Hofsstaðir minjagarður
Reisulegur skáli, hýbýli fornmanna, stóð á Hofsstöðum frá landnámsöld (870-930) og fram á 12. öld. Hann fannst við fornleifarannsóknir árið 1994. Í minjagarðinum eru einar merkustu minjar frá landnámsöld sem fundist hafa hér á landi og gefur vísbendingu um hvernig var umhorfs á þessum stað á víkingaöld. Torfveggir sýna ytri mörk skálans á síðasta byggingarskeiði hans. Miðað við stærð skálans má ætla að þarna hafi haft búsetu 20-30 manns að meðtöldum þrælum og vinnulýð. Hofsstaðir eru innan þess lands sem Ingólfur Arnarson, fyrsti landneminn hélt fyrir sig og aðeins 2 km frá Vífilsstöðum þar sem Vífill, leysingi Ingólfs, bjó.
Minjarnar eru aðgengilegar í minjagarði sem er við hliðina á lóð Tónlistarskóla Garðabæjar að Kirkjulundi í Garðabæ.
Tíu hugmyndir að afþreyingu í Garðabæ og nágrenni:
- Í heimsókn þinni í Garðabæ skaltu ganga umhverfis Vífilsstaðavatn, upp í Heiðmörk og Búrfellsgjá.
- Kynntu þér spennandi Hönnunarsafn Íslands í Garðabæ.
- Farðu út á Áftanes og skoðaðu kirkjuna á Bessastöðum, herminjar á nesinu o.fl.
- Kynntu þér bústaði álfanna og „huliðsheima“ Hafnarfjarðar, sem eru m.a. í skrúðgarðinum Hellisgerði og víðar í hraunmyndunum bæjarins.
- Farðu aftur til víkingatímans og taktu þátt í árlegri Víkingahátíð Hafnarfjarðar um miðjan júní.
- Heimsæktu Hafnarborg, menningar- og listarmiðstöð Hafnarfjarðar eða Gerðasafn í Kópavogi. Skoðaðu þar sýningar eða hlustaðu á tónleika.
- Farðu í útreiðartúr með Íshestum í töfrandi náttúru nærri Kaldárseli og Helgafelli.
- Ef þú ert á ferðinni desember þá máttu ekki missa af heimsókn í Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði.
- Hjólaðu meðfram sjávarsíðu höfuðborgarsvæðisins, alla leið frá Hafnarfirði, um Sjáland í Garðabæ og að Gróttuvita á Seltjarnarnesi.
- Farðu í sjósund í Nauthólsvík, ef þú þorir! Í nýjan og glæsilegan baðstað Sky Lagoon í Kópavogi eða einhverja af fjölmörgum góðum sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu.
Nánari upplýsingar og hugmyndir á visitreykjavik.is