Múlastofa á Vopnafirði
Kaupvangur, elsta hús bæjarins
Múlastofa á Vopnafirði er til húsa í elsta húsi bæjarins, Kaupvangi (byggt 1884), sem jafnframt þjónar sem menningarmiðstöð staðarins. Þar er sögð saga þeirra landskunnu bræðra Jóns Múla og Jónasar Árnasona, sem fæddust að Kirkjubóli í Vopnafirði.
Bræðurnir Jón Múli og Jónas Árnasynir
Jón Múli (1921–2002) var þekktur fyrir störf sín sem útvarpsmaður, jazzisti og lagahöfundur. Jónas (1923–1998) var blaðamaður, ljóðskáld og alþingismaður. Saman sömdu þeir bræður fjölda söngleikja og revía sem nutu mikillar hylli, þar á meðal Deleríum Búbónis og Þið munið hann Jörund. Mörg laga þeirra bræðra hafa jafnframt orðið vinsæl dægurlög.
Upplifun í Múlastofu
Í Múlastofu geta gestir hlýtt á raddir bræðranna, bæði tal og söng, og horft á myndbönd úr safni Ríkissjónvarpsins sem varpa ljósi á líf og störf þeirra.
Kaffihús í Kaupvangi
Gestir eru boðnir velkomnir í kaffihús Kaupvangs, þar sem boðið er upp á nýlagað kaffi og meðlæti. Kaffihúsið er opið á sama tíma og sýningin.
Tíu hugmyndir að afþreyingu í Vopnafirði og nágrenni
- Heimsæktu Minjasafnið á Bustarfelli í Hofsárdal. Skoðaðu gamla, fallega torfbæinn og fáðu þér síðan veitingar í kaffihúsinu Hjáleigunni.
- Skoðaðu söguslóðir Vopnfirðinga sögu.
- Baðaðu þig í fallegu sundlauginni í Selárdal sem staðsett er við bakka Selár.
- Skrepptu upp á Hellisheiði eystri þar sem er gríðargott útsýni yfir Héraðsflóa og víðar.
- Heimsæktu Borgarfjörð eystri og skoðaðu lunda í návígi við smábátahöfnina.
- Skoðaðu Möðrudal á fjöllum og kynntu þér mikla uppbyggingu á staðnum þar sem Herðubreið gnæfir við himin.
- Skoðaðu Stuðlagil á Jökuldal með sínum ægifögru bergmyndunum.
- Laugaðu þig í Vök, nýju böðunum við Urriðavatn, skammt frá Egilsstöðum.
- Gakktu upp að Helgifossi í Fljótsdal, sem er meðal hæstu og fegurstu fossa landsins.
- Skoðaðu sýningu um náttúru Vatnajökulsþjóðgarðs í Snæfellsstofu. Hún er í göngufæri frá Skriðuklaustri þar sem fræðast má um skáldið Gunnar Gunnarsson, klausturminjar og snæða í Klausturkaffi.
Nánari upplýsingar og fleiri hugmyndir má finna á
www.vopnafjardarhreppur.is og www.east.is
















