Minjastofnun Íslands

ArfleifðByggingarMinjarRústir

Minjastofnun Íslands hefur yfirumsjón með verndun fornleifa- og byggingararfs á Íslandi. Hún er stjórnsýslustofnun, sem heyrir undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, og annast framkvæmd minjavörslu í samræmi við ákvæði laga um menningarminjar frá árinu 2013.  Fornminjasjóður og Húsafriðunarsjóður heyrar undir Minjastofnun.  Landinu er skipt í átta minjasvæði. Á hverju þeirra eru minjaverðir og minjaráð.

Meginhlutverk stofnunarinnar er að tryggja eftir föngum varðveislu menningarsögulegra minja í eigin umhverfi og auðvelda aðgang og kynni þjóðarinnar af þeim.  Til menningarminja teljast ummerki um sögu þjóðarinnar svo sem fornminjar, menningarlandslag, kirkjugripir, minningarmörk, hús og önnur mannvirki, skip og bátar, listmunir og nytjahlutir.

Samkvæmt lögunum er hlutverk stofnunarinnar að:

  • hafa eftirlit með fornleifum í landinu og friðuðum húsum og mannvirkjum,
  • vinna að stefnumörkun um verndun fornleifa og byggingararfs ásamt fagnefndum,
  • setja reglur um og hafa yfirumsjón með skráningu friðaðra og friðlýstra fornleifa, húsa og mannvirkja,
  • halda heildarskrár um allar friðaðar og friðlýstar fornleifar, friðlýsta legsteina og minningarmörk og friðuð og friðlýst hús og mannvirki,
  • gera tillögur til ráðherra um friðlýsingu og afnám hennar,
  • ákveða skyndifriðun menningarminja ef þörf krefur,
  • setja reglur og skilyrði um rannsóknir fornleifa sem hafa jarðrask í för með sér og hafa eftirlit með öllum fornleifarannsóknum í landinu,
  • fjalla um og veita leyfi til stað- og tímabundinna fornleifarannsókna sem hafa jarðrask í för með sér,
  • framkvæma nauðsynlegar rannsóknir, svo sem neyðarrannsóknir, vettvangskannanir til að staðfesta umfang og eðli minja og aðrar skyndirannsóknir,
  • hafa eftirlit með og annast leyfisveitingar vegna flutnings menningarminja til annarra landa,
  • úthluta úr fornminjasjóði og húsafriðunarsjóði að fengnum umsögnum fagnefnda og annast umsýslu þeirra,
  • hafa eftirlit með framvindu verkefna sem fá styrk úr sjóðunum,
  • ákveða aðra ráðstöfun fjár úr fornminjasjóði og húsafriðunarsjóði í samráði við húsafriðunarnefnd og fornminjanefnd,
  • annast framkvæmd laga um skil á menningarverðmætum til annarra landa,
  • setja á fót minjaráð á hverju minjasvæði og bera ábyrgð á starfsemi þeirra,
  • annast önnur verkefni samkvæmt ákvörðun ráðherra.
Suðurgata 39, 101 Reykjavík
postur@minjastofnun.is
www.minjastofnun.is
570 1300
Opnunartímar:

Opið virka daga kl. 9-16.

Upplýsingar
Samtök um söguferðaþjónustu (SSF) voru stofnuð árið 2006. Þau eru samráðsvettvangur aðila er stunda söguferðaþjónustu á Íslandi, einkum hvað varðar markaðssetningu, gæði og fagmennsku.

Hafa samband

Email: info@sagatrail.is