Víkingafélagið Rimmugýgur
Elsta starfandi víkingafélag Íslands
Víkingafélagið Rimmugýgur í Hafnarfirði er elsta og stærsta starfandi víkingafélag landsins. Félagið var stofnað árið 1997 og dregur nafn sitt af hinni frægu öxi Skarphéðins Njálssonar úr Brennu-Njáls sögu. Markmið félagsins er að efla áhuga á víkingaöld, menningu þess tíma og uppruna þjóðarinnar með lifandi fræðslu, handverki og bardagalistum.
Áherslur í starfi Rimmugýgs
Starfsemi félagsins byggir á þremur meginstoðum: bardagaæfingum, klæðagerð og handverki sem endurspeglar víkingatímann. Félagar leggja áherslu á vandaða endurgerð vopna, fatnaðar og búnaðar, og fylgja sögulegum heimildum eins náið og unnt er. Bardagaæfingar eru reglulegar og kenna þátttakendum bæði tækni og aga sem einkenndi víkinga á sínum tíma.
Þátttaka á víkingahátíðum
Rimmugýgur hefur í gegnum árin tekið þátt í fjölmörgum víkingahátíðum víðsvegar um Ísland og einnig erlendis. Félagið hefur verið lykilaðili í Víkingahátíð Hafnarfjarðar frá upphafi og tekið að sér skipulagningu og framkvæmd hátíðarinnar frá árinu 2018. Þar sýna félagar bardaga, handverk, leikrænar uppákomur og daglegt líf víkinga á lifandi og skemmtilegan hátt.
Sýningar og fræðsla
Félagið býður einnig upp á fjölbreyttar sýningar og fræðslu fyrir ferðamenn, fyrirtæki, skóla og viðburði af ýmsu tagi. Þar geta gestir kynnst víkingatímanum í gegnum vopnasýningar, handverk, sögur og lifandi uppákomur sem endurskapa andrúmsloft og menningu víkingaaldar.
Rimmugýgur sem hluti af lifandi sögumenningu
Með áratuga reynslu, öflugu félagsstarfi og ástríðu fyrir sögulegri endurgerð hefur Víkingafélagið Rimmugýgur skapað sér mikilvægan sess í íslenskri menningarstarfsemi. Félagið heldur áfram að miðla fróðleik, efla áhuga á fortíðinni og skapa lifandi tengingu við víkingaöld fyrir bæði Íslendinga og erlenda gesti.
Tíu hugmyndir að afþeyingu í Hafnarfirði og nágrenni:
- Kynntu þér bústaði álfanna og „huliðsheima“ Hafnarfjarðar, sem eru m.a. í skrúðgarðinum Hellisgerði og víðar í hraunmyndunum bæjarins.
- Farðu aftur til víkingatímans og taktu þátt í veislu í Fjörukránni. Taktu þátt í árlegri Víkingahátíð Hafnarfjarðar um miðjan júní.
- Heimsæktu vinsæl kaffihús, bakarí og veitingastaði bæjarins, eins og Pallett, Brikk og Von Mathús.
- Í heimsókn þinni í Hafnarfjörð skaltu njóta útsýnisins af Hamrinum eða Ásfjalli og ganga umhverfis Ástjörn eða Hvaleyrarvatn.
- Heimsæktu Hafnarborg, menningar- og listarmiðstöð Hafnarfjarðar. Skoðaðu þar sýningar eða hlustaðu á tónleika.
- Farðu í útreiðartúr með Íshestum í töfrandi náttúru nærri Kaldárseli og Helgafelli.
- Ef þú ert í Hafnarfirði í desember þá máttu ekki missa af heimsókn í Jólaþorpið á Thorsplani.
- Farðu út á Áftanes og skoðaðu kirkjuna á Bessastöðum, herminjar o.fl.
- Skoðaðu tungllandslagið við Kleifarvatn og hverasvæðið við Seltún í Krýsuvík. Stutt er þaðan að Krýsuvíkurbjargi, þar sem er mikið fuglalíf.
- Hjólaðu meðfram sjávarsíðu höfuðborgarsvæðisins, alla leið frá Hafnarfirði að Gróttuvita á Seltjarnarnesi.








