Minjasafn Egils Ólafssonar að Hnjóti

ArfleifðAtvinnulífSjávarútvegur
Minjasafn Egils Ólafssonar að Hnjóti í Örlygshöfn varðveitir einstakt safn muna sem gefa innsýn í sögu sjósóknar, landbúnaðar og daglegs lífs á sunnanverðum Vestfjörðum. Safnið var stofnað árið 1983 og er í dag vinsæll áfangastaður ferðamanna.

Saga og stofnun safnsins

Egill Ólafsson hóf ungur að safna munum sem tengdust lífi og starfi á Vestfjörðum. Með elju og framsýni byggði hann ásamt konu sinni, Ragnheiði Magnúsdóttur, upp safnið sem síðar var gefið sveitarfélögunum í Vestur‑Barðastrandarsýslu.

Sýningar og minjar

Árabátar og sjósókn

Á Minjasafni Egils Ólafssonar er fjöldi muna sem tengjast árabátaútgerð og fyrstu árum vélvæðingar í sjávarútvegi. Sumir gripanna eru einstakir og aðeins varðveittir á Hnjóti. Teikningar Bjarna Jónssonar listmálara af horfnum atvinnuháttum hjálpa gestum að skilja horfinn tíma.

Björgunarafrekið við Látrabjarg

Sérstök sýning segir frá björgunarafrekinu við Látrabjarg árið 1947, þegar íslenskir sjómenn björguðu áhafnarmönnum skipa í miklum vanda.
Þar má einnig sjá hattinn hans Gísla á Uppsölum.

Þjónusta og opnunartími

Safnið býður upp á kaffiteríu, minjagripaverslun og svæðisupplýsingamiðstöð. Það er opið daglega frá 1. maí til 30. september kl. 10–18, en hægt er að hafa samband ef óskað er eftir heimsókn utan opnunartíma  með því að senda tölvupóst til Minjasafns Egils Ólafssonar eða hringja í síma 456‑1511. Safnið er ekki með eigin vef sem stendur en hann er í vinnslu undir veffanginu www.hnjotur.is.

Tíu hugmyndir að afþreyingu á Vestfjörðum (frá Barðaströnd að Önundarfirði)

  1. Farðu út að Látrabjargi, mesta fuglabjargi á Íslandi. Það lætur engan ósnortinn.
  2. Skrepptu yfir á Rauðasand og skoðaðu einstaka ljósa sandströndina þar.
  3. Farðu um friðlandið í Vatnsfirði á Barðaströnd þar sem fegurðin er við hvert fótmál.
  4. Heimsæktu Skrímslasetrið á Bíldudal, þó það sé aðeins fyrir þau hugrökku.
  5. Skoðaðu listasafn Samúels Jónssonar (1884–1969) í Selárdal við Arnarfjörð; hann var oft kallaður „listamaðurinn með barnshjartað“.
  6. Gakktu upp með Dynjanda, frægasta fossi Vestfjarða.
  7. Heimsæktu Hrafnseyri, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar.
  8. Skoðaðu Gömlu smiðjuna á Þingeyri frá 1913 þar sem allar vélar virka enn.
  9. Leggðu leið þína í lystigarðinn Skrúð í Dýrafirði, sem aðrir skrúðgarðar á Íslandi draga nafn sitt af.
  10. Heimsæktu Gömlu bókabúðina á Flateyri þar sem kennir ýmissa grasa.

Nánari upplýsingar á www.westfjords.is

Hnjótur, 451 Patreksfjörður
museum@hnjotur.is
456 1511
Opnunartímar:
  1. maí – 30. september alla daga 10-18.
HreinlætisaðstaðaSýningVeitingar
Samtök um söguferðaþjónustu (SSF) voru stofnuð árið 2006. Þau eru samráðsvettvangur aðila er stunda söguferðaþjónustu á Íslandi, einkum hvað varðar markaðssetningu, gæði og fagmennsku.

Hafa samband

Email: info@sagatrail.is