Markaðsstofa Vesturlands

Á Vesturlandi blasir sagan við í hverju skrefi.  Ferðastu um söguslóðir Vesturlands. Íslendingasögur, þjóðsögur eða bara sögur af mönnum og málefnum. Sögusvið þessara sagna er hvarvetna að finna á svæðinu. Flestar Íslendingasögurnar eru skráðar á Vesturlandi, svo sem Egils saga, Sturlunga, Laxdæla, Eyrbyggja saga og fleiri, og því er svæðið kallað „Sögulandið Vesturland“.

Á Vesturlandi eru fjölbreyttir áninga- og þjónustustaðir sem henta börnum og ungmennum þar sem hægt er að upplifa sögurnar beint í æð. Á Vesturlandi er líka tröllagönguleið, óteljandi ærslabelgir, baðstaðir og leikvellir sem gera ferðalagið fyrir yngra fólkið ógleymanlegt og spennandi. Það er skemmtilegt að leyfa krökkunum að ráða för í ferðalagi um Vesturland, enda af nægu að taka og fjölbreytt þjónusta og afþreying í boði sem henta þeim.

Markaðsstofa Vesturlands heldur utan um upplýsingar um áhugaverða áfangastaði og afþreyingu í landshlutanum.

Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnes
info@west.is
www.west.is
433 8820
SöguslóðUpplýsingar
Samtök um söguferðaþjónustu (SSF) voru stofnuð árið 2006. Þau eru samráðsvettvangur aðila er stunda söguferðaþjónustu á Íslandi, einkum hvað varðar markaðssetningu, gæði og fagmennsku.

Hafa samband

Email: info@sagatrail.is