Norðurland Archives - Sagatrail

Sögusetur íslenska fjárhundsins
Sýning tileinkuð þjóðarhundi Íslendinga

Sögusetur íslenska fjárhundsins er lifandi og fræðandi sýning sem varpar ljósi á sögu, hlutverk og sérstöðu þessa einstaka hundakyns. Markmið setursins er að varðveita menningararfinn sem tengist íslenska fjárhundinum og gera hann aðgengilegan fyrir gesti á öllum aldri. Hér er sagan sögð á sjónrænan, hlýjan og persónulegan hátt.

Opnun og þróun sýningarinnar

Sögusetrið opnaði í maí 2025 eftir þriggja ára undirbúningsvinnu menningarfræðingsins Evelynar Ýrar á Lýtingsstöðum. Hún hefur safnað saman fjölbreyttu efni sem sýnir hvernig íslenski fjárhundurinn hefur fylgt Íslendingum frá landnámi og gegnt lykilhlutverki í daglegu lífi, búskap og menningu þjóðarinnar.

Fræðsla, myndefni og gagnabankar

Gestir geta kynnt sér sögu hundakynsins á íslensku, ensku, þýsku og frönsku, skoðað heimildarmyndir, gamlar ljósmyndir og listaverk sem sýna þróun og einkenni fjárhundsins. Einnig er hægt að fletta í gegnum bækur og nafna- og litagagnabanka, auk þess að sjá hundinn í nærmynd og hlusta á sögur sem tengjast kyninu. Íslensku fjárhundarnir á Lýtingsstöðum taka gjarnan á móti gestum og skapa notalegt andrúmsloft.

Torfhesthús og byggingararfleifð

Árið 2015 lét fjölskyldan á Lýtingsstöðum reisa torfhesthús, skemmu og rétt sem endurspegla hefðbundna íslenska byggingalist. Þessar byggingar eru meistaraverk torfhandverks og sýningin þar fjallar um hvernig hrossum var haldið á árum áður og hvernig saga fólks og hrossa á Íslandi fléttast saman. Boðið er upp á hljóðleiðsögn á fjórum tungumálum sem tekur um 30 mínútur og hentar vel börn sem fullorðna. Einnig er hæt að fá sér leiðsögn fyrir hópa.

Lýtingsstaðir og sögulegt samhengi

Lýtingsstaðir eiga rætur að rekja til landnámsaldar þegar Lýtingur nam land á svæðinu. Bærinn var höfuðból um aldir og þar stóð hálfkirkja frá 11. til 18. aldar sem síðar var notuð sem þinghús fram á 20. öld. Þótt upprunalegar torfbyggingar hafi ekki varðveist gefa torfhúsin frá 2015 góða mynd af lífi og búskap fyrri tíma.

Menningarupplifun fyrir gesti

Ferðaþjónusta hefur verið rekin á Lýtingsstöðum frá árinu 2000 samhliða hefðbundnum búskap. Þar er boðið upp á hestaferðir, gistingu og heimsóknir sem tengja saman íslenska menningararfleifð: hinn einstaka íslenska hest, torfbyggingar og auðvitað íslenska fjárhundinn. Sögusetur íslenska fjárhundsins er því kjörinn viðkomustaður fyrir þau sem vilja kynnast íslenskri sögu og menningu á lifandi og persónulegan hátt.

Tíu afþreyingar í nágrenni við Setur íslenska fjárhundsins

Farðu í bátsferð með leiðsögn út í Drangey, þar sem heimamenn veiddu fugla og tíndu egg um aldir. Þar dvaldi einnig útlaginn Grettir Ásmundarson á flótta undan yfirvöldum.

Baðaðu þig í endurgerðri Grettislaug á Reykjaströnd, þar sem Grettir sterki hitnaði eftir sundið frá Drangey í land.

Upplifðu Örlygsstaðabardaga á sýndarveruleikasýningunni 1238: Baráttan um Ísland á Sauðárkróki.

Heimsæktu torfbæinn í Glaumbæ og kynnstu byggingarlist og daglegu lífi fyrri alda. Þar er einnig stytta af Guðríði Þorbjarnardóttur og syni hennar Snorra Þorfinnssyni.

Farðu í spennandi fljótasiglingu í Austari- eða Vestari-Jökulsá.

Nýttu tækifærið og farðu í hestaferð í Skagafirði, vöggu íslenskrar hestamennsku. Að hausti eru stóðréttir í Laufskálarétt ógleymanleg upplifun.

Heimsæktu Hóla í Hjaltadal sögufrægan menningarstað í nær þúsund ár.

Kynntu þér sögu vesturferða á Vesturfarasetrinu á Hofsósi.

Syntu og slakaðu á í sundlauginni á Hofsósi með stórbrotnu útsýni yfir Drangey og fjörðinn.

Heimsæktu Víðimýrarkirkju nærri Varmahlíð, eina fallegustu og best varðveittu torfkirkju landsins frá árinu 1834.

Nánari upplýsingar má finna á visitskagafjordur.is.

The post Sögusetur íslenska fjárhundsins appeared first on Sagatrail.

Vatnsdalur og Þingeyri
Saga, náttúra og menningararfur

Vatnsdalur og Þingeyri bjóða upp á einstaka nálægð við náttúru, sögu og menningu – fullkomið fyrir áhugasöm um íslenskan menningararf.

Vatnsdalur – náttúruperla og sögusvið Íslendingasagna

Vatnsdalur er 25 km langur dalur í Húnaþingi vestra og er þekktur fyrir fjölbreytta náttúru og sögulegt gildi. Þar nam Ingimundur gamli Þorsteinson land samkvæmt Landnámu og bjó að Hofi. Í gegnum dalinn liggur Vatnsdalsvegur, 40 km langur, sem fylgir Vatnsdalsá – einni af bestu laxveiðiám Íslands.

Vatnsdalurinn er einnig heimili Vatnsdalshólanna, nær óteljandi hóla sem mynda einstakt landslag og eru vinsælt viðfangsefni náttúruunnenda og ljósmyndara.

Vatnsdæla saga – ættarsaga Hofverja

Vatnsdæla saga segir frá Hofverjum í Vatnsdal og þeirra ættarsögu. Hún hefst um 900 þegar Ingimundur gamli kemur til Íslands og lýkur með dauða Þorkels kröflu á 11. öld. Sagan var líklega rituð um 1270, hugsanlega á Þingeyrum, þar sem mikil bókmenntahefð var til staðar.

Sögusviðið spannar Vatnsdal og nærliggjandi svæði, og margir bæir, bændur og einstaklingar eru nefndir í sögunni. Á mörgum stöðum hafa fundist fornminjar sem tengjast sögutímanum. Myndskreytt sögukort af Vatnsdæla sögu er til sölu víða á Norðurlandi vestra, m.a. í gestastofunni við Þingeyrarkirkju.

Þingeyrarkirkja – fyrsta steinkirkja Íslands

Þingeyrarkirkja var byggð á árunum 1864–1877 að undirlagi Ásgeirs Einarssonar, bónda og alþingismanns. Kirkjan er með bogadreginni hvelfingu, blámálaðri með gylltum stjörnum – sagðar vera 1000 að tölu. Hún hýsir marga forna gripi og eru sumir varðveittir á Þjóðminjasafninu. Kirkjan er nú friðuð og telst til glæsilegustu bygginga í héraðinu, og dregur til sín fjölda ferðamanna árlega.

Klaustrið á Þingeyrum – bókmenntamiðstöð í aldaraðir

Klaustrið á Þingeyrum var stofnað árið 1133 og varð fljótt menningarmiðstöð með öflugu bókmenntastarfi. Þar var Vatnsdæla saga líklega sett á bókfell og er talið að fleiri Íslendingasögur hafi orðið til þar, sérstaklega þær sem gerast í Húnaþingi – svo sem Hallfreðarsaga vandræðaskálds, Bandamannasaga, Heiðarvígasaga og Kormákssaga.

The post Vatnsdalur og Þingeyri appeared first on Sagatrail.

Þrístapar Vatnsdalshólum
Sögulegur aftökustaður

Þrístapar eru þrír hólar í vestanverðum Vatnsdalshólum, skammt norðan við Hringveginn. Staðurinn er þekktur fyrir síðustu opinberu aftöku á Íslandi árið 1830, sem tengdist morðmáli á Illugastöðum. Hólarnir bera vitni um dramatíska sögu sem hefur sett sinn svip á réttarsögu og menningarsögu Norðurlands.

Síðasta opinbera aftakan á Íslandi (1830)

Þann 12. janúar 1830 fór fram síðasta opinbera aftakan á Íslandi á Þrístöpum. Agnes Magnúsdóttir og Friðrik Sigurðsson voru dæmd til dauða fyrir morðin á Natani Ketilssyni og Pétri Jónssyni á Illugastöðum árið 1828. Böðullinn var Guðmundur Ketilsson, bróðir Natans.

Minjar á Þjóðminjasafni Íslands 🔗

Öxin og höggstokkurinn sem notuð voru við aftökuna á Agnesi og Friðriki eru varðveitt á Þjóðminjasafni Íslands 🔗

Afsteypa af öxinni er til sýnis á Þrístöpum og veitir gestum áþreifanlega tengingu við söguna.

Bókmenntir um Agnesi Magnúsdóttur og Illugastaðamorðin

Sögu Agnesar hefur verið gerð góð skil í eftirfarandi bókum:

Náðarstund 🔗 eftir Hannah Kent

, sem kom út á íslensku árið 2014

Yfirvaldið eftir Þorgeir Þorgeirsson

Enginn má undan líta eftir Guðlaug Guðmundsson

Saga Natans Ketilssonar 🔗 og Skáld Rósu

eftir Brynjúlf Jónsson frá Minna-Núpi

Hljóðleiðsögn á Þrístöpum

Sumarið 2024 var sett upp hljóðleiðsögn sem leiðir gesti í gegnum söguna, staðhætti og minjar sem tengjast

aftökunni og lífi fólksins sem þar komst við sögu.

Heimsókn á Þrístapa er vel þess virði

Á Þrístöpum er dramatískri sögu Agnesar og Friðriks gerð góð skil. Gestir fræðast um síðustu opinberu aftöku á Íslandi, sjá minjar og fá dýpri innsýn í samfélag, réttarsögu og menningu 19. aldar.

The post Þrístapar Vatnsdalshólum appeared first on Sagatrail.

Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi
Íslensk ull, útsaumur og þjóðbúningar

Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi geymir hina gleymdu iðju frá fortíð til nútíðar. Safnið veitir innsýn í tóvinnu kvenna og karla sem fram fór á heimilum og var stór þáttur í daglegu lífi. Þessi tóvinna var útflutningsiðnaður um aldir – „stóriðja þess tíma“ – þar sem íslenskri ull var breytt í verslunarvöru. Hvert heimili var sjálfbjarga og nýtti ullina til fullnustu.

Atvinnusaga Íslands og heimilisiðnaður

Í safninu má greina hluta af atvinnusögu Íslands og sjá hvernig sjálfþurftarbúskapur og heimilisiðja mæta nútíma viðskiptabúskap á

seinni hluta nítjándu aldar og fram á tuttugustu öld.

Sýning á útsaumi og handverki

Þessi sýning Heimilisiðnaðarsafnsins er sérstaklega hönnuð til að skapa upplifun og hughrif. Til sýnis er fallegur nærklæðnaður kvenna frá fyrri tíð ásamt listilegum útsaumi, hekli og orkeringu. Til að skapa fjölbreytni eru munirnir endurnýttir og skiptir safnið út sýningargripum á milli ára.

Íslenskir þjóðbúningar – skautbúningar, upphlutir og peysuföt

Safnið hefur að geyma úrval íslenskra þjóðbúninga – þar á meðal skautbúninga, upphluti og peysuföt. Sumir búninganna eru frá seinni hluta 19. aldar og upphafi 20. aldar og sýna þróun í klæðnaði þjóðarinnar.

Ullarsýning – íslensk ull og jurtalitir

Gestir geta þreifað á íslenskri ull og fundið mismuninn á togi og þeli. Á sýningunni má sjá handgerð sjöl, prjónuð og hekluð úr togi eða þeli. Sum verk eru jurtalituð en önnur sýna náttúrulega liti ullarinnar. Útprjónaðir vettlingar, sokkar og margt fleira prýða sýninguna.

Halldórustofa – minning um Halldóru Bjarnadóttur

Halldórustofa er sérstök deild innan Heimilisiðnaðarsafnsins, staðsett í efri hluta gamla safnhússins. Hún er kennd við Halldóru Bjarnadóttur (1873–1981) 🔗, þjóðkunna konu sem var heimilisráðunautur Búnaðarfélags Íslands. Halldóra gaf út ársritið Hlín í 44 ár og stofnaði Tóvinnuskólann á Svalbarði í Suður-Þingeyjarsýslu. Hún var brautryðjandi í menntun og menningu kvenna og eflingu heimilisiðnaðar á tuttugustu öld.

The post Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi appeared first on Sagatrail.

Fræðasetur um forystufé
Söguheimur og fróðleikur

Fræðasetur um forystufé var opnað árið 2014 í gömlu samkomuhúsi að Svalbarði í Þistilfirði. Á sýningunni er að finna fjölbreyttan fróðleik um íslenskt forystufé og sögu þess í íslenskum landbúnaði. Gestir fræðast um hvernig þessi einstaka sauðkind hefur verið hluti af menningu og búskaparháttum þjóðarinnar í gegnum aldirnar.

Einkenni íslensks forystufjár

Íslenskar sauðkindur eru fagrar og harðgerðar og skiptast í tvenns konar stofna: forystufé og annað fé. Forystufé hefur fylgt íslensku þjóðinni allt frá landnámi og bændur hafa í gegnum aldirnar notfært sér einstaka hæfileika þess. Íslenska forystuféð er einstakur stofn sem finnst hvergi annars staðar í heiminum. Það sem greinir forystufé frá öðrum kindum er gáfnafar þess og hæfileikinn til að velja bestu leiðir. Forystufé sýnir mikinn dugnað og hörku, og sagt er að það finni á sér þegar veðrabrigði eru yfirvofandi. Það er háfættara og léttara en aðrar sauðkindur og hefur þannig aðlagað sig íslenskum aðstæðum í gegnum aldirnar.

Ullarvörur og handverk úr forystufé

Í safninu er til sölu garn, ullarvörur og handverk sem er sérunnið fyrir setrið. Allar afurðir eru gerðar úr ull og hráefni sem kemur beint frá forystufé. Þannig fá gestir að kynnast bæði hefðbundnu og nútímalegu íslensku handverki.

Listgallerí og kaffihús að Svalbarði

Í húsinu er einnig listgallerí þar sem sýnt er fjölbreytt íslenskt listaverk, og notalegt kaffihús sem býður gestum upp á hvíld og samveru í sögulegu umhverfi. Þannig sameinast menning, saga og íslenskt forystufé í einu rými.

The post Fræðasetur um forystufé appeared first on Sagatrail.

Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði
Stærsta sjóminja- og iðnaðarsafn landsins

Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði er stærsta sjóminja- og iðnaðarsafn landsins. Í þremur ólíkum safnhúsum kynnast gestir síldveiðum og vinnslu á silfri hafsins – síldinni sem var einn helsti örlagavaldur Íslands á tuttugustu öld. Síldariðnaðurinn var svo mikilvægur, að talað var um ævintýri, þegar þjóðin hvarf frá aldalangri fátækt og byggði upp nútíma samfélag.

Róaldsbrakki – saga síldarsöltunar

Róaldsbrakki er norskt síldarhús frá 1907. Þar er flest eins og var á árum áður, þegar síldarstúlkur bjuggu í húsinu sumarlangt. Þar var síðast söltuð síld árið 1968. Húsið var endurbyggt og vígt sem safnhús 1994. Á neðstu hæð er sýning um síldarsöltun með gamaldags munum og kvikmyndum, en á annarri hæð er fjallað um útflutning síldarafurða og áhrif Norðmanna í síldarútvegi á Íslandi.

Bræðsluhúsið Grána – síldarverksmiðjan

Grána var reist 1999–2000 úr viðum gamallar fiskimjölsverksmiðju. Þar er að finna dæmi um litla síldarverksmiðju frá því á fjórða áratugnum og kynnast gestir þar sögu bræðsluiðnaðarins, sem löngum var kallaður fyrsta stóriðja Íslendinga. Sýningin var opnuð 2004 og lýsir hvernig síldin var unnin í mjöl og lýsi sem fóru til iðnaðar og landbúnaðar erlendis.

Bátahúsið – síldarhöfnin endursköpuð

Bátahúsið var byggt 2003–2004 og vígt af Hákoni krónprinsi Noregs. Í Bátahúsinu er leitast við að endurskapa lítinn hluta af síldarhöfninni á landlegukvöldi um 1950 og gefa gestum tækifæri til að gera sér í hugarlund, hvernig það var að ganga um siglfirsku bryggjurnar um miðja síðustu öld.

Salthúsið

Salthúsið er nýjasta viðbót safnsins, flutt sjóleiðis frá Akureyri til Siglufjarðar árið 2014. Í Salthúsinu er að finna veitingahús safnsins Síldarkaffi þar sem gestum gefst tækifæri til að bragða á fjölbreyttum síldarréttum og heimabökuðu bakkelsi. Síldarkaffi er opið til samræmis við opnunartíma safnsins.

Söltunarsýningar og lifandi arfur

Í rúm þrjátíu ár hefur Síldarminjasafnið haldið söltunarsýningar. Lengi var hefð fyrir því að salta á planinu við Róaldsbrakka alla laugardaga í júlí, en í dag eru slíkar sýningar haldnar allt sumarið fyrir ferðahópa eftir bókunum.

Opnunartímar

Júní, júlí & ágúst: 10:00–17:00

Maí & september: 13:00–17:00

Október – apríl: Eftir samkomulagi

Upplifðu síldarárin á Siglufirði

Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði er einstök ferðaupplifun sem sameinar sögulegan fróðleik, lifandi sýningar og stemningu síldaráranna. Komdu og kynnstu arfi sem mótaði íslenskt samfélag og atvinnulíf á 20. öld.

The post Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði appeared first on Sagatrail.

Vesturfarasetrið á Hofsósi
Vesturfarasetrið á Hofsósi – saga íslenskra vesturferða

Vesturfarasetrið á Hofsósi var stofnað árið 1996 til að heiðra minningu þeirra Íslendinga sem fluttu til Norður-Ameríku á árunum 1850–1914. Markmið setursins er að segja sögu fólksins sem fór, varðveita minningu þess og efla tengsl milli afkomenda vesturfaranna og frændfólks á Íslandi. Í þremur sögulegum húsum býður setrið upp á fjórar sýningar, ættfræðiþjónustu, bókasafn og íbúð fyrir fræðimenn.

Sýningar um líf, sögu og landnám Íslendinga í Vesturheimi

Á sýningunni Annað land – Annað líf er fjallað um líf þúsunda Íslendinga sem fluttu til „nýja heimsins“. Þar er rakin saga harðinda, aflabrests og félagslegra aðstæðna sem leiddu til þess að um fjórðungur þjóðarinnar fluttist búferlum til Ameríku.

Sýningin Fyrirheitna landið fjallar um um það bil 400 Íslendinga sem fluttu til Utah á árunum 1852–1914. Þar er gerð grein fyrir trúarlegum og félagslegum aðstæðum, ferðalaginu og nýju lífi landnemanna í vaxandi samfélögum Vesturheims.

Saga Brasilíufaranna er hugaverð sýning sem segir frá 39 Íslendingum sem lögðu af stað út í óvissuna og enduðu í Brasilíu. Þar er varpað ljósi á ferðalagið, aðstæður og líf þeirra í nýju landi.

Akranna skínandi skart. Þessi sýning fjallar um íslenska landnema í Norður-Dakóta og hvernig þeir byggðu upp samfélög sín í nýjum aðstæðum vestanhafs.

Á sýningunni Þögul leiftur má sjá nærri 400 ljósmyndir af íslenskum landnemum í Norður-Ameríku frá tímum vesturferðanna 1870–1910. Myndirnar sýna fólk, búsetu, störf og daglegt líf í nýjum heimi.

Sögulegur bakgrunnur og tengsl við landnámssögu Íslands

Skammt frá Hofsósi er landnámsjörðin Höfði þar sem Þórður, forfaðir Snorra Þorfinnssonar, bjó. Snorri er talinn vera fyrsta barn af evrópskum ættum sem fætt var á meginlandi Ameríku. Foreldrar hans, Þorfinnur karlsefni og Guðríður Þorbjarnardóttir, stofnuðu heimili á Vínlandi um 1004–1006 áður en þau sneru aftur til Íslands og settust að í Skagafirði.

Endurreisn Hofsóss og upphaf Vesturfarasetursins

Hofsós er einn elsti verslunarstaður landsins. Í lok 20. aldar voru mörg sögufræg hús í þorpinu komin í niðurníðslu, en Valgeir Þorvaldsson hóf umfangsmikla endurreisn með það að markmiði að varðveita gamla þorpskjarnann og gera Hofsós að áhugaverðum viðkomustað.

Eftir viðgerðir á gamla Pakkhúsinu frá 1877 var þar sett upp sýningin Nýtt land, nýtt líf í samstarfi við Byggðasafn Skagfirðinga. Þar má einnig finna stofu Stephan G. Stephanssonar, þar sem gestir geta kynnt sér líf og starf þessa íslensk-kanadíska skálds.

Árið 2000 var Frændgarður opnaður, bygging í sama stíl og Pakkhúsið. Þar er að finna sýningarsal, ættfræðisetur, bókasafn, skrifstofur og íbúð fyrir fræðimenn. Þar var fyrst opnuð sýningin Fyrirheitna landið sem fjallar um Íslendinga sem fluttu til Utah á 19. og byrjun 20. aldar.

Árið 2002 var Nýja-Konungsverslunarhúsið opnað og þar má finna sýninguna Akranna skínandi skart. Húsið er byggt eftir gömlum ljósmyndum og hýsir bæði sýningarrými og fjölnotasal.

Vesturfarasetrið í dag

Vesturfarasetrið á Hofsósi hefur gegnt lykilhlutverki í að efla tengsl milli Íslendinga og afkomenda vesturfaranna í Norður-Ameríku. Fjöldi fólks hefur fundið skyldmenni sín handan hafsins og áhugi á sögu vesturferða hefur aukist. Setrið varðveitir sameiginlegan menningararf og býður gestum lifandi innsýn í sögu fólks sem lagði af stað í leit að nýju lífi.

The post Vesturfarasetrið á Hofsósi appeared first on Sagatrail.

Hólar í Hjaltadal
Sögufrægur menningarstaður í nær þúsund ár

Hólar í Hjaltadal eru einn merkasti sögustaður Íslands. Staðurinn er umkringdur tignarlegum fjöllum og rólegri náttúru. Hólar hafa verið menningar- og menntasetur í nær þúsund ár og voru biskupssetur frá 1106 til 1798.

Í dag má á Hólum í Hjaltadal finna Háskólann á Hólum og fjölbreyttar söguminjar sem sýna þróun íslenskrar menningar á lifandi hátt.

Hóladómkirkja og helstu söguminjar

Hóladómkirkja, reist árið 1783, er elsta steinkirkja landsins. Hún er byggð úr rauðum sandsteini frá Hólabyrðu og geymir merkilega gripi sem tengjast trúarlegri og menningarlegri sögu Hóla í Hjaltadal.

Nýibær er torfbær frá árinu 1860. Hann gefur innsýn í íslenska búsetuhefð og daglegt líf fólks í sveitasamfélagi 19. aldar.

Auðunarstofa, eða Timburstofan, var reist á árunum 1316–1317 og stóð í tæp 500 ár. Hún var endurgerð og opnuð á ný árið 2002. Í húsinu eru sýningar á biblíum og prentverkum frá tímum Hólaprentsmiðju, sem starfaði á Hólum í Hjaltadal með hléum á árunum 1530–1799.

Sögusetur íslenska hestsins og lifandi fræðsla

Á Sögusetri íslenska hestsins má fræðast um samspil manns og hests í gegnum aldirnar. Þar er fjallað um sögu, ræktun og menningarlegt hlutverk íslenska hestsins, sem hefur verið mikilvægur hluti af lífi þjóðarinnar frá landnámi.

Gönguleiðir og náttúra

Hólar í Hjaltadal eru umluktir fallegri náttúru og bjóða upp á fjölbreyttar gönguleiðir. Á staðnum eru gönguleiðakort og upplýsingar um áhugaverða staði í nágrenninu.

Gestir geta notið kyrrðar, sögu og náttúrufegurðar Hjaltadals á eigin hraða.

Afþreying og upplifanir í nágrenninu

Skagafjörður er ríkur af sögu, náttúru og lifandi menningu. Hér eru tíu hugmyndir að afþreyingu í nágrenni Hóla í Hjaltadal sem gera ferðalagið enn fjölbreyttara.

Farðu í bátsferð með leiðsögn út í Drangey, þar sem heimamenn veiddu fugla og tíndu egg um aldir. Þar dvaldi einnig útlaginn Grettir Ásmundarson á flótta undan yfirvöldum.

Baðaðu þig í endurgerðri Grettislaug á Reykjaströnd, þar sem Grettir sterki hitnaði eftir sundið frá Drangey í land.

Upplifðu Örlygsstaðabardaga á sýndarveruleikasýningunni 1238: Baráttan um Ísland á Sauðárkróki.

Heimsæktu torfbæinn í Glaumbæ og kynnstu byggingarlist og daglegu lífi fyrri alda. Þar er einnig stytta af Guðríði Þorbjarnardóttur og syni hennar Snorra Þorfinnssyni.

Farðu í spennandi fljótasiglingu í Austari- eða Vestari-Jökulsá.

Nýttu tækifærið og farðu í hestaferð í Skagafirði, vöggu íslenskrar hestamennsku. Að hausti eru stóðréttir í Laufskálarétt ógleymanleg upplifun.

Heimsæktu Kakalaskála og fræðstu um Haugsnesbardaga árið 1246, mesta bardaga Sturlungaaldar, og skoðaðu „Grjóther“ Sigurðar Hansen.

Kynntu þér sögu vesturferða á Vesturfarasetrinu á Hofsósi.

Syntu og slakaðu á í sundlauginni á Hofsósi með stórbrotnu útsýni yfir Drangey og fjörðinn.

Heimsæktu Víðimýrarkirkju nærri Varmahlíð, eina fallegustu og best varðveittu torfkirkju landsins frá árinu 1834.

Nánari upplýsingar má finna á visitskagafjordur.is.

The post Hólar í Hjaltadal appeared first on Sagatrail.

Laufás í Eyjafirði
Sögulegt prestssetur í Eyjafirði

Laufás í Eyjafirði er eitt merkasta prestssetur landsins og hefur verið í stöðugri byggð frá kristnitöku. Hér má sjá hvernig líf og búskapur þróaðist á gróðursælum jörðum Eyjafjarðar, þar sem kirkja, bær og samfélag mynduðu heild sem stendur enn sterk í dag. Í elsta hluta bæjarins má rekja byggingarsögu allt aftur til 16. og 17. aldar og gestir upplifa skýra tengingu við fortíðina þegar gengið er um rými sem hafa varðveist í aldaraðir.

Gamli bærinn og kirkjan

Bærinn í Laufási í Eyjafirði er reisulegur burstabær, dæmigerður fyrir íslenska byggingarhefð 19. aldar en þó stærri en margir sambærilegir bæir. Algengt var að tuttugu til þrjátíu manns hefðu þar heimili, enda fylgdu jörðinni rík hlunnindi og mikil vinna. Nú er bærinn búinn húsmunum og áhöldum líkast því sem tíðkaðist um aldamótin 1900 og gefur gestum lifandi innsýn í daglegt líf fyrri tíma. Kirkjan sem stendur í dag var reist árið 1865 og geymir meðal annars predikunarstól frá 1698. Við austurgaflinn stendur eitt elsta reynitré landsins frá árinu 1855.

Gestastofa og fræðsla

Í gamla prestssetrinu er starfrækt Gestastofa Laufáss þar sem lögð er áhersla á móttöku ferðamanna og fræðslu um sögu staðarins, náttúruna og nánasta umhverfi. Þar er hægt að fá kaffi og léttar veitingar, njóta útsýnisins eða líta í bækur og blöð í bókahorni. Í gestastofunni er einnig handverks- og minjagripaverslun með fjölbreyttu úrvali frá listafólki og handverksfólki af svæðinu.

Menningararfur og varðveisla

Gamli bærinn í Laufási í Eyjafirði er hluti af húsasafni Þjóðminjasafns Íslands en Minjasafnið á Akureyri hefur umsjón með rekstri hans. Þar er lögð áhersla á að varðveita menningararfinn og gera hann aðgengilegan fyrir gesti á öllum aldri. Staðurinn er einstakur til að kynnast íslenskri byggingarhefð, kirkjusögu og lífsháttum fyrri alda á lifandi og áreiðanlegan hátt.

Upplifun í fallegu umhverfi

Laufás í Eyjafirði stendur í gróðursælu og friðsælu umhverfi við Eyjafjörð þar sem náttúran umlykur gamla bæinn og kirkjuna. Gestir geta notið rólegs andrúmslofts, gengið um svæðið og upplifað hvernig landslag og búseta hafa mótað líf fólks í gegnum aldirnar. Heimsókn í Laufás í Eyjafirði er ferðalag í gegnum tímann sem skilur eftir sig djúp spor og dýpri skilning á íslenskri menningu og sögu.

Tíu hugmyndir að afþreyingu í Eyjafirði og nágrenni:

Skoðaðu fjölbreytta og heillandi list á Listasafni Akureyrar, auk þess sem hægt er að heimsækja Flugsafn Íslands og Mótorhjólasafn Íslands.

Sundlaug Akureyrar er vatnaparadís fyrir alla fjölskylduna með tveimur 25 metra laugum, þremur rennibrautum og þeirri lengstu á Íslandi.

Rölttu um litríkan Lystigarðinn á Akureyri, sem er opinn yfir sumartímann og býður upp á fjölbreytt gróðursafn.

Prófaðu stand-up paddleboarding, kajak eða aðrar vatnsíþróttir við höfnina á Akureyri. Upplagt fyrir þá sem vilja blanda útivist og ævintýrum.

Aktu inn í Eyjafjarðarsveit og skoðaðu Jólahúsið, Smámunasafnið, kirkjurnar og fleiri áhugaverða staði í sveitinni.

Slakaðu á í Skógarböðunum við Akureyri eða farðu í Bjórböðin á Árskógssandi og smakkaðu á Kalda bjór.

Komdu að vetri til og upplifðu skíðasvæðin á Akureyri, Ólafsfirði, Dalvík og Siglufirði. Einnig er hægt að fara í þyrluskíðaferðir frá Svarfaðardal.

Farðu í hvalaskoðun frá Akureyri, Hauganesi eða Árskógssandi og njóttu stórbrotinnar náttúru Eyjafjarðar á leiðinni.

Upplifðu friðsæld Hríseyjar, líttu inn í Hús Hákarlajörundar og lærðu um hákarlaveiðar. Farðu í Hríseyjar laug og gakktu svo um eyjuna sem er þekkt fyrir ríkulegt fuglalíf og gróðursæld.

Heimsæktu fjallabæinn Siglufjörð en þar er Síldarminjasafnið og veitingahús staðarins sem þekkt er fyrir einstaka menningar- og matarupplifun.

Nánari upplýsingar má finna á visitakureyri.is

The post Laufás í Eyjafirði appeared first on Sagatrail.

Minjasafnið á Akureyri
Saga og starfsemi safnsins

Minjasafnið á Akureyri er fjölbreytt menningarstofnun sem safnar, varðveitir og miðlar sögu Eyjafjarðar. Starfsemin nær yfir sýningar, fræðslu og rannsóknir. Safnið hefur aðsetur í reisulegu íbúðarhúsi frá 1934 og í sýningarsölum sem byggðir voru árið 1978. Þar má sjá gripi og frásagnir sem varpa ljósi á daglegt líf, menningu og samfélag fyrri tíma.

Sögulegur garður og kirkja í umsjón Minjasafnsins á Akureyri

Í Minjasafnsgarðinum stendur svartbikuð timburkirkja sem er stærsti gripur safnsins. Hún var reist á Svalbarði árið 1846 og er gott dæmi um íslenskar sveitakirkjur nítjándu aldar. Garðurinn sjálfur er einnig merkilegur. Hann er einn örfárra varðveittra íslenskra skrúðgarða frá aldamótunum 1900 og er talinn safngripur í eigin rétti.

Skáldahús í tengslum við Minjasafnið á Akureyri

Tvö skáldahús eru í umsjón safnsins. Nonnahús, byggt árið 1849, var æskuheimili Jóns Sveinssonar sem skrifaði vinsælar barnabækur um Nonna og Manna. Davíðshús var heimili skáldsins Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi og var gert að safni árið 1965. Þar er boðið upp á leiðsagnir sem gefa innsýn í líf og verk skáldsins.

Fleiri sýningar og tengd hús

Safnið sér einnig um Gamla bæinn í Laufási, torfbæ sunnan við Grenivík sem er hluti af húsasafni Þjóðminjasafns Íslands. Þar má sjá íslenska byggingarhefð og búsetu fyrri alda á lifandi hátt. Fyrir börn og fjölskyldur er Leikfangasafnið vinsælt viðkomustaður og hentar vel sem hluti af heimsókn á svæðið.

Upplifun fyrir alla aldurshópa

Minjasafnið á Akureyri sameinar sögulegt umhverfi, fjölbreyttar sýningar og lifandi frásagnir. Safnið hentar vel fyrir gesti sem vilja kynnast menningu og sögu Norðurlands á aðgengilegan og skýran hátt. Hér má upplifa bæði stórar sögur og smáar minningar sem mótuðu samfélagið í Eyjafirði.

Tíu hugmyndir að afþreyingu í Eyjafirði og nágrenni:

Skoðaðu fjölbreytta og heillandi list á Listasafni Akureyrar, og síðan Flugsafn Íslands og Mótorhjólasafn Íslands.

Sundlaug Akureyrar er vatnaparadís fyrir alla fjölskylduna með tveimur 25 metra laugum, þremur rennibrautum og þeirri lengstu á Íslandi.

Rölttu um litríkan Lystigarðinn á Akureyri, sem er opinn yfir sumartímann og býður upp á fjölbreytt gróðursafn.

Prófaðu stand-up paddleboarding, kajak eða aðrar vatnsíþróttir við höfnina á Akureyri. Upplagt fyrir þá sem vilja blanda útivist og ævintýrum.

Aktu inn í Eyjafjarðarsveit og skoðaðu Jólahúsið, Smámunasafnið, kirkjurnar og fleiri áhugaverða staði í sveitinni.

Slakaðu á í Skógarböðunum við Akureyri eða farðu í Bjórböðin á Árskógssandi og smakkaðu á Kalda bjór.

Komdu að vetri til og upplifðu skíðasvæðin á Akureyri, Ólafsfirði, Dalvík og Siglufirði. Einnig er hægt að fara í þyrluskíðaferðir frá Svarfaðardal.

Farðu í hvalaskoðun frá Akureyri, Hauganesi eða Árskógssandi og njóttu stórbrotinnar náttúru Eyjafjarðar á leiðinni.

Upplifðu friðsæld Hríseyjar, líttu inn í Hús Hákarlajörundar og lærðu um hákarlaveiðar. Farðu í Hríseyjarlaug og gakktu svo um eyjuna sem er þekkt fyrir ríkulegt fuglalíf og gróðursæld.

Heimsæktu fjallabæinn Siglufjörð en þar er Síldarminjasafnið og veitingahús staðarins sem þekkt er fyrir einstaka menningar- og matarupplifun.

Nánari upplýsingar má finna á visitakureyri.is

The post Minjasafnið á Akureyri appeared first on Sagatrail.