1238: Baráttan um Ísland

ArfleifðBókmenntirMargmiðlunVíkingar

Sögusetrið 1238: Baráttan um Ísland á Sauðárkróki er gagnvirk og alltumlykjandi sýning um Örlygsstaðabardaga sem færir þig mun nær sögulegum stóratburðum en hefðbundnar fræðslusýningar.

Stígðu inn í söguna og taktu þátt í Örlygsstaðabardaga, fjölmennustu orrustu sem háð hefur verið á Íslandi, en þar börðust 3000 manns. Orrustan var ein af mörgum á Sturlungaöld (1220-1264), sem gerir hana að blóðugasta og afdrifaríkasta tímabili Íslandssögunnar. Höfðingjaveldi börðust í allsherjar borgarastyrjöld, sem lauk með því að Íslendingar glötuðu sjálfstæði sínu.

Með hjálp nýjustu tækni í miðlun og sýndarveruleika býðst þér að taka þátt í átakamestu atburðum Íslandssögunnar og beinlínis ferðast aftur til Sturlungaaldar. Taktu þér sverð og skjöld í hönd og reyndu fyrir þér sem stríðsmaður Sturlunga

1238 Baráttan um Ísland er áhugverð og fræðandi sýning um Sturlungaöldina, vopn og klæðnað þess tíma. Þar geta gestir gengið í gegnum „brennandi torfhúsˮ áður en þeir láta taka mynd af sér í miðaldaklæðnaði með vopn.  Í andyri sýningarinnar er vönduð minjagripaverslun og veitingastaður með gómsætum mat út héraði.


Tíu hugmyndir að annarri afþreyingu í Skagafirði:

  1. Farðu í bátsferð með leiðsögn út í Drangey þar sem heimamenn létu fé ganga úti, veiddu fugla og týndu egg þeirra. Þar dvaldi útlaginn Grettir Ásmundarson á flótta undan yfirvöldum og var að lokum veginn þar.
  2. Baðaðu þig í endurgerðri Grettislaug á Reykjaströnd, þar sem Grettir sterki hitaði sig upp sig eftir erfitt sund frá Drangey og í land (um 7 km).
  3. Heimsæktu sögu- og listsýninguna í Kakalaskála þar sem þú fræðist um Haugsnesbardaga árið 1246, mesta bardaga Sturlungaaldar. Skoðaðu þar einnig „Grjóther“ Sigurðar Hansen sem er utandyra.
  4. Til að halda áfram ferðinni gegnum söguna skaltu heimsækja hinn vel varðveitta torfbæ í Glaumbæ Þar lærir þú um byggingarlist þess tíma og daglegt líf fólks á öldum áður. Þar er einnig stytta af Guðríði Þorbjarnardóttur, víðförulustu konu víkingaaldar, og syni hennar Snorra Þorfinnssyni sem er sagður vera fyrsti Evrópubúinn sem fæddist í Vesturheimi.
  5. Farðu í skemmtilega fljótasiglingu (rafting) í Austari-og Vestari-Jökulsá.
  6. Á meðal þú ert staddur í vöggu hestamennsku á Íslandi (Skagafirði) er við hæfði að fara í hestaferð. Ef þú ert á ferðinni að hausti skaltu ekki missa af stóðréttunum í Laufskálarétt, sem eru sannkölluð sveitahátíð.
  7. Kynntu þér sögu- og minjastaðinn Hóla í Hjaltadal, fallegu dómkirkjuna þar og sögusetur íslenska hestsins sem er opið á sumrin. Að Hólum er háskóli sem m.a. kennir ferðaþjónustu, hestafræði og fiskeldi.
  8. Á Vesturfarasetrinu á Hofsósi fræðist þú um orlög Íslendinga sem fluttust til Vesturheims undir lok 19. aldar og í byrjun 20. aldar.
  9. Syntu og slakaðu á í sundlauginni á Hofsósi þar sem er frábært útsýni til Drangeyjar og víðar.
  10. Heimsæktu Víðimýrarkirkju, nærri Varmahlíð. Hún var byggð árið 1834 og er ein fallegasta og best varðveitta torfkirkja á Íslandi.

Nánari upplýsingar á www.visitskagafjordur.is

 

Aðalgötu 21, 550 Sauðárkrókur
info@1238.is
www.1238.is/is
588 1238
Opnunartímar:

Daglega frá 11:00 til 16:00.

Verðskrá: Kaupa miða

HreinlætisaðstaðaLeiðsögnMinjagripasalaSýningUpplýsingarVeitingar
Samtök um söguferðaþjónustu (SSF) voru stofnuð árið 2006. Þau eru samráðsvettvangur aðila er stunda söguferðaþjónustu á Íslandi, einkum hvað varðar markaðssetningu, gæði og fagmennsku.

Hafa samband

Email: info@sagatrail.is