Byggingar Archives - Sagatrail
Elliðarárstöð
Áfangastaður þar sem náttúra og orka mætast
Elliðaárstöð er einstök blanda af sögu, náttúru og nýsköpun í hjarta Reykjavíkur. Hún stendur í Elliðaárdal, einu vinsælasta útivistarsvæði borgarinnar. Þar má sjá hvernig vatnsafl rafvæddi Reykjavík á sínum tíma og hvernig sú þekking og sköpunarkraftur móta samfélagið enn í dag.
Elliðaárdalur – náttúruperla í borginni
Dalurinn er þekktur fyrir fjölbreytt landslag, jarðfræði og gróður, og ríkt fugla- og dýralíf. Elliðaárnar eru einu laxveiðiár heims sem liggja innan borgarmarka, og á svæðinu má einnig finna fornleifar frá upphafi byggðar og minjar frá síðari heimsstyrjöld.
Virkjunin sem breytti Reykjavík
Elliðaárvirkjun var tekin í notkun árið 1921 og markaði upphaf rafvæðingar í Reykjavík. Tilkoma rafmagns umbreytti daglegu lífi borgarbúa og lagði grunn að nútímalegum veitukerfum, verkfræði og borgarþróun. Í dag hefur áherslan færst frá því að virkja orku árinnar yfir í að virkja sköpunarkraft og forvitni fólks.
Leiðsögn á Elliðaárstöð
Hópar eru velkomnir í skipulagða heimsókn á Elliðaárstöð. Leiðsögn, í boði á íslensku eða ensku, veitir innsýn í sögu virkjunarinnar, Elliðaárdals og orkukerfa Reykjavíkur. Leiðsagnir fara fram á virkum dögum milli kl. 13:00 og 17:00 eftir samkomulagi og standa í 45–60 mínútur.
Lágmarksfjöldi í leiðsögn er 10 manns.
Upplifðu orkuna í dalnum
Elliðaárstöð býður gestum að kynnast tengslum náttúru, vatnsafls og hugvits. Hvort sem þú kemur til að fræðast um sögu, njóta útivistar eða öðlast dýpri skilning á orkukerfum Reykjavíkur, býður dalurinn upp á eftirminnilega upplifun í einstöku borgarlandslagi.
Heimsæktu heimasíðu Elliðaárstöðvar
The post Elliðarárstöð appeared first on Sagatrail.
Sögusetur íslenska fjárhundsins
Sýning tileinkuð þjóðarhundi Íslendinga
Sögusetur íslenska fjárhundsins er lifandi og fræðandi sýning sem varpar ljósi á sögu, hlutverk og sérstöðu þessa einstaka hundakyns. Markmið setursins er að varðveita menningararfinn sem tengist íslenska fjárhundinum og gera hann aðgengilegan fyrir gesti á öllum aldri. Hér er sagan sögð á sjónrænan, hlýjan og persónulegan hátt.
Opnun og þróun sýningarinnar
Sögusetrið opnaði í maí 2025 eftir þriggja ára undirbúningsvinnu menningarfræðingsins Evelynar Ýrar á Lýtingsstöðum. Hún hefur safnað saman fjölbreyttu efni sem sýnir hvernig íslenski fjárhundurinn hefur fylgt Íslendingum frá landnámi og gegnt lykilhlutverki í daglegu lífi, búskap og menningu þjóðarinnar.
Fræðsla, myndefni og gagnabankar
Gestir geta kynnt sér sögu hundakynsins á íslensku, ensku, þýsku og frönsku, skoðað heimildarmyndir, gamlar ljósmyndir og listaverk sem sýna þróun og einkenni fjárhundsins. Einnig er hægt að fletta í gegnum bækur og nafna- og litagagnabanka, auk þess að sjá hundinn í nærmynd og hlusta á sögur sem tengjast kyninu. Íslensku fjárhundarnir á Lýtingsstöðum taka gjarnan á móti gestum og skapa notalegt andrúmsloft.
Torfhesthús og byggingararfleifð
Árið 2015 lét fjölskyldan á Lýtingsstöðum reisa torfhesthús, skemmu og rétt sem endurspegla hefðbundna íslenska byggingalist. Þessar byggingar eru meistaraverk torfhandverks og sýningin þar fjallar um hvernig hrossum var haldið á árum áður og hvernig saga fólks og hrossa á Íslandi fléttast saman. Boðið er upp á hljóðleiðsögn á fjórum tungumálum sem tekur um 30 mínútur og hentar vel börn sem fullorðna. Einnig er hæt að fá sér leiðsögn fyrir hópa.
Lýtingsstaðir og sögulegt samhengi
Lýtingsstaðir eiga rætur að rekja til landnámsaldar þegar Lýtingur nam land á svæðinu. Bærinn var höfuðból um aldir og þar stóð hálfkirkja frá 11. til 18. aldar sem síðar var notuð sem þinghús fram á 20. öld. Þótt upprunalegar torfbyggingar hafi ekki varðveist gefa torfhúsin frá 2015 góða mynd af lífi og búskap fyrri tíma.
Menningarupplifun fyrir gesti
Ferðaþjónusta hefur verið rekin á Lýtingsstöðum frá árinu 2000 samhliða hefðbundnum búskap. Þar er boðið upp á hestaferðir, gistingu og heimsóknir sem tengja saman íslenska menningararfleifð: hinn einstaka íslenska hest, torfbyggingar og auðvitað íslenska fjárhundinn. Sögusetur íslenska fjárhundsins er því kjörinn viðkomustaður fyrir þau sem vilja kynnast íslenskri sögu og menningu á lifandi og persónulegan hátt.
Tíu afþreyingar í nágrenni við Setur íslenska fjárhundsins
Farðu í bátsferð með leiðsögn út í Drangey, þar sem heimamenn veiddu fugla og tíndu egg um aldir. Þar dvaldi einnig útlaginn Grettir Ásmundarson á flótta undan yfirvöldum.
Baðaðu þig í endurgerðri Grettislaug á Reykjaströnd, þar sem Grettir sterki hitnaði eftir sundið frá Drangey í land.
Upplifðu Örlygsstaðabardaga á sýndarveruleikasýningunni 1238: Baráttan um Ísland á Sauðárkróki.
Heimsæktu torfbæinn í Glaumbæ og kynnstu byggingarlist og daglegu lífi fyrri alda. Þar er einnig stytta af Guðríði Þorbjarnardóttur og syni hennar Snorra Þorfinnssyni.
Farðu í spennandi fljótasiglingu í Austari- eða Vestari-Jökulsá.
Nýttu tækifærið og farðu í hestaferð í Skagafirði, vöggu íslenskrar hestamennsku. Að hausti eru stóðréttir í Laufskálarétt ógleymanleg upplifun.
Heimsæktu Hóla í Hjaltadal sögufrægan menningarstað í nær þúsund ár.
Kynntu þér sögu vesturferða á Vesturfarasetrinu á Hofsósi.
Syntu og slakaðu á í sundlauginni á Hofsósi með stórbrotnu útsýni yfir Drangey og fjörðinn.
Heimsæktu Víðimýrarkirkju nærri Varmahlíð, eina fallegustu og best varðveittu torfkirkju landsins frá árinu 1834.
Nánari upplýsingar má finna á visitskagafjordur.is.
The post Sögusetur íslenska fjárhundsins appeared first on Sagatrail.
Your Friend in Reykjavík
Persónulegar og fræðandi gönguferðir í Reykjavík
Your Friend in Reykjavík býður upp á persónulegar og fræðandi gönguferðir  í hjarta Íslands þar sem sögur, tónlist, þjóðtrú og daglegt líf borgarinnar fléttast saman við góða stemningu, mat og íslenska gestrisni. Leiðsögumennirnir eru sérfræðingar í heimaborginni – lifandi sögumenn sem gera borgarupplifunina áhugaverða, aðgengilega og skemmtilega.
Sérfræðileiðsögn með áherslu á sögur og menningu
✔ Sérfræðileiðsögn heimafólks
✔ Litlir hópar og persónuleg nálgun
✔ Ferðir sem tengja saman sögur, mat og menningu
✔ Sjálfbær ferðaþjónusta – Travelife Partner
✔ Sveigjanlegar einkaferðir og sérsniðnar upplifanir fyrir innlenda sem erlenda gesti
✔ Hópefli, spurningaleikir, ratleikir, bar quiz fyrir starfsamanna og vinahópa
Gönguferðir í Reykjavík – fjölbreytt úrval
Hvort sem þú elskar sagnfræði, þjóðtrú eða matarmenningu, þá finnurðu ferð sem hentar. Frá Reykjavík Food Lovers Tour þar sem bragðlaukar fá að njóta sín, til Reykjavík Folklore Walking Tour þar sem álfar, draugasögur og borgarsögur lifna við – allar ferðir eru hannaðar til að vera skemmtilegar og upplýsandi, með innsýn í samtíma og fortíð.
Sjálfbær ferðaþjónusta með Travelife Partner
Sem Travelife Partner þá leggur Your Friend in Reykjavík áherslu á að virða nærumhverfi, styðja við staðbundna þjónustu og draga almennt úr umhverfisáhrifum ferða sinna.
Hafðu samband
Viltu vita meira um ferðir eða fá tilboð í sérsniðna upplifun? Hafðu samband hér og fáðu ráðgjöf. Það er auðvelt að setja saman ferð sem passar þér og þínum.
Bókaðu gönguferð í dag
Upplifðu Reykjavík eins og erlendur ferðamaður – bókaðu ferð núna og fáðu innsýn í íslenska menningu, þjóðtrú og daglegt líf borgarinnar með sérfræðileiðsögn. Þínir vinir í Reykjavík bíða spenntir eftir að sýna þér borgina á lifandi og skemmtilegan hátt.
The post Your Friend in Reykjavík appeared first on Sagatrail.
Uppsveitir Árnessýslu
Náttúra, menning og ævintýri
Velkomin í Uppsveitir Árnessýslu, þar sem náttúrufegurðin sameinast heillandi menningu og ógleymanlegum ævintýrum! Hér má finna fjölmarga áhugaverða staði til að heimsækja – frægar náttúruperlur, sögustaði og minna þekkta staði líka. Í uppsveitunum finnur þú fallega fossa, heitar lindir og alls kyns upplifun fyrir alla aldurshópa.
Allir þekkja Þingvelli, Gullfoss, Geysi og Skálholt, en svæðið hefur upp á svo margt annað skemmtilegt að bjóða. Gullna hringinn þekkja flestir, en hann er í reynd mun stærri en margur heldur – eiginlega líkari gullkeðju en hring. Í Uppsveitum Árnessýslu er alltaf eitthvað nýtt og spennandi að sjá og upplifa.
Við mælum með að gefa sér meira en einn dag til að njóta alls þess sem svæðið hefur upp á að bjóða. Fjölbreyttir gistimöguleikar eru í boði: tjaldsvæði, gistiheimili, sumarhús, hótel og fjallaskálar. Margir staðir bjóða heita potta og alltaf má finna sundlaug í nágrenninu.
Fjölbreyttir veitingastaðir bjóða gestum matvæli úr heimabyggð og einstakar matarupplifanir – enda eru Uppsveitirnar mikil matarkista og vagga grænmetisræktunar á Íslandi.
Margvísleg afþreying
Í Uppsveitum Árnessýslu er afþreying í boði fyrir alla fjölskylduna og öll áhugasvið. Hægt er að leigja hesta eða fara á hestasýningu, skella sér í veiði á fjórhjól, á snjósleða eða í flúðasiglingu. Heimsókn í hellana við Hellu og hellana við Laugarvatn er ógleymanleg upplifun.
Svæðið er kjörið fyrir fuglaáhugafólk og göngugarpa – göngustígar liggja um skóga og lítil fell bíða klifurs. Dýragarðurinn í Slakka í Laugarási er vinsæll áfangastaður fyrir alla fjölskylduna. Einnig má finna adrenalíngarð, gallerý, söfn og sýningar, margar sundlaugar og golfvelli.
Boðið er upp á frisbígolf, fótboltagolf, strandblak og heimsóknir á íþrótta- og leikvelli. Gestir velja hvort þeir vilja kyrrð og ró, fróðleik, spennu – eða sitt lítið af hverju.
Skemmtileg lítil þorp og byggðakjarnar eru nokkrir: Flúðir, Laugarvatn, Brautarholt, Árnes, Reykholt, Laugarás, Borg og Sólheimar. Þar er fjölbreytt þjónusta í boði og upplagt að dvelja um stund, kíkja á tjaldsvæðin eða gististaði og skoða hvað er í boði í nágrenninu.
Einstök náttúra
Náttúra Uppsveitanna er falleg og fjölbreytt. Þar má nefna Kerið, Úlfljótsvatn, Þjórsárdal, Brúarhlöð, Kerlingarfjöll, Kjöl, Háafoss, Laxárgljúfur, Hjálparfoss, Haukadalsskóg, Faxa og nágrenni Laugarvatns.
Á svæðinu eru miklir útivistarmöguleikar – gönguleiðir, skipulagðar gönguferðir og hver árstíð hefur sinn sjarma.
The post Uppsveitir Árnessýslu appeared first on Sagatrail.
CityWalk gönguferðir í Reykjavík
CityWalk býður upp á daglegar gönguferðir í Reykjavík þar sem saga, menning og skemmtun fléttast saman. Fyrirtækið hefur vakið athygli fyrir fríar ferðir með leiðsögn og sérsniðnar upplifanir fyrir hópa.
Daglegar gönguferðir í miðborg Reykjavíkur
CityWalk býður upp á daglegar gönguferðir í Reykjavík með leiðsögn fyrir ferðamenn og einkahópa. Fyrirtækið var stofnað árið 2014 af Marteini Briem og hefur frá upphafi boðið fríar ferðir með leiðsögn þar sem gestir greiða frjáls framlög í lok ferðar. Þessar vinsælu ferðir hafa vakið athygli í erlendum fjölmiðlum og á hótelum víða um borgina. Leiðsögnin fer fram á ensku og er leidd af reynslumiklum leiðsögumanni.
Til að bóka má fara á vef CityWalk
Sérsniðnar gönguferðir fyrir hópa
Fyrir þau sem vilja persónulegri upplifun býður CityWalk upp á einka gönguferðir sem taka 2–3 klukkustundir. Þessar ferðir eru skipulagðar fyrir smærri hópa og oft með mat inniföldum.
Íslendingaganga – Fyrir hópa og fyrirtæki
Íslenskir hópar, fyrirtæki og saumaklúbbar geta bókað Íslendingagöngu sem er sérsniðin ferð um miðborgina með áherslu á íslenska sögu og menningu.
Áreiðanleiki og sveigjanleiki í fyrirrúmi
CityWalk hefur aldrei aflýst ferð og er alltaf með plan B ef aðstæður breytast. Sveigjanleiki og fagmennska eru lykilatriði í þjónustunni og endurspeglast í fjölmörgum jákvæðum umsögnum frá ánægðum gestum og samstarfsaðilum.
Nánari upplýsingar má finna á CityWalk.is.
The post CityWalk gönguferðir í Reykjavík appeared first on Sagatrail.
Vatnsdalur og Þingeyri
Saga, náttúra og menningararfur
Vatnsdalur og Þingeyri bjóða upp á einstaka nálægð við náttúru, sögu og menningu – fullkomið fyrir áhugasöm um íslenskan menningararf.
Vatnsdalur – náttúruperla og sögusvið Íslendingasagna
Vatnsdalur er 25 km langur dalur í Húnaþingi vestra og er þekktur fyrir fjölbreytta náttúru og sögulegt gildi. Þar nam Ingimundur gamli Þorsteinson land samkvæmt Landnámu og bjó að Hofi. Í gegnum dalinn liggur Vatnsdalsvegur, 40 km langur, sem fylgir Vatnsdalsá – einni af bestu laxveiðiám Íslands.
Vatnsdalurinn er einnig heimili Vatnsdalshólanna, nær óteljandi hóla sem mynda einstakt landslag og eru vinsælt viðfangsefni náttúruunnenda og ljósmyndara.
Vatnsdæla saga – ættarsaga Hofverja
Vatnsdæla saga segir frá Hofverjum í Vatnsdal og þeirra ættarsögu. Hún hefst um 900 þegar Ingimundur gamli kemur til Íslands og lýkur með dauða Þorkels kröflu á 11. öld. Sagan var líklega rituð um 1270, hugsanlega á Þingeyrum, þar sem mikil bókmenntahefð var til staðar.
Sögusviðið spannar Vatnsdal og nærliggjandi svæði, og margir bæir, bændur og einstaklingar eru nefndir í sögunni. Á mörgum stöðum hafa fundist fornminjar sem tengjast sögutímanum. Myndskreytt sögukort af Vatnsdæla sögu er til sölu víða á Norðurlandi vestra, m.a. í gestastofunni við Þingeyrarkirkju.
Þingeyrarkirkja – fyrsta steinkirkja Íslands
Þingeyrarkirkja var byggð á árunum 1864–1877 að undirlagi Ásgeirs Einarssonar, bónda og alþingismanns. Kirkjan er með bogadreginni hvelfingu, blámálaðri með gylltum stjörnum – sagðar vera 1000 að tölu. Hún hýsir marga forna gripi og eru sumir varðveittir á Þjóðminjasafninu. Kirkjan er nú friðuð og telst til glæsilegustu bygginga í héraðinu, og dregur til sín fjölda ferðamanna árlega.
Klaustrið á Þingeyrum – bókmenntamiðstöð í aldaraðir
Klaustrið á Þingeyrum var stofnað árið 1133 og varð fljótt menningarmiðstöð með öflugu bókmenntastarfi. Þar var Vatnsdæla saga líklega sett á bókfell og er talið að fleiri Íslendingasögur hafi orðið til þar, sérstaklega þær sem gerast í Húnaþingi – svo sem Hallfreðarsaga vandræðaskálds, Bandamannasaga, Heiðarvígasaga og Kormákssaga.
The post Vatnsdalur og Þingeyri appeared first on Sagatrail.
Gljúfrasteinn – hús skáldsins Halldórs Laxness
Nóbelskáldið
Halldór Laxness (1902–1998) var fremstur í flokki íslenskra rithöfunda á 20. öld. Hann upplifði mestu breytingar sem orðið hafa í sögu Íslands á einni öld, frá bændasamfélagi til nútímans. Þegar hann hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1955 sameinaðist þjóðin um hann sem helsta tákn íslenskrar menningar og bókmennta. Gljúfrasteinn hús Halldórs Laxness í Mosfellsdal er í dag safn sem heldur minningu hans á lífi.
Ritverk Halldórs Laxness
Halldór Laxness var afkastamikill íslenskur rithöfundur sem skrifaði þrettán stórar skáldsögur, fimm leikrit og leikgerð að einni skáldsögu. Hann gaf einnig út smásagnasöfn, greinasöfn og endurminningarbækur. Bækur hans hafa verið þýddar á 43 tungumál og komið út í yfir 500 útgáfum.
Fjölbreytni verka hans á sér fáar hliðstæður í íslenskum bókmenntum. Hann þýddi m.a. Fjallkirkjuna eftir Gunnar Gunnarsson, Birtíng eftir Voltaire og verk eftir Ernest Hemingway.
Gljúfrasteinn – heimili og vinnustaður skáldsins
Gljúfrasteinn, hús Halldórs Kiljans og Auðar Sveinsdóttur Laxness, var reist í Mosfellsdal árið 1945.
Halldór valdi staðinn neðan við samnefndan stein í landareign Laxnessbæjarins, þar sem hann undi sér oft sem ungur drengur. Húsið var heimili og vinnustaður skáldsins og fjölskyldu hans í hálfa öld.
Íslenska ríkið keypti húsið árið 2002 og tveimur árum síðar var það opnað almenningi sem safn.
70 ár frá Nóbelsverðlaunum Halldórs Laxness í bókmenntum
Haustið 2025 markar tímamót því þá eru liðin 70 ár frá því Halldór Laxness hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum.
Sjá frétt á vef Gljúfrasteins
Stofutónleikar í Gljúfrasteini
Á sumrin eru haldnir stofutónleikar í Gljúfrasteini alla sunnudaga í júní, júlí og ágúst kl. 16. Þeir skapa einstaka upplifun þar sem tónlist og menning mætast í húsinu sem var heimili Nóbelsverðlaunahafa í bókmenntum.
Bókanir í skoðunarferðir
Í móttökuhúsinu er hægt að bóka í skoðunarferðir um Gljúfrasteinn hús Halldórs Laxness Mosfellsdal. Gestum er ráðlagt að bóka fyrirfram með því að senda tölvupóst á gljufrasteinn@gljufrasteinn.is eða hringja í síma 586-8066.
The post Gljúfrasteinn – hús skáldsins Halldórs Laxness appeared first on Sagatrail.
Frakkar á Íslandsmiðum
Frakkar á Íslandsmiðum er nýjasta perlan á safnastreng Fjarðabyggðar. Safnið er til húsa í tveimur reisulegum byggingum sem Frakkar reistu upp úr aldamótunum 1900: Læknishúsinu og Franska spítalanum á Fáskrúðsfirði. Meginsýningin er þó í undirgöngum sem tengja húsin saman og skapa einstaka upplifun fyrir gesti.
Saga franskra sjómanna á Íslandsmiðum
Blómatími Frakka á Íslandsmiðum hófst um 1860 og stóð í um 50 ár. Á sýningunni er saga franskra skútusjómanna á Íslandi rakin, en Fáskrúðsfjörður var helsta bækistöð þeirra hér við land. Lifandi nærmynd er brugðið upp af lífi sjómanna um borð í frönsku skútunum sem sóttu Íslandsmið og áhorfendur skynja glöggt daglegt líf þeirra og aðstæður.
Franski spítalinn og læknishúsið
Safnið veitir einnig glögga innsýn í starfsemi Franska spítalans upp úr aldamótunum 1900. Þar má fræðast um hvernig franskir sjómenn fengu læknisaðstoð á Fáskrúðsfirði og hvernig byggingarnar gegndu lykilhlutverki í samfélaginu. Læknishúsið og spítalinn eru í dag endurbyggð og varðveitt sem hluti af menningararfi svæðisins.
Endurgerð Frönsku húsanna
Endurgerð Minjaverndar á Frönsku húsunum á Fáskrúðsfirði lauk sumarið 2014. Húsin eru alls fimm: Læknishúsið, Franski spítalinn, Sjúkraskýlið, Litla kapellan og Líkhúsið. Endurreisnarsaga húsanna er með merkari framkvæmdum Minjaverndar og sú viðamesta utan höfuðborgarsvæðisins.
Nútímastarfsemi Frönsku húsanna
Í dag gegna Frönsku húsin mikilvægu hlutverki fyrir bæjarlíf Fáskrúðsfjarðar. Þar er nú Fosshótel Austfirðir, sælkerastaðurinn l’Abri og safnahús Fransmanna á Íslandi. Litla kapellan hlaut blessun 26. júlí 2014 og er eina byggingin sem heldur upprunalegu hlutverki sínu.
Opnunartími safnsins
Safnið Frakkar á Íslandsmiðum er opið alla daga kl. 10:00–18:00 frá 15. maí til 30. september.
Utan þess tíma er hægt að bóka heimsóknir eftir samkomulagi í síma 470 9063 eða senda tölvupóst á sofn@fjardabyggd.is
The post Frakkar á Íslandsmiðum appeared first on Sagatrail.
Byggðasafnið í Görðum Akranesi
Lifandi menningararfur Akraness
Byggðasafnið í Görðum hefur á síðustu árum orðið eitt helsta aðdráttarafl Akraness. Safnið býður upp á einstaka upplifun fyrir alla, jafnvel þau sem telja sig ekki hafa sérstakan áhuga á söfnum. Hér er saga byggðar, atvinnu og mannlífs sunnan Skarðsheiðar gerð lifandi skil.
Grunnsýningin – saga frá 17. öld til nútímans
Ný grunnsýning opnaði 15. maí 2021 og leiðir gesti í gegnum sögu svæðisins frá litlu sjávarþorpi á 17. öld til nútímalegs kaupstaðar með um átta þúsund íbúa. Sýningin spannar bæði sjósókn og sveitalíf, atvinnu og samfélag, og byggir á samspili frásagna, mynda og muna á báðum hæðum hússins.
Fjórir hlutar sýningarinnar
Sýningin skiptist í fjóra hluta sem endurspegla daglegt líf í gegnum aldirnar:
Lífið til sjós – saga sjómanna og sjávarútvegs.
Lífið í landi – sveitasamfélag og daglegt líf í byggð.
Lífið í vinnu – iðnaður, störf og afrek einstaklinga.
Lífið í leik – menning, tómstundir og samfélagslíf.
Gestir kynnast einstaklingum sem settu svip sinn á samfélagið og heyra sögur af smáum og stórum afrekum.
Sýningin er byggð á samspili muna, mynda og frásagna sem lifna við með hljóðleiðsagnartækni á íslensku og ensku.
Gömul hús og kútter Sigurfari
Á undanförnum árum hafa gömul hús sem tengjast sögu Akraness verið flutt á safnið og gerð upp til minningar um liðna tíð. Þar má einnig finna vísi að bátasafni og sjá kútter Sigurfara, eina kútterinn sem varðveittur er á Íslandi.
Garðahúsið, gamli prestsbústaðurinn frá 1876, er fyrsta steinsteypta íbúðarhúsið af sinni gerð sem byggt var hérlendis og jafnvel á Norðurlöndum.
Lifandi hljóðleiðsögn og útisvæði
Sýningin er studd af hljóðleiðsögn á íslensku og ensku sem gerir upplifunina persónulega og aðgengilega.
Á útisvæðinu má skoða byggingar sem tengjast sögu sjómanna og samfélagsins, og njóta útsýnis að Akrafjalli – sama fjalli og blasti við landnámsmönnum á 9. öld.
Upplýsingar og heimsóknir
Tekið er á móti hópum og hægt er að bóka heimsóknir í gegnum
museum@museum.is eða í síma 433-1150.
Nánari upplýsingar um opnunartíma, viðburði og helstu fréttir má finna á vef safnsins museum.is/is
Markaðsstofa Vesturlands
Kíktu hér á síðu Markaðsstofu Vesturlands til að fá fleiri hugmyndir að afþreyingu á Vesturlandi.
The post Byggðasafnið í Görðum Akranesi appeared first on Sagatrail.
Akranesviti
Tákn Vesturlands
Akranesviti stendur vestast á Akranesi og er eitt af helstu kennileitum Vesturlands. Vitarnir eru tveir: sá eldri var reistur árið 1918 á Suðurflös eftir teikningum Thorwalds Krabbe og er einn elsti steinsteypti viti landsins. Hann er ferstrendur, hvítmálaður og 10 metra hár. Ljóshús hans var upphaflega byggt úr stálplötum sem bjargað var úr skipinu Goðafossi sem strandaði árið 1917. Núverandi ljóshús smíðuðu Kiwanismenn árið 1992.
Á árunum 1943–1944 var reistur nýr sívalur viti austan við þann eldri, eftir teikningu verkfræðingsins Axels Sveinssonar. Hann er 22,7 metrar á hæð og var tekinn í notkun árið 1947. Ljóseinkenni vitans er Fl(2)WRG 20s, sem þýðir tvö blikkljós í þrískiptum geira á 20 sekúndna fresti.
Ferðamannaupplifun í Akranesvita
Í dag er Akranesviti opinn almenningi og hefur orðið eitt vinsælasta aðdráttarafl Akraness. Gestir geta gengið upp í vitann og notið stórfenglegrar fjallasýnar frá Reykjanesskaga til Snæfellsjökuls. Vitinn er einnig notaður fyrir listsýningar og tónleika, þar sem hljómburðurinn er einstakur og upplifunin ógleymanleg.
Hvort sem þú hefur áhuga á sögu og menningu eða einfaldlega vilt njóta útsýnis og einstakrar stemningar þá er Akranesviti staður sem þú mátt ekki láta fram hjá þér fara.
Upplýsingar fyrir gesti
Upplýsingamiðstöð ferðamanna á Akranesi er starfrækt í þjónustuhúsi Akranesvita. Þar er hægt að fá nánari upplýsingar um vitann, opnunartíma og viðburði sem tengjast honum. Á vef Akraness má finna yfirlit helstu viðburða á svæðinu.
Hér á síðu markaðsstofu Vesturlands getur þú fengið fleiri hugmyndir að afþreyingu og upplifun á Vesturlandi.
The post Akranesviti appeared first on Sagatrail.