Sjóminjasafnið Ósvör

ArfleifðByggingarIðnaðurRústir

Sjóminjasafnið í Ósvör samanstendur af tvöfaldri 19. aldar verbúð, salthúsi, fiskreit og þurrkhjalli. Á meðal sýningagripa er áraskipið Ölver sem gefur góða mynd af þeim skipum sem notuð voru til fiskveiða fyrr á öldum. Safnið gefur raunhæfa mynd af aðbúnaði vertíðarfólks  og þeim búnaði sem notaður var til fiskvinnslu á vetrarvertíð á 19. öld. Safnvörðurinn tekur á móti gestum, íklæddur skinnklæðum, samskonar þeim sem notuð voru við sjósókn í Bolungarvík og lýsir því sem fyrir augu ber.

Tíu hugmyndir að afþreyingu á norðanverðum Vestfjörðum:

  1.  Skoðaðu útsýnið af nýjum útsýnispalli á Bolafjalli, ef þú þorir!
  2.  Heimsæktu Minjasafn Vestfjarða á Ísafirði og fræðstu um sögu svæðisins.
  3. Farðu í gönguferð um gamla bæinn á Ísafirði með Ísafjörður Guide og fræðstu um sögu húsanna og fólksins sem þar bjó.
  4.  Farðu í sjóstangveiði og veiddu í soðið.
  5.  Kynntu þér fyrsta landnema Íslands í Melrakkasetrinu í Súðavík.
  6.  Sigldu til Hornstranda eða út í eyjuna Vigur á Ísafjarðardjúpi.
  7.  Skoðaðu Gömlu smiðjuna á Þingeyri frá 1913 þar sem allar vélar virka enn.
  8.  Skoðaðu listigarðinn Skrúð í Dýrafirði, sem aðrir skrúðgarðar á Íslandi draga nafn sitt af.
  9.  Leggðu upp í kajak-leiðangur framhjá söguslóðum, selum og fuglum.
  10.  Gakktu upp með Dynjanda, frægasta fossi Vestfjarða.

Nánari upplýsingar á www.westfjords.is

Við Óshlíðarveg, 415 Bolungarvík
osvor@osvor.is
www.facebook.com/Osvorsjominjasafn/
892 5744
Opnunartímar:
  • 10. júní – 20. ágúst alla daga 10-16.
  • Á öðrum tímum eftir samkomulagi.
HreinlætisaðstaðaMinjastaður
Samtök um söguferðaþjónustu (SSF) voru stofnuð árið 2006. Þau eru samráðsvettvangur aðila er stunda söguferðaþjónustu á Íslandi, einkum hvað varðar markaðssetningu, gæði og fagmennsku.

Hafa samband

Email: info@sagatrail.is