Teigarhorn – fólkvangur
Glitrandi steinar laða ferðalanga til fólkvangsins Teigarhorns við Berufjörð, en þar er einn merkasti fundarstaður geislasteina (zeólíta) í heiminum. Þar finnast auk þess aðrar steindir, s.s. ópall, bergkristall og silfurberg. Bærinn Teigarhorn skipar einnig sérstakan sess í sögu íslenskrar ljósmyndunar. Þar starfaði Nicoline Weywadt, sem hóf störf við ljósmyndun 1872, fyrst kvenna á Íslandi, og systurdóttir hennar, Hansína Björnsdóttir.
Teigarhorn er friðlýst sem fólkvangur og hluti jarðarinnar er náttúruvætti. Á svæðinu starfar landvörður sem vaktar svæðið og veitir allar helstu upplýsingar.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á Suðausturlandi og Austfjörðum:
- Gakktu upp á Búlandstind ofan við Djúpavog, ef þú þorir! Þar er magnað útsýni í allar áttir.
- Lærðu um sögu Hans Jónatans, fyrsta hörundsdökka íbúa Djúpavogs, sem flúði úr þrældómi í Karíbahafi. Hann varð síðan verslunarmaður og mikilvægur þegn í samfélaginu.
- Skoðaðu „Eggin í Gleðivík“, frábært listaverk Sigurðar Guðmundssonar í Djúpavogi. Um er að ræða 34 egg fuglategunda sem verpa í nágrenninu mótuð í steina og í yfirstærð.
- Smakkaðu gómsætan humar einu af veitingahúsinu á Höfn, „höfðustað humarsins“ á Íslandi.
- Prófaðu heitu pottana utandyra að Hoffelli, þar sem er gnægð jarðhita.
- Bókaðu ferð í hreindýraskoðun, fuglaskoðun eða annars konar upplifun í villtri náttúrunni.
- Komdu við og smakkaðu á bjór frá Beljandi handverksbrugghúsi og krá á Breiðdalsvík.
- Skoðaðu síðan fossinn Beljanda í Breiðdalsá, sem brugghúsið er skírt eftir.
- Fjöll Austfjarða eru fræg fyrir litríkar steintegundir; á Steinasafni Petru á Stöðvarfirði er ótrúlega fjölbreytt steinasafn til sýnis.
- Fylgdu í fótsor franskra sjómanna við Ísland sem höfðu bækistöðvar sínar á Fáskrúðsfirði. Skoðaðu Franska spítalann, sem nú hýsir glæsilegt hótel, og sýningu þar um sjómennina.
Nánari upplýsingar og hugmyndir á www.east.is eða www.vistitvatnajokull.is