Jarðhitasýningin í Hellisheiðarvirkjun

Sagatrail

Upplifðu kraft jarðhitans Jarðhitasýningin í Hellisheiðarvirkjun býður gestum að kynnast hvernig endurnýjanleg orka verður til. Þar má sjá hvernig stærsta jarðvarmavirkjun Íslands framleiðir rafmagn og heitt vatn fyrir höfuðborgarsvæðið. Sýningin er lifandi dæmi um sjálfbæra orkunýtingu í verki. Sýnilegur jarðhiti – frá orku til nýsköpunar Á sýningunni geta gestir skoðað vélasalinn og horft yfir vinnusvæðið. Þar eru einnig gagnvirkar sýningar …

Gljúfrasteinn – hús skáldsins Halldórs Laxness

Sagatrail

Halldór Laxness (1902–1998) var fremstur í flokki íslenskra rithöfunda á 20. öld. Hann upplifði mestu breytingar sem orðið hafa í sögu Íslands á einni öld, frá bændasamfélagi til nútímans. Þegar hann hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1955 sameinaðist þjóðin um hann sem helsta tákn íslenskrar menningar og bókmennta. Gljúfrasteinn hús Halldórs Laxness í Mosfellsdal er í dag safn sem heldur …

Skyrland á Selfossi

Sagatrail

Skyrland á Selfossi – saga og upplifun þjóðarréttarins Skyrland á Selfossi er lifandi upplifunarsýning sem fjallar um sögu skyrs frá landnámi til dagsins í dag. Skyrið hefur nært og styrkt Íslendinga í gegnum aldirnar og á síðustu árum orðið þekkt ofurfæða víða um heim. Sýningin er staðsett í Gamla Mjólkurbúinu í nýja miðbænum á Selfossi og leiðir gesti í gegnum …

Óbyggðasetur Íslands

Sagatrail

Lifandi saga, náttúra og menning á jaðri hálendisins Óbyggðasetur Íslands í Fljótsdal er einstakur áfangastaður þar sem saga, menning og víðerni renna saman í heildstæða upplifun. Gestir stíga inn í heim fortíðar um leið og þeir ganga yfir gömlu trébrúna að setrinu og finna hvernig daglegt líf fyrri tíma lifnar við í byggingum, munum og sögum sem tengjast óbyggðum landsins. …

Skriðuklaustur í Fljótsdal

admin

Skriðuklaustur er sögustaður í Fljótsdal með rústum miðaldaklausturs frá 16. öld. Minjar klaustursins voru grafnar upp á árunum 2002-2012 í einni umfangsmestu fornleifarannsókn síðari ára. Skriðuklaustur var Ágústínusarklaustur sem starfaði frá 1493 til siðaskipta 1550. Það var fyrst og fremst hæli fyrir sjúka og fátæka og þar var starfrækt sjúkrahús. Minjasvæðið er opið allt árið. Á Skriðuklaustri stendur herragarðshúsið sem …

Eldheimar – Vestmannaeyjum

admin

Ímyndaðu þér hvernig það var að vakna upp um miðja nótt við að eldgos var hafið í bænum þínum! Á gosminjasýningunni í Eldheimum í Vestmannaeyjum kemstu ansi nálægt sannleikanum, en þar er fjallað um Heimaeyjargosið árið 1973 á áhrifamikinn hátt.  Þá urðu nær allir íbúar Heimaeyjar, um fimm þúsund manns,  að yfirgefa heimili sín í skyndi og flýja eyjuna í …

Þingvellir

admin

Saga Íslands og íslensku þjóðarinnar kemur hvergi betur fram á einum stað en á Þingvöllum við Öxará. Á Þingvöllum var Alþingi stofnað árið 930 og kom þar saman til ársins 1798. Meginviðburðir Íslandssögunnar hafa gerst þar og því skipa Þingvellir sérstakan sess í hugum Íslendinga. Þingvellir eru jafnframt náttúruundur á heimsvísu og þar er elsti þjóðgarður Íslendinga. Fræðslumiðstöðin við Hakið …

1238: Baráttan um Ísland

admin

Sögusetrið 1238: Baráttan um Ísland á Sauðárkróki er gagnvirk og alltumlykjandi sýning um Örlygsstaðabardaga sem færir þig mun nær sögulegum stóratburðum en hefðbundnar fræðslusýningar. Stígðu inn í söguna og taktu þátt í Örlygsstaðabardaga, fjölmennustu orrustu sem háð hefur verið á Íslandi, en þar börðust 3000 manns. Orrustan var ein af mörgum á Sturlungaöld (1220-1264), sem gerir hana að blóðugasta og …