Byggðasafnið í Görðum
Byggðasafnið í Görðum opnaði nýja grunnsýningu í aðalsýningarhúsi safnsins árið 2021 og var safnið tilnefnt til íslensku safnaverðlaunanna 2022. Á sýningunni er líf íbúa á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit skoðað og sagan rakin frá sjávarþorpi og sveitasamfélagi á 17. öld til nútímalegs kaupstaðar á 21.öld.
Sýningin skiptist í fjóra hluta, lífið til sjós, lífið í landi, lífið í vinnu og lífið í leik. Gestir fá að kynnast einstaklingum sem settu svip sinn á samfélagið og heyra sögur af smáum og stórum afrekum. Sýningin er byggð á samspili muna, mynda og frásagna þar sem miðlunarleið með hljóðleiðsagnartækni leiðir gestinn í gegnum sýninguna á íslensku og ensku.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á Akranesi og nágrenni:
- Slappaðu af í Guðlaugu, náttúrulauginni á Langisandi á Akranesi og leiktu við börnin á ströndinni.
- Skoðaðu Akranesvita (þeir eru tveir!) og fallegt umhverfi þeirra.
- Gakktu upp á Akrafjall, þú verður ekki svikinn af útsýninu þar.
- Kynntu þér hlutverk Hvalfjarðar í síðari heimsstyrjöldinni á Hernámssetrinu að Hlöðum á Hvalfjarðarströnd.
- Farðu inn í Botnsdal í Hvalfirði og gakktu upp að Glanna, hæsta fossi á Íslandi.
- Komdu við á Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri og á Ullarselinu þar og fáðu sögu landbúnaðar á Íslandi beint í æð.
- Kynntu þér íslensku geitina, sem er einstakt kyn, og afurðir hennar í geitabúinu að Háafelli.
- Heimsæktu Landámssetrið í Borgarnesi og fræðstu um sögu landnáms Íslands, um Egil Skallagrímsson eða farðu á viðburð á Söguloftinu.
- Leggstu í bleyti í Kraumu heilsulind við Deildartunguhver, öflugasta hver í Evrópu.
- Skoðaðu náttúruperlur og sögustaði í Borgarfirði svo sem Grábrók, Hraunfossa, Barnafoss og Reykholt Snorra Sturlusonar.
Nánari upplýsingar á www.west.is