Þjóðtrú Archives - Sagatrail

Snæfellsjökulsþjóðgarður
Náttúruperla á Vesturlandi

Snæfellsjökulsþjóðgarður er eitt þekktasta náttúrusvæði Íslands, þar sem hrífandi landslag, fjölbreytt dýralíf og jarðfræðileg undur mynda einstaka heild. Þjóðgarðurinn nær yfir Snæfellsjökul og víðfeðmt hraun- og strandlendi sem hefur heillað gesti í áratugi.

Gestastofur og þjónusta

Á svæðinu eru tvær gestastofur sem veita upplýsingar um náttúru, sögu og áhugaverðustu staði þjóðgarðsins. Þjóðgarðsmiðstöðin á Hellissandi er opin alla daga frá 09:30–17:00 og gestastofan á Malarrifi frá 10:30–16:30 . Þar geta gestir kynnt sér gönguleiðir, áningarstaði og viðburði sem tengjast svæðinu.

Gönguleiðir og náttúruupplifanir

Snæfellsjökulsþjóðgarður býður upp á fjölbreyttar gönguleiðir sem henta bæði byrjendum og vönu göngufólki. Leiðirnar liggja um hraunbreiður, strendur, fuglabjarg og sögufræga staði þar sem náttúran er í forgrunni og upplifunin verður persónuleg og eftirminnileg.

Áningarstaðir og fræðsla

Áningarstaðir innan þjóðgarðsins eru vel merktir og bjóða upp á fræðslu um jarðfræði, lífríki og menningarsögu svæðisins. Þar geta gestir stoppað, notið útsýnis og kynnt sér einstaka náttúru Snæfellsjökulsþjóðgarðs á eigin hraða.

Skipuleggðu heimsókn

Hvort sem þú ert á leið í stutta göngu, dagsferð eða lengri dvöl á Snæfellsnesi, er Snæfellsjökulsþjóðgarður ómissandi viðkomustaður. Nánari upplýsingar um opnunartíma, þjónustu og gönguleiðir má finna á snaefellsjokull.is.

Tíu hugmyndir að afþreyingu á Vesturlandi:

Slappaðu af í Guðlaugu, náttúrulauginni á Langasandi á Akranesi.

Skoðaðu Akranesvitann (þeir eru tveir!) og fallegt umhverfi þeirra.

Gakktu upp á Akrafjall, þú verður ekki svikinn af útsýninu þar.

Kynntu þér hlutverk Hvalfjarðar í síðari heimsstyrjöldinni á Hernámssetrinu að Hlöðum á Hvalfjarðarströnd.

Farðu inn í Botnsdal í Hvalfirði og gakktu upp að Glanna, hæsta fossi á Íslandi.

Komdu við á Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri og á Ullarselinu þar og fáðu sögu landbúnaðar á Íslandi beint í æð.

Kynntu þér íslensku geitina, sem er einstakt kyn, og afurðir hennar í geitarfjársetrinu Háafelli.

Heimsæktu Landámssetrið í Borgarnesi og fræðstu um sögu landnáms Íslands, um Egil Skallagrímsson eða farðu á viðburð á Söguloftinu.

Leggstu í bleyti í Kraumu heilsulind við Deildartunguhver, öflugasta hver í Evrópu.

Skoðaðu náttúruperlur og sögustaði í Borgarfirði svo sem Grábrók, Hraunfossa, Barnafoss og Reykholt Snorra Sturlusonar.

Nánari upplýsingar má finna á www.west.is/is.

The post Snæfellsjökulsþjóðgarður appeared first on Sagatrail.

Skrímslasetrið á Bíldudal
Í Skrímslasetrinu á Bíldudal er haldið utan um skrímslasögur Vestfjarða sem lifað hafa með þjóðinni í gegnum aldirnar.

Sagt er frá viðureignum manna og skrímsla á nýstárlegan og spennandi hátt. Skemmtileg umgjörð sýningarinnar hefur vakið hrifningu gesta og komið skemmtilega á óvart.

Skrímsli við Íslandsstrendur og Vestfirði

Fjöldi skrímsla við Íslandsstrendur hefur sést í gegnum aldirnar og síðustu tvö hundruð ár hafa þau verið algengust í kringum Vestfirði. Þess vegna lá beinast við að setja upp Skrímslasetur á Bíldudal. Fjögur höfuðskrímsli eru þekktust og hafa þau öll sést í Arnarfirði: Fjörulalli, Faxi, Skeljaskrímsli og Hafmaður.

Fjörulalli – algengasta skrímslið á Bíldudal

Fjörulallinn er algengastur og eru til fjöldi sagna um viðureignir manna við hann. Í Skrímslasetrinu eru skjalfestar 36 frásagnir um Fjörulalla.

Hann er á stærð við hest, loðinn og grábrúnn að lit með langa trjónu. Fjörulallinn reynir að læðast upp fyrir fólk í fjörunni og þröngva þeim niður í sjóinn. Hann hefur oft sést á fjörubeit með kindum og sögur eru til úr Breiðafirði um að hann reyni að fara upp á kindurnar. Seinast sást til Fjörulalla sumarið 2014.

Skeljaskrímslið í Arnarfirði

Skeljaskrímslið er sagt kubbslegt, höfuðstórt og kjaftmikið ferlíki, líkt flóðhesti en miklu stærra. Það er þakið skeljum og hringlar í þeim þegar það gengur á land. Sjónarvottar hafa lýst því sem risaeðlu að stærð. Skeljaskrímslið sást síðast árið 1951 frá nokkrum bæjum í Arnarfirði.

Faxaskrímsli – rauðfext skrímsli með græn augu

Faxaskrímsli, einnig kallað Marhross eða Faxi, er rauðfext stórskrímsli með áberandi græn augu. Það líkist drekum úr kínverskri list og hefur oft sést í Arnarfirði. Sjómenn töldu það hættulegt og í dag er talið að það lifi helst á kúfskel og öðrum skelfiski. Faxaskrímsli sást síðast í Geirþjófsfirði vorið 2010.

Hafmaðurinn – ógnvænlegt skrímsli Íslands

Hafmaðurinn er sagður það ljótasta kvikindi sem nokkur maður getur augum litið. Hann kemur sjaldan upp á land en þá gengur hann á tveimur fótum og dregur þungan magann eftir jörðinni. Hann er með stuttar hendur með langar klær og andlit sem er lítið annað en kjaftur og augu. Sagt er að menn hafi orðið vitstola af því einu að horfa framan í Hafmanninn. Hafmaðurinn sást síðast fyrir um 150 árum.

Þú getur séð öll þessi hræðilegu skrímsli á Skrímslasetrinu á Bíldudal. Hér á vef Skrímslasetursins má finna meiri upplýsingar um skrímslin ógurlegu.

Skrímslasetrið er hluti af Vestfjarðaleiðinni. Sjá nánar á vef Vestfjarðarleiðarinnar.

Við mælum með að þið heimsækið líka félaga okkar á Minjasafninu á Hnjóti.

The post Skrímslasetrið á Bíldudal appeared first on Sagatrail.

Markaðsstofa Vesturlands
Sögulandið Vesturland

Markaðsstofa Vesturlands kynnir sögulandið Vesturland og heldur utan um upplýsingar um áhugaverða áfangastaði og fjölbreytta afþreyingu í landshlutanum. Á Vesturlandi blasir sagan við í hverju skrefi og gestir geta ferðast um sögulandið Vesturland þar sem Íslendingasögur, þjóðsögur og frásagnir af mönnum og málefnum lifna við.

Íslendingasögur og þjóðsögur

Flestar Íslendingasögurnar eru skráðar á Vesturlandi, þar á meðal Egils saga, Sturlunga, Laxdæla og Eyrbyggja saga. Þess vegna er svæðið kallað Sögulandið Vesturland. Sögusvið þessara sagna er hvarvetna að finna og gerir ferðalagið einstakt fyrir áhugasama um sögu og menningu Íslands.

Afþreying og upplifun fyrir börn og fjölskyldur

Á Vesturlandi eru fjölbreyttir áninga- og þjónustustaðir sem henta börnum og ungmennum. Þar má upplifa sögurnar beint í æð og njóta spennandi afþreyingar. Svæðið býður upp á tröllagönguleið, óteljandi ærslabelgi, baðstaði og leikvelli sem gera ferðalagið ógleymanlegt. Það er skemmtilegt að leyfa krökkunum að ráða för í ferðalagi um Vesturland, enda er fjölbreytt þjónusta og afþreying í boði.

Markaðsstofa Vesturlands – upplýsingamiðstöð ferðamanna

Markaðsstofa Vesturlands veitir ferðamönnum og íbúum upplýsingar um áfangastaði Vesturlands, afþreyingu og menningarviðburði. Hún gegnir lykilhlutverki í að kynna Sögulandið Vesturland sem einstakan áfangastað fyrir alla aldurshópa.

Tíu hugmyndir að afþreyingu á Vesturlandi:

Slappaðu af í Guðlaugu, náttúrulauginni á Langasandi á Akranesi.

Skoðaðu Akranesvitann (þeir eru tveir!) og fallegt umhverfi þeirra.

Gakktu upp á Akrafjall, þú verður ekki svikinn af útsýninu þar.

Kynntu þér hlutverk Hvalfjarðar í síðari heimsstyrjöldinni á Hernámssetrinu að Hlöðum á Hvalfjarðarströnd.

Farðu inn í Botnsdal í Hvalfirði og gakktu upp að Glanna, hæsta fossi á Íslandi.

Komdu við á Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri og á Ullarselinu þar og fáðu sögu landbúnaðar á Íslandi beint í æð.

Kynntu þér íslensku geitina, sem er einstakt kyn, og afurðir hennar í geitarfjársetrinu Háafelli.

Heimsæktu Landámssetrið í Borgarnesi og fræðstu um sögu landnáms Íslands, um Egil Skallagrímsson eða farðu á viðburð á Söguloftinu.

Leggstu í bleyti í Kraumu heilsulind við Deildartunguhver, öflugasta hver í Evrópu.

Skoðaðu náttúruperlur og sögustaði í Borgarfirði svo sem Grábrók, Hraunfossa, Barnafoss og Reykholt Snorra Sturlusonar.

Nánari upplýsingar má finna á www.west.is/is.

The post Markaðsstofa Vesturlands appeared first on Sagatrail.

Duus safnahús
Upplifðu menningu og sögu í Duus safnahúsum í Reykjanesbæ

Duus Safnahús eru einstök menningar- og safnamiðstöð við sjávarsíðuna í Reykjanesbæ þar sem saga, listir og náttúra mætast á einum stað. Byggingarnar, sem áður hýstu verslun og fiskvinnslu, endurspegla ríka sögu svæðisins og mynda heild sem sýnir þróun sjávarútvegs og mannlífs á Suðurnesjum. Elsta húsið, Bryggjuhúsið frá 1877, og yngsta húsið frá 1954, mynda saman lifandi safnasvæði sem dregur gesti inn í fortíðina.

Söguleg hús og fjölbreytt safnastarf í Duus Safnahúsum

Gömlu húsin hafa verið endurnýjuð af natni og hýsa nú sýningarsali Byggðasafns Reykjanesbæjar, Listasafns Reykjanesbæjar og gestastofu Reykjaness UNESCO jarðvangs. Hér má upplifa fjölbreyttar sýningar sem fjalla um sögu sjávarútvegs, menningu svæðisins, myndlist og jarðfræði Reykjanesskagans. Duus safnahús eru því kjörinn staður fyrir öll þau sem vilja kynnast sögu og náttúru Suðurnesja á lifandi og aðgengilegan hátt.

Listir, saga og náttúra á einum stað

Í Duus safnahúsum má sjá sýningar sem varpa ljósi á líf fólks á Suðurnesjum, þróun byggðar og áhrif náttúruaflanna á samfélagið. Listasafnið sýnir fjölbreytta myndlist, bæði samtímalist og verk sem tengjast menningu svæðisins. Í gestastofu jarðvangsins er fjallað um jarðfræði, eldstöðvar og einstaka náttúru Reykjanesskagans, sem er hluti af alþjóðlegu UNESCO neti jarðvanga.

Gönguleiðir og upplifun við sjávarsíðuna

Gestir geta notið fersks sjávarloftsins við Duus safnahús, hlustað á öldugjálfrið og ímyndað sér sjómenn fortíðar róa til fiskjar. Nálægt safninu er Skessan í hellinum, vinsæll áfangastaður fyrir fjölskyldur, og þaðan liggja fallegir göngustígar meðfram ströndinni og smábátahöfninni.

Minjagripir og minningar frá Duus safnahúsum

Í húsunum er vönduð safnbúð þar sem gestir geta fundið bækur, handverk og minjagripi sem tengjast sögu og menningu svæðisins. Heimsókn í Duus safnahús er upplifun sem sameinar fræðslu, náttúru og listir á einum stað og hentar bæði fjölskyldum, ferðamönnum og áhugafólki um sögu Suðurnesjanna.

Tíu hugmyndir af afþreyingu á Reykjanesi:

Á Reykjanesi eru fjölmargar fallegar gönguleiðir.

Víkingaheimar eru í fallega hannaðri byggingu í Reykjanesbæ. Þar má sjá víkingaskipið Íslending, eftirlíkingu Gaukstaðaskipsins sem fannst í Noregi árið 1880.

Gakktu yfir Brúna milli heimsálfa; hvergi er auðveldara að fara á milli Evrópu og Norður-Ameríku.

Skoðaðu aðra staði í Reykjanes UNESCO jarðvangi, svo sem Fagradalshraun, fallega hraunhella, Gunnuhver eða Brimketil.

Dáðstu að litríku jarðhitasvæðinu í Seltúni við Krýsuvík og sjáðu gufurnar stíga upp með tilheyrandi brennisteinslykt.

Rokkið lifir í Reykjanesbæ. Skoðaðu Rokksafn Íslands í Hljómahöll, safn um sögu popp- og rokktónlistar á Íslandi.

Skoðaðu tignarlegan Reykjanesvita, fyrsta vita landsins. Þar er einnig stytta af síðasta geirfuglinum með útsýni til Eldeyjar.

Krýsuvíkurbjarg er stærsta fuglabjarg Reykjaness með um 60.000 varpfugla á sumrin. Upplagt fyrir áhugafólk um fuglalíf og náttúru.

Ef þú ert á ferðinni í myrkri skaltu fylgjast með norðurljósaspá. Í heiðskíru veðri er hrífandi útsýni við Garðskagavita þar sem brimið getur verið stórfenglegt.

Skelltu þér í eina af sundlaugum eða baðstöðum svæðisins. Vatnaveröld í Keflavík er tilvalin fyrir fjölskyldur og ekki má gleyma hinu heimsfræga Bláa lóni.

Nánari upplýsingar má finna á visitreykjanes.is.

The post Duus safnahús appeared first on Sagatrail.

Minjasafnið á Akureyri
Saga og starfsemi safnsins

Minjasafnið á Akureyri er fjölbreytt menningarstofnun sem safnar, varðveitir og miðlar sögu Eyjafjarðar. Starfsemin nær yfir sýningar, fræðslu og rannsóknir. Safnið hefur aðsetur í reisulegu íbúðarhúsi frá 1934 og í sýningarsölum sem byggðir voru árið 1978. Þar má sjá gripi og frásagnir sem varpa ljósi á daglegt líf, menningu og samfélag fyrri tíma.

Sögulegur garður og kirkja í umsjón Minjasafnsins á Akureyri

Í Minjasafnsgarðinum stendur svartbikuð timburkirkja sem er stærsti gripur safnsins. Hún var reist á Svalbarði árið 1846 og er gott dæmi um íslenskar sveitakirkjur nítjándu aldar. Garðurinn sjálfur er einnig merkilegur. Hann er einn örfárra varðveittra íslenskra skrúðgarða frá aldamótunum 1900 og er talinn safngripur í eigin rétti.

Skáldahús í tengslum við Minjasafnið á Akureyri

Tvö skáldahús eru í umsjón safnsins. Nonnahús, byggt árið 1849, var æskuheimili Jóns Sveinssonar sem skrifaði vinsælar barnabækur um Nonna og Manna. Davíðshús var heimili skáldsins Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi og var gert að safni árið 1965. Þar er boðið upp á leiðsagnir sem gefa innsýn í líf og verk skáldsins.

Fleiri sýningar og tengd hús

Safnið sér einnig um Gamla bæinn í Laufási, torfbæ sunnan við Grenivík sem er hluti af húsasafni Þjóðminjasafns Íslands. Þar má sjá íslenska byggingarhefð og búsetu fyrri alda á lifandi hátt. Fyrir börn og fjölskyldur er Leikfangasafnið vinsælt viðkomustaður og hentar vel sem hluti af heimsókn á svæðið.

Upplifun fyrir alla aldurshópa

Minjasafnið á Akureyri sameinar sögulegt umhverfi, fjölbreyttar sýningar og lifandi frásagnir. Safnið hentar vel fyrir gesti sem vilja kynnast menningu og sögu Norðurlands á aðgengilegan og skýran hátt. Hér má upplifa bæði stórar sögur og smáar minningar sem mótuðu samfélagið í Eyjafirði.

Tíu hugmyndir að afþreyingu í Eyjafirði og nágrenni:

Skoðaðu fjölbreytta og heillandi list á Listasafni Akureyrar, og síðan Flugsafn Íslands og Mótorhjólasafn Íslands.

Sundlaug Akureyrar er vatnaparadís fyrir alla fjölskylduna með tveimur 25 metra laugum, þremur rennibrautum og þeirri lengstu á Íslandi.

Rölttu um litríkan Lystigarðinn á Akureyri, sem er opinn yfir sumartímann og býður upp á fjölbreytt gróðursafn.

Prófaðu stand-up paddleboarding, kajak eða aðrar vatnsíþróttir við höfnina á Akureyri. Upplagt fyrir þá sem vilja blanda útivist og ævintýrum.

Aktu inn í Eyjafjarðarsveit og skoðaðu Jólahúsið, Smámunasafnið, kirkjurnar og fleiri áhugaverða staði í sveitinni.

Slakaðu á í Skógarböðunum við Akureyri eða farðu í Bjórböðin á Árskógssandi og smakkaðu á Kalda bjór.

Komdu að vetri til og upplifðu skíðasvæðin á Akureyri, Ólafsfirði, Dalvík og Siglufirði. Einnig er hægt að fara í þyrluskíðaferðir frá Svarfaðardal.

Farðu í hvalaskoðun frá Akureyri, Hauganesi eða Árskógssandi og njóttu stórbrotinnar náttúru Eyjafjarðar á leiðinni.

Upplifðu friðsæld Hríseyjar, líttu inn í Hús Hákarlajörundar og lærðu um hákarlaveiðar. Farðu í Hríseyjarlaug og gakktu svo um eyjuna sem er þekkt fyrir ríkulegt fuglalíf og gróðursæld.

Heimsæktu fjallabæinn Siglufjörð en þar er Síldarminjasafnið og veitingahús staðarins sem þekkt er fyrir einstaka menningar- og matarupplifun.

Nánari upplýsingar má finna á visitakureyri.is

The post Minjasafnið á Akureyri appeared first on Sagatrail.

Minjasafn Austurlands
Hreindýrin og sérstaða svæðisins

Á sýningu Minjasafns Austurlands, „Hreindýrin á Austurlandi“, er fjallað um lífshætti hreindýranna, lífsbaráttu þeirra og þær hættur sem þau mæta af völdum náttúru og mannsins. Gestir kynnast sögu hreindýraveiða, rannsóknum og hvernig afurðir dýranna hafa verið nýttar til matar, handverks og hönnunar. Á sýningunni má einnig horfa á kvikmyndir um hreindýr og hlusta á frásagnir veiðimanna.

Sjálfbær eining og sveitasamfélagið fyrr á tímum

Yfirskrift sýningarinnar „Sjálfbær eining“ vísar til þess tíma þegar hvert sveitaheimili þurfti að vera sjálfu sér nægt um lífsnauðsynjar. Til sýnis eru fjölbreyttir gripir sem endurspegla búskaparhætti, handverk og lífsbaráttu fólks á Austurlandi fram undir miðja 20. öld. Þar má finna bæði hagnýta hluti og skrautmuni, auk baðstofu frá bænum Brekku í Hróarstungu.

Sérsýningar og fræðsla

Auk grunnsýninganna býður Minjasafn Austurlands upp á spennandi sérsýningar sem breytast reglulega. Safnið leggur áherslu á að miðla sögu og menningu svæðisins á lifandi hátt til jafnt til barna sem fullorðinna.

Afþreying fyrir börn

Á safninu er sérstakt krakkahorn þar sem yngri gestir geta lært um sögu og náttúru Austurlands í gegnum leik. Þetta gerir heimsóknina að skemmtilegri og fræðandi upplifun fyrir fjölskyldur.

Nánari upplýsingar og heimsókn

Minjasafn Austurlands er staðsett á Egilsstöðum og er opið allt árið með breytilegum opnunartímum eftir árstíðum. Gestir eru hvattir til að kynna sér opnunartíma, aðgangseyri og viðburði á vef safnsins áður en þeir leggja af stað.

Tíu hugmyndir að afþreyingu á Héraði og nágrenni

Gakktu upp að Hengifossi, næsthæsta fossi Íslands.

Heimsæktu Óbyggðasetur Íslands í Fljótsdal og lærðu um líf útlaganna. Prófaðu að fara yfir Jökulsá í kláfi.

Farðu í könnunarleiðangur um Hallormsstaðaskóg, stærsta skóg landsins, og sjáðu hvort þú rekst á Lagarfljótsorminn.

Skoðaðu Stuðlagil í Jökuldal með sínum ægifögru stuðlabergsmyndunum.

Laugaðu þig í Vök böðum við Urriðavatn, skammt frá Egilsstöðum.

Bragðaðu úrvals bjór í Brugghúsi Austra á Egilsstöðum og Brugghúsi Beljanda á Breiðdalsvík.

Skoðaðu sýningu um náttúru Vatnajökulsþjóðgarðs í Snæfellsstofu, í göngufæri frá Skriðuklaustri.

Njóttu lífrænna rétta úr heimaræktuðu korni og grænmeti á Vallanesi.

Bragðaðu á ekta íslensku skyri í Fjóshorninu á Egilsstaðabúinu.

Snæddu ferskasta sushi á Norð Austur á Seyðisfirði.

Nánari upplýsingar og fleiri hugmyndir má finna á www.east.is/is.

The post Minjasafn Austurlands appeared first on Sagatrail.

Þórbergssetur á Hala
Sögusetur tileinkað Þórbergi Þórðarsyni

Þórbergssetur á Hala í Suðursveit er tileinkað lífi og starfi Þórbergs Þórðarsonar, eins merkasta rithöfundar 20. aldar. Húsið er auðþekkjanlegt með risavöxnum bókarkili á langhlið og hýsir fróðlegar sýningar um verk Þórbergs og sögu þessa afskekkta samfélags í nágrenni Vatnajökuls.

Æskustöðvar í skugga Vatnajökuls

Þórbergur ólst upp á Hala, milli beljandi jökulfljóta og í skugga Vatnajökuls. Íbúarnir voru einangraðir, en franskar seglskútur á leið til Íslands vöktu ævintýraþrá drengsins sem unni sögum og ákvað snemma að gerast rithöfundur þrátt fyrir lítil efni.

Sýningar og frásagnir úr Suðursveit

Á setrinu eru fjölbreyttar sýningar sem varpa ljósi á daglegt líf í Suðursveit, menningu, náttúru og samfélag. Þar má sjá muni, myndir og frásagnir sem tengjast bæði Þórbergi og fólkinu sem byggði sveitina í aldanna rás.

Minnisvarði og gönguleiðir

Fyrir ofan Hala er minnisvarði um bræðurna Þórberg, Steinþór og Benedikt. Út frá honum liggja tvær merktar gönguleiðir í austur og vestur sem settar hafa verið upp sem spennandi ratleikir. Hægt er að fara leiðirnar á eigin vegum eða með leiðsögn, og einnig er boðið upp á lengri gönguferðir um fallegt landslag Suðursveitar.

Gisting, veitingar og minjagripir

Á Hala er rekið sveitahótel, veitingastaður og minjagripasala. Þar er boðið upp á mat beint frá býli og hlýja þjónustu í sögulegu umhverfi sem tengist ævi og verkum Þórbergs.

Upplifun í hjarta Suðursveitar

Þórbergssetur á Hala er einstök menningar- og fræðslustopp á Suðurlandi. Nánari upplýsingar um sýningar, opnunartíma og þjónustu má finna á vefsíðu Þórbergsseturs.

Tíu hugmyndir að afþreyingu á Suðausturlandi og Austfjörðum

Smakkaðu gómsætan humar á veitingastöðum á Höfn, „höfðustað humarsins“ á Íslandi.

Kíktu í Menningarmiðstöð Hornafjarðar miðpunkt menningar, lista, sögu og fræðslu í sveitarfélaginu.

Prófaðu heitu pottana utandyra á Hoffelli, þar sem er gnægð jarðhita og stórbrotið landslag.

Bókaðu ferð í hreindýraskoðun, fuglaskoðun eða aðra upplifun í villtri náttúru hjá ferðaþjónustuaðilum á Austurlandi.

Lærðu um sögu Hans Jónatans, fyrsta hörundsdökka íbúa Djúpavogs, sem flúði úr þrældómi í Karíbahafi og settist að á Íslandi.

Skoðaðu Eggin í Gleðivík, stórbrotið listaverk Sigurðar Guðmundssonar með 34 fugleggjum í yfirstærð.

Komdu við og smakkaðu bjór frá Beljanda handverksbrugghúsi á Breiðdalsvík.

Skoðaðu fossinn Beljanda í Breiðdalsá, sem brugghúsið dregur nafn sitt af.

Heimsæktu Steinasafn Petru á Stöðvarfirði og skoðaðu ótrúlega fjölbreytt safn litríkrar steina.

Fylgdu í fótspor franskra sjómanna á Fáskrúðsfirði og skoðaðu Franska spítalann, sem nú hýsir glæsilegt hótel og sýningu um sjómennina.

Nánari upplýsingar og fleiri hugmyndir má finna á visitvatnajokull.is og east.is.

The post Þórbergssetur á Hala appeared first on Sagatrail.