Safn Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri
Söguheimur Safns Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri
Safn Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri er einstakur áfangastaður þar sem gestir kynnast lífi, starfi og arfleifð Jóns Sigurðssonar í söguríku umhverfi við Arnarfjörð. Á Hrafnseyri mætast náttúra, saga og menning og mynda lifandi heild sem gerir gestum kleift að læra um sjálfstæðisbaráttu Íslendinga á nýjan og persónulegan hátt.
Sýning um Jón Sigurðsson
Sýningin um Jón Sigurðsson gekk í gegnum endurnýjun lífdaga sumarið 2025 en upphaflega var hún hönnuð af Basalt arkitekum árið 2011 í tilefni 200 ára afmælis Jóns. Sýningin segir frá sögu Jóns á marglaga og sjónrænan hátt sem dregur fram dramatík og dýpt í lífi hans.
Á sýningunni er fjallað um menningarstrauma, tækniþróun og sögulega atburði sem mótuðu hugsun og störf Jóns. Textar, myndefni og gripir mynda samfellda frásögn sem höfðar til allra aldurshópa.
Upplifun og fræðsla á Hrafnseyri
Heimsókn á Safn Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri er bæði fræðandi og upplifunarrík. Gestir ganga í gegnum söguna í áföngum og fá tækifæri til að staldra við, skoða muni og velta fyrir sér hugmyndum um frelsi, sjálfstæði og þjóðarvitund. Upplýsingar eru aðgengilegar á íslensku og ensku og henta jafnt einstaklingum, fjölskyldum og hópum.
Opnunartími og hópaþjónusta
Safnið er opið frá 1. júní til 7. september alla daga kl. 11:00–17:00. Utan hefðbundins opnunartíma er hægt að bóka móttöku fyrir hópa í samráði við starfsfólk. Ferðahópar, skólar og aðrir skipulagðir hópar geta þannig skipulagt heimsókn sem hentar þeirra ferðalagi.
Hægt er að hafa samband í síma 456-8260 eða með tölvupósti á hrafnseyri@hrafnseyri.is til að bóka heimsókn eða fá nánari upplýsingar.
Hrafnseyri sem áfangastaður á söguslóðum
Hrafnseyri tengir saman náttúrufegurð Vestfjarða, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar og nútímalega sýningu sem varpar ljósi á sjálfstæðisbaráttu Íslendinga. Heimsókn á Hrafnseyri er kjörin viðbót við ferðalag um Vestfirði fyrir alla sem vilja kafa dýpra í íslenska sögu og menningu.
Gamli torfbærinn, sem er eftirlíking af húsinu sem Jón ólst upp í, hefur verið endurreistur og þar geta gestir gætt sér þar á kaffi, kökum og vöfflum. Sérstök dagskrá er ávallt haldin á Hrafnseyri á þjóðhátíðardegi Íslendinga þann 17. júní, sem jafnframt var afmælisdagur Jóns Sigurssonar.
Tíu hugmyndir að afþreyingu í Arnarfirði og nágrenni:
- Gakktu upp með Dynjanda, frægasta fossi Vestfjarða.
- Heimsæktu Skrímslasafn Íslands á Bíldudal.
- Farðu í sjóstangveiði og veiddu í soðið.
- Skoðaðu gömlu Vélsmiðju Guðmundar J. Sigurðssonar á Þingeyri frá 1913 þar sem allar vélar virka enn.
- Skoðaðu listigarðinn Skrúð í Dýrafirði, sem aðrir skrúðgarðar á Íslandi draga nafn sitt af.
- Skoðaðu Byggðasafn Vestfjarða í Neðstakaupstað á Ísafirði og lærðu meira um sögu svæðisins.
- Skoðaðu útsýnið af nýjum útsýnispalli á Bolafjalli, ef þú þorir!
- Skrafaðu við vermann frá fornri tíð í Sjóminjasafninu í Ósvör.
- Kynntu þér fyrsta landnema Íslands í Melrakkasetrinu í Súðavík.
- Sigldu til Hornstranda eða út í eyjuna Vigur á Ísafjarðardjúpi.
Nánari upplýsingar á www.westfjords.is
















