Eldheimar – Vestmannaeyjum
Ímyndaðu þér hvernig það var að vakna upp um miðja nótt við að eldgos var hafið í bænum þínum!
Á gosminjasýningunni í Eldheimum í Vestmannaeyjum kemstu ansi nálægt sannleikanum, en þar er fjallað um Heimaeyjargosið árið 1973 á áhrifamikinn hátt. Þá urðu nær allir íbúar Heimaeyjar, um fimm þúsund manns, að yfirgefa heimili sín í skyndi og flýja eyjuna í skyndi. Margir sáu húsin sín sem og megnið af eigum sínum aldrei aftur. Hraun og aska eyðilögðu þriðjung byggðarinnar í Eyjum, eða tæplega 400 hús og byggingar. Miðpunktur sýningarinnar er húsið, sem stóð við Gerðisbraut 10. Húsið, sem grófst undir ösku í gosinu, hefur nú verið grafið upp. Hægt er að sjá á áhrifamikinn hátt dæmi um hvernig náttúruhamfarirnar fóru með heimili fólks.
Á annarri sýningu í Eldheimum er farið yfir þróun Surtseyjar sem reis úr hafi sunnan við Heimaey árið 1963. Eldgosið í Surtsey stóð í nær 4 ár. Eftir gosið var Surtsey gerð að lokuðu náttúruverndarsvæði sem gerði vísindaheiminum mögulegt að fylgjast með hvernig nýtt líf og vistkerfi verður til. Surtsey hefur verið á heimsminjaskrá UNESCO síðan 2008.
Í Eldheimum er góð minjagripaverslun.
Tíu tillögur að afþreyingu í Vestmannaeyjum og á fastalandinu í nágrenninu.
- Gakktu á fell og kletta í Heimaey, svo sem Heimaklett, Helgafell og Eldfell sem varð til í gosinu árið 1973 (jarðvegurinn enn heitur á nokkru dýpi). Þar er frábært útsýni yfir eyjarnar og upp á land.
- Farðu í siglingu um eyjarnar. Sjáðu þar meðal annars „Fílinn“, klett sem líkist fílshöfði, lunda og aðra sjófugla.
- Prófaðu að sveifla þér í Spröngunni í Heimakletti (kaðall með hnútum), sem er erfiðar en sýnist.
- Heimaey hentar vel til að fara á kajak, stunda hjólleiðar, sjóböð, golf …og fleira!
- Matgæðingar njóta sín vel á góðum veitingastöðum í Eyjum og þar er einnig brugghús!.
- Aftur til meginlandsins: „Safnaðu“ fossum á Suðurlandi. Áhugaverðir fossar eru meðal annars Skógafoss, Seljalandsfoss, Hjálparfoss, Háifoss og Gullfoss.
- . Skoðaðu sögustaði Njáls sögu og vel varðveitta torfbæinn að Keldum á Rangárvöllum.
- Farðu í skipulagað jöklagöngu á Sólheimajökul og í snjósleðaferð á Mýrdalsjökul.
- Skoðaðu svartan sandinn í Reynisfjöru, brimið, stuðlabergsklettana og Reynisdranga. En farðu varlega, öldurnar geta verið lífshættulegar!
- Skoðaðu hin mörgu náttúru- og jarðfræðiundur í Kötlu jarðvangi og heimsæktu Kötlusýninguna á Vík.
Nánari upplýsingar og hugmyndir á www.visitvestmannaeyjar.is og www.south.is