Rokksafn Íslands
Saga og stemning íslenskrar tónlistar
Rokksafn Íslands er lifandi menningarsetur í Hljómahöll í Reykjanesbæ. Þar geta gestir kynnst sögu íslenskrar popp- og rokktónlistar á skýran og aðgengilegan hátt. Á safninu er tímalína sem nær frá fyrstu heimildum um 1830 og fram til dagsins í dag. Hún sýnir þróun tónlistarlífsins og áhrif þeirra listamanna sem hafa mótað íslenska tónlistarsögu.
Gagnvirk upplifun á Rokksafni Íslands
Á safninu er lítill kvikmyndasalur þar sem sýndar eru heimildarmyndir um íslenska tónlist. Gestir geta einnig prófað hljóðfæri í sérhönnuðu hljóðbúrinu. Þar er hægt að spila á rafmagnstrommur, gítara og bassa. Einnig er hægt að syngja í sérstökum söngklefa. Þessi upplifun hentar bæði fjölskyldum og tónlistarunnendum.
Minjar úr tónlistarsögunni
Á safninu eru margir merkilegir gripir úr íslenskri tónlistarsögu. Þar má sjá trommusett Gunnars Jökuls Hákonarsonar sem notað var á plötunni Lifun með Trúbrot. Einnig er til sýnis kjóll sem Emilíana Torrini klæddist í myndbandinu Jungle Drum. Á safninu er einnig tréskúlptúr af Hjálmum og búningar úr kvikmyndinni Með allt á hreinu. Þar má líka finna fatnað og muni frá Ellý Vilhjálms, Rúnari Júlíussyni, Herberti Guðmundssyni og fleiri þekktum tónlistarmönnum.
Rokkbúð og veitingar
Í Rokkbúðinni er fjölbreytt úrval af tónlistartengdum minjagripum og bókum. Þar er einnig boðið upp á kaffi frá Kaffitári sem gerir heimsóknina notalegri.
Áfangastaður fyrir tónlistarunnendur
Rokksafn Íslands er frábær staður fyrir alla sem vilja kynnast íslenskri tónlistarsögu á lifandi hátt. Safnið sameinar fróðleik, gagnvirkar sýningar og einstaka gripi sem varpa ljósi á menningararf þjóðarinnar.
NÝ SÝNING ROKKSAFNS ÍSLANDS ER VÆNTANLEG SÍÐAR ÁRIÐ 2026.
Tíu hugmyndir af afþreyingu á Reykjanesi:
- Á Reykjanesi eru fjölmargar fallegar gönguleiðir.
- Víkingaheimar eru í fallega hannaðri byggingu í Reykjanesbæ. Þar má sjá víkingaskipið Íslending, eftirlíkingu Gaukstaðaskipsins sem fannst í Noregi árið 1880.
- Gakktu yfir Brúna milli heimsálfa; hvergi er auðveldara að fara á milli Evrópu og Norður-Ameríku.
- Skoðaðu aðra staði í Reykjanes UNESCO jarðvangi, svo sem Fagradalshraun, fallega hraunhella, Gunnuhver eða Brimketil.
- Dáðstu að litríku jarðhitasvæðinu í Seltúni við Krýsuvík og sjáðu gufurnar stíga upp með tilheyrandi brennisteinslykt.
- Upplifðu menningu og sögu Duus húsa í Reykjanesbæ.
- Skoðaðu tignarlegan Reykjanesvita, fyrsta vita landsins. Þar er einnig stytta af síðasta geirfuglinum með útsýni til Eldeyjar.
- Krýsuvíkurbjarg er stærsta fuglabjarg Reykjaness með um 60.000 varpfugla á sumrin. Upplagt fyrir áhugafólk um fuglalíf og náttúru.
- Ef þú ert á ferðinni í myrkri skaltu fylgjast með norðurljósaspá. Í heiðskíru veðri er hrífandi útsýni við Garðskagavita þar sem brimið getur verið stórfenglegt.
- Skelltu þér í eina af sundlaugum eða baðstöðum svæðisins. Vatnaveröld í Keflavík er tilvalin fyrir fjölskyldur og ekki má gleyma hinu heimsfræga Bláa lóni.
Nánari upplýsingar má finna á visitreykjanes.is.










