Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði

ArfleifðByggingarIðnaðurSjávarútvegur

Stærsta sjóminja- og iðnaðarsafn landsins

Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði er stærsta sjóminja- og iðnaðarsafn landsins. Í þremur ólíkum safnhúsum kynnast gestir síldveiðum og vinnslu á silfri hafsins – síldinni sem var einn helsti örlagavaldur Íslands á tuttugustu öld. Síldariðnaðurinn var svo mikilvægur, að talað var um ævintýri, þegar þjóðin hvarf frá aldalangri fátækt og byggði upp nútíma samfélag.

Róaldsbrakki – saga síldarsöltunar

Róaldsbrakki er norskt síldarhús frá 1907. Þar er flest eins og var á árum áður, þegar síldarstúlkur bjuggu í húsinu sumarlangt. Þar var síðast söltuð síld árið 1968. Húsið var endurbyggt og vígt sem safnhús 1994. Á neðstu hæð er sýning um síldarsöltun með gamaldags munum og kvikmyndum, en á annarri hæð er fjallað um útflutning síldarafurða og áhrif Norðmanna í síldarútvegi á Íslandi.

Bræðsluhúsið Grána – síldarverksmiðjan

Grána var reist 1999–2000 úr viðum gamallar fiskimjölsverksmiðju. Þar er að finna dæmi um litla síldarverksmiðju frá því á fjórða áratugnum og kynnast gestir þar sögu bræðsluiðnaðarins, sem löngum var kallaður fyrsta stóriðja Íslendinga. Sýningin var opnuð 2004 og lýsir hvernig síldin var unnin í mjöl og lýsi sem fóru til iðnaðar og landbúnaðar erlendis.

Bátahúsið – síldarhöfnin endursköpuð

Bátahúsið var byggt 2003–2004 og vígt af Hákoni krónprinsi Noregs. Í Bátahúsinu er leitast við að endurskapa lítinn hluta af síldarhöfninni á landlegukvöldi um 1950 og gefa gestum tækifæri til að gera sér í hugarlund, hvernig það var að ganga um siglfirsku bryggjurnar um miðja síðustu öld.

Salthúsið

Salthúsið er nýjasta viðbót safnsins, flutt sjóleiðis frá Akureyri til Siglufjarðar árið 2014. Í Salthúsinu er að finna veitingahús safnsins Síldarkaffi þar sem gestum gefst tækifæri til að bragða á fjölbreyttum síldarréttum og heimabökuðu bakkelsi. Síldarkaffi er opið til samræmis við opnunartíma safnsins.

Söltunarsýningar og lifandi arfur

Í rúm þrjátíu ár hefur Síldarminjasafnið haldið söltunarsýningar.
Lengi var hefð fyrir því að salta á planinu við Róaldsbrakka alla laugardaga í júlí, en í dag eru slíkar sýningar haldnar allt sumarið fyrir ferðahópa eftir bókunum.

Opnunartímar

  • Júní, júlí & ágúst: 10:00–17:00
  • Maí & september: 13:00–17:00
  • Október – apríl: Eftir samkomulagi

Upplifðu síldarárin á Siglufirði

Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði er einstök ferðaupplifun sem sameinar
sögulegan fróðleik, lifandi sýningar og stemningu síldaráranna.
Komdu og kynnstu arfi sem mótaði íslenskt samfélag og atvinnulíf á 20. öld.

Snorragötu 10, 580 Siglufjörður
safn@sild.is
467 1604
Opnunartímar:
  • Júní-ágúst 10-18.
  • Maí og september 11-17.
  • Október-apríl eftir samkomulagi.

Síldarminjasafnið hlaut Íslensku safnaverðlaunin árið 2000 og Evrópuverðlaun safna árið 2004.

HreinlætisaðstaðaLeiðsögnMinjagripasalaSýning
Samtök um söguferðaþjónustu (SSF) voru stofnuð árið 2006. Þau eru samráðsvettvangur aðila er stunda söguferðaþjónustu á Íslandi, einkum hvað varðar markaðssetningu, gæði og fagmennsku.

Hafa samband

Email: info@sagatrail.is