Minjasafnið Bustarfelli
Í hinum fallega dal, Hofsárdal, stendur gamla ættarsetrið Bustarfell. Þessi torfbær, með rauðum stöfnum og grasi vöxnu þaki, er einn af elstu og best varðveittu bæjum sinnar tegundar á landinu. Árið 1532 keyptu Árni Brandsson og kona hans Úlfheiður bæinn Bustarfell. Síðan hefur sama ættin búið þar alla tíð.
Lögð er áhersla á að sýning gripa sé sett upp á sem raunverulegastan hátt þannig að gestir nái að upplifa heimilið rétt eins og íbúar hússins hafi brugðið sér frá stundarkorn. Sérstaða safnsins felst í því hversu vel það miðlar breyttum búskapar- og lifnaðarháttum fólk, allt frá því um 1770 til þess er hætt var að búa í bænum árið 1966. Til að mynda eru þrjú eldhús í bænum sem öll segja sína sögu og tilheyra hvert sínu tímabili.
Frá Bustarfelli er hægt að fara í létta gönguferð upp að Álfkonusteini og Þuríðarfossi. Einnig er það vel þess virði að fara að útsýnisskífu uppi á Bustarfellinu en þaðan er útsýni yfir sveitina og út Vopnafjörð.
Kaffihúsið Hjáleigan er rekið steinsnar frá gamla torfbænum og á opnunartíma hans.
Tíu hugmyndir að afþreyingu í Vopnafirði og nágrenni:
- Heimæktu Múlastofu í Kaupvangi, elsta húsi og menningarmiðstöð Vopnafjarðar. Þar er sögð saga bræðranna og gleðigjafanna Jóns Múla og Jónasar Árasonar, sem ólust upp á svæðinu.
- Skoðaðu söguslóðir Vopnfirðinga sögu.
- Baðaðu þið í fallegu sundlauginni í Selárdal sem staðsett er við bakka Selár.
- Skrepptu upp á Hellisheiði eystri þar sem er gríðargott útsýni yfir Héraðsflóa og víðar.
- Heimsæktu Borgarfjörð eystri og skoðaðu lunda í návígi við smábátahöfnina.
- Skoðaðu á Möðrudal á fjöllum og kynntu þér mikla uppbyggingu á staðnum þar sem Herðubreið gnæfir við himin.
- Skoðaðu Stuðlagil á Jökuldal með sínum ægifögrum bergmyndunum.
- Laugaðu þig í Vök, nýju böðunum við Urriðavatn, skammt frá Egilsstöðum.
- Gakktu upp að Helgifossi í Fljótsdal, sem er meðal hæstu og fegurstu fossa landsins.
- Skoðaðu sýningu um náttúru Vatnajökulsþjóðgarðs í Snæfellsstofu. Hún er í göngufæri frá Skriðuklaustri þar sem fræðast má um skáldið Gunnar Gunnarsson, klausturminjar og snæða í Klausturkaffi.
Nánari upplýsingar og hugmyndir á www.vopnafjardarhreppur. is og www.east.is