlunga, Laxdæla og Eyrbyggja saga. Þess vegna er svæðið kallað Sögulandið Vesturland. Sögusvið þessara sagna er hvarvetna að finna og gerir ferðalagið einstakt fyrir áhugasama um sögu og menningu Íslands.
Afþreying og upplifun fyrir börn og fjölskyldur
Á Vesturlandi eru fjölbreyttir áninga- og þjónustustaðir sem henta börnum og ungmennum. Þar má upplifa sögurnar beint í æð og njóta spennandi afþreyingar. Svæðið býður upp á tröllagönguleið, óteljandi ærslabelgi, baðstaði og leikvelli sem gera ferðalagið ógleymanlegt. Það er skemmtilegt að leyfa krökkunum að ráða för í ferðalagi um Vesturland, enda er fjölbreytt þjónusta og afþreying í boði.
Markaðsstofa Vesturlands – upplýsingamiðstöð ferðamanna
Markaðsstofa Vesturlands veitir ferðamönnum og íbúum upplýsingar um áfangastaði Vesturlands, afþreyingu og menningarviðburði. Hún gegnir lykilhlutverki í að kynna Sögulandið Vesturland sem einstakan áfangastað fyrir alla aldurshópa.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á Vesturlandi:
Slappaðu af í Guðlaugu, náttúrulauginni á Langasandi á Akranesi.
Skoðaðu Akranesvitann (þeir eru tveir!) og fallegt umhverfi þeirra.
Gakktu upp á Akrafjall, þú verður ekki svikinn af útsýninu þar.
Kynntu þér hlutverk Hvalfjarðar í síðari heimsstyrjöldinni á Hernámssetrinu að Hlöðum á Hvalfjarðarströnd.
Farðu inn í Botnsdal í Hvalfirði og gakktu upp að Glanna, hæsta fossi á Íslandi.
Komdu við á Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri og á Ullarselinu þar og fáðu sögu landbúnaðar á Íslandi beint í æð.
Kynntu þér íslensku geitina, sem er einstakt kyn, og afurðir hennar í geitarfjársetrinu Háafelli.
Heimsæktu Landámssetrið í Borgarnesi og fræðstu um sögu landnáms Íslands, um Egil Skallagrímsson eða farðu á viðburð á Söguloftinu.
Leggstu í bleyti í Kraumu heilsulind við Deildartunguhver, öflugasta hver í Evrópu.
Skoðaðu náttúruperlur og sögustaði í Borgarfirði svo sem Grábrók, Hraunfossa, Barnafoss og Reykholt Snorra Sturlusonar.
Nánari upplýsingar má finna á www.west.is/is.
The post Markaðsstofa Vesturlands appeared first on Sagatrail.
Skálholt
Þúsund ára kirkju- og menningarmiðstöð
Skálholt er einn merkasti sögustaður Íslands og var fyrsti biskupsstóll landsins árið 1056. Í nær átta aldir var Skálholt miðstöð kirkjustjórnar, fræðslu og menningar, og á 12. öld myndaðist þar fyrsta þéttbýlið á Íslandi. Saga staðarins er samofin þróun þjóðkirkjunnar, valdi biskupa og menntun landsmanna.
Skálholtsdómkirkja og listaverk hennar
Núverandi kirkja var vígð árið 1963 og er þekkt fyrir sérstöðu sína í íslenskri kirkjubyggingarlist. Innan hennar má sjá áhrifamikil listaverk, þar á meðal glugga Gerðar Helgadóttur og altarismynd Nínu Tryggvadóttur, sem vekja jafnan mikla athygli gesta. Í kjallara kirkjunnar er sýning á vegum Þjóðminjasafns Íslands þar sem gestir geta skoðað fornminjar, meðal annars steinþró Páls biskups frá 13. öld og fjölbreytta legsteina sem endurspegla langa sögu staðarins.
Fornleifar, undirgöng og Þorláksbúð
Á svæðinu eru fjölmargar minjar sem varpa ljósi á kirkjusögu og daglegt líf í Skálholti á miðöldum. Leiðsagnir eru í boði allt árið þar sem farið er um dómkirkjuna, safnið, undirgöngin, fornleifasvæðið og Þorláksbúð. Hópar geta pantað leiðsögn með því að senda tölvupóst á skalholt@skalholt.is.
Tónleikar, viðburðir og menningarstarf
Skálholt er lifandi menningarstaður þar sem reglulega eru haldnir tónleikar, sögugöngur, málþing og fjölbreyttir viðburðir. Sérstaklega eru Skálholtstónleikar á sumrin orðnir fastur liður í íslensku menningarlífi og laða að sér bæði innlenda og erlenda gesti.
Gisting og veitingar í hjarta sögunnar
Á staðnum er Hótel Skálholt sem býður upp á gistingu í rólegu og söguríku umhverfi. Veitingastaðurinn Hvönn leggur áherslu á hráefni úr nærsveitum og nútímalega matargerð sem fellur vel að andrúmslofti staðarins. Skálholt er því kjörinn áfangastaður fyrir þá sem vilja sameina sögu, menningu og góða upplifun.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á Gullna hringnum og nágrenni
Það eru gildar ástæður fyrir vinsældum Gullna hringsins. Þar eru auk Skálholts, Þingvellir, Geysissvæðið/Strokkur og Gullfoss – staðir sem enginn ætti að missa af.
Bleyttu þig! Auk margra sundlauga á svæðinu eru Silfra á Þingvöllum (köfun og snorkl), Fontana Spa og Gamla laugin á Flúðum kjörnir staðir til þess.
Farðu í göngu- eða hjólaferð um Reykjadal ofan við Hveragerði, baðaðu þig í heitri ánni (þar sem það er öruggt), sjóddu egg í hver og smakkaðu á hverarúgbrauði sem er bakað í jörðinni.
Heimsæktu gróðurhús! Þú getur fræðst um vistheimilið Sólheima, tómataræktun í Friðheimum, svepparækt á Flúðum og smakkað á gómsætum réttum úr afurðum þeirra.
Ímyndaðu þér hvernig er að lifa í helli! Skoðaðu manngerða Laugarvatnshella með leiðsögumanni sem segir frá lífi fólks sem þar bjó fyrir um 100 árum.
Svæðið er ekki aðeins þekkt fyrir jarðhita heldur einnig jarðskjálfta; láttu hristast inni í jarðskjálftaherminum í Hveragerði.
Lærðu allt um íslenska hestinn á sýningum í Friðheimum, í hesthúsheimsókn að Sólvangi og í styttri eða lengri reiðtúrum, t.d. með Eldhestum.
Sagan um 1900 lifnar við í heillandi gömlum húsum á Eyrarbakka og í nýja miðbænum á Selfossi. Á Byggðasafni Árnesinga á Eyrarbakka er auðvelt að sjá fyrir sér þorpslífið fyrr á tímum.
Fáðu þér dýrindis íslenskan humar í veitingahúsi við ströndina, t.d. á Stokkseyri eða Eyrarbakka.
Farðu í matarleiðangur um svæðið. Smakkaðu hefðbundið skyr í Skyrlandi á Selfossi eða í Skyrgerðinni í Hveragerði, heimsæktu litla bruggverksmiðju, eþíópískan veitingastað á Flúðum og kauptu handgert konfekt í Reykholti.
Nánari upplýsingar á south.is
The post Skálholt appeared first on Sagatrail.
Snorrastofa í Reykholti
Menningarsetur á sögustað
Snorrastofa í Reykholti er menningar- og miðaldasetur sem miðlar arfleifð Snorra Sturlusonar. Setrið stendur á einum merkasta sögustað Íslands og tengir gesti við menningu, frásagnarhefðir og miðaldir á lifandi hátt. Í Snorrastofu í Reykholti er lögð rík áhersla á að gera sögu staðarins aðgengilega fyrir alla sem heimsækja svæðið.
Sögulegt samhengi og arfleifð Snorra
Reykholt var heimili Snorra Sturlusonar, sagnaritarans og höfðingjans sem mótaði íslenska menningu á 13. öld. Á Snorrastofu fá gestir innsýn í líf hans, störf og áhrif. Þar má fræðast um ritun Heimskringlu, Snorra-Eddu og önnur verk sem hafa haft djúpstæð áhrif á norræna menningu. Snorrastofa í Reykholti varðveitir þessa arfleifð og miðlar henni á skýran og aðgengilegan hátt.
Fræðsla, sýningar og leiðsögn
Á Snorrastofu er boðið upp á fjölbreytta fræðslu um miðaldir, sagnaritun og menningu. Gestir geta skoðað sýningar sem fjalla um daglegt líf á 13. öld, valdakerfi, trúarbrögð og samskipti fólks á þessum tíma. Leiðsögn er í boði fyrir hópa og einstaklinga, þar sem fræðimenn segja frá helstu atriðum í sögu Reykholts og Snorra. Slíkar heimsóknir skapa skýra tengingu við fortíðina og gera söguna lifandi.
Reykholt sem áfangastaður
Reykholt er rólegt og fallegt svæði sem býður upp á menningarlega upplifun í kyrrlátu umhverfi. Gestir geta gengið um sögulegar slóðir, skoðað fornleifar og notið náttúrunnar. Á svæðinu er einnig fjölbreytt þjónusta fyrir ferðafólk, svo sem gistimöguleikar, veitingastaðir og gönguleiðir. Snorrastofa í Reykholti er miðpunktur svæðisins og tengir saman fræðslu, menningu og upplifun. Þar er einnig bókasafn, rannsóknarsetur og aðstaða fyrir viðburði og fræðastarf.
Menningarviðburðir og rannsóknir
Á Snorrastofu eru reglulega haldnir viðburðir sem tengjast íslenskri menningu og fræðastarfi. Þar má finna fyrirlestra, tónleika, námskeið og sýningar sem styrkja tengsl við sögu og menningu landsins. Rannsóknarsetrið styður fræðimenn sem vinna að verkefnum tengdum miðaldafræðum, sagnaritun og menningarsögu. Slík starfsemi eykur vægi Snorrastofu sem lifandi menningarseturs.
Hafðu samband
Snorrastofa í Reykholti tekur á móti gestum allt árið og býður upp á fræðslu, leiðsögn og sýningar. Ef þú vilt kynnast sögu Snorra Sturlusonar og miðaldamenningu á lifandi hátt er Reykholt kjörinn áfangastaður. Nánari upplýsingar um opnunartíma, þjónustu og viðburði má finna á snorrastofa.is.
Tíu hugmyndir að afþreyingu nálægt Snorrastofu í Reykholti:
Skoðaðu náttúruperlur og sögustaði í Borgarfirði, svo sem Grábrók, Hraunfossa, Barnafoss og Reykholt, heimastað Snorra Sturlusonar.
Farðu í skipulagða ferð á Langjökul og skoðaðu manngerðu ísgöngin djúpt í jöklinum.
Skoðaðu Víðgelmi, stærsta hraunhelli Íslands og einn sá stærsti sinnar tegundar í heiminum.
Farðu í gönguferð í ævintýralegu umhverfi Húsafells og prófaðu nýju gljúfraböðin.
Leggstu í bleyti í Kraumu við Deildartunguhver, öflugasta hver í Evrópu.
Farðu í hestaferð með hestaleigu á svæðinu eða bókaðu heimsókn í hesthús til að fræðast um íslenska hestinn. Sjá einnig Íslenski hesturinn á Sagatrail.
Kynntu þér íslensku geitina og afurðir hennar á geitabúinu að Háafelli.
Slappaðu af í Guðlaugu, náttúrulauginni á Langasandi á Akranesi, og njóttu útiveru við ströndina.
Heimsæktu Steðja brugghús og bragðaðu á úrvali handverksbjóra.
Kafaðu í sögu héraðsins á Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri, Byggðasafninu að Görðum á Akranesi og Hernámssetrinu að Hlöðum á Hvalfjarðarströnd.
Nánari upplýsingar á West.is.
The post Snorrastofa í Reykholti appeared first on Sagatrail.