Gljúfrasteinn – hús skáldsins Halldórs Laxness

Sagatrail

Halldór Laxness (1902–1998) var fremstur í flokki íslenskra rithöfunda á 20. öld. Hann upplifði mestu breytingar sem orðið hafa í sögu Íslands á einni öld, frá bændasamfélagi til nútímans. Þegar hann hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1955 sameinaðist þjóðin um hann sem helsta tákn íslenskrar menningar og bókmennta. Gljúfrasteinn hús Halldórs Laxness í Mosfellsdal er í dag safn sem heldur …

Heimur í orðum – Handritasýning í Eddu

Sagatrail

Á sýningunni Heimur í orðum – handritasýning í Eddu fá gestir að sjá íslensk miðaldahandrit sem geyma dýrmætan menningararf. Þar má finna sögur, kvæði og fjölbreytta texta sem sýna hugmyndir fyrri kynslóða um líf og samfélag. Lögð er áhersla á innihald handritanna og tengsl þeirra við sögu Íslands. Árnastofnun og Edda – heimili íslenskra handrita Árnastofnun sinnir rannsóknum í íslenskum …

Safn Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri

admin

Gamli torfbærinn, sem er eftirlíking af húsinu sem Jón ólst upp í, hefur verið endurreist og þar geta gestir gætt sér þar á kaffi, kökum og vöfflum. Sérstök dagskrá er ávallt haldin á Hrafnseyri  á þjóðhátíðardegi Íslendinga þann 17. júní, sem jafnframt var afmælisdagur Jóns Sigurssonar. Tíu hugmyndir að afþreyingu í Arnarfirði og nágrenni:  Gakktu upp með Dynjanda, frægasta fossi …

Byggðasafn Vestfjarða

admin

Í þeim hluta Ísafjarðar sem kallaður er Neðstikaupstaður stendur elsta húsaþyrping landsins. Þetta eru fjögur hús sem öll voru byggð af dönskum einokunarkaupmönnum á 18. öld. Húsaþyrpingin samanstendur af Faktorshúsi, Krambúð, Turnhúsi og Tjöruhúsi. Faktorshús og Krambúð eru nú íbúðahús og í Turnhúsi er sjóminjasafn. Í Tjöruhúsi getur Byggðasafn Vestfjarða boðið uppá aðstöðu til funda- og veisluhalda allan ársins hring. …

Víkingafélagið Rimmugýgur

admin

Vík­inga­fé­lagið Rimm­ugýg­ur í Hafnar­f­irði er elsta og stærsta starf­andi vík­inga­fé­lagið á  Íslandi, stofnað árið 1997. Heitir félagið því eftir öxi Skarphéðins Njálssonar  í Brennu -Njálssögu. Tilgangur félagsins er að stuðla að auknum áhuga á víkingatímabilinu og uppruna þjóðarinnar. Höfuðáhersla félagsins er á bardagaæfingar, klæðagerð og vandaða handverksmuni með skírskotun í  víkingatímann. Félagið hefur í gegnum árin tekið þátt í mörgum …

Markaðsstofa Vesturlands – Sögulandið Vesturland

Sagatrail

Markaðsstofa Vesturlands – Sögulandið Vesturland Markaðsstofa Vesturlands kynnir sögulandið Vesturland og heldur utan um upplýsingar um áhugaverða áfangastaði og fjölbreytta afþreyingu í landshlutanum. Á Vesturlandi blasir sagan við í hverju skrefi og gestir geta ferðast um sögulandið Vesturland þar sem Íslendingasögur, þjóðsögur og frásagnir af mönnum og málefnum lifna við. Sögulandið Vesturland – Íslendingasögur og þjóðsögur Flestar Íslendingasögurnar eru skráðar á …

Landbúnaðarsafn Íslands

Sagatrail

Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri varpar ljósi á sögu íslensks landbúnaðar. Í sveitasælunni í Borgarfirði er kjörið að kynna sér merka sögu íslensks landbúnaðar, skoða gömul landbúnaðartæki og velta fyrir sér framþróun þessarar mikilvægu greinar. Sérstök áhersla er lögð á upphaf tæknialdar í landbúnaði. Meðal merkustu muna Landbúnaðarsafnsins eru verðmætir gripir frá Ólafsdalsskólanum og frá búi Thors Jensen á Korpúlfsstöðum. Í …

Árbæjarsafn – útisafn í Reykjavík

admin

Árbæjarsafn — útisafn um daglegt líf og byggingalist í Reykjavík Árbæjarsafn er útisafn í Reykjavík með um 20 gömlum húsum og torfbænum Árbæ, uppbyggðu sem torg, þorp og sveit. Gestir geta gengið um húsin og kynnst byggingalist, lifnaðarháttum og daglegu lífi Reykvíkinga í gamla daga. Í húsunum má skoða fjölbreyttar sögusýningar og á safnsvæðinu eru haldnir reglulegir viðburðir sem varpa …

Minjasafnið á Akureyri

admin

Minjasafnið  á Akureyri hefur frá upphafi verið í reisulegu íbúðarhúsi sem reist var 1934. Í því og sýningarsölunum frá 1978 eru sýningar safnsins. Stærsti gripur Minjasafnsins er svartbikuð timburkirkja stendur í Minjasafnsgarðinum sem var upphaflega byggð að Svalbarði austanmegin Eyjafjarðar árið 1846. Minjasafnsgarðurinn er ein af perlum Minjasafnsins og safngripur í sjálfu sér. Garðurinn er einn örfárra varðveittra íslenskra skrúðgarða frá aldamótunum …

Landnámssetrið í Borgarnesi

admin

Landnámssetrið í Borgarnesi er í tveimur af elstu húsum Borgarness, Pakkhúsinu og Búðarkletti, sem tengd hafa verið saman með nútímalegri byggingu þar sem er  minjagripa- og gjafavörusala. Kjarni setursins eru sýningarnar um Landnám Íslands og Egils sögu. Í Landnámssýningunni er sagan sögð með ljósabúnaði og skjám Þar er fjallað um Landnám Íslands, hvernig norrænir menn fóru að því að rata …

Glaumbær í Skagafirði

admin

Starfsemi í Glaumbæ er í höndum Byggðasafns Skagfirðinga, sem sér um varðveislu, rannsóknir og miðlun skagfirskrar menningar og minja. Bæjarins er fyrst getið í Eiríks sögu rauða og Grænlendinga sögu, en þar kemur fram að Snorri Þorfinnsson, sem fæddist á Vínlandi um árið 1000, hafi búið þar. Móðir hans var Guðríður Þorbjarnardóttir, víðförulasta kona á víkingaöld.  Stytta af þeim mæðginum …