Grenjaðarstaður í Aðaldal
Grenjaðarstaður í Aðaldal er einn stærsti torfbær landsins. Elsti hluti hans var reistur árið 1865 en búið var í bænum til ársins 1949. Jörðin er landnámsjörð og fornt höfuðból, kirkjustaður og prestssetur, og þar var áður starfrækt pósthús. Torfbærinn er nú byggðasafn með á annað þúsund gripa og hægt er að ganga þar um og ímynda sér líf ábúenda fyrr á öldum. Á lofti aðstöðuhúss á sömu lóð, Hlöðuloftinu, er salerni, veitingasala og hægt að kaupa íslenskt handverk.
Tíu hugmyndir að afþreyingu á Norðurlandi eystra:
- Láttu heillast af Dettifossi, aflmesta fossi Evrópu, Goðafossi í Aðaldal og Aldeyjarfossi í Bárðardal.
- Heimsæktu náttúruperluna Mývatnssveit, með einstakt fuglalíf, Jarðböðin, Dimmuborgir og leirhverina í Hverarönd.
- Notaðu tækifærið meðan þú ert á Demantshringnum að skoða Ásbyrgi, Hljóðakletta og Jökulsárgljúfur, sem eru allt staðir innan Vatnajökulsþjóðgarðs.
- Farðu í Hvalasafnið og í hvalaskoðun frá Húsavík, miðstöð hvalaskoðunar á Íslandi, þar sem möguleiki er að sjá steypireyði, stærsta dýr á jörðu (allt að 30 m að lengd). Heimsæktu einnig safnahúsið á Húsavík.
- Önnur upplifun á Norðurstrandarleið er að fara í Sjóböðin við Húsavík með frábæru útsýni yfir Skjálfandaflóa og í Byggðasafnið að Mánárbakka á Tjörnesi.
- Haltu áfram Norðurstrandarleiðina og inn í töfra miðnætursólarinnar á Melrakkasléttu, nyrsta svæði á Íslandi. Skoðaðu Byggðasafnið á Snartarstöðum rétt við Kópasker og einnig Skjálftasetrið í þorpinu.
- Þegar áfram er haldið er komið að Heimskautsgerðinu við Raufarhöfn, sem er í byggingu. Frábær staður til að nóta sólarupprásar, sólarlags og norðurljósa að vetrarlagi.
- Eyðileg fegurð Langaness dregur fólk að útgerðarstaðnum Skálanesi, sem nú er rústir einar, rekaviðnum í fjörunni og í súlubyggðinni í Skoruvíkurbjargi. Rétt austan við Þórshöfn er síðan Sauðaneshúsið sem vert er að heimsækja og einnig Forystufjársetið í Þistilfirði, nokkru vestar.
- Á sumrin iðar Norðurland eystra af fuglalífi; kynntu þér fuglaslóðina þar (www.birdingtrail.is)
- Vertu í nánum tengslum við náttúruna í göngu-, hjóla-, eða hestaferð á Norðurlandi eystra.
Nánari upplýsingar og hugmyndir á www.northiceland.is