Melrakkasetur Íslands

MaturÓvenjulegt

Melrakkasetur Íslands í Súðavík sem opnaði í árið 2010 er til húsa í gamla Eyrardalsbænum. Markmið þess er að safna saman á einn stað allri þekkingu, efni og hlutum sem tengjast melrakkanum (refnum/tófunni) í fortíð og nútíð en hann er eina upprunalega landspendýrið á Íslandi. Í húsinu er fræðandi sýning um refi í náttúrunni,  refarækt, safn minja og muna um refaveiðar, lifandi myndefni, uppstoppuð dýr og fleira sem hægt er að skoða með hjálp tækninnar eða hefðbundinna tækja.

Á Melrakkasetrinu er einnig kaffihús og minjagripasala.

Tíu hugmyndir að afþreyingu og á norðanverðum Vestfjörðum:

  1. Heimsæktu Litlabæ í Skötufirði, skoðaðu merkilegar hleðslur þar og gæddu þér á gómsætri rjómavöffu.
  2. Skoðaðu Byggðasafn Vestfjarða í Neðstakaupstað á Ísafirði og lærðu meira  um sögu svæðisins.
  3. Farðu í gönguferð um gamla bæinn á Ísafiði með Ísafjörður Guide og fræðstu um sögu húsanna og fólksins sem þar bjó.
  4.  Farðu í sjóstangveiði og veiddu í soðið.
  5.  Skoðaðu útsýnið af nýjum útsýnispalli á Bolafjalli, ef þú þorir!
  6.  Skrafaðu við vermann frá fornri tíð í Sjóminjasafninu í Ósvör.
  7.  Sigldu til Hornstranda eða út í eyjuna Vigur á Ísafjarðardjúpi.
  8.  Skoðaðu Gömlu smiðjuna á Þingeyri frá 1913 þar sem allar vélar virka enn.
  9.  Skoðaðu listigarðinn Skrúð í Dýrafirði, sem aðrir skrúðgarðar á Íslandi draga nafn sitt af.
  10.  Leggðu upp í kajak-leiðangur framhjá söguslóðum, selum og fuglum.

Nánari upplýsingar á www.westfjords.is

Eyrardal 4, 420 Súðavík
melrakki@melrakki.is
www.melrakki.is
456 4922
Opnunartímar:
  • Maí og september kl. 9-15:30.
  • Júní, júlí og ágúst kl. 9-18.
HreinlætisaðstaðaMinjagripasalaSýningVeitingar
Samtök um söguferðaþjónustu (SSF) voru stofnuð árið 2006. Þau eru samráðsvettvangur aðila er stunda söguferðaþjónustu á Íslandi, einkum hvað varðar markaðssetningu, gæði og fagmennsku.

Hafa samband

Email: info@sagatrail.is