Í Skrímslasetrinu á Bíldudal er haldið utan um skrímslasögur Vestfjarða sem lifað hafa með þjóðinni í gegnum aldirnar. Sagt er frá viðureignum manna og skrímsla á nýstárlegan og spennandi hátt. Skemmtileg umgjörð sýningarinnar hefur vakið hrifningu gesta og komið skemmtilega á óvart. Skrímsli við Íslandsstrendur og Vestfirði Fjöldi skrímsla við Íslandsstrendur hefur sést í gegnum aldirnar og síðustu tvö hundruð ár …
Markaðsstofa Vesturlands – Sögulandið Vesturland
Markaðsstofa Vesturlands – Sögulandið Vesturland Markaðsstofa Vesturlands kynnir sögulandið Vesturland og heldur utan um upplýsingar um áhugaverða áfangastaði og fjölbreytta afþreyingu í landshlutanum. Á Vesturlandi blasir sagan við í hverju skrefi og gestir geta ferðast um sögulandið Vesturland þar sem Íslendingasögur, þjóðsögur og frásagnir af mönnum og málefnum lifna við. Sögulandið Vesturland – Íslendingasögur og þjóðsögur Flestar Íslendingasögurnar eru skráðar á …
Duus Safnahús
Duus Safnahús samanstanda af röð bygginga sem endurspegla ríka sögu og menningu svæðisins. Elsta húsið, Bryggjuhúsið, var reist af Duus verslun árið 1877, en yngsta húsið er frá árinu 1954. Þessi gömlu verslunar- og fiskvinnsluhús hafa verið endurnýjuð og hýsa nú sýningarsali Byggðasafns Reykjanesbæjar, Listasafns Reykjanesbæjar og gestastofu Reykjaness UNESCO jarðvangs. Þau eru lifandi menningarmiðstöð þar sem fjölbreytt menningar- og sýningarstarf fer fram. Þar …
Minjasafnið á Akureyri
Minjasafnið á Akureyri hefur frá upphafi verið í reisulegu íbúðarhúsi sem reist var 1934. Í því og sýningarsölunum frá 1978 eru sýningar safnsins. Stærsti gripur Minjasafnsins er svartbikuð timburkirkja stendur í Minjasafnsgarðinum sem var upphaflega byggð að Svalbarði austanmegin Eyjafjarðar árið 1846. Minjasafnsgarðurinn er ein af perlum Minjasafnsins og safngripur í sjálfu sér. Garðurinn er einn örfárra varðveittra íslenskra skrúðgarða frá aldamótunum …
Minjasafn Austurlands
Hreindýrin hafa í gegnum árin skapað náttúru og menningu Austurlands sérstöðu. Á sýningu Minjasafns Austurlands, „Hreindýrin á Austurlandi“, er fjallað um lífshætti og lífsbaráttu hreindýranna, hætturnar sem þau búa við af völdum náttúru og mannsins, um rannsóknir, sögu hreindýraveiða og hvernig afurðir dýranna hafa verið nýttar til matar og í handverki og hönnun. Þar er líka hægt að horfa á …
Þórbergssetur á Hala
Þórbergssetur á Hala í Suðursveit er tileinkað lífi og starfi Þórbergs Þórðarsonar, eins merkasta rithöfundar 20. aldar (1888-1974). Hús setursins er auðþekkjanlegt með sínar risavöxnu bókarkili á efri langhlið. Þar eru fróðlegar og áhugaverðar sýningar um sögu þessarar afskekktu sveitar og verk Þórbergs. Hann ólst upp á Hala, í skugga Vatnajökuls og milli beljandi jökulfljóta. Íbúarnir voru mjög einangraðir, en …
