Hernámssetrið í Hvalfirði

ArfleifðMatur

Hernámssetrið að Hlöðum í Hvalfirði var opnað árið 2012. Þar er sögð einstök og merkileg saga hernáms á árunum 1940 til 1945, saga sem breytti friðsælli sveit í umgjörð heimsviðburða og skipti sköpum fyrir sigur bandamanna í síðari heimsstyrjöld. Þar getur að líta vandað safn minja og minninga sem tengjast sögu hernáms í Hvalfirði á þessum örlagaríku umrótatímum.

Hernámssetrið rekur sögu hersetunnar og skipalestanna, sem lögðu upp í langa og erfiða siglingu frá bækistöðinni í Hvalfirði, og gefur innlendum og erlendum ferðamönnum kost á að kynna sér þessa sögu og arfleifð hennar.

Helstu efnisþættir sem eru til sýnis á Hernámssetinu:

  • Bandaríkin
  • Börn og leikföng
  • Bretland
  • Hjúkrun
  • Ísland
  • Krambúð
  • Landhelgisgæslan (1926-45)
  • Öryggis og varnarmál
  • Rakarastofa
  • Rússland
  • Þýskaland

Kaffihús og minjgripasala eru á staðnum. Einnig gott tjaldsvæði sem er opið júní-ágúst.

Tíu hugmyndir að afþreyingu í Hvalfirði og nágrenni:

  1. Farðu inn í Botnsdal í Hvalfirði og gakktu upp að Glym, hæsta fossi á Íslandi (198 m).
  2. Kíktu á nýja baðstaðinn í Hvammsvík við sunnanverðan Hvalfjörð.
  3. Slappaðu af í Guðlaugu,  náttúrulauginni á Langasandi á Akranesi  og leiktu við börnin á ströndinni.
  4. Heimsæktu Byggðasafn Akraness í Görðum og fræðstu um sögu staðarins í gegnum aldirnar.
  5. Skoðaðu Akranesvita (þeir eru tveir!) og fallegt umhverfi þeirra.
  6. Gakktu upp á Akrafjall, þú verður ekki svikinn af útsýninu þar.
  7. Komdu við á Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri og á Ullarselinu þar og fáðu sögu landbúnaðar á Íslandi beint í æð.
  8. Kynntu þér íslensku geitina, sem er einstakt kyn, og afurðir hennar í geitabúinu að Háafelli.
  9. Heimsæktu Landámssetrið í Borgarnesi og fræðstu um sögu landnáms Íslands, um Egil Skallagrímsson eða farðu á viðburð á Söguloftinu.
  10. Leggstu í bleyti í Kraumu heilsulind við Deildartunguhver, öflugasta hver í Evrópu.

Nánari upplýsingar á www.west.is

Hlöðum á Hvalfjarðarströnd, 301 Akranes
gaui@gauilitli.is
www.warandpeace.is
433 8877
660 8585
Opnunartímar:
  • 28. maí – 28. ágúst föstudaga, laugardaga og sunnudaga 11-17. Lokað mánudaga til fimmtudaga.
  • Utan þess tíma er opnað fyrir hópa samkvæmt samkomulagi.

Salurinn í Hernámssetrinu er leigður út fyrir ýmiss konar viðburði og skemmtanir.

HreinlætisaðstaðaMinjagripasalaSýningVeitingar
Samtök um söguferðaþjónustu (SSF) voru stofnuð árið 2006. Þau eru samráðsvettvangur aðila er stunda söguferðaþjónustu á Íslandi, einkum hvað varðar markaðssetningu, gæði og fagmennsku.

Hafa samband

Email: info@sagatrail.is