Ísafjarðarleiðsögn

ByggingarFerðir

Ísafjarðarleiðsögn – ferð í gegnum tímann

Ísafjarðarleiðsögn er lifandi og persónuleg með leiðsögukonunni Helgu um Ísafjörð, höfuðstað Vestfjarða, þar sem vel varðveittur miðbær með húsum frá 19. öld endurspeglar útgerðar- og verslunarsögu staðarins. Gangan leiðir gesti í gegnum sögusvið bæjarins og upp í hlíðina þar sem opnast stórbrotið útsýni yfir fjörðinn og umhverfið sem mótaði líf fólksins sem þar bjó.

Leiðsögn í anda 19. aldar

Leiðsögukonan tekur á móti gestum við upplýsingamiðstöðina, klædd eins og fiskverkakona frá 19. öld. Hún leiðir hópinn um gömlu göturnar, sýnir áhugaverða staði og segir sögur og sagnir úr fortíð og nútíð. Þar fléttast saman frásagnir af fólki, atvinnuháttum, álfum, tröllum og draugum sem hafa fylgt bænum í gegnum aldirnar.

Saga, náttúra og snjóflóðavarnir

Á leiðinni fá gestir innsýn í jarðfræði og gróðurfar Vestfjarða, virkni snjóflóðavarna og hvernig náttúran hefur mótað samfélagið. Leiðsögukonan deilir einnig nestisboxi sínu með þátttakendum, sem gerir upplifunina enn persónulegri og nærandi.

Lengd ferðar og valkostir

Gangan tekur um 2 klukkustundir og hentar hópum frá 2–12 þátttakendum. Að ferð lokinni er hægt að lengja upplifunina um eina klukkustund og velja á milli fræðslu um jarðsögu og jarðfræði, gróður Vestfjarða og haustliti, náttúrugöngu eða bragðprufu á staðbundnum matvælum. Þessar ferðir er einnig hægt að bóka sérstaklega og eru þá 3–5 klukkustundir að lengd.

Sérferðir og persónuleg upplifun

Ísafjarðarleiðsögn býður einnig upp á persónulega leiðsögn og sérferðir samkvæmt beiðni. Hvort sem um er að ræða áhugasama einstaklinga, litla hópa eða ferðamenn sem vilja kafa dýpra í sögu og náttúru Vestfjarða, er upplifunin sniðin að þörfum hvers og eins.


Tíu hugmyndir að afþreyingu á Ísafirði og á norðanverðum Vestfjörðum:

  1.  Skoðaðu Byggðasafn Vestfjarða í Neðstakaupstað á Ísafirði og lærðu meira  um sögu svæðisins.
  2.  Skoðaðu útsýnið af nýjum útsýnispalli á Bolafjalli, ef þú þorir!
  3.  Skrafaðu við vermann frá fornri tíð í Sjóminjasafninu í Ósvör.
  4.  Kynntu þér fyrsta landnema Íslands í Melrakkasetrinu í Súðavík.
  5.  Farðu í sjóstangveiði og veiddu í soðið.
  6.  Sigldu til Hornstranda eða út í eyjuna Vigur á Ísafjarðardjúpi.
  7.  Skoðaðu gömlu Vélsmiðjuna á Þingeyri frá 1913 þar sem allar vélar virka enn.
  8.  Skoðaðu listigarðinn Skrúð í Dýrafirði, sem aðrir skrúðgarðar á Íslandi draga nafn sitt af.
  9.  Leggðu upp í kajak-leiðangur framhjá söguslóðum, selum og fuglum.
  10.  Gakktu upp með Dynjanda, frægasta fossi Vestfjarða.

Nánari upplýsingar á www.westfjords.is

Seljalandsvegi 85, 400 Ísafjörður
contact@isafjordurguide.is
845 0875
Opnunartímar:

Þjónusta allt árið.

GönguleiðirLeiðsögn
Samtök um söguferðaþjónustu (SSF) voru stofnuð árið 2006. Þau eru samráðsvettvangur aðila er stunda söguferðaþjónustu á Íslandi, einkum hvað varðar markaðssetningu, gæði og fagmennsku.

Hafa samband

Email: info@sagatrail.is