Vatnsdælurefillinn

ArfleifðListVíkingar

Vatnsdæla saga er ættarsaga Hofverja í Vatnsdal og gerist á 9. til 11. öld, saga af ástum, átökum og erjum. Aðal sögusviðið er í Vatnsdalur í Austur-Húnavatnssýslu, en þræðir hennar liggja einnig til Noregs, Svíðþjóðar, Orkneyja og Skotlands. Sagan er talin skrifuð á síðari hluta 13. aldar.

Verkefnið „Vatnsdæla á refli“ á fyrirmynd í Bayeux-reflinum sem saumaður var á 11. öld. Markmiðið er að endurvekja Vatnsdælu og segja söguna, sem er myndræn og átakamikil, út frá nýju sjónarhorni. Samhliða því er fornri útsaumsgerð, refilsaumnum, gerð skil.

Refillinn, sem er staðsettur í gamla Kvennaskólanum á Blönduósi,  er byggður upp þannig að sagan rennur eftir honum eins og teiknimynd. Hann  verður 46 metra langur og geta allir sem óska fengið að sauma út í hann. Þeir sem taka þátt fá nafn sitt í bók sem mun fylgja reflinum.  22 nemendur Listaháskóla Íslands árið 2011 teiknuðu refilinn undir stjórn Kristínar Rögnu Gunnarsdóttur teiknara. Verklok eru áætluð árið 2030.


Tíu hugmyndir að afþreyingu í Húnavatnssýslum:

  1. Ekki missa af því að skoða fallega sjávarklettinn Hvítserk við austanvert Vatnsnes. Samkvæmt þjóðsögunni er hann steinrunninn tröllkarl.
  2. Sjáðu Kolufossa steypast niður Kolugljúfur í Víðidal.
  3. Láttu spá fyrir þér í bolla, spil eða lófa á Spákonuhofinu á Skagaströnd. Kynntu þér sögu Þórdísar spákonu, fyrsta þekkta íbúa á svæðinu.
  4. Kauptu sögukort Vatndælu og skoðaðu sögustaðina í Vatnsdal (falleg hringleið).
  5. Farðu í styttri eða lengri hestaferð í fallegri náttúru svæðisins. Að fara á stökki í grynningum við  Hópið er t.d.  himnesk upplifun.
  6. Prófaðu að laxveiði í Vatnsdalsá eða stangveiði í öðrum ám eða vötnum í nágrenninu
  7. Heimsæktu staðina sem tengdust síðustu aftökunni á Íslandi árið 1930, þar á meðal Þingeyrar og Þrístapa, og lærðu um átakanlega sögu Agnesar Magnúsdóttur í bókinni Náðarstund (Burial Rites).
  8. Stoppaðu við klettaborgina Borgarvirki, í 177 metra hæð, sem var líklega notað í hernaðarlegum tilgangi. Þar eru fallegar stuðlabergsmyndanir.
  9. Farðu í selaskoðunarferð frá Hvammstanga.
  10. Kynntu þér hinn vandaða íslenska þjóðbúning og önnur dæmi um hefðbundinn útsaum og handverk í Textílmiðstöð Íslands á Blönduósi.

Frekari upplýsingar á  www.northiceland.is

Árbraut 31, 540 Blönduósi
textilsetur@simnet.is
www.facebook.com/refillinn
898 4290
Opnunartímar:

15. júní-15. september. Virka daga kl. 13-17.

Á öðrum tímum eftir samkomulagi.

Gestum gefst kostur á að setja spor sín í verkið fyrir hóflegt gjald. Innifalin er kennsla, fræðsla og leiðbeiningar.

HreinlætisaðstaðaLeiðsögnSýning
Samtök um söguferðaþjónustu (SSF) voru stofnuð árið 2006. Þau eru samráðsvettvangur aðila er stunda söguferðaþjónustu á Íslandi, einkum hvað varðar markaðssetningu, gæði og fagmennsku.

Hafa samband

Email: info@sagatrail.is