Ferðir / stofnanir Archives - Sagatrail
Fantastic Fjords ferðaskrifstofa
Staðbundin ferðaþjónusta í hjarta Ísafjarðar
Fantastic Fjords er ferðaskrifstofa á Ísafirði sem byggir á áralangri reynslu úr ferða- og þjónustugeiranum bæði í Reykjavík og New York. Fyrirtækið sem stofnað var árið 2016 leggur áherslu á að bjóða ferðir með áherslu á matarupplifanir, sögu og menningu, og tengsl við nærsamfélagið.
Ferðalög með matarmenningarlegum blæ
Fantastic Fjords sérhæfir sig í svokölluðum mjúkum ferðalögum (e. soft travel) þar sem upplifun, rólegur ferðahraði og staðbundin tenging eru í forgrunni. Þannig er matarmenning, söguleg innsýn og samskipti við heimamenn hluti af hverri ferð, sem gerir upplifunina bæði persónulega og eftirminnilega.
Sérsniðin ferð fyrir hvern og einn
Hver ferð er sérsniðin að þörfum og áhuga hvers viðskiptavinar með áherslu á persónulega þjónustu og óvæntar uppákomur sem oftar en ekki vantar í hefðbundin ferðalög.
Óvæntar upplifanir á óvæntum stöðum
Markmið Fantastic Fjords er að skapa einstakar upplifanir á stöðum sem koma gestum á óvart. Hvort sem ferðast er eingöngu um Vestfirði eða ferðinni er blandað saman við aðra landshluta, þá tryggjum að hver gestur fari heim með með ógleymanlegar minningar.
Hafðu samband
Fyrir frekari upplýsingar um ferðir og sérsniðin tilboð, skoðaðu Fantastic Fjords og hafðu samband til að hefja skipulagningu á þinni einstöku ferð.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á Ísafirði og á norðanverðum Vestfjörðum:
Skoðaðu Byggðasafn Vestfjarða í Neðstakaupstað á Ísafirði og lærðu meira um sögu svæðisins.
Skoðaðu útsýnið af nýjum útsýnispalli á Bolafjalli, ef þú þorir!
Skrafaðu við vermann frá fornri tíð í Sjóminjasafninu í Ósvör.
Kynntu þér fyrsta landnema Íslands í Melrakkasetrinu í Súðavík.
Farðu í sjóstangveiði og veiddu í soðið.
Sigldu til Hornstranda eða út í eyjuna Vigur á Ísafjarðardjúpi.
Skoðaðu gömlu Vélsmiðjuna á Þingeyri frá 1913 þar sem allar vélar virka enn.
Skoðaðu lystigarðinn Skrúð í Dýrafirði, sem aðrir skrúðgarðar á Íslandi draga nafn sitt af.
Leggðu upp í kajak-leiðangur framhjá söguslóðum, selum og fuglum.
Gakktu upp með Dynjanda, frægasta fossi Vestfjarða.
Nánari upplýsingar á www.westfjords.is
The post Fantastic Fjords ferðaskrifstofa appeared first on Sagatrail.
Your Friend in Reykjavík
Persónulegar og fræðandi gönguferðir í Reykjavík
Your Friend in Reykjavík býður upp á persónulegar og fræðandi gönguferðir  í hjarta Íslands þar sem sögur, tónlist, þjóðtrú og daglegt líf borgarinnar fléttast saman við góða stemningu, mat og íslenska gestrisni. Leiðsögumennirnir eru sérfræðingar í heimaborginni – lifandi sögumenn sem gera borgarupplifunina áhugaverða, aðgengilega og skemmtilega.
Sérfræðileiðsögn með áherslu á sögur og menningu
✔ Sérfræðileiðsögn heimafólks
✔ Litlir hópar og persónuleg nálgun
✔ Ferðir sem tengja saman sögur, mat og menningu
✔ Sjálfbær ferðaþjónusta – Travelife Partner
✔ Sveigjanlegar einkaferðir og sérsniðnar upplifanir fyrir innlenda sem erlenda gesti
✔ Hópefli, spurningaleikir, ratleikir, bar quiz fyrir starfsamanna og vinahópa
Gönguferðir í Reykjavík – fjölbreytt úrval
Hvort sem þú elskar sagnfræði, þjóðtrú eða matarmenningu, þá finnurðu ferð sem hentar. Frá Reykjavík Food Lovers Tour þar sem bragðlaukar fá að njóta sín, til Reykjavík Folklore Walking Tour þar sem álfar, draugasögur og borgarsögur lifna við – allar ferðir eru hannaðar til að vera skemmtilegar og upplýsandi, með innsýn í samtíma og fortíð.
Sjálfbær ferðaþjónusta með Travelife Partner
Sem Travelife Partner þá leggur Your Friend in Reykjavík áherslu á að virða nærumhverfi, styðja við staðbundna þjónustu og draga almennt úr umhverfisáhrifum ferða sinna.
Hafðu samband
Viltu vita meira um ferðir eða fá tilboð í sérsniðna upplifun? Hafðu samband hér og fáðu ráðgjöf. Það er auðvelt að setja saman ferð sem passar þér og þínum.
Bókaðu gönguferð í dag
Upplifðu Reykjavík eins og erlendur ferðamaður – bókaðu ferð núna og fáðu innsýn í íslenska menningu, þjóðtrú og daglegt líf borgarinnar með sérfræðileiðsögn. Þínir vinir í Reykjavík bíða spenntir eftir að sýna þér borgina á lifandi og skemmtilegan hátt.
The post Your Friend in Reykjavík appeared first on Sagatrail.
Dalir
Menningararfur og náttúrufegurð
Dalir eru svæði þar sem saga og náttúra mætast á einstakan hátt. Hér má rekja spor landnámsmanna og Íslendingasagna, njóta kyrrðar, fjölbreyttrar útivistar og hlýlegs samfélags. Dalirnir bjóða upp á upplifun sem sameinar menningararf og náttúrufegurð – staður til að ferðast hægt og njóta.
Söguslóðir og náttúruupplifun í Dölum
Dalir státa af ríkulegri sögu og fjölmörgum sögufrægum stöðum sem tengjast landnámi og Íslendingasögum. Landslagið ber vitni um fortíðina og býður upp á fjölbreytta útivist: gönguleiðir, fuglaskoðun og kyrrð sem nærir líkama og sál.
Dalirnir liggja við Breiðafjörð, þar sem óteljandi eyjar, fuglalíf og hvalir skapa einstaka upplifun. Friðland Breiðafjarðar, vötn, fossar og strendur mynda fjölbreytt og áhrifaríkt landslag.
Sagan lifnar við
Í Dölum má heimsækja söguslóðir Auðar djúpúðgu og upplifa landslagið sem mótaði þessa víðförnu konu. Á Eiríksstöðum í Haukadal er fæðingarstaður Leifs „heppna“ Erikssonar, þar sem gestir kynnast lífsháttum og aðstæðum fjölskyldu hans í sögulegu umhverfi.
Náttúran í Dölum
Dalirnir eru heimkynni fjölbreyttrar náttúru og dýralífs. Hér má sjá íslenskan búfénað í sínu náttúrulega umhverfi, auk sela, lunda og haferna. Setstu á mjúka þúfu, finndu ilminn af sjó og gróðri og hlustaðu á fuglasöng, lambajarm og óm fossanna. Í Dölum ertu aldrei langt frá náttúrunni – og stundum jafnvel huldufólki, álfum eða tröllum sem lifa í sátt við íbúa.
Gisting og tenging við heimamenn
Í Dölum er fjölbreytt gisting – hótel, gistiheimili, sumarhús og tjaldsvæði. Hittu heimamenn, heyrðu sögur þeirra og fáðu innsýn í lifnaðarhætti Dalamanna. Þeir veita gjarnan ráð um áhugaverða staði og upplifanir. Stuttur göngutúr getur dýpkað upplifunina og sýnt þér Dalina á nýjan hátt.
Dalir eru staður til að ferðast hægt, taka inn stemninguna, njóta og vera.
Tíu hugmyndir að afþreyingu í Dölum
Heimsæktu Vínlandssetrið í Búðardal og fræðstu um landafundi Leifs heppna í Vínlandi.
Farðu aftur til landnámsaldar á Eiríksstöðum í Haukadal og upplifðu lífshætti 10. aldar.
Slakaðu á í Guðrúnarlaug í friðsælu umhverfi Lauga í Sælingsdal.
Skoðaðu sögustaði á Gullna söguhringnum í Dölunum, þar sem bjuggu m.a. Auður djúpúðga og Geirmundur heljarskinn.
Fjölbreyttar gönguleiðir í sveitaumhverfi Dalanna henta bæði lengri og styttri ferðum.
Smakkaðu vörur beint frá býli á Rjómabúinu að Erpsstöðum – osta, skyr, ís og fleira.
Veiddu silung í Haukadalsvatni – fáðu þér veiðileyfi og njóttu kyrrðarinnar.
Heimsæktu húsdýragarðinn að Hólum í Hvammssveit og hittu skemmtileg dýr með leiðsögn.
Líttu við í Ólafsdal í Gilsfirði, þar sem fyrsti búnaðarskóli landsins var stofnaður árið 1880.
Ef þú ert á leið norður, skaltu ekki láta Sjávarsmiðjuna á Reykhólum fram hjá þér fara.
Nánari upplýsingar má finna á www.west.is.
The post Dalir appeared first on Sagatrail.
Uppsveitir Árnessýslu
Náttúra, menning og ævintýri
Velkomin í Uppsveitir Árnessýslu, þar sem náttúrufegurðin sameinast heillandi menningu og ógleymanlegum ævintýrum! Hér má finna fjölmarga áhugaverða staði til að heimsækja – frægar náttúruperlur, sögustaði og minna þekkta staði líka. Í uppsveitunum finnur þú fallega fossa, heitar lindir og alls kyns upplifun fyrir alla aldurshópa.
Allir þekkja Þingvelli, Gullfoss, Geysi og Skálholt, en svæðið hefur upp á svo margt annað skemmtilegt að bjóða. Gullna hringinn þekkja flestir, en hann er í reynd mun stærri en margur heldur – eiginlega líkari gullkeðju en hring. Í Uppsveitum Árnessýslu er alltaf eitthvað nýtt og spennandi að sjá og upplifa.
Við mælum með að gefa sér meira en einn dag til að njóta alls þess sem svæðið hefur upp á að bjóða. Fjölbreyttir gistimöguleikar eru í boði: tjaldsvæði, gistiheimili, sumarhús, hótel og fjallaskálar. Margir staðir bjóða heita potta og alltaf má finna sundlaug í nágrenninu.
Fjölbreyttir veitingastaðir bjóða gestum matvæli úr heimabyggð og einstakar matarupplifanir – enda eru Uppsveitirnar mikil matarkista og vagga grænmetisræktunar á Íslandi.
Margvísleg afþreying
Í Uppsveitum Árnessýslu er afþreying í boði fyrir alla fjölskylduna og öll áhugasvið. Hægt er að leigja hesta eða fara á hestasýningu, skella sér í veiði á fjórhjól, á snjósleða eða í flúðasiglingu. Heimsókn í hellana við Hellu og hellana við Laugarvatn er ógleymanleg upplifun.
Svæðið er kjörið fyrir fuglaáhugafólk og göngugarpa – göngustígar liggja um skóga og lítil fell bíða klifurs. Dýragarðurinn í Slakka í Laugarási er vinsæll áfangastaður fyrir alla fjölskylduna. Einnig má finna adrenalíngarð, gallerý, söfn og sýningar, margar sundlaugar og golfvelli.
Boðið er upp á frisbígolf, fótboltagolf, strandblak og heimsóknir á íþrótta- og leikvelli. Gestir velja hvort þeir vilja kyrrð og ró, fróðleik, spennu – eða sitt lítið af hverju.
Skemmtileg lítil þorp og byggðakjarnar eru nokkrir: Flúðir, Laugarvatn, Brautarholt, Árnes, Reykholt, Laugarás, Borg og Sólheimar. Þar er fjölbreytt þjónusta í boði og upplagt að dvelja um stund, kíkja á tjaldsvæðin eða gististaði og skoða hvað er í boði í nágrenninu.
Einstök náttúra
Náttúra Uppsveitanna er falleg og fjölbreytt. Þar má nefna Kerið, Úlfljótsvatn, Þjórsárdal, Brúarhlöð, Kerlingarfjöll, Kjöl, Háafoss, Laxárgljúfur, Hjálparfoss, Haukadalsskóg, Faxa og nágrenni Laugarvatns.
Á svæðinu eru miklir útivistarmöguleikar – gönguleiðir, skipulagðar gönguferðir og hver árstíð hefur sinn sjarma.
The post Uppsveitir Árnessýslu appeared first on Sagatrail.
CityWalk gönguferðir í Reykjavík
CityWalk býður upp á daglegar gönguferðir í Reykjavík þar sem saga, menning og skemmtun fléttast saman. Fyrirtækið hefur vakið athygli fyrir fríar ferðir með leiðsögn og sérsniðnar upplifanir fyrir hópa.
Daglegar gönguferðir í miðborg Reykjavíkur
CityWalk býður upp á daglegar gönguferðir í Reykjavík með leiðsögn fyrir ferðamenn og einkahópa. Fyrirtækið var stofnað árið 2014 af Marteini Briem og hefur frá upphafi boðið fríar ferðir með leiðsögn þar sem gestir greiða frjáls framlög í lok ferðar. Þessar vinsælu ferðir hafa vakið athygli í erlendum fjölmiðlum og á hótelum víða um borgina. Leiðsögnin fer fram á ensku og er leidd af reynslumiklum leiðsögumanni.
Til að bóka má fara á vef CityWalk
Sérsniðnar gönguferðir fyrir hópa
Fyrir þau sem vilja persónulegri upplifun býður CityWalk upp á einka gönguferðir sem taka 2–3 klukkustundir. Þessar ferðir eru skipulagðar fyrir smærri hópa og oft með mat inniföldum.
Íslendingaganga – Fyrir hópa og fyrirtæki
Íslenskir hópar, fyrirtæki og saumaklúbbar geta bókað Íslendingagöngu sem er sérsniðin ferð um miðborgina með áherslu á íslenska sögu og menningu.
Áreiðanleiki og sveigjanleiki í fyrirrúmi
CityWalk hefur aldrei aflýst ferð og er alltaf með plan B ef aðstæður breytast. Sveigjanleiki og fagmennska eru lykilatriði í þjónustunni og endurspeglast í fjölmörgum jákvæðum umsögnum frá ánægðum gestum og samstarfsaðilum.
Nánari upplýsingar má finna á CityWalk.is.
The post CityWalk gönguferðir í Reykjavík appeared first on Sagatrail.
Óbyggðasetur Íslands
Lifandi saga, náttúra og menning á jaðri hálendisins
Óbyggðasetur Íslands í Fljótsdal er einstakur áfangastaður þar sem saga, menning og víðerni renna saman í heildstæða upplifun. Gestir stíga inn í heim fortíðar um leið og þeir ganga yfir gömlu trébrúna að setrinu og finna hvernig daglegt líf fyrri tíma lifnar við í byggingum, munum og sögum sem tengjast óbyggðum landsins.
Sýningin leiðir gesti í gegnum ævintýri útilegumanna, ferðalanga og fólks sem bjó við harðbýli hálendisins. Hvert smáatriði er hannað til að skapa tengingu við fortíðina og gera gestum kleift að upplifa aðstæður, áskoranir og lífsstíl sem mótaði mannlíf á þessum afskekktu slóðum.
Sögusýning sem fangar anda óbyggðanna
Á setrinu er fjölbreytt og sjónræn sýning sem sameinar frásagnir, ljósmyndir, kvikmyndir, hljóð og áþreifanlega muni. Hún hentar jafnt sagnfræðingum, ævintýrafólki og fjölskyldum sem vilja kynnast íslenskum óbyggðum á lifandi og aðgengilegan hátt.
Gisting í anda liðinna tíma
Gestir geta „sofið á safni“ í gamaldags baðstofu þar sem innréttingar og stemning endurspegla sveitalíf fyrri alda. Þrátt fyrir sögulegt yfirbragð er gistingin þægileg og hlýleg, og hentar bæði einstaklingum, pörum, fjölskyldum og litlum hópum sem vilja dvelja nærri hálendinu.
Heit laug, baðhús og ró í náttúrunni
Heita laugin við Óbyggðasetur Íslands býður upp á fallegt útsýni yfir dalinn og er fullkominn staður til að slaka á eftir dag í útivist. Hvort sem er undir stjörnubjörtum vetrarhimni eða í miðnætursólinni að sumri er upplifunin einstök. Í baðhúsinu er gufubað og slökunarrými sem bjóða upp á rólega stund í nánum tengslum við náttúruna.
Staðbundinn matur eldaður fyrir framan gesti
Veitingastaðurinn leggur áherslu á hráefni úr heimabyggð og matargerð sem byggir á hefðum svæðisins. Maturinn er eldaður í gamla eldhúsinu fyrir framan gesti og allt bakkelsi er bakað á staðnum. Hér sameinast bragð, saga og heimilisleg stemning í einni upplifun.
Ferðir og útivist í Fljótsdal og á hálendinu
Frá setrinu er boðið upp á fjölbreyttar ferðir, þar á meðal gönguferðir, hestaferðir, fjallahjól, stjörnuskoðun, gönguskíðaferðir og hvataferðir fyrir hópa. Hægt er að velja stuttar dagsferðir eða lengri leiðangra með leiðsögn þar sem gestir kynnast náttúru, dýralífi og sögulegum stöðum svæðisins.
Óbyggðasetur Íslands er þannig bæði sögusafn, upplifunarsetur og upphafspunktur fyrir ævintýri í víðernum Fljótsdals og hálendisins.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á Austurlandi
Gakktu upp að Hengifossi, einum hæsta og fallegasta fossi landsins, umvafinn rauðum og svörtum stuðlabergslögum.
Slakaðu á í Vök jarðböðunum við Egilsstaði.
Heimsæktu heitu laugarnar á Laugarfelli á leiðinni að Snæfelli.
Kannaðu Hallormsstaðaskóg, stærsta skóglendi Íslands, með háum trjám, göngustígum við vatnið og sögunni um Lagarfljótsorminn.
Uppgötvaðu tilkomumiklar stuðlabergsmyndanir í Stuðlagili í Jökuldal, sem hefur orðið heimsfrægt fyrir bláan lit árinnar.
Smakkaðu handverksbjór frá Austri brugghúsi á Egilsstöðum og Beljanda brugghúsi í Breiðdalsvík.
Farðu í leiðsögn til að sjá villt hreindýr og kynntu þér líf þeirra á Minjasafni Austurlands á Egilsstöðum.
Heimsæktu Snæfellsstofu á Skriðuklaustri og skoðaðu fræðandi sýningu um Vatnajökulsþjóðgarð.
Njóttu lífræns grænmetis frá Vallanesi og bragðaðu hefðbundið íslenskt skyr í Fjóshorninu á Egilsstöðum.
Á sumrin er upplagt að bóka borð á Norð Austur Sushi & Bar í Seyðisfirði, sem býður upp á ferskan staðarfisk og íslenskt wasabi.
Finndu frekari upplýsingar um áfangastaði á Austurlandi á east.is.
The post Óbyggðasetur Íslands appeared first on Sagatrail.
Fornleifastofnun Íslands
Rannsóknir, skráning og fræðsla á sviði íslenskrar fornleifafræði
Fornleifastofnun Íslands er leiðandi rannsóknarstofnun á sviði íslenskrar fornleifafræði og hefur frá upphafi lagt áherslu á vandaðar rannsóknir, öflugt samstarf og faglega miðlun. Markmið Fornleifastofnunar Íslands er að efla skilning á menningararfi þjóðarinnar með vísindalegum aðferðum, gagnsæi og stöðugri þróun fræðigreinarinnar.
Fornleifaskráning og rannsóknir um allt land
Frá árinu 1993 hefur Fornleifastofnun Íslands unnið að víðtækri fornleifaskráningu vegna skipulagsgerðar um land allt. Skráningarkerfi, gagnageymsla og miðlun hafa verið stöðugt þróuð til að tryggja að upplýsingar um minjar séu aðgengilegar og áreiðanlegar. Á hverju ári vinnur Fornleifastofnun Íslands að fjölmörgum uppgröftum, allt frá umfangsmiklum langtímaverkefnum til smærri könnunarskurða sem tengjast skipulagsmati.
Frá árinu 2017 hefur stofnunin einnig sinnt húsaskráningu víða um land og þannig lagt sitt af mörkum til varðveislu byggingararfs og skilnings á þróun byggðar á Íslandi.
Fornleifaskólinn – fræðsla og þjálfun fyrir nýja kynslóð fornleifafræðinga
Fornleifaskólinn, sem starfræktur hefur verið frá 1997, er eitt þekktasta fræðsluverkefni Fornleifastofnunar Íslands. Markmið hans er að efla þekkingu íslenskra og erlendra nemenda á íslenskri fornleifafræði og veita þeim verklega og fræðilega þjálfun. Nemendur hvaðanæva úr heiminum taka þátt í fjögurra vikna námskeiði þar sem þeir læra undirstöðuatriði uppgraftar, fornleifaskráningar og fræðilegrar vinnu undir leiðsögn sérfræðinga.
Fornleifaskóli barnanna hefur einnig verið starfræktur í samstarfi við skóla, félagasamtök og erlenda háskóla. Verkefnið hefur vakið mikla athygli fyrir að kynna börnum fornleifafræði á lifandi og aðgengilegan hátt.
Útgáfustarf og miðlun fræða
Fornleifastofnun Íslands stendur fyrir öflugu útgáfustarfi sem styrkir fræðilega umræðu og miðlar nýjustu rannsóknum til almennings og fræðasamfélagsins. Ritið Archaeologia Islandica, sem fyrst kom út árið 1998, birtir nýjar greinar um íslenska fornleifafræði og efni tengd henni, allt frá landnámi til nýrri tíma. Ritið er á ensku og höfðar til alþjóðlegs lesendahóps sem hefur áhuga á íslenskum minjum og menningararfi.
Fornleifastofnun Íslands gegnir lykilhlutverki í varðveislu og rannsóknum á sögulegum minjum sem tengjast söguslóðum Íslands. Með skráningu, rannsóknum og fræðslu stuðlar stofnunin að dýpri skilningi á íslenskri sögu og menningu og gerir ferðalöngum kleift að upplifa söguna í samhengi við raunverulegt landslag og minjar.
Nánari upplýsingar um Fornleifastofnun Íslands má finna á vef safnsins www.fornleif.is
The post Fornleifastofnun Íslands appeared first on Sagatrail.
Minjastofnun Íslands
Hlutverk Minjastofnunar Íslands
Minjastofnun Íslands er stjórnsýslustofnun á sviði menningarminja sem heyrir undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Stofnunin annast framkvæmd minjavörslu á Íslandi í samræmi við lög um menningarminjar frá 2013 og vinnur að því að vernda og efla menningarsögulegan arf þjóðarinnar. Meginhlutverk Minjastofnunar Íslands er að tryggja eftir föngum varðveislu menningarminja í sínu upprunalega umhverfi og auðvelda almenningi aðgang að þeim og kynni af þeim.
Vernd fornleifa og byggingararfs
Minjastofnun Íslands hefur yfirumsjón með verndun fornleifa og byggingararfs um allt land. Hún fylgist með ástandi friðaðra og friðlýstra fornleifa, húsa og mannvirkja og setur reglur um skráningu og vernd þeirra. Með markvissri stefnumörkun í samstarfi við fagnefndir er unnið að því að tryggja að fornleifar, söguleg hús og menningarlandslag njóti viðeigandi verndar til framtíðar.
Menningarminjar og menningarlandslag
Til menningarminja teljast fjölbreytt ummerki um sögu þjóðarinnar, allt frá fornminjum og menningarlandslagi til kirkjugripa, minningarmarka, húsa og annarra mannvirkja. Einnig falla skip og bátar, listmunir og ýmsir nytjahlutir undir menningarminjar. Minjastofnun Íslands vinnur að því að greina, skrá og vernda þetta fjölbreytta safn minja svo það endurspegli sem best sögu og sjálfsmynd landsins.
Minjasvæði, minjaverðir og minjaráð
Landinu er skipt í átta minjasvæði en á hverju þeirra starfa minjaverðir sem hafa eftirlit með menningarminjum á sínu svæði. Hvert og eitt minjasvæði hefur einnig minjaráð sem styður við ákvarðanatöku og stefnumótun í minjavörslu. Þessi skipan tryggir staðbundna þekkingu, náið samstarf við sveitarfélög og betra aðgengi almennings að ráðgjöf um vernd menningararfs.
Sjóðir til verndar menningararfi
Fornminjasjóður og Húsafriðunarsjóður heyra undir Minjastofnun Íslands og gegna lykilhlutverki í verndun menningararfs. Stofnunin úthlutar styrkjum úr sjóðunum að fengnum umsögnum fagnefnda og hefur eftirlit með framvindu verkefna sem hljóta styrk. Einnig ákveður Minjastofnun aðra ráðstöfun fjár úr sjóðunum í samráði við húsafriðunarnefnd og fornminjanefnd til að hámarka áhrif fjármögnunar á verndun minja.
Rannsóknir, skráning og friðlýsing
Minjastofnun Íslands setur reglur um skráningu friðaðra og friðlýstra fornleifa, húsa og mannvirkja og heldur heildarskrár yfir slíkar minjar, þar á meðal friðlýsta legsteina og minningarmörk. Stofnunin gerir tillögur til ráðherra um friðlýsingu og afnám friðlýsingar þegar tilefni er til og getur ákveðið skyndifriðun menningarminja ef hætta steðjar að. Með þessu er tryggt að mikilvægar minjar fái viðeigandi vernd á réttum tíma.
Samkvæmt lögum um menningarminjar setur Minjastofnun Íslands reglur og skilyrði um fornleifarannsóknir sem hafa jarðrask í för með sér og hefur eftirlit með öllum slíkum rannsóknum í landinu. Stofnunin fjallar um og veitir leyfi til stað- og tímabundinna fornleifarannsókna og sinnir nauðsynlegum vettvangskönnunum, neyðarrannsóknum og öðrum skyndirannsóknum þegar þörf krefur. Þannig er tryggt að rannsóknir á fornleifum fari fram á faglegan og ábyrgan hátt.
Heildarskrár Minjastofnunar Íslands yfir friðaðar og friðlýstar minjar eru mikilvægur grunnur fyrir stefnumótun, rannsóknir og fræðslu. Með rafrænum gagnasöfnum og kortlausnum er unnið að því að gera upplýsingar um menningarminjar aðgengilegar almenningi, fagfólki og stjórnvöldum. Þannig styður Minjastofnun við upplýsta ákvarðanatöku um skipulag, landnýtingu og vernd menningararfs.
Alþjóðleg tengsl og flutningur menningarverðmæta
Minjastofnun Íslands hefur eftirlit með flutningi menningarminja til annarra landa og annast leyfisveitingar vegna útflutnings slíkra verðmæta. Stofnunin sér einnig um framkvæmd laga um skil á menningarverðmætum til annarra landa og tryggir að alþjóðlegar skuldbindingar Íslands á sviði menningararfs séu virtar. Með þessu er stuðlað að ábyrgu flæði menningarverðmæta og vernd þeirra í alþjóðlegu samhengi.
Samstarf, ráðgjöf og fræðsla
Minjastofnun Íslands setur á fót minjaráð á hverju minjasvæði og ber ábyrgð á starfsemi þeirra, sem styrkir samstarf við sveitarfélög, stofnanir og almenning. Stofnunin veitir ráðgjöf um vernd, viðhald og nýtingu menningarminja og tekur þátt í fræðslu- og kynningarverkefnum um menningararfinn. Með öflugu samstarfi og miðlun þekkingar styður Minjastofnun við að menningarminjar verði lifandi hluti samfélagsins og aðgengilegar komandi kynslóðum.
The post Minjastofnun Íslands appeared first on Sagatrail.
Wapp – gönguleiðsögn
Stafræn leiðsögn fyrir göngufólk um allt land
Wapp – gönguleiðsögn býður upp á fjölbreyttar GPS leiðarlýsingar um allt Ísland með fróðleik um örnefni, sögur, náttúru og umhverfi. Leiðirnar byggja á kortagrunni Samsýnar og hægt er að hlaða þeim niður í símann og nota án gagnasambands, sem tryggir öryggi og aðgengi hvar sem er á landinu.
Leiðarlýsingar með kortum, myndum og gagnlegum upplýsingum
Í hverri leiðarlýsingu eru kort, ljósmyndir og skýrar upplýsingar um aðgengi, árstíðabundnar aðstæður, bílastæði og almenningssalerni. Ef hættur eða sérstök varúðarsjónarmið eru á leiðinni eru þau merkt sérstaklega svo notendur geti undirbúið sig vel og ferðast á öruggan hátt.
Leiðir sem merktar eru sem leiðsögn innihalda upplýsingapunkta sem vísa í lífríki, jarðfræði, örnefni og sögulega staði. Þannig sameinar Wapp – gönguleiðsögn útivist, fræðslu og örugga ferðaleiðsögn á einum stað.
Fjölbreyttar gönguleiðir fyrir alla
Wapp býður upp á hundruð leiða af mismunandi lengd og erfiðleikastigi, allt frá stuttum fjölskyldugöngum til krefjandi fjallaleiða. Leiðirnar henta bæði heimafólki og ferðamönnum sem vilja kanna íslenska náttúru á eigin forsendum.
Öryggi og aðgengi í fyrirrúmi
Þar sem leiðarlýsingarnar eru aðgengilegar offline er hægt að fylgja þeim hvar sem er á landinu, jafnvel á afskekktum svæðum. Þetta eykur öryggi og gerir appið að áreiðanlegum ferðafélaga fyrir þau sem vilja njóta útivistar á öruggan og fræðandi hátt.
Sækja Wapp – gönguleiðsögn í snjallsímann
Wapp er fáanlegt fyrir bæði iPhone og Android. Sjá nánar á
www.wapp.is. Appið er ómissandi fyrir öll þau sem vilja uppgötva nýjar gönguleiðir, læra um náttúru og sögu og ferðast með örugga GPS leiðsögn í vasanum.
The post Wapp – gönguleiðsögn appeared first on Sagatrail.
Markaðsstofa Vesturlands
Sögulandið Vesturland
Markaðsstofa Vesturlands kynnir sögulandið Vesturland og heldur utan um upplýsingar um áhugaverða áfangastaði og fjölbreytta afþreyingu í landshlutanum. Á Vesturlandi blasir sagan við í hverju skrefi og gestir geta ferðast um sögulandið Vesturland þar sem Íslendingasögur, þjóðsögur og frásagnir af mönnum og málefnum lifna við.
Íslendingasögur og þjóðsögur
Flestar Íslendingasögurnar eru skráðar á Vesturlandi, þar á meðal Egils saga, Sturlunga, Laxdæla og Eyrbyggja saga. Þess vegna er svæðið kallað Sögulandið Vesturland. Sögusvið þessara sagna er hvarvetna að finna og gerir ferðalagið einstakt fyrir áhugasama um sögu og menningu Íslands.
Afþreying og upplifun fyrir börn og fjölskyldur
Á Vesturlandi eru fjölbreyttir áninga- og þjónustustaðir sem henta börnum og ungmennum. Þar má upplifa sögurnar beint í æð og njóta spennandi afþreyingar. Svæðið býður upp á tröllagönguleið, óteljandi ærslabelgi, baðstaði og leikvelli sem gera ferðalagið ógleymanlegt. Það er skemmtilegt að leyfa krökkunum að ráða för í ferðalagi um Vesturland, enda er fjölbreytt þjónusta og afþreying í boði.
Markaðsstofa Vesturlands – upplýsingamiðstöð ferðamanna
Markaðsstofa Vesturlands veitir ferðamönnum og íbúum upplýsingar um áfangastaði Vesturlands, afþreyingu og menningarviðburði. Hún gegnir lykilhlutverki í að kynna Sögulandið Vesturland sem einstakan áfangastað fyrir alla aldurshópa.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á Vesturlandi:
Slappaðu af í Guðlaugu, náttúrulauginni á Langasandi á Akranesi.
Skoðaðu Akranesvitann (þeir eru tveir!) og fallegt umhverfi þeirra.
Gakktu upp á Akrafjall, þú verður ekki svikinn af útsýninu þar.
Kynntu þér hlutverk Hvalfjarðar í síðari heimsstyrjöldinni á Hernámssetrinu að Hlöðum á Hvalfjarðarströnd.
Farðu inn í Botnsdal í Hvalfirði og gakktu upp að Glanna, hæsta fossi á Íslandi.
Komdu við á Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri og á Ullarselinu þar og fáðu sögu landbúnaðar á Íslandi beint í æð.
Kynntu þér íslensku geitina, sem er einstakt kyn, og afurðir hennar í geitarfjársetrinu Háafelli.
Heimsæktu Landámssetrið í Borgarnesi og fræðstu um sögu landnáms Íslands, um Egil Skallagrímsson eða farðu á viðburð á Söguloftinu.
Leggstu í bleyti í Kraumu heilsulind við Deildartunguhver, öflugasta hver í Evrópu.
Skoðaðu náttúruperlur og sögustaði í Borgarfirði svo sem Grábrók, Hraunfossa, Barnafoss og Reykholt Snorra Sturlusonar.
Nánari upplýsingar má finna á www.west.is/is.
The post Markaðsstofa Vesturlands appeared first on Sagatrail.