Herjólfsbær Vestmannaeyjum
Landnámabók er hesta heimildin um landnám Íslands. Í einnig gerð hennar, Hauksbók, er Herjólfur Bárðarson sagður fyrsti landnámsmaðurinn í Vestmannaeyjum. Hann settist líklega að í Herjólfsdal um 900. Margét Hermanns-Auðardóttir fornleifafræðingur hóf uppgröft í dalnum árið 1971 í alls fimm sumur (með hléum fram til 1983). Herjólfsbærinn er talinn vera fyrsta grjóthlaðna íbúðarhús á Íslandi. Árið 2005 var byggð eftirmynd þess bæjar í Herjólfsdal (tilgátubær).
Sýningin Líf í Herjólfsdal mun opna í Herjólfsbæ (tilgátubænum) vorið 2023. Þar geta gestir kynnst Herjólfi, fjölskyldu hans og þrælum og þar með heimilislífi fólks á Íslandi við upphaf 10. aldar. Birtast þau gestum sem vandaðar eftirmyndir í fullri stærð af Herjólfi, Freyju konu hans og börnum þeirra, Vilborgu, Melkorku, Flóka og Ásvöru . Þá kynnast gestir einnig þrælunum Kormáki og Immu sem og húsdýrum staðarins. Sýningin er því byggð á þeim heimildum og sögum til eru en einnig á tilgátum og skáldskap til að geta í eyðurna.
Tíu tillögur að afþreyingu í Vestmannaeyjum og á fastalandinu í nágrenninu.
- Gakktu á fell og kletta í Heimaey, svo sem Heimaklett, Helgafell og Eldfell sem varð til í gosinu árið 1973 (jarðvegurinn enn heitur á nokkru dýpi). Þar er frábært útsýni yfir eyjarnar og upp á land.
- Skoðaðu gosminjasýninguna í Eldheimum þar sem fjallað er um Heimaeyjargosið árið 1973 á áhrifamikinn hátt.
- Farðu í siglingu um eyjarnar. Sjáðu þar meðal annars „Fílinn“, klett sem líkist fílshöfði, lunda og aðra sjófugla.
- Prófaðu að sveifla þér í Spröngunni í Heimakletti (kaðall með hnútum), sem er erfiðar en sýnist.
- Heimaey hentar vel til að fara á kajak, stunda hjólleiðar, sjóböð, golf …og fleira!
- Matgæðingar njóta sín vel á góðum veitingastöðum í Eyjum og þar er einnig brugghús!.
- Aftur til meginlandsins: „Safnaðu“ fossum á Suðurlandi. Áhugaverðir fossar eru meðal annars Skógafoss, Seljalandsfoss, Hjálparfoss, Háifoss og Gullfoss.
- Farðu í skipulagað jöklagöngu á Sólheimajökul og í snjósleðaferð á Mýrdalsjökul.
- Skoðaðu svartan sandinn í Reynisfjöru, brimið, stuðlabergsklettana og Reynisdranga. En farðu varlega, öldurnar geta verið lífshættulegar!
- Skoðaðu hin mörgu náttúru- og jarðfræðiundur í Kötlu jarðvangi og heimsæktu Kötlusýninguna á Vík.
Nánari upplýsingar og hugmyndir á www.visitvestmannaeyjar.is og www.south.is