Byggðasafn Vestfjarða
Í þeim hluta Ísafjarðar sem kallaður er Neðstikaupstaður stendur elsta húsaþyrping landsins. Þetta eru fjögur hús sem öll voru byggð af dönskum einokunarkaupmönnum á 18. öld. Húsaþyrpingin samanstendur af Faktorshúsi, Krambúð, Turnhúsi og Tjöruhúsi. Faktorshús og Krambúð eru nú íbúðahús og í Turnhúsi er sjóminjasafn. Í Tjöruhúsi getur Byggðasafn Vestfjarða boðið uppá aðstöðu til funda- og veisluhalda allan ársins hring.
Byggðasafn Vestfjarða á 15 skráða báta, þar af 12 súðbyrðinga, og er meirihluti þeirra sjófær. Þá er harmonikusafn Ásgeirs Sigurðssonar (um 220 harmonikur) varðveitt á safninu og er elsta nikkan frá um 1830. Hluti þeirra er til sýnis í Turnhúsinu.
Þá er vélsmiðja Guðmundar J. Sigurssonar (GJS) á Þingeyri, sem hóf starfsemi árið 1913, einnig í umsjón safnsins.
Safnsvæðið í Neðstakaupstað er afar líflegur útiverustaður á sumrin og nýtur vinsælda meðal fjölskyldufólks. Þar er fjara og bátar, saltfiskur breiddur á reiti. Svæðið er einnig mjög vinsælt til allskyns samkomuhalds.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á Ísafirði og á norðanverðum Vestfjörðum:
- Farðu í gönguferð um gamla bæinn á Ísafiði með Ísafjörður Guide og fræðstu um sögu húsanna og fólksins sem þar bjó.
- Farðu í sjóstangveiði og veiddu í soðið.
- Skoðaðu útsýnið af nýjum útsýnispalli á Bolafjalli, ef þú þorir!
- Skrafaðu við vermann frá fornri tíð í Sjóminjasafninu í Ósvör.
- Kynntu þér fyrsta landnema Íslands í Melrakkasetrinu í Súðavík.
- Sigldu til Hornstranda eða út í eyjuna Vigur á Ísafjarðardjúpi.
- Skoðaðu Gömlu smiðjuna á Þingeyri frá 1913 þar sem allar vélar virka enn.
- Skoðaðu listigarðinn Skrúð í Dýrafirði, sem aðrir skrúðgarðar á Íslandi draga nafn sitt af.
- Leggðu upp í kajak-leiðangur framhjá söguslóðum, selum og fuglum.
- Gakktu upp með Dynjanda, frægasta fossi Vestfjarða.
Nánari upplýsingar á www.westfjords.is