Skálinn Víkingasetur
Í Skálanum Víkingasetri á Þingeyri er hægt að leika landnámsmenn og setja sig inn í daglegt líf þeirra. Klæddu þig í handsaumuð föt frá víkingatímanum og bakaðu brauð yfir opnum eldi. Í móttökusalnum, sem hefur verið innréttaður í víkingastíl, gefst fólki einstakt tækifæri til að kynnast aðstæðum og lifnaðarháttum forfeðra og -mæðra okkar með þátttöku og einnig versla vandaða handverksmuni. Vinsælt er að láta mynda sig í búningum.
Á Þingeyri er starfrækt víkingafélag sem rekur skemmtilega útiaðstöðu í víkingastíl í fjöruborðinu, á Oddanum. Svæðið rúmar um 300 manns og þar er hægt að vera með varðeld og fleira. Frábært nestisstopp. Viðburðir eins og Víkingahátíður eru reglulega haldnar á Oddanum og í Skálanum eru m.a. samlestur Íslendingasagna og í ýmis námskeið í gömlum handiðnaði og fyrirlestrar. Þá stendur Skálinn fyrir handverksnámskeiðum og reglulegum sögugöngum um Þingeyri.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á Þingeyri og nágrenni:
- Skoðaðu Gömlu smiðjuna á Þingeyri frá 1913 þar sem tíminn stendur kyrr og allar vélar virka enn. www.nedsti.is
- Heimsæktu Kómedíuleikhúsið í Haukadal. Einstakir einleikir og viðburðir. www.komedia.is
- Skoðaðu merkilegt hljóðfærasafn Jóns Sigurðssonar á Þingeyri. www.langspil.weebly.com
- Upplifðu sjóinn og kyrrðina í Dýrafirði, kajakferðir o.fl. hjá Odin Adventures á Þingeyri. www.odinadventures.is
- Verslaðu vandað handverk úr héraði hjá Koltru handverkshópi á Þingeyri þar sem einnig er upplýsingamiðstöð. koltrahandverkshopur@gmail.com
- Skelltu þér í sund á sundlauginni á Þingeyri.
- Skoðaðu listigarðinn Skrúð í Dýrafirði, sem aðrir skrúðgarðar á Íslandi draga nafn sitt af.
- Heimsæktu Gömlu bókabúðina á Flateyri í elstu upprunalegu verslun á Íslandi. www.gamlabokabudin.is
- Heimsæktu Hrafnseyri, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar og skoðaðu sýningu um manninn. www.hrafnseyri.is
- Gakktu upp með Dynjanda í Arnarfirði, frægasta fossi Vestfjarða, og heimsæktu síðan Skrímslasafnið á Bíldudal.
Nánari upplýsingar og hugmyndir á www.westfjords.is